Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 12
12 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skarfar
í Flatey
Leit að heitu vatni við ísafjörð hefur reynst árangurslaus
Borunum hætt eftir 40
Boranir hófnst í lok maímánaðar
og nemur áætlaður kostnaður við
þær um 25 milljónir ki-óna. Heildar-
kostnaður vegna þessara borana á
síðustu tveimur ái’um, með forrann-
sóknum, ráðgjafarkostnaði og öðru
sem íylgir, nemur hátt í 40 milljón-
um króna, að sögn Sölva Sólbergs-
sonar, tæknifræðings hjá OV.
Kristján Arason, orkubússtjóri
OV, segir að sérfræðingar Orku-
stofnunar muni leggjast yfir gögn
sem liggja fyrir eftir þessar boranir
og að teknar verði ákvarðanir um
framahaldið á gnmdvelli þeirra nið-
urstaðna. „Það eru vissuiega von-
brigði að hafa varið peningum í
þessa framkvæmd og ná ekki þeim
árangri sem stefnt var að. Arsvelta
okkar er um 800 milljónir króna
þannig að þetta eru 5% af ársveltu
og því talsverður kostnaður fyrir
okkur,“ segir Kristján.
Sölvi segir að borunum hafi verið
hætt í bili og vandséð hvort farið
verði aftur af stað. „Það má segja að
líkurnar séu frekar iitlar,“ segii’
Söivi. „Við vissum íyrirfram að þessu
fylgdi mikil áhætta því það er alltaf
talsvert happdrætti hvort borun efth’
heitu vatni tekst eða misheppnast.
En þegar hola gefur ekki nægan hita
veitir hún oft vísbendingar um nýjan
stað og vænlegri. Hins vegar liggur
ekki fyrir hvar vænlegast er að leita
næst eftir þessa holu og má segja að
við höfum verið mjög óheppnir að því
leyti.“
Grynnra hitakerf! en talið var
Sölvi segir að vart megi kaila
þessa borun tilraunaholu, enda hafi
menn vonast eftir að hún nýttist í
framtíðinni fyrir vinnslu. „Orku-
stofnun er tekin að ráðieggja mjög
grunnar holur, um 100 til 150 metra
djúpar, og að margar holur séu bor-
aðar til að fara skipulega yfir við-
komandi svæði. Það var gert í þetta
skipti en síðan var ákveðið að bora
þessa djúpu holu og haft í huga að
hún væri það verkleg að hún gæti
orðið vinnsluhola, bæru boranir góð-
an árangur,11 segir Sölvi. Hann segir
stofnkostnað við holuna hafa verið
talsvert mikinn, hún hafi t.d. verið
fóðruð niður á 200 metra dýpi.
„Eftir á að hyggja hefði mátt
sleppa þessu því að holan vai’ ekki í
lagi. Þarna voru æðar, aðallega efst í
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu
Þátttaka ríkisvaldsins
er ekki á döfinni
ÞAÐ er ekki á döfinni að efna til
þátttöku ríkisins í rekstri almenn-
ingssamgangna á höfuðborgar-
svæðinu, að sögn Sturlu Böðvars-
sonar samgönguráðherra. I Morg-
unblaðinu 3. júlí sl. var fjallað um
hugmyndir danska ráðgjafarfyrir-
tækisins Nes Planners um að
stofna eitt félag sem sæi um allar
almenningssamgöngur á svæðinu.
I fréttinni, sem birtist 3. júlí,
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri að stofnun félags
kæmi varla til greina nema ríkið
kæmi þar að.
Sturla sagði að vel kæmi til
greina að fulltrúar samgönguráðu-
neytis settust niður með fulltrúum
sveitarfélaga höfuðborgarsvæðis-
ins til að ræða þessi mál. Hann
sagði sjálfsagt að þau yrðu rædd í
tengslum við endurskoðun vega-
áætlunar og þá sérstaklega lang-
tímaáætlunar, sem yrði á döfinni
innan tíðar.
„Þá tel ég að það sé eðlilegt að
leggja vinnu í að meta kosti sem
fyrir hendi eru og verða í sam-
göngumálum hér á höfuðborgar-
svæðinu, en þessi vinna er auðvitað
í gangi í tengslum við samstarf um
skipulagsmál á höfuðborgarsvæð-
inu,“ sagði Sturla.
Hugsanlega leitað víðar
Kristján segir áfonnað að leita að
heitu vatni viðar á Vestfjörðum, í
tengslum við átaksverkefni á köldum
svæðum, en þá munu orkufyrirtækin
leggja fram helming kostnaðar á
móti orkusjóðum. „Við vonumst til að
geta haldið áfram á þessu ári, hugs-
anlega í september eða október, og
erum þá að horfa til byggðarlaga frá
Flateyri til Patreksfjarðar. Við mun-
um taka ákvarðanir um það þegar
hagkvæmniathuganir liggja fyrir.“
Skógræktarfélag
Reykjavíkur
ÞESSIR skarfar létu það ekki
raska ró sinni að vera festir á
fílmu þegar Ijósmyndari blaðs-
ins var þar á ferð. Myndin er
tekin í Flatey á Breiðafirði en
Breiðafjarðareyjar eru eitt af
aðalvarpsvæðum skarfa á Is-
landi. Fuglalíf er nú með mikl-
um blóma um allt land og fugla-
áhugamenn hafa næg verkefni
við að dást að sköpunarverkinu.
Nýr fram-
kvæmdastjori
SIGURÐUR G. Tómasson hef-
ur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur.
Asgeir Svan-
bergsson,
sem nú lætur
af störfum
fram-
kvæmda-
stjóra, mun
áfram vinna
að sérverk-
efnum fyrir félagið.
Sigurður er kunnastur fyrir
störf sín í útvarpi en hann var
um árabil ritstjóri dægurmála-
útvarps Rásar 2 og dagskrár-
stjóri rásarinnar. Hann er
kvæntur Steinunni Bergsteins-
dóttur textílhönnuði og eiga
þau tvo syni.
milljóna kr. framkvæmdir
BORANIR eftir heitu vatni á vegum Orkubús Vestfjarða, við
Bræðratungu í Tungudal, hafa ekki borið þann árangur sem von-
ast var eftir en borað var niður á 1.250 metra dýpi. Vatnið sem
kom upp hefur aldrei komist yfír 40 stig.
holunni og niður á 600-700 metra
dýpi, en síðan var vonast eftir að hit-
inn myndi hækka eftir því sem neðar
drægi en það gerðist ekki. Hitakerf-
ið virðist því vera grynnra en talið
var í upphafi," segir hann.
Hann segir vonir hafa staðið til að
ná upp 60-70 stiga heitu vatni en ár-
angurinn hafi ekki orðið meiri en um
40 stig. Reynslan sýni hins vegar að
vatn hitni gjarnan í holum af þessu
tagi og því verði gerðar mælingar að
mánuði liðnum og aftur í haust en
hæpið sé þó að fyrrgreind markmið
náist.
i
i
I
R E YKJAVÍ K
MENNINGARBORG EVRÓPU
ÁRIÐ 2000
í tilefni af því að Reykjavík hefur verið valin ein af
menningarborgum Evrópu árið 2000, munu Leikfélag
Reykjavíkur, Listaháskóli íslands, Norræna húsið og
Orkuveita Reykjavíkur halda Ijósahátíð í nóvembersama
ár. Hátíðin er unnin í samvinnu við Helsinki og Bergen
sem einnig eru menningarborgir og styrkt af Norræna
menningarsjóðnum. Hún verður haldin jafnt úti sem
inni og tilgangur hennar er að sýna og sjá dimmasta
tíma ársins í nýju Ijósi.
Hátíðin mun sameina listviðburði af öllum toga og leita
ofangreindir aðilar hér með eftir hugmyndum frá
myndlistar- og tónlistarmönnum, danshöfundum,
hönnuðum, arkitektum og gjörningahópum.
Nánari upplýsingar gefur Hanna Styrmisdóttir,
verkefnisstjóri, í síma 895 3717 eða hgs@isholf.is
Orkuveita
Reykjavtkur
NORRÆNA HÚSIð
Leikfélag
Reykjawíkur
Listaháskóli
fslands
Einsetning grunnskóla nokkurra sveitarféiaga
Sveitarfélag:
1998 a 2000 II 2001 If 2002
Reykjavík
30 skólar og 4 eru í byggingu:
Einsetningu lokið í 23 skólum haustið 1999.
Einsetningu lýkur í 1 skóla haustiö 2000.
Einsetningu lýkur í 2 skólum haustið 2001.
Einsetningu lýkur í 4 skólum haustiö 2002.
Reykjanesbær Einsetningu lýkur haustið 2000.
Mosfellsbær Einsetningu lýkur haustið 2001. >fc
Hafnarf jörður Einsetningu lýkur haustið 2004. -L.
Bessastaðahreppur Einsetningu lokiö.
Garðabær Einsetningu lokiö. ^5—mrm
Kópavogur Einsetningu lokiö. v Eál
Seltjarnarnes Einsetningu lokiö.
Einsetn-
ingu lýkur
í Hafnar-
firði 2004
STEFNT er að því að einsetningu
grunnskóla Reykjavíkur ljúki
haustið 2002 eins og gert er ráð
fyrir í grunnskólalögum. I flestum
sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu er einsetningu skóla nú
lokið nema í Hafnarfirði þar sem
henni lýkur ekki fyrr en haustið
2004. í Reykjanesbæ er áætlað að
einsetning allra grunnskóla verði
komin í gagnið haustið 2000.
í Reykjavík eru 30 skólar og
fjórir í byggingu sem teknir verða í
notkun á næstu árum og er þá
meðtalinn skólinn sem vera á á
Korpúlfsstöðum. Einsetning er
þegar fyrir hendi í langflestum
skólanna og nokkrir bætast við
næsta haust þannig að alls verða
23 skólar þá einsettir. Á næstu ár-
um lýkur síðan framkvæmdum
vegna einsetningar við sjö skóla en
auk þess standa yfii’ margvíslegar
framkvæmdir í sumum þeirra
skóla sem þegar eru einsettir. Þarf
að stækka þá suma og bæta eða
breyta til að bæta aðstöðu.
Af sex grunnskólum Hafnarfjarð-
ar verða tveir einsetnir næsta haust
en einsetningu þeirra allra lýkur
ekki fyrr en haustið 2004. í Reykja-
nesbæ verða fjórir grunnskólar
bæjarins einsettir frá haustinu 2000
en tveir þeirra eni einsetnir í dag.
í Mosfellsbæ er verið að undir-
búa byggingu nýs skóla og verður
fyrsti áfangi tekinn í gagnið haust-
ið 2001. Kostnaður verður kringum
300 milljónir króna en fram-
kvæmdir hafa einnig staðið yfir við
stækkun Varmárskóla. Hann er að
nokkru leyti tvísetinn í dag en ein-
setning verður að fullu kominn á í
Mosfellsbæ haustið 2001.