Morgunblaðið - 10.07.1999, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 17
Övissa um skólastarf
á Grænagaröi
Flateyri - PRÍR af fjórum kennur-
um leikskólans Grænagarðs á Flat-
eyri eru ekki væntanlegir aftur til
starfa í haust og þar sem enn hefur
ekki tekist að ráða nýtt starfsfólk í
þeirra stað er framtíð skólastarfsins
alls óráðin að loknu sumarfríi. Jens-
ína K. Jensdóttir leikskólastjóri hefur
af þessum sökum neyðst til að segja
öllum börnum Grænagarðs upp pláss-
Morgunblaðið/Högni
inu á skólanum þar til vandamálið
hefur verið leyst.
Málið er til umfjöllunar hjá bæj-
arráði ísafjarðarbæjar því ljóst
þykir að mjög erfitt verði að fá fólk
til starfa að óbreyttum launakjör-
um. Leikskólinn Grænigarður hefur
verið í mikilli og markvissri upp-
byggingu frá árinu 1996 þegar hann
var stofnaður upp úr eldri leikskóla.
Sá hafði verið starfræktur í litlum
skúr sem slapp naumlega í snjóflóð-
inu 1995. Eftir hamfarirnar gaf fær-
eyska þjóðin nýja húsið undir starf-
semi skólans.
Sannkölluð sumarstemmning hef-
ur ríkt á leikskólanum frá því sum-
arfrí hófust um mánaðamótin. For-
eldrafélagið notaði þennan síðasta
dag skólaársins til að þakka fyrir
sig í verki. Starfsmenn og nemend-
ur Grænagarðs fengu sérútbúna
boli, leikvöliurinn var skreyttur með
fánum og blöðrum og síðan grillaðar
gómsætar sumarpylsur.
Morgunblaðið/Helga
Hreinsunarátak
í Grundarfirði
Grundarfírði - Gott samstarf með
sveitarfélaginu og eigendum fyrir-
tækja í aðaliðnaðarhverfinu í Grund-
arfirði hefur leitt til mikils hreinsun-
ar- og fegrunarátaks á fyrrgreindu
svæði, og stendur þetta átak nú yfir.
í könnun sem fram fór á síðasta ári
var sveitarfélagið valið það snyrti-
legasta á Vesturlandi og hafa heima-
menn metnað til að það standi undir
nafni. Myndin sýnir starfsmenn
Eyrarsveitar að störfum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HELGISTUND við krossinn í eldgígnum.
Gosloka minnst
í Eyjum
Vestmannaeyjum - Um síðustu helgi minntust Eyja-
menn loka eldgossins á Heimaey með helgigöngu, en
slíkt er orðin hefð í Eyjum. Safnast var saman við
krossinn, sem reistur var í gíg Eldfells, en þar flutti
séra Bára Friðriksdóttir bæn. Síðan var gengið frá
krossinum niður á Skans og tóku göngumenn með
sér stein hver og einn sem notaðir voru til að hlaða
vörðu á leiðinni en stefnt er að því að gera slíkt í
framtíðinni þegar gosloka verður minnst með helgi-
göngu. Á Skansinum er ráðgert að reisa stafkirkju, í
tilefni 1000 ára frá kristnitöku, og á þeim stað sem
kirkjan mun rísa var haldin helgistund undir stjóm
séra Báru.
Að lokinni helgistundinni sagði Jóhann Friðfinns-
son, formaður sóknarnefndar Landakirkju, frá vænt-
anlegri kirkjubyggingu á Skansinum en síðan gerðu
Árni Johnsen alþingismaður og Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri grein fyrir skipulagi og væntanlegum
framkvæmdum á Skansinum í tengslum við byggingu
kirkjunnar. Að því loknu bauð sóknarnefnd Landa-
kirkju göngufólki upp á molasopa.
Blíðuveður var í Eyjum þegar helgigangan fór
fram og tóku hátt í eitt hundrað manns þátt í að
minnast goslokanna með þessum hætti.
GÖNGUMENN í helgigöngunni hlóðu
vörðu á ieiðinni.
Morgunblaðið/Brynjúlfur Brynjólfsson
Sláttur haf-
inn í Skafta-
fellssýslum
Höfn - SLÁTTUR er hafinn í
Austur-Skaftafellssýslu, á nokkr-
um bæjum í Nesjum var verið að
slá og hirða um og fyrir helgina.
Oræfingar eru líka byijaðir að
slá en súld um heigina kom í veg
fyrir að hægt væri að hirða. Mjög
víða virðist vera góð grasspretta
og líklegt að siáttur hefjist al-
mennt næstu daga ef veður leyf-
ir. Tún komu ágætlega undan
vetri og var ekki mikið um kai-
skemmdir. Myndin er tekin á
Seljavöllum í Nesjum.
TILKYNNING TIL
HLUTDEILDARSKÍRTEINISHAFA
MARKSJÓÐSINS HF.
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni og
felur ekki í sér tilboð um kaup eða sölu verðbréfa.
Athygli eigenda hlutdeildarskírteina Marksjóðsins hf. er vak-
in á því að á aðalfundi félagsins þann 16. mars 1999 og á
hluthafafundi þann 1. febrúar 1999 voru gerðar breytingar
á samþykktum félagins. Breytingarnar snúa annars vegar að
því að stjórn félagins var gefið leyfi til að stofna allt að átta
nýjar deildir innan sjóðsins og hins vegar að leiðréttingu á
FJÁRVANGUR
L ö 9 GIL T VIRBBHtFAFYRIRTÆKI
Laugavegur 170, sími 540 5060, fax 540 5061, www.fjarvangur.is
fjárfestingastefnu Skyndideildartil samræmis við lög númer
10/1993. Frekari upplýsingar og afrit af samþykktum félagins
má nálgast hjá Fjárvangi hf., Laugavegi 170, 105 Fteykjavík.
F.h. Marksjóðsins hf.
Rekstrarfélag Fjárvangs ehf.