Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJONUSTA/FRETTIR
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 47
MINJASAFN AKUREYRAR, Miiyasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 68, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 19.6. -16.9.
alla daga frá kl. 11-17. Einnig á þriöjudags- og fimmtu-
dagskvöldum í júlí og ágúst frá kl. 20-21 í tengslum við
Söngvökur í Miiyjasafnskirlgunni sömu kvöld kl. 21.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig viö gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með miiýagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is._____________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 16-17 eða eftir sam-
komulagi. S. 667-9009. ______________________
MINJASAFN SLYSAVAKNAFÉLAGS fSLANDS Þorsteins-
búð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá kl. 13-
17. Hægt er að panta á öðrum timum i síma 422-7263.
IÐNAÐARSAFNIÐ iTaKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum.
Simi 462-3650 og 897-0206. _________________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 669-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi.__________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 664-0630.__
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16.___________________________________
NESSTOFUSAFN, safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17._______
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kafiistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 16-18. Simi 665-4321.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
661-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16. ______________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17. S: 666-4442, bréfs. 665-4261,
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
frá kl. 13-17. S. 581-4677._________________
SJÓMINJASAFNID A EYRAHBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.ls: 483-1166, 483-1443.________________
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18.
Simi 436 1490._______________________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Amagarði v/Suöur-
götu. Handritasýning opin daglega frá 1. júní til 31.
ágúst Id. 13-17. ________________________
STEINARÍKI fSLANDS A AKBANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Simi 431-6666.________
MÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17._________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ A AKUREYRI: Mánudaga tU föstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-16.______________
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga._____________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, Hafnarstræti. Opiö alla daga
frá kl. 10-17. Simi 462-2983._________________
NONNAHÚS, Aðalstræti 64. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní
-1. sept. Uppl. 1 sima 462 3665.___________
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega i sum-
arfrákl. 11-17._______________________________
ORÐ DAGSINS__________________________________
Reykjavík sírni 551-0000.__________________
Akureyri s. 462-1840.________________________
SUNDSTAÐIR ____________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVIK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.60-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl.
8-22. Iflalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-15. þri.,
mið. ogfóstud. kl. 17-21.___________________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd.
og sud. 8-19. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suöurbæjarlaug: Mád.-fóst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.-
föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12._______
VARMÁRLAUG f MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.30- 7.45 og kl. 16-21. Uro helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN f GRINDAVfKrOpiö alla virka daga kl. 7-
21 QR kl. 11-15 um helkar. Simi 426-7555.____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.________________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVfKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21. Laugard. ki.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____
SUNDLAUGIN f GARÐI: Opin mán.-Bst kl. 7-0 og 16.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Simi 461-2532.__________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7-
20.30, Laugard, og sunnud. kl. 8-17.30._______
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7-
21, laugd. og sud. il-16. S: 431-2643._______
BlXa LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVIST ARSVÆÐI______________________________
FJOLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla
daga kl. 10-18. Kaffihúsið opið á sama tíma. Simi 6767-
800._________________________
SORPA_________________________
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.16. Endur-
vinnslustöövar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar
á stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 620-
2205.
Hagyrðingar
glíma á
Vopnafirði
HIÐ ÁRLEGA hagyrðingamót
„Með íslenskuna að vopni“ verð-
ur haldið á Vopnafirði laugar-
daginn 24. júlí ldukkan 21. Skap-
ast hefur rík hefð fyrir þessum
mótum sem eru jafnan fjölsótt af
öllum kynslóðum og fjörmikil
með afbrigðum. Stjórnandi að
þessu sinni verður skáldið í
Skerjafirðinum Kristján Hreins-
son og hagyrðingar verða Frið-
rik Steingrímsson úr Mývatns-
sveit, Björn Hafþór Guðmunds-
son frá Austur-Héraði, séra
Hjálmar Jónsson frá Sauðár-
króki, Hjálmar Freysteinsson
frá Akureyri og Hrönn Jóns-
dóttir frá Djúpavogi. Ekki er
loku fyrir það skotið að einn
hagyrðingur bætist í hópinn.
DANS við Viðeyjarstofu.
Helgardagskráin í Viðey
í VIÐEY er nú ýmissa kosta völ.
Þangað er hægt að fara í „lautatúr“
á eigin vegum. Þar er hægt að fara í
gönguferð með leiðsögn eða staðar-
skoðun, einnig í messu aðra hverja
helgi. í Viðeyjarskóla er ljósmynda-
sýning. Veitingahúsið í Viðeyjar-
stofu stendur öllum opið, einnig
hestaleigan og svo geta menn fengið
reiðhjól að láni endurgjaldslaust.
Ennfremur eru leiktæki fyrir börn
á tveimur stöðum.
Gönguferð komandi helgar er á
þá leið að á laugardag kl. 14.15
verður gengið á slóðir Jóns biskups
Arasonar á Heimaeynni. Byrjað
verður í kirkjugarðinum, þaðan
haldið niður fyrir Heljarkinn, en
síðan framhjá Ráðskonubás, suður
fyrir Sjónarhól og að Virkinu, höfða
þar sem herra Jón mælti fyrir um
virkisbyggingu er hann kom til Við-
eyjar á herfór sinni til Suðurlands
1550. Þaðan verður haldið meðfram
Attæringsvör, Sauðhúsavör, um
Hjallana, yfir á veginn og loks
gengið á Klausturhól. Þetta er
stysta raðgangan í Viðey en mjög
íróðleg. Henni lýkur með því að
fomleifagröfturinn verður skoðaður
og fleira heima við.
Á sunnudag kl. 14.15 verður stað-
arskoðun, hefðbundin kynning á
heimastaðnum í Viðey, hinum fomu
húsum og umhverfi þeirra. Hún
tekur í mesta lagi klukkustund. Um
helgar fer Viðeyjarferjan á klukku-
stundarfresti kl. 13-17 úr landi og á
hálfa tímanum í land aftur.
FORRÁÐAMENN Nings með vottunina frá Gámes.
Nings fær Gámes-
vottun um innra eftirlit
NÝLEGA fengu veitingahús
Nings á Suðurlandsbraut 6 í
Reykjavik og Hlíðarsmára 12 í
Kópavogi vottun frá Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkur og Kópa-
vogs um innra eftirlit.
Eftirlitskerfi þetta nefnist
Gámes og er heilbrigðis- og
gæðaeftirlitskerfi með mjög
ströngum stöðlum sem fylgja
vörunni allt frá framleiðanda tii
neytenda og er framleiðslan
mæld og prófuð á öllum stigum,
segir í fréttatilkynningu.
Veitingahús Nings eru fyrstu
og einu austurlensku veitinga-
húsin sem hlotið hafa þessa vott-
un, segir ennfremur.
Leikjadagur á
Gjábakkatorgi
ANNAR dagur í röð Leikjadaga,
sem eldra fólk í Kópavogi stendur
fyrir, verður í dag, laugardaginn
10. júlí. Sá fyrsti var 5. júní og hug-
myndin er að næsti Leikjadagur
verði í ágúst.
Dagurinn hefst með laugardags-
göngu Hana-nú en gangan fer frá
Gjábakka alla laugardaga kl. 10
eftir sameflingu frá kl. 9 yfir rjúk-
andi kaffisopa. Kl. 11 verður farið í
skoðunarferð um Hafnarfjörð í um-
sjón Margrétar Sigurðardóttur og
Þorgeirs Jónssonar. Aðalleiðsögu-
maður verður Kristján Bersi Ólafs-
son.
Um kl. 13 þegar ferðalangar
koma til baka verða boðnar til sölu
veitingar á vægu verði og einnig
verður hægt að gera góð kaup á
útimarkaði eða inni eftir því hvern-
ig viðrar. Margrét og Þorgeir
stjóma síðan leikjum sem leiknir
voru „þegar amma var ung“ og er
fólk á öllum aldri hvatt til að taka
þátt í þessum Leikjadegi á Gjá-
bakkatorgi.
Dagskrá
helgarinnar á
Þingvöllum ‘
DAGSKRÁ helgarinnar hefst laugar-
daginn 10. júlí kl. 13 með Barna-
stund. Farið verður frá þjónustumið-
stöð og gengið í Hvannagjá þar sem
litað verður og leikið og náttúran
skoðuð í um eina klst. Þessi dagskrá
er ætluð bömum á aldrinum 5-12 ára.
Kl. 13 verður einnig farið frá þjón-
ustumiðstöð og gengið eftir Sand-
hólastíg inn í Skógarkot og til baka
um Skógarkotsveg og Fögrubrekku
með viðkomu í Furulundinum. Á
leiðinni verður fjallað um náttúru og
sögu Þingvalla. Þetta er létt ganga
sem tekur 2-3 klst en gott er að vera
vel skóaður og að hafa nesti með-
ferðis.
Dagskráin sunnudaginn 11. júlí
hefst kl. 14 með guðsþjónustu í Þing-
vallakirkju og að henni lokinni kl. 15
verður farið í ríflega klukkustundar-
langa göngu um þinghelgina þar sem
rætt verður um sögu þings og þjóðar
á Þingvöllum.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins er
ókeypis og öllum heimil.
----------------
Blái engillinn í
Kaffíleikhúsinu -
ÞÝSK dagskrá verður flutt í Kaffi-
leikhúsinu Vesturgötu 3 sunnudags-
kvöldið 11. júlí þar sem Sif Ragnhild-
ardóttir syngur lög Marlene Dietrich
og Arthúr Björgvin Bollason bregð-
ur sér í hlutverk seremóníumeistara
og rekur viðburðaríkan æviferil
Marlene.
Sif mun flytja nokkur frægustu
lög Marlene í Kaffileikhúsinu - lög
eins og Lili Marleen, Allein, Jonny
o.fl. Undirleik annast tónlistar-
mennirnir Jóhann Kristinsson og *
Tómas R. Einarsson. Seremóníu-
meistari og kynnir kvöldsins er
Arthúr Björgvin Bollason en hann j
mun á sinn hátt fjalla um ævi Mar-
lene, sem eins og allir vita var ákaf-
lega viðburðarík.
Miðaverð á dagskrá bæði kvöldin
er 1.500 kr. og ljúffengur Kabarett-
kvöldverður á kr. 1.500 kr. eða sam-
tals 3.000 kr. Matur verður fram-
reiddur kl. 19.30 og dagskráin hefst
kl. 21.
Mikið úrval af
buxum frá BRAX
UiU
Skólavörðustíg 4a,
s. 551 3069.
Hestaleigan í
Laxnesi 30 ára
HESTALEIGAN í Laxnesi heldur
upp á 30 ára afmæli sitt laugardag-
inn 10. júlí og sýnir jafnframt ný-
uppgerð útihús. Afmælið hefst kl.
16 og verður opið hús til kl. 19.
Til að fagna 30 ára afmælinu hef-
ur fulltrúum allra helstu ferða-
skrifstofa landsins verið boðið að
koma og skoða aðstöðuna, þar á
meðal reiðhöll sem byggð var ný-
lega.
I 30 ár hefur Hestaleigan Lax-
nes verið leiðandi afl í skipulögðum
hestaferðum og ásamt bættri að-
stöðu mun hestaleigan einnig
kynna nýjar ferðir sem bætast við
þær sem farnar eru nú, segir í
fréttatilkynningu.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
í BLAÐINU í gær var frétt á bls. 9
um vígslu Gunnarslundar í Hauka-
dal. Þar var Skarphéðinn Þór rang-
feðraður og er hann Hjartarson en
ekki Þrastarson. Einnig var sagt að
lagið Nótt væri þjóðlag við Ijóð
Árna Thorsteinssonar. Það er ekki
rétt heldur er lagið eftir Árna og
Ijóðið eftir Magnús Gíslason. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Rangar tölur
EKKI var rétt farið með tölur þeg-
ar greint var frá breytingum á
gengi hlutabréfa í Baugi hf. á við-
skiptasíðu blaðsins í gær. Gengið
hefur lækkað um 1,4% frá því hluta-
bréfaútboðið fór fram í apríl, en
ekki 14% eins og fullyrt var.
NinTendd,