Morgunblaðið - 10.07.1999, Síða 47

Morgunblaðið - 10.07.1999, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞJONUSTA/FRETTIR LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 47 MINJASAFN AKUREYRAR, Miiyasafnið á Akureyri, Að- alstræti 68, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 19.6. -16.9. alla daga frá kl. 11-17. Einnig á þriöjudags- og fimmtu- dagskvöldum í júlí og ágúst frá kl. 20-21 í tengslum við Söngvökur í Miiyjasafnskirlgunni sömu kvöld kl. 21. MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11- 17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má reyna sig viö gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safnbúð með miiýagripum og handverks- munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net- fang minaust@eldhorn.is._____________________ MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð- ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 16-17 eða eftir sam- komulagi. S. 667-9009. ______________________ MINJASAFN SLYSAVAKNAFÉLAGS fSLANDS Þorsteins- búð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá kl. 13- 17. Hægt er að panta á öðrum timum i síma 422-7263. IÐNAÐARSAFNIÐ iTaKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum. Simi 462-3650 og 897-0206. _________________ MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, sími 669-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr- um tima eftir samkomulagi.__________________ NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 664-0630.__ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16.___________________________________ NESSTOFUSAFN, safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17._______ NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17. Kafiistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn- ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud. PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar- firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 16-18. Simi 665-4321. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s. 661-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl. 13.30- 16. ______________________________ SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið alla daga frá kl. 13-17. S: 666-4442, bréfs. 665-4261, SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl. 13-17. S. 581-4677._________________ SJÓMINJASAFNID A EYRAHBAKKA: Hópar skv. samkl. Uppl.ls: 483-1166, 483-1443.________________ SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18. Simi 436 1490._______________________________ STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Amagarði v/Suöur- götu. Handritasýning opin daglega frá 1. júní til 31. ágúst Id. 13-17. ________________________ STEINARÍKI fSLANDS A AKBANESI: Opið alla daga kl. 13- 18 nema mánudaga. Simi 431-6666.________ MÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17._________________________ AMTSBÓKASAFNIÐ A AKUREYRI: Mánudaga tU föstu- daga kl. 10-19. Laugard. 10-16.______________ LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14- 18. Lokað mánudaga._____________________ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, Hafnarstræti. Opiö alla daga frá kl. 10-17. Simi 462-2983._________________ NONNAHÚS, Aðalstræti 64. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní -1. sept. Uppl. 1 sima 462 3665.___________ NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega i sum- arfrákl. 11-17._______________________________ ORÐ DAGSINS__________________________________ Reykjavík sírni 551-0000.__________________ Akureyri s. 462-1840.________________________ SUNDSTAÐIR ____________ SUNDSTAÐIR í REYKJAVIK: Sundhöllin er opin v.d. kl. 6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8- 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.60-21.30, helgar 8-19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8- 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl. 8-22. Iflalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-15. þri., mið. ogfóstud. kl. 17-21.___________________ SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd. og sud. 8-19. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._ GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd. og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._ HAFNARFJÖRÐUR. Suöurbæjarlaug: Mád.-fóst. 7-21. Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.- föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12._______ VARMÁRLAUG f MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl. 6.30- 7.45 og kl. 16-21. Uro helgar kl. 9-18._ SUNDLAUGIN f GRINDAVfKrOpiö alla virka daga kl. 7- 21 QR kl. 11-15 um helkar. Simi 426-7555.____ SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22, helgar 11-18.________________________________ SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVfKUR: Opin mánud.-föstud. kl. 7-21. Laugard. ki.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____ SUNDLAUGIN f GARÐI: Opin mán.-Bst kl. 7-0 og 16.30- 21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard. og sunnud. kl. 8-18. Simi 461-2532.__________ SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7- 20.30, Laugard, og sunnud. kl. 8-17.30._______ JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7- 21, laugd. og sud. il-16. S: 431-2643._______ BlXa LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21. ÚTIVIST ARSVÆÐI______________________________ FJOLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10-18. Kaffihúsið opið á sama tíma. Simi 6767- 800._________________________ SORPA_________________________ SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.16. Endur- vinnslustöövar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar á stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 620- 2205. Hagyrðingar glíma á Vopnafirði HIÐ ÁRLEGA hagyrðingamót „Með íslenskuna að vopni“ verð- ur haldið á Vopnafirði laugar- daginn 24. júlí ldukkan 21. Skap- ast hefur rík hefð fyrir þessum mótum sem eru jafnan fjölsótt af öllum kynslóðum og fjörmikil með afbrigðum. Stjórnandi að þessu sinni verður skáldið í Skerjafirðinum Kristján Hreins- son og hagyrðingar verða Frið- rik Steingrímsson úr Mývatns- sveit, Björn Hafþór Guðmunds- son frá Austur-Héraði, séra Hjálmar Jónsson frá Sauðár- króki, Hjálmar Freysteinsson frá Akureyri og Hrönn Jóns- dóttir frá Djúpavogi. Ekki er loku fyrir það skotið að einn hagyrðingur bætist í hópinn. DANS við Viðeyjarstofu. Helgardagskráin í Viðey í VIÐEY er nú ýmissa kosta völ. Þangað er hægt að fara í „lautatúr“ á eigin vegum. Þar er hægt að fara í gönguferð með leiðsögn eða staðar- skoðun, einnig í messu aðra hverja helgi. í Viðeyjarskóla er ljósmynda- sýning. Veitingahúsið í Viðeyjar- stofu stendur öllum opið, einnig hestaleigan og svo geta menn fengið reiðhjól að láni endurgjaldslaust. Ennfremur eru leiktæki fyrir börn á tveimur stöðum. Gönguferð komandi helgar er á þá leið að á laugardag kl. 14.15 verður gengið á slóðir Jóns biskups Arasonar á Heimaeynni. Byrjað verður í kirkjugarðinum, þaðan haldið niður fyrir Heljarkinn, en síðan framhjá Ráðskonubás, suður fyrir Sjónarhól og að Virkinu, höfða þar sem herra Jón mælti fyrir um virkisbyggingu er hann kom til Við- eyjar á herfór sinni til Suðurlands 1550. Þaðan verður haldið meðfram Attæringsvör, Sauðhúsavör, um Hjallana, yfir á veginn og loks gengið á Klausturhól. Þetta er stysta raðgangan í Viðey en mjög íróðleg. Henni lýkur með því að fomleifagröfturinn verður skoðaður og fleira heima við. Á sunnudag kl. 14.15 verður stað- arskoðun, hefðbundin kynning á heimastaðnum í Viðey, hinum fomu húsum og umhverfi þeirra. Hún tekur í mesta lagi klukkustund. Um helgar fer Viðeyjarferjan á klukku- stundarfresti kl. 13-17 úr landi og á hálfa tímanum í land aftur. FORRÁÐAMENN Nings með vottunina frá Gámes. Nings fær Gámes- vottun um innra eftirlit NÝLEGA fengu veitingahús Nings á Suðurlandsbraut 6 í Reykjavik og Hlíðarsmára 12 í Kópavogi vottun frá Heilbrigðis- eftirliti Reykjavíkur og Kópa- vogs um innra eftirlit. Eftirlitskerfi þetta nefnist Gámes og er heilbrigðis- og gæðaeftirlitskerfi með mjög ströngum stöðlum sem fylgja vörunni allt frá framleiðanda tii neytenda og er framleiðslan mæld og prófuð á öllum stigum, segir í fréttatilkynningu. Veitingahús Nings eru fyrstu og einu austurlensku veitinga- húsin sem hlotið hafa þessa vott- un, segir ennfremur. Leikjadagur á Gjábakkatorgi ANNAR dagur í röð Leikjadaga, sem eldra fólk í Kópavogi stendur fyrir, verður í dag, laugardaginn 10. júlí. Sá fyrsti var 5. júní og hug- myndin er að næsti Leikjadagur verði í ágúst. Dagurinn hefst með laugardags- göngu Hana-nú en gangan fer frá Gjábakka alla laugardaga kl. 10 eftir sameflingu frá kl. 9 yfir rjúk- andi kaffisopa. Kl. 11 verður farið í skoðunarferð um Hafnarfjörð í um- sjón Margrétar Sigurðardóttur og Þorgeirs Jónssonar. Aðalleiðsögu- maður verður Kristján Bersi Ólafs- son. Um kl. 13 þegar ferðalangar koma til baka verða boðnar til sölu veitingar á vægu verði og einnig verður hægt að gera góð kaup á útimarkaði eða inni eftir því hvern- ig viðrar. Margrét og Þorgeir stjóma síðan leikjum sem leiknir voru „þegar amma var ung“ og er fólk á öllum aldri hvatt til að taka þátt í þessum Leikjadegi á Gjá- bakkatorgi. Dagskrá helgarinnar á Þingvöllum ‘ DAGSKRÁ helgarinnar hefst laugar- daginn 10. júlí kl. 13 með Barna- stund. Farið verður frá þjónustumið- stöð og gengið í Hvannagjá þar sem litað verður og leikið og náttúran skoðuð í um eina klst. Þessi dagskrá er ætluð bömum á aldrinum 5-12 ára. Kl. 13 verður einnig farið frá þjón- ustumiðstöð og gengið eftir Sand- hólastíg inn í Skógarkot og til baka um Skógarkotsveg og Fögrubrekku með viðkomu í Furulundinum. Á leiðinni verður fjallað um náttúru og sögu Þingvalla. Þetta er létt ganga sem tekur 2-3 klst en gott er að vera vel skóaður og að hafa nesti með- ferðis. Dagskráin sunnudaginn 11. júlí hefst kl. 14 með guðsþjónustu í Þing- vallakirkju og að henni lokinni kl. 15 verður farið í ríflega klukkustundar- langa göngu um þinghelgina þar sem rætt verður um sögu þings og þjóðar á Þingvöllum. Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins er ókeypis og öllum heimil. ---------------- Blái engillinn í Kaffíleikhúsinu - ÞÝSK dagskrá verður flutt í Kaffi- leikhúsinu Vesturgötu 3 sunnudags- kvöldið 11. júlí þar sem Sif Ragnhild- ardóttir syngur lög Marlene Dietrich og Arthúr Björgvin Bollason bregð- ur sér í hlutverk seremóníumeistara og rekur viðburðaríkan æviferil Marlene. Sif mun flytja nokkur frægustu lög Marlene í Kaffileikhúsinu - lög eins og Lili Marleen, Allein, Jonny o.fl. Undirleik annast tónlistar- mennirnir Jóhann Kristinsson og * Tómas R. Einarsson. Seremóníu- meistari og kynnir kvöldsins er Arthúr Björgvin Bollason en hann j mun á sinn hátt fjalla um ævi Mar- lene, sem eins og allir vita var ákaf- lega viðburðarík. Miðaverð á dagskrá bæði kvöldin er 1.500 kr. og ljúffengur Kabarett- kvöldverður á kr. 1.500 kr. eða sam- tals 3.000 kr. Matur verður fram- reiddur kl. 19.30 og dagskráin hefst kl. 21. Mikið úrval af buxum frá BRAX UiU Skólavörðustíg 4a, s. 551 3069. Hestaleigan í Laxnesi 30 ára HESTALEIGAN í Laxnesi heldur upp á 30 ára afmæli sitt laugardag- inn 10. júlí og sýnir jafnframt ný- uppgerð útihús. Afmælið hefst kl. 16 og verður opið hús til kl. 19. Til að fagna 30 ára afmælinu hef- ur fulltrúum allra helstu ferða- skrifstofa landsins verið boðið að koma og skoða aðstöðuna, þar á meðal reiðhöll sem byggð var ný- lega. I 30 ár hefur Hestaleigan Lax- nes verið leiðandi afl í skipulögðum hestaferðum og ásamt bættri að- stöðu mun hestaleigan einnig kynna nýjar ferðir sem bætast við þær sem farnar eru nú, segir í fréttatilkynningu. LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn í BLAÐINU í gær var frétt á bls. 9 um vígslu Gunnarslundar í Hauka- dal. Þar var Skarphéðinn Þór rang- feðraður og er hann Hjartarson en ekki Þrastarson. Einnig var sagt að lagið Nótt væri þjóðlag við Ijóð Árna Thorsteinssonar. Það er ekki rétt heldur er lagið eftir Árna og Ijóðið eftir Magnús Gíslason. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Rangar tölur EKKI var rétt farið með tölur þeg- ar greint var frá breytingum á gengi hlutabréfa í Baugi hf. á við- skiptasíðu blaðsins í gær. Gengið hefur lækkað um 1,4% frá því hluta- bréfaútboðið fór fram í apríl, en ekki 14% eins og fullyrt var. NinTendd,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.