Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 8

Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sveitahátíðin á Selfossi fór fram í þéttum hátíðarúða Kleopatra þótti fegurst kvíga Selfossi - Kleopatra frá Kirkju- jN. vv HVORT er svo Kleópatra, litli minn??? Sagði sig úr vöktun- arnefnd ÓLAFUR Magnússon, for- maður Samtakanna óspillt land (SÓL) í Hvalfirði hefur sagt sig úr nefnd um vöktun í Hvalfirði. Samtökin eiga tvo menn í nefndinni og hefur Ólafur í bréfí til Sivjar Frið- leifsdóttur umhverfisráð- herra óskað eftir að annar maður verði skipaður í sinn stað. I bréfi til ráðherra segist Ólafur vera óánægður með að niðurstöður forrannsókna, sem liggja áttu fyrir í desem- ber 1998 og kynna átti fyrir almenningi, skuli enn ekki vera tilbúnar. Hann kveðst einnig óánægður með að rannsóknaráætlun skuli hafa verið samþykkt áður en þessi forrannsókn lá fyrir. Seina- gangur einkenni vinnubrögð í þessu máli. Bundið slitlag á vegum á virkjanasvæði Þjórsár- og Tungnaár Unnið sumarið 1999 Sultartanga- lón, Sultartanga- virkjun Bundið slitlag virkjun • Virkjun j fyrir 1999 V Stífla — Skurður 0 5 10 km c %' — Göng Bundið slitlag á Sprengisandsleið VEGAGERÐ ríkisins og Lands- virkjun eru í sameiningu að leggja bundið slitlag á um 30 km vegkafla á Sprengisandsleið, að sögn Por- steins Hilmarssonar, upplýsinga- fulltrúa Landsvirkjunar. Að sögn Þorsteins nær kaflinn, sem nú er verið að leggja, frá Sult- mWSTARLIGHT Stigar frá Starlight og áltröppur írá Beldray fást í öllum stærðum í byggingavöruverslunum um allt land DREIFINGARAÐILI I.GUÐMUNDSSON ehf. Sími: 533-1999, Fax: 533-1995 artangavirkjun, vestur um og norður fyrir Hrauneyjarlón og að Vatnsfellsvirkjun, en framkvæmd- imar hófust í júní. Það er Verkfræðistofa Suður- lands sem sá um hönnun, en Rækt- unarsamband Flóa og Skeiða sér um framkvæmdirnar, sem eru vel á veg komnar. Búið er að ljúka við um 20 km kafla af þeim 30 sem eru á framkvæmdaáætlun í sumar, en búist er við að framkvæmdum ljúki seinniparts sumars og er kostnaður við þær talinn vera um 65 milljónir króna, að sögn Þor- steins. ----------------- Þrefaldur vinn- ingur í Víkinga- lottóinu ÞAÐ er til óvenjumikils að vinna í Víkingalottóinu í kvöld þar sem fyrsti vinningur verður þrefaldur. Aætlað er að vinningurinn muni nema um 140 milljónum króna en svo há upphæð er að jafnaði ekki í pottinum nema tvisvar ári. Sölukössum verður lokað kl. 4 en útdráttur fer fram í Sjónvarpinu klukkan korter íyrir átta. Þá kem- ur í ljós hvort íslendingur hefur heppnina með sér en það hefur gerst sex sinnum frá því á árinu 1993. Breiðafjarðarferjan Baldur 75 ára Ferjar um 30.000 farþega á ári Breiðafj ar ðarferj an Baldur á 75 ára af- mæli á þessu ári. Guðmundur Lárusson er framkvæmdastjóri ferj- unnar. „Breiðafjarðarferjan Baldur er eitt af elstu ferðaþjónustufyrirtækj- um landsins. Saga Bald- urs hófst á vordögum árið 1924 með því að Guð- mundur Jónsson frá Narfeyri kaupir gamlan bát til flutninga á farþeg- um og vörum. Baldur var með áætlunarferðir frá Stykkishólmi, inn á Hvammsfjörð og Gils- fjörð og einnig á úthafn- irnar Grundarfjörð og Ólafsvík." - Hversu oft var farið á þessa staði? „Ætli það hafi ekki verið hálfs- mánaðarlega en farið var eftir sjávarföllum. I ferðaáætlun sem gerð var árið 1933 er talað um Langeyjames, Skarðsstöð, Króksfjarðames og Reykhóla sem viðkomustaði á Gilsfjarðar- leið, svo dæmi séu tekin.“ Guðmundur segir að nafni hans hafi gert þennan bát út til ársins 1929 en þá ferst Baldur. „Mikill leki kom að bátnum við Búlandshöfða og hann brotnaði og fórst. Formaðurinn, Svein- björn Bjamason, dmkknaði, en þrír skipverjar komust til lands heilu og höldnu. Um veturinn og vorið smíðaði Guðmundur ásamt Rögnvaldi Lárussyni lítinn bát sem hann nefndi Baldur. Litli Baldur var bráðabirgðaráðstöfun og fijótlega var keyptur nýr bát- ur frá Kaupmannahöfn. Þetta var þriðji báturinn með nafni Bald- urs og um var að ræða 12 tonna plankabyggðan bát. Sá tók upp áætlunarferðir um Breiðafjörð og litli báturinn var aðallega not- aður í læknisferðir og til að flytja ferðamenn á sumrin.“ - Hversu lengi var Baldur þriðji í rekstri? „Hann var í rekstri til ársins 1947. Þá var keyptur nýr bátur sem smíðaður var á Fáskrúðs- firði. Sá bátur fékk nýtt þjón- ustusvið. Þessi bátur var fjórði Baldurinn. Hann tók upp áætlun- arferðir til Reykjavíkur og sótti vörar og farþega. Það fyrirkomu- lag hélt allt til ársins 1980. Árið 1953 var íyrirtækið sem stóð að bátnum gert að hlutafélagi og fleiri komu að rekstri þess, m.a. ríkissjóður og kaupfélögin við Breiðafjörð. Fyrirtækið hlaut nafnið Flóabáturinn Baldur hf. og reksturinn gekk nokkuð þokkalega fram að þeim tíma sem hlutafélagið var stofnað." Guðmundur segir að þegar far- ið hafi að halla undan fæti með reksturinn hafí ríkis- ________ sjóður sett Baldur á svokallaðan flóabáta- styrk. „Árið 1953 er fjár- fest í fimmta bátnum með nafni Baldurs. “ „Sá er keyptur gamall. Skipið hét áður Þorsteinn RE og var frægt síldarskip. Skipið var dæmt ónýtt eftir tíu ár og þá var útgerðin með leigubáta í nokkur ár uns hún fékk nýjan bát frá Stálskipa- smiðjunni í Kópavogi árið 1966. Það var sjötti báturinn sem nefndur var Baldur.“ Guðmundur segir að þessi bát- ur sé líklega þekktastur meðal nútímamanna. Eftir 25 ár hjá út- Morgunblaðið/Gunnlaugur Guðmundur Lárusson ► Guðmundur Lárusson er fædd- ur í Stykkishólmi árið 1945. Hann lauk farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum árið 1967 og var í siglingum með skóla og eftir að námi lauk. Hann fluttist til Stykkishólms árið 1973 og tók þá við rekstri Breiðafjarðarferj- unnar Baldurs. Eiginkona hans er Aðalheiður Steinunn Sigurðardóttir og eiga þau tvær dætur. Ferja yfir 7.000 bíla á ári yfir fjörðinn gerðinni var Baldur seldur og heitir nú Árnes og heldur uppi veisluferðum í Reykjavík. -Ferjan Baldur kom þá til sögunnar? „Já, eftir tíu ára baráttu fyrir málinu og hönnun á skipinu fær útgerðin nýja ferju árið 1990. Hún var smíðuð á Ákranesi og er fyrsta nútímaferjan sem var hönnuð frá grunni hér á landi og smíðuð líka. Ferjan, sem er sjö- undi Baldurinn, hefur reynst mjög vel í alla staði, en hún hefur verið of lítil frá upphafi þrátt fyr- ir að skipið hafi verið stækkað frá fyrstu teikningum." Guðmundur segir að farþega- fjöldi sé allt að 30.000 á ári og ferjan flytur árlega yfir 7.000 bíla. Á sumrin fer nýtingin á bfla- þilfari yfir 70%. -Siglið þið ekki daglega yfir Breiðafjörðinn ? „Við eram með ferðir alla daga ársins nema á stórhátíðisdögum. Á veturna föram við einu sinni á dag en á sumrin tvisvar.“ Guðmundur segir að alltaf sé farið sömu leiðina frá Stykkis- hólmi og yfir í Brjánslæk. Komið er við í Flatey. - Er algengt að ferðamenn komi við í Flatey? „Það er nokkuð um það og þá dvelja þeir stundum á meðan far- ið er að Brjánslæk og koma með í bakaleiðinni eða þeir dvelja allan daginn. Það hefur farið í vöxt að dvelja yfir nótt í Flatey og taka þá í land tjaldvagn eða fellihýsi en láta bílinn halda áfram ferðinni og við sjáum um trygga geymslu á honum.“ ~~~~~~ - En er Baldur númer átta nokkuð á leiðinni? „Árið 1997 var ferjan seld ríkis- sjóði og útgerðin er því háð hinu opinbera. Það er á hinn bóginn kominn tími til að skipta um skip. Þegar við fengum ferjuna árið 1990 var sú tækni sem er í dag ekki fyrir hendi. Núna era ferjur orðnar miklu hraðskreiðari en áður og þær geta farið yfir fjörð- inn á klukkustund í stað þriggja klukkustunda."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.