Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 11
FRÉTTIR
Viðbrögð við hugmyndum Hafnarfjarðarbæjar um að bjóða út kennslu
Skólastjórar
mishrifnir
SKÓLASTJÓRAR á höfuðborgar-
svæðinu virðast vera misjafnlega
hrifnir af þeim hugmyndum Hafn-
arfjarðarbæjar að bjóða grunn-
skólakennslu út til einkaaðila. Ekki
mun standa til að grípa til svipaðra
aðgerða í Reykjavík og telja
fræðsluyfirvöld þar þær ekki geta
leyst þann vanda sem yfirvofandi
kennaraskortur skapi.
Viktor A. Guðlaugsson, skóla-
stjóri Öldutúnsskóla í Hafnarfirði,
segir hugmyndir Hafnarfjarðarbæj-
ar áhugaverðar. „Ég hef reyndar
ekki séð þetta nema í Morgunblað-
inu og veit því ekki hver útfærslan á
þessu er, en að því tilskildu að
tryggt sé að öllum lögum og reglu-
gerðum um skólahald sé framfylgt
get ég ekki séð annað en að áhuga-
vert sé að prófa eitthvað í þessa
veru.“ Segir Viktor raunar að skref
í þessa átt hafí þegar verið stigin í
Kópavogi þar sem skólastjórar
nokkurra skóla hafi í auknum mæli
tekið við fjárhagslegri ábyrgð á
rekstri skólanna og munu hug-
myndir af svipuðum toga hafa verið
uppi í Hafnarfirði líka. „Það er því
víða verið að hugsa í þessa veru, þ.e.
að auka fjárhagslegt sjálfstæði og
um leið rekstrarlega ábyrgð skól-
anna,“ segir Viktor.
Viktor segist sjá þann kost
helstan við útboð á kennslu að með
því fái stjómendur ákveðinn sveigj-
anleika hvað varðar áherslur í
rekstri, auk þess sem stjómendur
haldi oft betur utan um starfsemi
sína eftir því sem ábyrgðin færist
nær þeim. Hann segist hins vegar
ekki þekkja nægilega vel til hug-
mynda Hafnarfjarðarbæjar til að
geta dæmt um galla þeirra, en segir
þó að miklu skipti hverjir taki að
sér þann rekstur sem hér um ræðir.
Það sé grundvallaratriði að þar fari
ábyrgir aðilar. Niðurstaða Viktors
er þó sú að full ástæða sé til að
skoða áætlanir Hafnarfjarðarbæjar
nánar. „Það væri að mínu mati mjög
metnaðarfullt að prófa þessa leið,
enda erfítt að meta hana nema
tækifæri gefist til þess.“
Jón Ingi Einarsson, skólastjóri
Laugalækjarskóla í Reykjavík, er
ekki sammála Viktori um ágæti
hugmynda Hafnarfjarðarbæjar.
„Ég held að það séu ýmsir ann-
markar á þessu. Skóli er öðravísi en
önnur fyrirtæki og ef peningasjón-
armið eiga að fara að ráða öllu þar
er spuming hvemig þættir eins og
sérkennsla og annað koma út.“
Ekki vildi Jón Ingi þó tjá sig nánar
um málið, enda væri það nýkomið
upp og hann hefði lítið getað velt
því fyrir sér.
Leysir ekki vandann í Reykjavík
Ólafur Darri Andrason, stað-
gengill fræðslustjórans í Reykjavík,
sagðist lítið geta tjáð sig þegar
hann var spurður að því hvort borg-
aryfirvöld hygðust bregða á sama
ráð og Hafnarfjarðarbær. Kvaðst
hann hafa alla sína vitneskju um
málið úr fjölmiðlum og vissi því of
lítið um það. Sagðist hann þó ekki
vita til þess að hugmyndir af þess-
um toga hefðu komið fram hjá
Reykjavíkurborg og kvaðst að-
spurður ekki telja þær hugsanlega
leið til lausnar á þeim kennaraskorti
sem skólar borgarinnar standa nú
frammi fyrir
Morgunblaðið/JEG
NEIL Bardal, nýskipaður aðalræðismaður íslands í Gimli (t.v.), og Bill
Barlow, bæjarstjóri í Gimli, sem segist vera „Heiðurs-Islendingur".
„ALÞINGI Islendinga sýndi mikla samstöðu þegar það samþykkti að
leggja fé í byggingu Vesturfarasafns í Gimli,“ sagði Svavar Gestsson
þegar hann afhenti Earnest Stefansyni framlag íslands.
Veiðar
í Barentshafí
Eru við
„rás-
markið“
ÚTGERÐIR íslenskra skipa
sem fengu úthlutað kvóta í
Barentshafi era að undirbúa
skipin til veiða. Svalbarði SI,
sem er í eigu útgerðarfélagsins
Siglfirðings, fékk úthlutað mest-
um kvóta, 329 tonnum. Runólfur
Birgisson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, sagði að ekki væri
víst hvenær eða hvort skipið
færi til veiða.
„329 tonn duga vart fyrir ein-
um túr. Útgerðarmenn skipanna
sem eiga kvóta þarna era að
velta málum fyrir sér. Sumir
þurfa að leigja sér kvóta ef það á
að vera arðbært að senda skip
norður eftir. Ef við sendum skip
þá verður það fyrir september,"
sagði Runólfur. Ekki er enn bú-
ið að gefa út reglugerð um veið-
amar en von er á henni í þessari
viku. Líklegt er að stórútgerðar-
fyrirtæki eins og Grandi, Út-
gerðarfélag Akureyringa og
Samherji sendi skip fljótlega til
veiðanna. Þau fengu öll úthlutað
kvóta á nokkur skip og geta því
fært hann á eitt og þar með auk-
ið arðsemisvon veiðanna.
Dræm veiði
Dræm aflabrögð hafa verið í
Smugunni í sumar. Þrátt fyrir
það munu íslensk skip fara fyrr
en síðar til veiðanna því að veð-
ur gerast oft válynd þar um
'slóðir þegar haustar.
Aðalræðismaður
íslands í Gimli
tekur til starfa
Nefnd um einkavæðingu
starfar áfram
Flugvellir á Þing-
eyri og ísafirði
Fram-
kvæmt
fyrir 84
milljónir
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á
fundi sínum í gær að ráðist
verði í framkvæmdir við flug-
vellina á Þingeyri og Isafirði
fyrir samtals um 84 milljónir
króna.
Gert hafði verið ráð fyrir til-
teknum framkvæmdum við
flugvöllinn á Þingeyri fyrir um
40,6 milljónir króna en ljóst
þykir að kostnaðurinn verði 11
milijónum króna meiri, eða um
52 milijónir króna.
Framkvæmdir á ísafirði vora
ekki á áætlun í ár að sögn Jak-
obs Fals Garðarssonar, aðstoð-
armanns samgönguráðherra, en
þegar framkvæmt var eftirlit
með flugbrautinni á ísafirði
komu m.a. í Ijós skemmdir á
bundnu slitlagi og talið var
nauðsynlegt að ráðast í endur-
bætur fyrir næsta vetur. Heild-
arkostnaðurinn er talinn nema
32 milljónum króna, þar af 23
milljónir í ár.
„Það er lögð mikil áhersla á
að Ijúka framkvæmdum á Þing:
eyri á þessu surnri í einni lotu. I
fyrra var veitt fé til að hefja
framkvæmdir þama, en sú fjár-
veiting var fryst og færð yfir á
þetta ár. Lagt er tii að 34 millj-
ónir króna verði fengnar af
auknum tekjum flugmálaáætl-
unar fyrir árið 1999 og ráðstafað
þannig að 23 milljónfr fari til
Isafjarðar og 11 miHjónir til
Þingeyrar," segir Jakob Falur.
NEIL BARDAL, aðalræðismað-
ur Islands í Gimli, tók til starfa
síðastliðinn laugardag. Bill
Barlow bæjarstjóri bauð hann
velkominn og Svavar Gestsson
afhenti íjórar og hálfa milljón
fslenskra króna til byggingar
Vesturfarasafns í Gimli. Jafn-
framt lýsti Svavar því yfír að
ríkisstjórn Islands mun taka
þátt í rekstri skrifstofu ræðis-
manns f Gimli. John Harvard,
þingmaður kanadíska þingsins,
afhenti Betel-stofnuninni níu-
tfu þúsund dollara sem er
framlag kanadfska ríkisins til
safnsins.
„Það er merkilegt og ein-
stakt að erlent ríki setji upp
skrifsofu ræðismanns í svo litl-
um bæ,“ sagði Bill Barlow bæj-
arstjóri við athöfnina. „En þeg-
ar litið er á söguleg tengsl
Gimli og íslands þá er þetta
nyög rökrétt.“
Neil Bardal hefur verið aðal-
ræðismaður íslands f Winnipeg
undanfarin ár og hefur barist
ötullega fyrir því að Island
opni sendiráð í Kanada. Þegar
Svavar Gestsson tók við sem
aðalræðismaður í Winnipeg
var ákveðið að Neil yrði gerð-
ur að ræðismanni í Gimli, enda
býr hann í Húsavík sem er ör-
skammt þar frá.
„Það er kominn tími til að
skilgreina upp á nýtt tengslin
milli okkar,“ sagði Neil. „Það
eru miklir möguleikar í við-
skiptum á milli landanna og ég
vil að í Gimli verði miðstöð
þeira viðskipta. Við þurfum að
flytja út hágæða vörur frá Is-
landi og selja þær fólki sem vill
aðeins það besta. Vegna þess
að í Kanada eru tugir ef ekki
hundruð þúsunda manna af ís-
lenskum ættum þá er auðveld-
ara að markaðssetja íslenskar
vörur. Tækifærin blasa við
okkur núna en við verðum að
grípa gæsina meðan hún gefst
því tengslin minnka með hverri
kynslóð.“
Bill Barlow telur að mögu-
leikarnir á viðskiptum milli Is-
lands og Gimli séu nokkrir.
Sem dæmi nefndi hann að Is-
lendingar hefðu haft samband
við hann varðandi útflutning á
vatni og í Segrams-verksmiðj-
unni í Gimli stæði einmitt ónot-
uð átöppunarsamstæða sem
hægt væri að nýta.
„Eitt að þvf sem við setjum á
oddinn er að sannfæra Flug-
leiðir um að heíja flug til
Winnipeg,“ sagði Neil Bardal.
„Þá munu ótal möguleikar
opnast, ekki bara í ferða-
mannaþjónustu eins og gerðist
í Halifax, heldur einnig í vöru-
flutningum og viðskiptum.
Flugvöllurinn í Winnipeg er
einn nútímalegasti og besti
hlekkur til að tengja saman
flutninga í lofti við lestar og
flutningabfla í Norður-Amer-
fku.
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sín-
um í gær að endumýja skipan fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
sem starfaði á seinasta kjörtímabili og
skilaði m.a. skýrslu um störf sín fyrir
Alþingiskosningarnar í vor.
I nefndinni eru Hreinn Loftsson
hrl., formaður nefndarinnar og fulltrúi
forsætisráðherra í henni, Jón Sveins-
son hrl., fulltrúi utanríkisráðheiTa,
Steingrímur Ari Arason hagft’æðing-
ur, fulltrái fjármálaráðherra, og Sæv-
ar Þór Sigurgeirsson, löggiltur endur-
skoðandi, fulltrúi viðskiptaráðherra.
Verslunarmannahelgin í
London
frá kr. 17.500
Frábært tækifæri til að fara til London um verslunar-
mannahelgina á hreint frábærum kjörum og njóta
heimsborgarinnar í 6 daga. Farið út á miðviku-
dagskvöldi og komið heim á þriðjudagsmorgni,
þannig að aðeins er um að ræða 2 frídaga. Hjá
Heimsferðum getur þú valið um að kaupa flugsæti
eingöngu, flug og bíl eða flug og hótel í hjarta
London.
Verð kr.
17.500
Verð kr.
Verð pr. mann m.v. hjón með 2 böm,
2 —11 ára með flugvallarsköttum.
20.380
Flugsæti fyrir fullorðinn, 28. júlí,
með sköttum.
HEIMSFEKÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • simi 562 4600 • www.heimsferdir.is