Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
20% hlutur Akureyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akureyringa
Meirihluti bæjarstj órnar
samþykkti að selja bréfin
Fulltrúar minnihlutans andvígir sölu
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar
Akureyrar samþykkti á fundi í gær
að selja hlutabréf Akureyrarbæjar
í Útgerðarfélagi Akureyringa, en
fyrir fundinum lá tillaga Kristjáns
Þórs Júlíussonar bæjarstjóra þessa
efnis. Minnihluti bæjarstjómar,
fulltrúar Framsóknarflokks og L-
lista, lista fólksins greiddu atkvæði
á móti tillögunni.
Ásgeir Magnússon formaður
bæjarráðs lagði í upphafl fundar
fram tillögu um að bæjarstjórn
samþykkti að selja hlutabréf bæj-
arins í ÚA, fáist fyrir þau viðunandi
verð. Um er að ræða hlut að nafn-
virði 183,6 milljónir króna eða um
20% hlut í félaginu og er bæjar-
stjóra falið að leita tilboða í bréfin.
Andvirði bréfanna miðað við núver-
andi gengi er um 1,2 milljarðar
króna.
Hlutverki Akureyrar-
bæjar ekki lokið
Jakob Björnsson oddviti Fram-
sóknarflokks í bæjarstjóm Akur-
eyrar gerði grein fyrir sjónarmið-
um fulltrúa flokksins og lagði fram
bókun þar sem ástæður þess að
þeir telji ekki tímabært að selja
hlut bæjarins í ÚA em tíundaðar.
Fram kemur að á síðasta kjörtíma-
bili hafi Akureyrarbær selt stóran
hluta eignar sinnar í félaginu og þá
ákveðið að eiga áfram sem næmi
um 20% í því. „Ástæða þess var
ekki hvað síst sú að skapa mögu-
leika fyrir Akureyrarbæ að hafa
áhrif í samræmi við eignaraðild
sína á þróun fyrirtækisins í þeim
breytingum sem fyrirsjáanlegt var
að verða þyrftu á rekstri þess og
vera um leið einn af traustustu
hornsteinum og bakhjörlum félags-
ins. Þessu hlutverki Ákureyrarbæj-
ar er ekki lokið,“ segir í bókun full-
trúa Framsóknarflokksins. Enn-
fremur að þær breytingar og end-
urskipulagning sem gripið var til
séu fyrst nú á síðustu mánuðum að
skila árangri. Einnig sé ljóst að
ekki sjái fyrir endann á þeirri þró-
un og öru breytingum sem að und-
anförnu hafl einkennt íslenskan
sjávarútveg.
Jakob sagði að ekki lægi fyrir
hvernig ráðstafa eigi þeim pening-
um sem koma fyrir hlutabréfin, en
lágmarkskrafa væri að svo væri.
Óljósar hugmyndir væru uppi um
að nota það til atvinnuuppbygging-
ar.
Frekar Ián en
sölu eigna
Oddur Helgi Halldórsson bæjar-
fulltrúi L-lista lagði til að tillögu
bæjarstjóra um sölu á hlutabréfun-
um yrði vísað frá, en hún var felld
með atkvæðum meirihlutans. I bók-
un hans kemur fram að það hafi
verið stefna L-listans að selja ekki
hlutabréf Akureyrarbæjar í ÚA.
„Við teljum rétt að bæjarstjórn hafi
áhrif á stjórnun félagsins og gæti
þar með hagsmuna bæjarbúa og
þeirra Akureyringa sem eiga í ÚA
sem og þeirra sem þar vinna,“ segir
í bókuninni.
Oddur telur fráleitt að bærinn
geti ekki haft áhrif á stjómun fyrir-
tækisins með 20% eignarhlut og
sagði það mikinn styrk fyrir félagið
að Akureyrarbær ætti svo stóran
hlut. Vildi hann fremur taka fé að
láni til að nota til framkvæmda en
að selja hlutabréfin.
Oktavía Jóhannesdóttir, Akur-
eyrarlista, sagði listann standa heil-
an á bak við ákvörðun um sölu bréf-
anna, en aðdróttanir um annað
hefðu komið fram. Hún benti á að
ýmsar hugmyndir hefðu komið
fram um hvernig verja ætti pening-
unum, en betur ætti eftir að fara yf-
ir þær í bæjarráði.
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar rakti söguna frá því
Akureyrarbær átti 80% hlut í félag-
inu og hvernig bærinn hefði smám
saman losað um þessa eign sína.
Hann taldi engan vafa á því að fyr-
irtækið yrði áfram í blómlegum
rekstri þó bærinn ætti ekki hlut í
því. Það fé sem fengist hafi fyrir
sölu bréfa á síðasta kjörtímabili
hafi verið notað til að minnka
skuldir bæjarins og það hefði aukið
svigrúm bæjarsjóðs og getu. Aldrei
hefði hvarflað að meirihlutanum nú
að selja hlutabréfin til að fegra
reikninga bæjarins eins og fulltrúar
minnihlutans hefðu ýjað að.
VIS gefur
þjálfurum reið-
hjólahjálma
GUNNAR Gunnarsson umferðar-
öryggisfulltrúi á Norðurlandi er
þessa dagana að færa knatt-
spymuþjálfurum liða á Norður-
landi reiðhjólahjálma. Hann byij-
aði á að færa nokkrum af þjálfur-
um KA á Akureyri hjálma í gær,
en það er Vátryggingafélag Is-
lands sem gefur hjálmana, alls um
50 stykki. „Eg mun næstu daga
ferðast um fjórðunginn og hitta
þjálfara að máli og færa þeim
þessa reiðhjólahjálma,“ sagði
Gunnar. „Þjálfaramir em fyrir-
myndir bamanna og því mikilvægt
að þeir noti hjálma þegar þeir em
á ferðinni á reiðhjólum sínum. Það
er ekki nóg að börnin noti hjálma
og telji að óhætt sé að hætta notk-
un þeirra þegar þau eldast."
Á myndinni afhendir Gunnar
þjálfumnum Birni Björnssyni,
Jóni Pétri Róbertssyni, Hlyni Jó-
hannssyni, Slobodan Milisic og Jó-
hanni Steinarssyni reiðhjóla-
hjálmana.
Bygging lagerhúss að Rangárvöllum
Fjögur tilboð og
öll yfír áætlun
FJÖGUR tilboð bárust í byggingu
verkstæðis- og lagerhúss að Rangár-
völlum en það munu Hita- og vatns-
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
veita Akureyrar og Rafveita Akur-
eyrar nota. Öll tilboðin voru yfir
kostnaðaráætlun, en hún hljóðaði
upp á rúmar 24,2 milljónir króna.
Þeir sem buðu voru Katla ehf, en
tilboð fyrirtækisins var upp á rúmar
28,5 milljónir króna, sem er 117,8%
af áætluðum kostnaði. Páll Alfreðs-
son ehf. bauð rúmar 28,9 milljónir,
119,5% af áætluðum kostnaði SS-
byggir ehf. bauð um 30 milljónir
króna í verkið sem er 124,1% af
áætlun !og Fjölnir ehf. rúmar 32,8
milljónir, 135,5% af kostaðaráætlun.
í verkinu felst jarðvinna, að
steypa grunn, reisa límtrésgrind og
klæða með einingum, innrétta húsið
og fullgera það. Framkvæmdum á að
ljúka 30. október næstkomandi.
Bæjarlind — Kóp.
Nýkomið eitt glæsilegasta verslunar-
og skrifstofuhúsnæði á þessum
vinsæla stað í Kópavogi. Lyftur og
glæsilegur frágangur. Húsnæðið er
2.200 fm og skiptist í ýmsar stærðir.
Afh. tilbúið til innréttinga í ágúst. Til-
valið fyrir banka, stofnanir, verð-
bréfamiðlun, tryggingamiðlun, lög-
menn, endurskoðendur, margmiði-
un, tannlækna o.fl.
Miðhraun — Garðabæ
Til sölu í þessum glæsilegu húsum, 427 fm endabil, 287 fm endabil og
140 fm miðbil. Húsin eru iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði sem verða afhent
tilbúin undir tréverk.
Skúlagata 10
Vorum að fá í einkasölu glæsilega
Ijósa- og snyrtistofu, sem er í fullum
rekstri. Uppi. gefur l'sak.
Valhöll, atvinnuhúsasala
Síðumúla 27, sími 588 4477.
Sölustjóri ísak Jóhannsson,
gsm 897 4868.
Morgunblaðið/Golli
EINS og sjá má er hafnargarðurinn mjög illa farin. Ásgeir Logi Ásgeirsson bæjarstjóri Ölafsfjarðar stendur
á þeim stað þar sem hafnargarðurinn er að liðast í sundur.
Skemmdir á hafnargarði í Ólafsfírði og óttast er að höfnin geti lokast
Viðgerðarkostnaður
áætlaður um 45 millj.
HAFNARGARÐURINN í Ólafs-
firði hefur skemmst mikið af ágangi
sjávar og er nú svo komið að sjórinn
hefur grafið allar fyllingar undan
framgarðinum. Þegar brimið er sem
verst gengur hafnargarðurinn til og
óttast menn að hann muni losna frá
og þar með loka höfninni ef ekkert
er að gert.
Skelfileg tilhugsun
Að sögn Ásgeirs Loga Ásgeirs-
sonar, bæjarstjóra í Ólafsfirði, var
höfnin ekki á framkvæmdaáætlun
fyrr en árið 2002 en þeim hefði tek-
ist að fá svokallaða flýtifjárveitingu.
Hins vegar þarf Hafnasamlag Eyja-
fjarðar að standa straum af fjár-
magnskostnaði og segir Ásgeir Logi
það vera allt of stóran bita fyrir
Hafnasamlagið. Gert er ráð fyrir að
viðgerð kosti um 45 milljónir króna.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að þetta er dýrt en við erum ekki að
fara út í þessar framkvæmdir nema
vegna þess að ástæðan er ærin. Ef
höfnin lokast þá er lífæð þessa
kaupstaðar farin. Hér snýst allt um
sjávarútveg og það eru ekki bara
skip og fiskvinnsluhús sem koma að
sjávarútveginum heldur iðnaðar-
menn og ýmiss konar þjónusta.
Útsvarstekjur sjómanna eru stór
hluti af fjármagni bæjarins og ég
held að enginn þori að hugsa þá
hugsun til epda að höfnin muni lok-
ast,“ sagði Ásgeir Logi. Hann segir
að margir skipstjórnarmenn í Ólafs-
firði séu uggandi vegna ástandsins.
„Þeir óttast það jafn mikið að lokast
inni í höfninni eins og að lokast fyrir
utan hana. Ef skipin lokuðust inn í
höfninni væri ekki mikið gagn að
þeim þar,“ sagði Ásgeir Logi.
Hann sagði að vissulega væri
hægt að vísa skipum til löndunar á
Dalvík ef menn teldu of mikla
áhættu að landa í Ólafsfjarðarhöfn.
„Vandamálið á Dalvík er hins vegar
smæð hafnarinnar, skipin gætu ekki
legið þar, heldur yrðu að færa sig
eftir löndun. Nú ef menn færu að
landa inn á Akureyri þá misstum
við afskipunargjöld og ýmislegt
þess háttar þannig að vandamálið
er stórt og mjög alvarlegt,“ sagði
Ásgeir Logi.
Framkvæmdum
verði flýtt
Ásgeir sagði að útboð hefði verið
auglýst og að tilboð yrðu opnuð 10.
ágúst næstkomandi. „Hvenær
framkvæmdir hefjast og hvenær
þeim lýkur verður síðan tíminn að
leiða í Ijós, en hitt er ljóst að afar
brýnt er að þessu máli verði hraðað
svo sem kostur er,“ sagði Ásgeir
Logi.