Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Yfírlit Vinnumálastofnunar yfír atvinnuástand sýnir enn minnkandi atvinnuleysi
STUTTERLENT
Atvinnuleysi 1,8% í júní
AÐ meðaltali voru 2.645 manns á
atvinnuleysisskrá í júnímánuði síð-
astliðnum, samkvæmt atvinnuleys-
isdögum í mánuðinum. Þetta jafn-
gildir því að 1,8% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar hafi
verið atvinnulaus, segir í yfirliti
Vinnumálastofnunar yfir atvinnuá-
stand á Islandi. Atvinnuleysi var
2,6% í júní í fyrra.
Atvinnulausir karlar voru að
meðaltali 953 talsins og atvinnu-
lausar konur voru 2.083 í júnímán-
uði. Þessar tölur jafngilda 1,1% at-
vinnuleysi meðal karla á landinu og
2,8% atvinnuleysi meðal kvenna.
Fjöldi atvinnulausra í júní er
0,7% minni en í maímánuði síðast-
liðnum, en fækkunin er 27,8% frá
júní 1998.
Séu tölur um breytingu milli
mánuðanna maí og júní á þessu ári
skoðaðar með tilliti til landshlut-
anna kemur í ljós að samdráttur
atvinnuleysis var mestur á Norður-
landi vestra, 0,9%, en næstmestur
var hann 0,3% í Norðurlandi
eystra, Austurlandi og á Suður-
nesjum. Atvinnuleysi stóð í stað á
Vesturlandi og á Vestfjörðum, en
jókst um 0,1% á höfuðborgarsvæð-
inu.
Atvinnuleysi var minna í júní-
mánuði í öllum landshlutum en það
var í júní 1998. Mestur var sam-
dráttur í atvinnuleysi 2,2% á Norð-
urlandi vestra en minnstur um
0,1% á Austurlandi. Ef breytingar
milli júní 1998 og júní 1999 eru
kannaðar með tilliti til kynjanna
kemur í ljós að atvinnuleysi var
0,3% meira meðal karla á Austur-
landi nú en í fyrra, en dróst mest
saman um 1,0% hjá körlum á Norð-
urlandi vestra. Atvinnuleysi dróst
minnst saman meðal kvenna á
Vestfjörðum á þessu 12 mánaða
tímabili, eða um 0,2%, en mest
dróst það saman meðal kvenna á
Norðurlandi vestra eða um 4,0%. Á
landinu öllu var atvinnuleysi 0,4%
minna meðal karla og 1,3% minna
meðal kvenna í júní á þessu ári en í
júnímánuði 1998.
Vinnumálastofnunin spáir því að
atvinnuleysi á landinu í júlí verði á
bilinu 1,6-1,9%.
Atvinnuleysi í júní 1997 til júní 1999
Skráð atvinnuleysi í júnímánuði
skipt eftir landsvæðum og kyni Konur Karlar Alls
Höfuðborgarsvæðið 3,3% 1,4% 2,3%
Landsbyggðin 2,1 % 0,7% 1,3%
Vesturland 1,1 % 0,5% 0,8%
Vestfirðir 1,4% 0,3% 0,7%
Norðurland vestra 3,2% 1,2% 2,0%
Norðurland eystra 2,9% 1,1 % 1,8%
Austurland 1,3% 0,8% 1,0%
Suðurland 1,9% 0,4% 1,0%
Suðurnes 2.4% 0.2% 1.0%
Landið allt 2.8% 1.1% 1,8%
Fimm mánaða rekstraruppgjör Hraðfrystihússins hf, á Hnífsdal og Súðavík
Hagnaður tímabils-
ins 30,5 milliónir kr.
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ hf. á Hnífsdal og Súðavík hagnaðist um 30,5 millj-
ónir á tímabilinu 1. janúar til 31. maí árið 1999, að teknu tillíti til reiknaðra
tekjuskatta. Rekstrartekjur námu 761,9 milljónum króna og rekstrargjöld
án afskrifta og fjármagnsliða 636,8 milljónum. Þetta kemur fram í fimm
mánaða árshlutareikningi Hraðfrystihússins hf., en hann er með könnun-
aráritun endurskoðenda, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá
Hraðfrystihúsinu hf.
Kona til æðstu metorða hjá
tölvurisanum Hewlett Packard
Fiorina nýr
forstjóri
STJÓRN Hewlett
Packard hefur valið
fyrirtækinu nýjan
forstjóra. Fyrir val-
inu varð hin 44 ára
gamla Carleton Fi-
orina og tekur hún
við starfinu af Lewis
E. Platt en Platt,
sem er 58 ára, til-
kynnti nýlega að
hann hygðist setjast
í helgan stein frá og
með næstu áramót-
um.
Hin nýi forstjóri
félagsins hóf störf á
föstudaginn var og
mun jafnframt silja í
stjórn félagsins. Auk
þess situr Fiorina í
stjórnum Kellogg-fyrirtækisins
og Merck & Co. og var nýlega
kosin í stjóm um viðskipti
Bandaríkjanna við Kína.
Ahrifamesta konan í banda-
rísku viðskiptalífi
Carleton Fiorina var nýlega
útnefnd áhrifamesta kona
bandarísks viðskiptalffs af tíma-
ritinu Fortune. Hún hefur 20 ára
víðtæka tækni- og fjarskipta-
Carly Fiorina tekur
við starfi Lewis E.
Platt sem forstjóri HP.
reynslu og hefúr
áunnið sér gott orð
við stjómun ört
vaxandi stórfyrir-
tækja.
Síðastliðin 2 ár
var hún forstjóri
Lucent’s Global
Service Provider,
sem veltir yfir 20
milljörðum dollara
á ári, og áður hafði
hún starfað í nær 20
ár hjá fjarskiptafyr-
irtækinu AT&T þar
sem hún gegndi
ýmsum ábyrgðar-
stöðum.
Fiorina lauk námi
í miðaldasögu og
heimspeki frá Stan-
ford-háskólanum, þá lauk hún
meistaragráðu í viðskiptafræð-
um frá háskólanum í Maryland
og meistaragráðu í raunvísind-
um frá MIT’s Sloan skóianum.
Velta Hewlett Packard nam
um 3.500 miHjörðum íslenskra
króna á seinasta ári og var
fyrirtækið hið 13. stærsta í
Bandaríkjunum, sé miðað við
veltu. Fjöldi starfsmanna HP er
nú 123.000.
„Við erum ekki vanir að gera
fimm mánaða uppgjör. En þetta er
gert með þessum hætti nú vegna
hinnar væntanlegu sameiningar við
Gunnvöru hf. á Isafirði til að stilla
af skiptihlutföll milli fyrirtækj-
anna,“ segir Einar Valur Kristjáns-
son, stjómarformaður Hraðfrysti-
hússins hf. í samtali við Morgun-
blaðið.
Einar segir að ferli sameiningar-
innar sé í fullum gangi. „Við erum
að vona að sameiningin verði að
fullu afstaðin um mánaðamótin
ágúst-september. Þá verða fyrir-
tækin formlega komin undir einn
hatt.“
Um rekstur Hraðfrystihússins hf.
segir Einar Valur að veiðar og
vinnsla bolfisks gangi vel. „Rekstur
rækjuvinnslunnar er í lagi en út-
gerð rækjuskipanna hefur verið
mjög erfið fyrstu fimm mánuðina.
Það hefur verið dýrt að sækja hvert
kíló. En í júní og júlí hefur aflí á út-
haldsdag heldur verið að aukast,"
segir Einar að lokum.
Hraðfrystihúsið hf.
1. janúar - 31. maí 1999 1
Rekstrarreikningur Milljónir króna
Rekstrartekjur 762,0
Rekstrargjöld Rekstrarhagnaður -636,8
fyrir afskriftir 125,1
Afskriftir -67,1
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði 58,1
Fjármagnsliðir Hagnaðuraf reglul. -20,9
starfs. fvrir skatta 37.2
Hagnaður tímabilsins 30,5
Efnahagsreikningur
Fastafjármunir 2.141,9
Veltuf jármunir 720,8
Eignir samtals 2.862,6
Eigið fé 597,4
Skuldbindingar 75,2
Langtímaskuldir 1.616,5
Skammtímaskuldir Skuldir og 573,5
skuldbindingar 2.265,2
Skuidir og eigið fé samtals 2.862,6
Sjóðstreymi og kennitölur
Veltufé frá rekstri 82,9
Eiginf járhlutfall 20,9%
Toyota byggir
á Akureyri
UMBOÐSAÐILA Toyota á
íslandi, P. Samúelssyni, var nýlega
úthlutað lóð á Akureyri og hyggst
fyrirtækið byggja þar 1300
fermetra húsnæði fyrir starfsemi
sína á svæðinu. Teikningar að
húsinu er tilbúnar og útboð á
verkinu hefur farið fram. Tilboð
sem bárust voru opnuð á
fostudaginn var og nú er verið að
fara yfir þau og meta. Húsnæðið á
að vera tilbúið fyrir 1. maí á næsta
ári.
Að sögn Boga Pálssonar,
forstjóra P. Samúelssonar, er nýja
húsnæðið liður í að hagræða og
auka þjónustustigið á svæðinu.
„Við höfum í mörg ár verið með
sölu- og þjónustuaðila þarna sinn í
hvoru lagi en ætlum að sameina
þetta núna í eitt öflugt umboð þar
sem viðskiptavinir okkar geta
fengið aðgang að allri þjónustu,
hvort sem það er sala nýrra og
notaðra bíla, varahlutir eða
viðgerðaþj ónusta.
Umboðsaðilinn okkar á
Akureyri, Bílasalan Stórholt,
kemur til með að vera með rekstur
á þessu umboði okkar. Við
byggjum sem sagt húsið og búum
tO aðstöðuna en reksturinn verður
í höndum heimamanna," segir
Bogi.
Hagnaður
Microsoft
jókst um 62%
Seattle. Reuters.
• HAGNAÐUR Microsoft jókst um
62% á síöasta fjóröungi fjárhagsárs-
ins miðaö viö sama tíma á síðasta
ári. Sérfræöingar höföu ekki búist
við svo mikilli hagnaðaraukningu en
hún er fyrst og fremst talin vera sölu
á Office 2000-pakkanum aö þakka.
Hagnaöur Microsoft á tímabilinu
var tæpir 163 milljarðar íslenskra
króna, eöa 40 sent á hlut. Á sama
tímabili í fyrra var hagnaöurinn um
100 milljöröum tslenskra króna.
Fjármálastjóri Microsoft haföi uppi
varnaöarorð um framhaldiö. Hann
sagöi hagnað fyrirtækisins myndi
ekki aukast svo mikiö á komandi ári
vegna minnkandi eftirspurnar á
einkatölvumarkaðnum, auk þess
sem 2000-vandinn heföi áhrif á fólk.
Á Netið um
myntsíma
• NÝIR myntsímar eru væntanlegir
á markaö í Bretlandi en um þá er
hægt aó tengjast Netinu, hraöar en
áður hefur tíökast, aö því er fram
kemur á fréttavef BBC.
Talsmenn fjarskiptafyrirtækisins
British Telecom segja fyrsta lands-
kerfi margmiðlunarmyntsíma vænt-
anlegt á næsta ári, meö uppsetn-
ingu 1000 símtækja í mars nk.
Fyrsti síminn hefur þegar verið tek-
inn í notkun á Waterloo stöðinni í
Lundúnum.
Lágmarksgjald fyrir að vafra um
vefinn í 10 mínútur um myntsíma er
eitt pund eöa 117 íslenskar krónur.
Þetta verö hefur veriö gagnrýnt en
sama gjald hefur veriö tekiö fyrir
klukkustundina þegar fólk tengist
um símalínu aö heiman.
Talsmenn BT sögðu gjaldiö nauö-
synlegt vegna mikils kostnaöar við
þróunarvinnu en sögðu verkefnið
einstakt fyrir þær sakir aó öllum
gæfist nú kostur á að komast á
Netiö á öllum tímum sólarhringsins.
Kaffi vinnur á
i Bretlandi
London. Reuters.
• TE er ennþá vinsælasti drykkurinn
meöal Breta en kaffidrykkja vinnur á,
samkvæmt könnun sem nýveriö var
þirt í Bretlandi á vegum Datamoni-
tor. Nú drekkur hver Breti 1.016 te-
bolla á ári en kaffibollarnir eru 204.
Tedrykkja, sem hlutfall af allri
neyslu á drykkjum án áfengis í Bret-
landi er nú 56,1%. Hlutur kaffis á
sama mælikvarða er nú 11,3% og
hefur aukist um 1,6%.
Kaffihúsum hefur fariö ört fjölgandi
í Bretlandi síöustu ár og hafa þau
notið mikilla vinsælda hjá ungu kyn-
slóðinni. Teframleiöendur hyggjast
kynna tehefðina fyrir unga fólkinu og
nýir testaðir eru farnir aö skjóta upp
kollinum.
Konum i stjórn-
unarstöðum
fjölgar i Japan
Tokyo. AP.
• KONUM í stjómunarstöðum hefur
fjölgaö nokkuö í Japan og eru nú í
fyrsta skipti yfir 60.000. Þrátt fyrir
fjölgunina eru japanskar konur enn
fámennar I æöstu stöðum innan fyrir-
tækja. Konur eru yfirmenn 60.593 af
1,14 milljónum fyrirtækja í Japan,
eöa hjá 5,3% fyrirtækja. Hlutfall
kvenna hefur aukist um 3,3% frá
sama tíma í fyrra.
Japanskar konur hafa ekki komist
til metoröa hjá stórum fyrirtækjum en
eru fjölmennar í yfirmannsstööum hjá
smærri fyrirtækjum. Mörg fyrirtæki
hafa þrýst á konur um aö hætta
störfum þegar þær gifta sig eöa nálg-
ast fertugt og hafa þær því mætt
ýmsum hindrunum í metoröastigan-
um hingað til. Jafnréttislög hafa nú
veriö rýmkuö talsvert í Japan.