Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 19
VIÐSKIPTI
Frönsk stjórnvöld þrengja möguleika Elf Aquitaine að komast undan yfírtöku
STUTTERLENT
3.760 milljarða króna
gagntilboð í TotaiFina
Krafa um að eignarhald verði áfram franskt
Philippe Jaffre Thierry Desmarest
stjórnarformaður stjórnarformaður
Elf Aquitane TotalPina
París, London. Reuters.
FRANSKA olíufélagið Elf
Aquitaine hefur gert gagntilboð í
fransk-belgíska keppinautinn
TotalFina, upp á 50,3 milljarða evra
sem samsvarar 3.760 mOIjörðum ís-
lenskra króna. TotalFina gerði til-
boð í Elf 5. júlí sl., upp á 42 millj-
arða evra eða um 3.240 milljarða ís-
lenskra króna.
Litið var á tilboð TotalFina fyrir
tveimur vikum sem óvinveitt og
einsetti stjórn Elf sér að verjast
því. Nú hefur Philippe Jaffre,
stjórnarformaður Elf, látið hafa
eftir sér að franska ríkisstjórnin
hafi takmarkað varnarmöguleika
Elf með því að gera kröfu um að
eignarhald á fyrirtækinu yrði
áfram franskt og því væri samruni
við TotalFina eini möguleikinn í
stöðunni.
Peningagreiðsla auk
hlutabréfaskipta
Gagntilboð Elf var talið síðasti
varnarmöguleiki fyrirtækisins við
fyrra tilboði TotalFina. Sérfræð-
ingar töldu annars vegar hugsan-
legt að Elf sæktist eftir aðstoð er-
lendis frá, hins vegar að Elf keypti
annað fyi-irtæki til að þrýsta á
TotalFina um að hækka tilboð sitt.
Þriðji möguleikinn var að stjórn Elf
semdi við TotalFina á sáttanótun-
um. Gagntilboðið hefur því komið
nokkuð á óvart.
Stjórn Elf hefur
ákveðið að bjóða þrjá
hluti í Elf og 190 evr-
ur til viðbótar fyrir
hverja fimm hluti í
TotalFina. Tilboð
TotalFina fól í sér að
hluthafar í Elf fengju
fjóra hluti í TotalFina
fyrir hverja þrjá í Elf.
Ef tilboði Elf verð-
ur tekið hyggst stjórn
fyrirtækisins halda
starfsemi nýs stórfyr-
irtækis tvíþættri.
Annars vegar fjórða
stærsta orkufyrirtæki
í heimi og hins vegar
sérstakri efnaverk-
smiðju sem yrði sú fimmta stærsta
á heimsvísu.
„Með tilboði okkar getur orðið til
orkufyrirtæki með skýr markmið
og mikla vaxtarmöguleika,“ sagði
Philippe Jaffre í yfirlýsingu. Hann
sagði að með væntanlegum sam-
runa yrði 6.000 störfum fórnað, þar
af 2.000 í Frakklandi. Jaffre vonast
til að tilboðið verði álitið vinveitt.
Haft hefur verið eftir Thierry
Desmarest, stjórnarformanni
TotalFina, að hann sjái nú meiri
möguleika á samruna TotalFina og
Elf með samþykki beggja aðiia og
sátt. Hann er ánægður með að
stjómir fyrirtækjanna hafi báðar
sama markmið, þ.e. samruna fyrir-
tækjanna.
Elf fær 18 milljarða evra lán
Desmarest lýsti aftur á móti yfir
mótmælum við þá áætlun Elf að
bjóða peningagreiðslu samhliða
hlutabréfaskiptum og sagði það
veikja fjárhagsstöðu sameinaðs fyr-
irtækis. Desmarest er heldur ekki
sammála þeim áformum Elf að
skipta fyrirtækinu í tvær deildir.
Elf hefur nú tryggt sér 18 millj-
arða evra lán til að fjármagna tO-
boðið, að því er fram kemur í Fin-
ancial Times í gær. Fjögur fjárfest-
ingarfyrirtæki hafa verið Elf til
ráðgjafar í málinu og leggja þau 4,5
milljarða evra fram hvert.
Elf olíufélagið áætlar að sparnað-
aráhrif af samruna fyrirtækjanna
verði að upphæð 2,5 milljarðar evra
fyrir skatta, innan þriggja ára frá
samrunanum. Upphæðin samsvar-
ar 192,5 milljörðum íslenskra króna
og er meira en tvöföldun á því sem
TotalFina gerði ráð fyrir í tilboði
sínu fyrir tveimur vikum.
Elf hefur einnig tilkynnt um sölu
á 15% af eignarhlut sínum í franska
lyfjafyrirtækinu Sanofi-Synthelabo
en þau 20% sem eftir eru verða
hluti af væntanlegri efnaverk-
smiðju sameinaðra fyrirtækja.
Hlutabréf í Elf hafa hækkað um
20,6% síðan TotalFina gerði tilboð
vegna tiltrúar fjárfesta. Mark-
aðsvirði Elf hækkaði um 8,55 millj-
arða evra í kjölfarið. Eftir að tUboð
Elf kom fram hefur hækkaði hluta-
bréfaverð í TotalFina nokkuð, en
verð bréfa í Elf aftur á móti lækk-
aði. í kjölfar yfirlýsingar
Desmarest um hugsanlegan
vinveittan samruna fyrirtækjanna
lækkaði hinsvegar hlutabréfaverð
beggja í gær, TotalFina um 3,6%
og Elfum 1,2%.
Stjórnvölcl vilja
ekki meiri-
hluta í Hydro
• LARS Sponheim, atvinnumálaráð-
herra og starfandi forsætisráðherra í
norsku ríkisstjórninni, segir í samtali
við norska blaðið Dagens Nær-
ingsliv að norsk stjórnvöld hafi ekki
í hyggju að ná aftur meirihlutaeigu í
Norsk Hydro. í tengslum við yfirtöku
Hydro og Statoil á fyrirtækinu Saga
Petroleum, sem fram fór í júní, fór
hlutafjáreign norska ríkisins í Hydro
niöur í tæplega 44%. Sponheim seg-
ir að enda þótt Stórþingið hafi gefiö
ríkisstjórinni heimild til að ná meiri-
hluta á ný með hlutabréfakaupum
muni hún ekki nýta sér þá heimild.
Talið er að ummæli Sponheims,
sem er formaður Venstre, geti valdið
óróa innan norsku ríkisstjórnarinnar
þvt vitað er að stjórnarflokkarnir eru
ekki á eitt sáttir f málinu, aö því er
segir í Dagens Næringsliv.
Samsung áætl-
ar að hagnaður
aukist um 700%
Seoul. Reuters.
• BÚIST er viö að Samsung raf-
eindavöruframleiöandinn í S-Kóreu
sýni um eins milljarðs dollara hagn-
að síðustu sex mánuði, en það er
700% hækkun frá sama tíma T fyrra.
Sala á fjarskiptabúnaöi og flötum
tölvuskjáum er talin eiga mestan
þátt í hagnaöinum. Hlutdeild fyrir-
tækisins á alþjóðamarkaði fýrir
tölvuminni var 18,6% árið 1998.
Hlutabréf í Samsung hafa hækk-
að um 116% á þessu ári og gert er
ráð fyrir áframhaldandi hækkun. Bú-
ist er við milliuþpgjöri frá fyrirtækinu
um miöjan næsta mánuð.
Daewoo berst
við gjaldþrot
Seoul. Reuters.
LANARDROTTNAR suður-
kóresku samsteypunnar Daewoo
hafa samþykkt að veita fyrirtækinu
ný lán í stað eldri lána sem voru í
þann veginn að leiða til gjaldþrots
Daewoo. Fundur fulltrúa 69 lána-
stofnana í S-Kóreu stóð yfir í þrjár
klukkustundir í gær en þar var
beiðni forsvarsmanna Daewoo sam-
steypunnar rædd og samþykkt.
Stjórn Daewoo hafði boðið lánar-
drottnum 8,6 milljarða dollara eign-
ir til að freista þess að fá skamm-
tímalánum skuldbreytt. Stjórnar-
formaður Daewoo, Kim Woo-Jong,
ætlar sjálfur að leggja fram 1,06
milljarða dollara sem veð.
Hrun Daewoo, annars stærsta
fyrirtækis S-Kóreu, gaéti haft þau
áhrif að traust á áframhaldandi
bata efnahags landsins færi rýrn-
andi, eins og fram kemur á frétta-
vef BBC. Fyrirtækið stendur höll-
um fæti vegna fjármálakreppunnar
í Asíu á síðasta ári og talsmenn
þess segja lengri tíma nauðsynleg-
an til að fyrirtækið nái sér aftur á
strik.
Tilkynnt hefur verið að Daewoo
muni endurskipuleggja starfsemi
þannig að bflaframleiðsla og bygg-
ingarframkvæmdir verði í fyrir-
rúmi en starfsemi af öðru tagi seld
til erlendra aðila. Stjórnarformað-
urinn hyggst svo segja af sér þegar
endurskipulagning er komin á veg.
30 ára reynsla
Hleðslugler
Speglar
GLERVERKSMIÐJAN
Sawvepk
Eyjasandur 2 • 8SO Hella
e 487 5888 • Fax 487 5907
RYMINGARSALA
E0-50%
afsláttur
Göngutjald eða hjólatjald
Vandað, tvöfalt og vatnshelt 2 manna,
aðeins 2 kg. Tilboð kr. 8.900,
verð áður kr. 9.900.
BS*
SUPEB
M0UKTAIN
Svefnpokar, margar gerðir
Verð frá kr. 3.200
-10°C verð kr. 4.800, áður 6.900,
-20°C verð kr. 5.900, áður 9.200.
2 manna tjald í felulitum nú kr.
1.950, áður 3.900. 2 manna kúlutjald nú kr.
2.400, áður 3.900. 5 manna ristjald tvöfalt
tilboð kr. 12.900, áður 18.900.
Buslulaugar og útileiktæki
Buslulaug, 120 x 180 sm, kr. 4.500
Bakpokar, stórir og smáir
Dagpokar verð frá kr. 990
Buslulaug, 120 x 240 sm, mynd, kr.7.800 Mittistöskur frá kr. 490
Róla einföld, nú kr. 4.900,
áður kr. 6.900. Róla á mynd, kr. 10.400,
áður kr. 13.900.
Vandaðir 65 I pokar frá kr. 4.900
Vandaðir 75 I pokar frá kr. 5.400.
Hlíf á bakpoka kr. 900
Armúla 40
Símar 553 5320,
568 8860
ÍEIn stærsta sportvðruverslun landalns
I Ferslunin
7H4RI
D
FERÐAVÖRUR
Mjög vandaðir gönguskór. Frontera 5, Gore-Tex, kr. 7.900, áður 11.900
Leður gönguskór. Authentic 6, Gore-Tex, kr. 11.900, áður 18.300
Gönguskór verð frá kr. 2.900.
GÖNGUSTAFIR margar gerðir, verð frá kr. 1.300 stk.
ÚTIVISTARFA TNAÐUR
Vandaður útivistarfatnaður frá
SCANDA, VANDER, LOADSTONE og
fleirum. Fleece peysur, nærföt, sokkar,
hanskar, legghlífar og fleira.
svampdýna, verð frá kr. 690
Vindsæng, verð frá kr. 1.440
Dýna, sjálfuppblásin verð frá kr. 6.200
Pumpur, verð frá kr. 690
SALOMON GONGUSKOR