Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Palestínu-
menn særðir
Forseti Taívans ítrekar afstöðu sína í deilunni við Kínverja
Segir sameiningu
forsendu „eins Kína“
ÍSRAELSKIR hermenn skutu í
gær gúmmíkúlum á tugi ungra
Palestínumanna sem efndu til
mótmæla á Gaza-svæðinu til að
kreQast þess að Ehud Barak, for-
sætisráðherra Israels, fyrirskipaði
að hætt yrði við að stækka byggð-
ir gyðinga á hernumdu svæðun-
um. Níu Palestínumenn særðust.
Hermennirnir hófu skothríð á
ungliða í Fatah-hreyfíngu Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna,
sem söfnuðust saman við byggð
gyðinga í Netzarim og grýttu her-
mennina til að mótmæla bygging-
arframkvæmdunum.
Embættismenn heimastjórnar
Palestínumanna sögðu í gær að
Arafat hygðist ræða á næstunni
við leiðtoga tveggja palestínskra
hreyfínga, PFLP og DFLP, sem
eru andvígar friðarsamningunum
við ísraela. Þetta yrði fyrsti fund-
ur Arafats með George Habash,
leiðtoga PFLP, frá þvi' Arafat und-
irritaði, fyrir hönd PLO, Frelsis-
samtaka Palestínu, fyrsta friðar-
samninginn við ísraela árið 1993.
Taipei, Peking. Reuters.
LEE Teng-hui, forseti Taívans, lét
engan bilbug á sér finna í gær í
deilunni við Kínverja um pólitíska
stöðu eyjunnar og sagði að „eitt
Kína“ væri aðeins mögulegt með
„lýðræðislegiú sameiningu“ Taívans
og kínverska meginlandsins. Þang-
að til bæri að líta á Kína og Taívan
sem tvö aðskilin ríki.
„Kína er ekki eitt ríki núna,“
sagði Lee og áréttaði yfirlýsingu
sína frá 9. júlí um að Taívanar höfn-
uðu þeirri afstöðu að aðeins væri til
„eitt Kína“ og Taívan og kínverska
alþýðulýðveldið væru aðskildar
„pólitískar einingar" innan eins rík-
is.
„Kína getur ekki verið eitt ríki
nema með lýðræðislegri samein-
ingu þegar fram líða stundir," sagði
Lee. Forsetinn reyndi þó að full-
vissa Kínverja um að þessi afstaða
merkti ekki að Taívanar sæktust
eftir fullu sjálfstæði. Kínverjar hafa
sakað Taívana um að stefna að því
að lýsa yfír sjálfstæði og hótað að
beita hervaldi til að koma í veg fyr-
ir það.
Lee hafnaði þeirri afstöðu Kín-
verja að með hugtakinu „eitt Kína“
væri eingöngu átt við kínverska al-
þýðulýðveldið og að Taívan væri
aðeins uppreisnarhérað í Kína.
Her Kína segist ekki í við-
bragðsstöðu
Kínverski herinn neitaði í gær
fréttum um að hann hefði fengið
fyrirmæli um að vera í viðbragðs-
stöðu vegna deilunnar um stöðu
Taívans. Dagblað í Hong Kong,
Wen Wei Po, sem styður stjórn
Kína, hafði skýrt frá því að herinn
væri í viðbragðsstöðu og byggi sig
undir liðsflutninga til héraða í
grennd við Taívan.
Talsmaður kínverska hersins
sagði að liðsflutningar hans væru
aðeins liður í venjulegum heræfing-
um. Helsta verkefni hersins væri
nú að aðstoða yfirvöld í baráttunni
við árleg flóð í Kína.
Bandaríkjastjórn sagði í fyrra-
dag ekkert benda til þess að Kín-
verjar væru með mikinn hernaðar-
viðbúnað vegna deilunnar um stöðu
Taívans.
Reuters
Spratlyeyjar
Kínverskum
báti sökkt
Manila. Reuters.
SPENNAN í samskiptum Kína og
Fiiippseyja vegna deilunnar um
Spratlyeyjar magnaðist í gær þegar
filippseyskt herskip sökkti kínversk-
um fiskibáti í árekstri nálægt eyjun-
um.
„Við lítum þennan atburð mjög al-
varlegum augum,“ sagði talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytisins í
Peking. Kínverjar sökuðu sjóher
Filippseyja um að hafa sökkt tveim-
ur bátum en Filippseyingar sögðu
að aðeins einn bátur hefði sokkið og
mannbjörg hefði orðið. Orlando
Mercado, vamarmálaráðherra Fil-
ippseyja, lýsti árekstrinum sem slysi
og sagði að áhöfn bátsins hefði synt
að nálægu rifi.
Fyrir tveimur mánuðum sökk kín-
verskur bátur eftir árekstur við fil-
ippseyskt varðskip. Ahöfn bátsins
var bjargað.
Sex ríki - Kína, Filippseyjar, Taí-
van, Víetnam, Malasía og Brúnei -
hafa gert tilkall til Spratlyeyja, ým-
ist til allra eyjanna eða nokkurra
þeirra. Talið er að undir eyjaklasan-
um séu olíusetlög og sérfræðingar í
öryggismálum telja að deilan geti
stigmagnast og leitt til átaka milli
ríkjanna.
Rússland
Rafmagns-
leysi lamar
loftvarnir
Moskvu. AP.
LOFTVARNIR rússneska
hersins við landamærin að Kína
lömuðust um tíma í gær þegar
rússneskt orkufyrirtæki rauf
rafstrauminn vegna ógreiddra
reikninga.
Rafmagnsleysið varð meðal
annars til þess að ratsjárstöð
hersins í Khabarovsk-héraði við
landamærin að Kína gat ekki
fylgst með flugumferð á svæð-
inu. Rafmagnslaust varð einnig
í ýmsum herstöðvum, meðal
annars bækistöðvum hersveita,
sem stjóma kjarnorkueldflaug-
um á svæðinu, að sögn rúss-
nesku fréttastofunnar Interfax.
Herinn skuldar orkufyrir-
tæki héraðsins, Khabarovsk-
energo, andvirði 420 milijóna
króna. Rússnesk orkufyrirtæki
hafa ítrekað tekið rafmagnið af
rússneskum herstöðvum vegna
skulda hersins., þrátt fyrir bann
sem rússneska stjórnin hefur
sett við slíkum aðgerðum.
Blair og Ahern taka upp þráðinn í friðarumleitunum á N-írlandi
George Mitchell
kvaddur til leiks á ný
London. Reuters.
GEORGE Mitchell, bandaríski öld-
ungadeildarmaðurinn fyrrverandi,
samþykkti í gær að taka að sér hlut-
verk milligöngumanns við endur-
skoðun sem boðað hefur verið til á
friðarsamkomulaginu á Norður-ír-
landi. Mitchell kom til fundar við
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bertie Ahern, forsætisráð-
herra írlands, í London en markmið
fundarins var að að reyna mjaka
friðarumleitunum á N-írlandi af stað
að nýju eftir að tilraunir til að mynda
heimastjórn kaþólikka og mótmæl-
enda fóru út um þúfur.
Mitchell hóf þegar í gær viðræður
við leiðtoga n-írskrá stjómmála-
flokka og heldur til Belfast í dag til
frekari fundahalds. Endurskoðun
friðarsamkomulagsins á að ljúka í
september og miðast við þrjár
grundvallarforsendur; hvernig hægt
sé að leysa vandamál er varða skip-
un heimastjórnarinnar, afvopnun
öfgahópa, og hvernig staðið skuli að
þeirri afvopnun.
Fyrir fundinn í gær viðurkenndi
Blair að áætlun sín í síðustu viku, að
þrýsta í gegn myndun heimastjórn-
ar, hefði mistekist og kvaðst hann
telja að flokkamir á N-írlandi hefðu
ekki verið í stakk búnir til að taka
skrefið fram á við. Virtist Blair með
þessum orðum sínum gangast við
gagnrýni sem David Trimble, leið-
togi Sambandsflokks Ulsters (ÚUP),
setti fram um helgina um að Blair
hefði beitt of miklum og ótímabær-
um þrýstingi og þannig valdið því að
allt sigldi í strand.
Ahern reynir að græða sárin
Ahern hafði fyrr í gær hitt
Trimble að máli og reyndi írski for-
sætisráðherrann þar að bæta sam-
band sitt við Trimble en á mánudag
höfðu sambandssinnar gagnrýnt
Ahern harðlega fyrir ummæli, sem
hann lét falla á sunnudag, en þá
sagði hann líklegt að Irski lýðveldis-
herinn (IRA) myndi vilja meiri tíma
til að afvopnast, en ákvæði friðar-
samkomulagsins kveða á um, í kjöl-
far þess að sambandssinnar komu í
veg fyrir myndun heimastjórnar.
Talsmenn Aherns fullyrða að
rangt hafi verið eftir honum haft en
ljóst var samt í gær að sambands-
sinnar töldu Ahern þurfa að gera
frekari grein fyrir afstöðu sinni. Þeir
vilja að IRA byrji afvopnun áður en
heimastjórnin er sett á laggirnar.
Nú hefur Mo Mowlam, N-Irlands-
málaráðherra bresku stjórnarinnar,
hafið baráttu fyrir því að verða
áfram í embættinu en líklegt hefur
þótt að Blair flytti hana í annan ráð-
herrastól í yfirvofandi uppstokkun á
bresku stjórninni. í kjölfar þess að
friðarumleitanir sigldu í strand er
Mowlam hins vegar sögð ófús til að
hlaupa frá hálfkláruðu verki.
Fleiri börn
fátæk
FJÓRAR milljónir barna í
Bretlandi búa við fátækt og er
það þrisvar sinnum fleiri börn
en fyrir tuttugu árum, að því
er hagfræðirannsóknarhópur
greindi frá í gær. Aukinn
ójöfnuður og fjölgun heimila
sem hafa enga fyrirvinnu eru
meðal ástæðna þessa, segir í
skýrlu frá rannsóknarhópnum.
I skýrslunni er heimili talið fá-
tækt séu tekjur þess innan við •
helmingur meðaltekna í Bret-
landi. Þá segir að fátækt á
barnsaldri leiði oft til fátæktar
allt lífið. í síðustu viku hétu
bresk stjómvöld því að á
næsta ári yrði einni milljón
barna bjargað frá fátækt.
Sagði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, að hann vildi
útrýma vandanum innan tutt-
ugu ára.
Suharto á
sjúkrahúsi
SUHARTO, fyrrverandi for-
seti Indónesíu, var lagður inn á
sjúkrahús í gær, en fregnum
ber ekki
saman um
hver ástæð-
an var.
Læknir á
sjúkrahús-
inu í Jakarta
sagði Su-
harto hafa
fengið vægt
hjartaáfall,
en að hann
þyrfti ekki að gangast undir
skurðaðgerð. Lögfræðingur
forsetans fyrrverandi sagði
hins vegar að Suharto hefði
farið í fyrirfram áætlaða skoð-
un í gær. Sex börn Suhartos og
aðrir ættingjar komu að heim-
sækja hann á sjúkrahúsið. B.J.
Habibie forseti sendi Suharto
blóm.
35 lík fínnast
í Alsír
LIK að minnsta kosti 35
manna, sem talið er að hafi
orðið fómarlömb uppreisnar-
manna, fundust á mánudag í
tveim fjöldagröfum ekki fjarri
Algeirsborg, að því er alsírskt
dagblað hafði eftir embættis-
mönnum í gær. Svæðið sem
grafimar fundust á er af Alsír-
búum oft kallað „þríhyrningur
dauðans," sakir þess að fjölda
óbreyttra borgara hefur verið
rænt og þeir síðan myrtir á
þessu svæði.
Jerry Spring-
er á þing?
NOKKRIR demókratar í
Ohio-ríki í Bandaríkjunum
vinna nú að því að sjónvarps-
maðurinn Jerry Springer fari í
framboð fyrir flokkinn til Öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings á
næsta ári. Springer er um-
deildur sjónvarpsmaður, en í
spjallþáttum hans kemur iðu-
lega til hinna heiftarlegustu
deilna og handalögmála í
beinni útsendingu. Springer
var borgarstjóri í Cincinatti
áður en hann snéri sér að sjón-
varpsstörfum. Stjómmála-
skýrendur segja að fyrst Jesse
Ventura, fyrrverandi glímu-
kappi, hafi náð kjöri sem ríkis-
stjóri í Minnesota geti Sprin-
ger allt eins komist á þing.