Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 23
Hinzta flug Johns F. Kennedys yngra, eiginkonu hans og mágkonu
Sagt að honum sjálfum
hafí verið um oar 6
ERLENT
Reuters
BANDARISKI fáninn blaktir í hálfa stöng yfír óðalssetri Kennedy-ættarinnar í Hyannisport á Cape Cod í
Massachusetts, þangað sem för Kennedy-hjónanna var heitið er þau fórust.
Washington, Martha’s Vineyard. AP, Daily Tele
ÞAÐ var orðið heldur áliðnara en
áformað hafði verið og meira mistur
í lofti en æskilegt var, þegar John
F. Kennedy yngri lagði upp frá
Fairfield-flugvelli í New Jersey,
skammt frá New York, í sitt hinzta
flug sl. föstudagskvöld, en sam-
kvæmt öllum fyrirliggjandi upplýs-
ingum gekk það að óskum unz um
27 km voru eftir til áfangastaðar á
flugvellinum á eyjunni Martha’s
Vineyard, undan strönd Massachu-
setts-ríkis.
I Daily Telegraph er haft eftir
David Heymann, vini Kennedys
sem skrifað hefur ævisögur bæði
Jacquelin Kennedy Onassis og Ro-
berts Kennedy, að Kennedy hafi
tjáð sér í síðustu viku að sér litist
ekkert á að lenda á Martha’s Viney-
ard á leiðinni í brúðkaup frænda
síns í Hyannisport á Cape Cod. Að
sögn Heymanns hafði Carolyn, eig-
inkona Kennedys, heimtað að þau
flygju með systur hennar, Lauren
Bessette, til Martha’s Vineyard í
leiðinni.
„Mig langar ekki einu sinni að
fara til Martha’s Vineyard," segir
Heymann Kennedy hafa sagt. „Eg
flýg minni eigin flugvél og konan
mín er ekki hrifin af að fljúga með
mér. Og nú verð ég að lenda á
Martha’s Vineyard auk Hyannis.
Því miður neyðist ég til að taka
mágkonu mína með okkur. Hún
þarf að komast til Martha’s Viney-
ard og konan mín heimtar að við
fljúgum með hana þangað. Þetta
þýðir að ég þarf að lenda tvisvar.
Eg er satt að segja ekki svo reynd-
ur flugmaður.“
Hrapaði 1.100 fet á
14 sekúndum
Samkvæmt flugturnsupplýsing-
um steyptist Piper Saratoga-vél
Kennedys á 14 sekúndum um 1.100
fet (330 metra) og hvarf niður fyrir
ratsjársvið flugturnsins, kl. 21:34 að
staðartíma á föstudagskvöld.
Bandaríska strandgæzlan telur að
vélin hafi steypzt í hafið skammt
undan strönd Martha’s Vineyard.
Opinber rannsókn á tiidrögum
slyssins er skammt á veg komin, en
flugkennarar og rejmdir flugmenn
hafa sínar kenningar um hvað gerð-
ist. Einn möguleikinn er sá að
hreyfillinn hafi stöðvazt, annar að
einhver stjómtæki hafi gefið sig.
Þriðja tilgátan er sú að vélin hafi
einfaldlega orðið eldsneytislaus. En
sú sem sérfróðum þykir sennilegust
er að flugmanninum hafi orðið á í
messunni, og því hafi tvennt valdið:
Að hann hafi misst sjónar á sjón-
deildarhringnum í kvöldhúmi og
mistri og að hann hafi skort reynslu
af því að stjóma flugvélinni, sem
hann var nýlega búinn að festa kaup
á og var hraðskreiðari en þær vélar
sem hann hafði áður flogið.
„Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem
flugmaður missti stjóm á flugvél
vegna þess að hann týndi sjóndeild-
arhringnum," hefur AP eftir Larry
Gross, prófessor í flugmálafræði við
Purdue-háskóla í Indiana. Flug-
menn geta tapað áttum með því að
jafnvægisskynið í innra eyranu get-
ur farið að villa um fyrir þeim þegar
engan sjóndeildarhring er að sjá, og
haldið að þeir séu að fljúga beint
þegar þeir em í raun að sveigja upp
eða niður eða til hliðar. Sé flugmað-
urinn undir slíkum kringumstæðum
ekki vel þjálfaður í að fljúga ein-
göngu eftir mælum, m.ö.o. að fljúga
blindflug, getur hann byrjað að
stefna vélinni niður á við - jafnvel
mjög skarpt - án þess að taka eftir
því. Flugreynsla Kennedys var enn
það lítil, að hann var ekki búinn að
taka blindflugspróf.
Hefði ekki átt að reyna sjónflug
„Þetta var einfaldlega slæm
ákvörðun [hjá Kennedy]. Hann
hefði ekki átt að reyna að fljúga
sjónflug við þessar aðstæður. Á
kvöldi eins og þessu, þegar flugleið-
in liggur yfir sjó er það því líkast að
fljúga inn í svarthol. Maður sér ekk-
ert. Maður hefur enga tilfinningu
fyrir því hvar maður er. Manni er
mjög hætt við að tapa áttum. Flest-
ir bregða þess vegna strax á það ráð
að fljúga blindflug og treysta bara á
mælana," sagði Suzie ConnoEy,
ílugkennari á Fairfield-flugvelli.
Vas Patterson, flugkennari við
ATC-flugskólann í Fort Was-
hington í Maryland, tjáði AP að
Kennedy gæti hafa tapað áttum
með þessum hætti og viðbrögð hans
verið of hæg fyrir hina hraðskreiðu
flugvél, sem hann var óvanur að
stýra. Þessi nýja Piper Saratoga:vél
Kennedys var skráð 30. apríl síðast-
liðinn. Hún nær 320 km hraða, en
sú vél sem hann hafði flogið frá því
hann fékk einkaflugmannsprófið í
fyrravor var Cessna 182, sem þykir
mun auðveldari í meðföram og nær
240 km hámarkshraða.
Á síðustu árum mun það hafa
færzt mjög í aukana, að efnaðir
Bandaríkjamenn verði sér úti um
flugskírteini og fljúgi sjálfir í einka-
flugvélum þangað sem þeir eiga er-
indi, hvort sem er í frístundum eða í
tengslum við vinnu.
Að sögn vina munu Kennedy-
hjónin, John og Carolyn, og systir
hennar, Lauren Bessette, hafa ætl-
að að leggja upp frá Fairfield
snemma á föstudagskvöld, en hafi
tafizt í umferðinni í New York og
vegna þess að Lauren losnaði ekki
úr vinnu eins snemma og hún hafði
vonazt til.
Þarftu að
skipta um
olíusíu?
Komdu í skoðun
5 gerðir - margir litir
60 ára l'rábær reynsla.
///■
Einar
_______Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 20 - sfmi 562 2901 og 562 2900
KitchenAid
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Isaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
^mb l.i is
ALLTAf= eiTTH\SA€} NÝTl
l-Ki'jii-ir oy ailii=Jni--i'h^™‘íl!.jM
925 0090 - 929 9920 • IfiílbfiM)
ísi'S.,