Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ
36 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
KRISTINN RÚNAR
INGASON
+ Kristinn Rúnar
Ingason fæddist
í Keflavík 3. febrúar
1974. Hann lést hinn
11. júh' siðastliðinn.
Móðir hans er Rósa
Sigríður Sigurðar-
dóttir, sjúkraliði, f.
2.11. 1955. Faðir
hans er Ingi Rúnar
Ellertsson, skip-
stjóri, f. 21.1. 1954.
Hálfsystir Kristins
er Þrúða Sif Einars-
dóttir, f. 1985, og
hálfbróðir hans er
Marteinn Jón Inga-
son, f. 1978. Unnusta Kristins er
Indíana Þorsteinsdóttir. Móður-
amma hans er Rósa Geirþrúður
Halldórsdóttir.
Kristinn gekk í
Laugamesskóla og
síðar í Hólabrekku-
skóla. Hann fór á
ýmis tónlistamám-
skeið og lærði sjó-
kokkinn fyrir örfá-
um ámm. Hann,
ásamt nokkrum vin-
um sínum, stofnaði
hljómsveitina Virdi-
an-Green. Aðal
starfsvettvangur
Kristins var við
matreiðslu á sjó og
landi og við tónlist.
Utför Kristins fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku Kiddi minn.
Eg vil þakka þér fyrir alla gleðina
sem þú færðir mér. Þú varst alltaf
svo jákvæður og notalegur á allan
máta við ömmu. Allir dagar okkar
saman voru gleðidagar í mínum
huga.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég fel þig í hendur Guðs almátt-
ugs og bið Guð að styrkja okkur öll.
Astarkveðja,
Drottinn er minn hirðir
mig mun ekkert bresta.
A grænum grundum lætur hann mig hvflast
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis ryóta.
(Ur 23. Davíðssálmi.)
Elsku hjartans drengurinn minn.
Mér finnst óbærileg kvöl að hugsa
um það að þú sért farinn frá okkur.
Þegar þú komst úr meðferðinni í
febrúar sl. fannst mér þú svo bjart-
sýnn og þegar við töluðum saman
last þú stundum upp fyrir mig ritn-
ingu dagsins úr AA bókinni. Þótti
mér mjög vænt um það. Alltaf hélt
maður í vonina að þér tækist að
komast út úr þessu. Ég bað Guð um
að vera alltaf með þér og gæta þín.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar td þín alla daga sína.
(Tómas Guðmundsson.)
Ég er þakklát fyrir þann tíma,
sem við áttum saman í ágúst sl.
þegar þú varst fyrir austan hjá mér,
þá nýhættur störfum á ferjunni
Norrænu. Þú naust þín svo vel í eld-
húsinu, enda snilldar kokkur. Einn
daginn komstu með uppskriftarbók-
ina mína og sagðir mér að velja
hvaða köku í bókinni sem mig lang-
t
VALDIMAR RÓSINKRANS JÓHANNSSON
fyrrv. húsvörður og verkstjóri,
Álftamýri 2,
Reykjavík,
lést á heimili sínu mánudaginn 19. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ráðhildur Ingvarsdóttir,
Sigmundur Heiðar Valdimarsson,
Sigurjón Hafberg Valdimarsson.
t
Fósturfaðir minn og afi okkar,
HUGI VIGFÚSSON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést laugardaginn 10. þessa mánaðar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hins látna.
Þórunn Jóhannsdóttir,
Hugi, Rósa og Karen.
t
Elskuleg móðir mín,
ÓLÍNA ÓLAFSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
áður til heimilis í Efstasundi 11,
lést aðfaranótt laugardagsins 17. júlí. Jarðarförin auglýst síðar.
Baldvin B. Sigurðsson.
IW
MINNINGAR
aði í og þú skyldir baka hana með
kaffinu. Og það tókst frábærlega vel
hjá þér.
Tónlist var í miklu uppáhaldi hjá
þér. Er mér sérstaklega minnis-
stætt lagið ykkar í hljómsveitinni
Virdian green, „Singing in the sun“.
Ég komst alltaf í svo gott skap við
að hlusta á það.
Ég gleymi aldrei deginum sem þú
fæddist, þrem mánuðum fyrir tím-
ann. Það var tvísýnt um líf þitt, en
þú braggaðist svo ótrúlega vel.
Mamma þín lét skíra þig þessu fal-
lega nafni eftir Jesú Kristi og mikil
var gleðin þegar mamma þín fékk
að koma heim með þig af spítalan-
um.
Elsku vinur, þig prýddu svo
margir mannkostir. Ég hefði viljað
óska að við hefðum getað haft þig
lengur hjá okkur. Ég leit alltaf á þig
eins og litla bróður, sem ég þyrfti að
passa og gæta.
Það var svo gaman þegar þú
komst austur í ferminguna hans
Arons og sást alveg um hárgreiðsl-
una á honum áður en farið var í
kirkjuna. Ég hugga mig við allar
góðu minningamar, sem ég á um
þig. Ég trúi að nú sért þú laus frá
ölllum þjáningum og sért umvafinn
kærleika Guðs.
Elsku hjartans Kiddi minn. Ég
kveð þig með virðingu og djúpum
söknuði. Þakka ég fyrir allar góðu
stundirnar bæði í Reykjavík og
heima á Eskifirði. Ég unni þér.
Elsku systir mín. Mikil sorg er nú
lögð á herðar þínar. Ég bið Guð um
að styðja þig og styrkja svo og
Þrúðu litlu og elsku mömmu mína
og alla sem þóttu svo vænt um
Kidda.
Ég bið góðan Guð um að gæta
Indíönu bamsmóður Kristins og
ófædda bamsins þeima.
og fallega brosið. Sorgin er ólýsan-
leg, full af vanmætti og vantrú.
Kiddi var fyrsta bamabamið í
fjölskyldunni og átti alveg sérstakt
pláss í hjörtum okkar. Hann fædd-
ist þremur mánuðum fyrir tímann,
pínulítill en ótrúlega kraftmikill.
Frá fyrstu stundu kölluðum við
hann krflið okkar og hann var strax
einn af systkinahópnum.
Kiddi var einstaklega ljúfur og
janflyndur drengur, hann var
gæddur sérstökum persónutöfrum
sem laðaði fólk að honum. Kímni-
gáfa hans og frásagnargleði skilja
eftir minningar um margar
skemmtilegar samvemstundir sem
aldrei gleymast.
Kiddi hafði mikinn áhuga á tón-
list og þótti góður trommuleikari.
Hann samdi einnig töluvert af lög-
um ásamt vinum sínum. Frá unga
aldri hafði hann einnig mikinn
áhuga á öllu sem viðkom matargerð
og gat galdrað fram ótrúlegustu
rétti úr næstum þvi engu.
Farinn er burt góður drengur og
skarð hans verður aldrei fyllt.
Elsku systir, missir þinn og
Þrúðu er mikill og við biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur.
Elsku mamma, þú hefur misst
elsta bamabam þitt og biðjum við
Guð einnig að styrkja þig.
Kæra Indíana, það er sárt að
missa ástvin sinn þegar lífið er rétt
að byrja. Hugur okkar er allur hjá
ykkur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur,
mérverivömínótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
méryfirláttuvaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson)
Dóra og Kristján.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Ástarkveðja elsku systursonur
minn.
Þín
Bára
Elsku frændi okkar er farinn frá
okkur. Krílið okkar með rauða hárið
í Otfararstofa
OSWALDS
s.mi 551 3485
ÞJÓMJSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
j ADAI.STR/KTI ill • 101 Kl.YKJAVÍK
í
I IKIvISI HVINNl S IOI A
;; HYVINDAR ÁRNASONAR
1
„Dáinn, horfinn!" - harmafregn!
Hvflíkt orð mig dynur yfir!
Enégveitaðlátinnlifir,
það er huggun harmi gegn.
(Jónas Hallgrímsson.)
Elsku Kiddi, það er ótrúlegt að
við vinimir séum hér saman komnir
til að skrifa til þín okkar hinstu
kveðju. Einn af okkar góðu vinum
er reyndar aðeins hér í huganum,
vegna þess að hann er staddur er-
lendis en vildi svo gjaman geta ver-
ið hér til að ganga með þér síðasta
spölinn.
Kæri vinur, þegar við lítum um
farinn veg þá koma margar góðar
minningar upp í hugann og hvernig
er annað hægt þegar hugsað er til
þess hversu lífsglaður og kátur þú
varst alltaf? Tónlistin átti hug þinn
allan og þú varst ótrúlega fær á
trommusettinu, það var ósjaldan
sem við félagarnir lögðum leið okk-
ar niður í æfingarhúsnæði til ykkar
strákanna sem stofnuðuð hljóm-
sveitina Virgin Green, það var frá-
bært að hlusta á ykkur spila saman
og þú naust þess alveg í botn að
vera í sviðsljósinu, hvort sem það
var með þeim eða bara einn og sér.
Það rifjaðist líka upp fyrir okkur
hvað þér þótti spegillinn merkilegt
fyrirbæri, fyrir framan hann gast
þú staðið þess vegna tímunum sam-
an og oft var þolinmæði okkar á
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR L. ÞORGEIRSSON
húsasmíðameistari
frá Helgafelli Helgafellssveit,
Hlaðhömrum Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 18. júlí.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi
föstudaginn 23. júlí kl. 13.30.
Hulda Þ. Ottesen,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Halldór Kristinsson,
Hildigunnur Sigurðardóttir, Jónas Jónsson,
Jónas Sigurðsson, Guðrún Skúladóttir,
Þráinn Sigurðsson, Hrönn Finnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
þrotum þegar við vorum á leiðinni
út saman, því þú gast ekki farið út
fyrir hússins dyr fyrr en allt var í
góðu lagi, hárið, fötin og skómir, og
það gat tekið þig óratíma að koma
þessu öllu í samt lag, spegillinn var
svo sannarlega þarfaþing fyrir þig.
Það var oft gaman að hlusta á þig
segja frá ævintýrum helganna og
alltaf var eitthvað að gerast í kring-
um þig. Þess vegna er enn ótrú-
legra að við skulum vera hér að
kveðja þig, þig sem elskaðir lífið og
allt sem það hefur upp á að bjóða.
En þó árin séu ekki mörg þegar þú
skilur við okkur hin þá er óhætt að
segja að þú lifðir lífinu lifandi öll
þau ár sem þú staldraðir við á
þessu jarðríki. Elsku Kiddi, við
þökkum þér fyrir allar góðu stund-
imar sem við áttum saman og
minningin um þig mun lifa í hjört-
um okkar allra, allt þar til við hitt-
umst á ný. Við sendum móður
þinni, systur, ömmu og öðmm að-
standendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur, megi góður guð
vera með þeim og styrkja þau í
þessari miklu sorg.
Með þessi fátæklegu orðum
kveðjum við þig með sorg í hjarta
og biðjum Guð að taka vel á móti
þér og vemda þig þar til við kom-
um saman aftur.
Þínir vinir,
Brynjar, Guðni, Vífill,
Sigurður og Ómar.
Kæri vinur, ég veit núna að mað-
ur hefur aldrei of lítinn tíma fyrir
vini sína og hvað ég vildi að ég hefði
gefið mér slíkan síðast þegar við
hittumst og ætluðum á kaffihús að
spjalla eins og við höfum svo oft
gert, talað um allt, við þig gat ég
verið eins og opin bók. Undanfarið
ár hef ég verið svo upptekin að
samskipti okkar dvínuðu en stund-
unum sem við áttum uppi í Fellum
inni í herberginu þínu gleymi ég
aldrei. Manstu eftir okkur? Allir
myndu halda okkur geggjuð ef ein-
hver vissi hvað þar fór okkur á milli
og allar, alltof fáu, stundimar okk-
ar þegar við urðum rosalegir Ijós-
myndarar eða þegar þú kenndir
mér á trommur og ég var prinsess-
an þegar við fómm að elda tacoið,
ég hef svo oft hugsað til þessara
stunda okkar saman. Ég á ennþá
öll Ijóðin, bréfin, kortin og lagið frá
þér og mun alltaf geyma það. Ég
sakna þín meir en þig grunar. Ég
bað þig fyrir mánuði að koma í
heimsókn og spjalla, af hverju
komstu ekki? Við hefðum fundið
leið út úr þessu. Ég hef alltof marg-
ar spurningar sem þú getur ekki
svarað mér núna en manstu, það
sem þú sagðir mér kvöldið sem við
villtumst skil ég, en þetta var samt
sárt. En ég vona, Kiddi, að þú hafir
fundið það og þér líði vel hvar sem
þú ert núna. Mér finnst líka mjög
vænt um þig og vildi að ég hefði
sagt þér það aftur. Ég sakna þín
Kiddi.
Þín,
Þóra Dungal.
ÚTFARARST OFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, slmi 565 5892
SuðurhUð 35 ♦ Sími 581 3300
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Atlan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/