Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ
40 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
HESTAR
Landsliðið í hestaiþróttum - liðsmenn og hestar
SIGURÐUR Sigurðarson og Prins frá Hörgshóli.
LOGI Þór Laxdal og Freymóður frá Efstadal.
AUÐUNN Kristjánsson og Baldur frá Bakka.
Tíu manna
liðáHM
*
Ljóst er hvernig landslið Islands í hestaíþróttum, sem keppa mun
á heimsmeistaramótinu í Kreuth í Þýskalandi, verður skipað.
Valdimar Kristinsson tók saman ýmsar upplýsingar um liðsmenn
og hesta þeirra og annað er varðar þátttöku liðsins í mótinu.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ÁSGEIR Svan Herbertsson og Farsæll frá Ási.
SPENNAN í kringum val á
landsliði hefur líklega aldrei verið
meiri en nú enda heitir kandídatar
aldrei verið fleirl en nú og keppnin
um sætin í flestum tilvika jöfn. Þá
hefur ekki síður verið spenna í
kringum þá tvo liðsmenn sem ein-
valdurinn Sigurður Sæmundsson
valdi. Liðið sem valið var er myndað
af fjórum nýliðum og þremur fyrr-
um landsliðsmönnum og allt eru
þetta kunnir keppnismenn sem búa
yfir mikilli reynslu. Þá bætast við
þrír heimsmeistarar frá síðasta
HM.
En við kynningu á liðinu fer vel á
, að byrja á fyrsta kvenmanninum
sem vinnur sér sæti í íslenska lands-
liðinu síðan 1983, en svo skemmti-
lega vill til að um er að ræða sömu
konuna í báðum þessum tilvika. Olil
Amble hefur nú loksins endurheimt
sæti í landsliðinu eftir 16 ára fjar-
veru. Hún er fædd í Noregi 1963 en
fyrir löngu orðin íslensk og á að baki
litskrúðugan feril í keppni hér á
landi. Verið með hross í fremstu röð
á fjórðungs- og landsmótum gegn-
um tíðina. Má þar nefna sigur í B-
flokki og tölti á FM ‘85, tvöfaldur
sigur í A-flokki á FM ‘92 og B-flokki
á FM ‘97, íslandsmeistari í tölti ‘82
og ‘86, Islandsmeistari í fími og fjór-
gangi svo eitthvað sé nefnt. Olil fer
með Kjark frá Horni í Skorradal til
Þýskalands en hann er 10 vetra und-
an Reyk frá Hoftúni og Blesu frá
Homi. Olil á hestinn ásamt norskri
konu og sagði hún að annaðhvort
keypti sú hlut hennar í hestinum eða
hann yrði seldur á mótinu ef viðun-
andi boð fengist. Olil og Kjarkur
keppa í tölti, fjórgangi og fimi og
taka þar með þátt í keppninni um
samanlagðan sigurvegara mótsins.
Til skýringar má geta þess að Hulda
Gústafsdóttir keppti á HM í Sviss
‘95 en hún kom inn sem varaknapi
en vann sér ekki beint sæti í úrtök-
< unni.
Einar Öder Magnússon er sá liðs-
manna sem yfír mestri reynslu býr.
Hann er 37 ára gamall og hefur
keppt á þremur heimsmeistaramót-
um; 1989 í Danmörku, 1991 Svíþjóð,
1993 í Hollandi og 1995 í Sviss og
var liðsstjóri á mótinu í Austurríki
1987. Þá hefur Einar keppt á fímm
4 Norðurlandamótum og unnið þar 9
gullverðlaun. Hann hefur verið með
efsta hest í A-flokki á landsmóti ‘86,
fjórðungsmóti ‘85 og íslandsmeist-
ari í tölti ‘84. Þá hefur Einar sýnt
fjölda þekktra kynbótahrossa með
góðum árangri. Hestur Einars að
þessu sinni er stóðhesturinn Glampi
frá Kjarri, hann er 7 vetra, undan
Orra frá Þúfu og Ertu frá Krögg-
ólfsstöðum. Glampi hlaut á síðasta
ári 8,18 í kynbótadómi og þar af
8,49 fyrir hæfileika og meðal annars
9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir brokk, vilja
og fegurð í reið. Glampa hefur ekki
verið teflt mikið fram í keppni, þeir
félagar kepptu í B-flokki gæðinga
og töltkeppni á síðasta ári og eina
töltkeppni fóru þeir félagar í á
þessu ári fyrir utan úrtökuna.
Glampi, sem nú hefur verið seldur
til Danmerkur, var 90% í eigu Ein-
ars og 10% í eigu ræktandans
Helgu Pálsdóttur.
Logi Laxdal keppir nú öðru sinni
á HM, sigraði eftirminnilega í 250
metra skeiði á síðasti móti í Seljord
í Noregi. Logi, sem er ?? gamall, er
án efa einn fremsti skeiðreiðarmað-
ur landsins ef ekki sá fremsti. Hann
vakti fyrst á sér athygli er hann
sigraði sér eldri og reyndari knapa í
skeiðmeistarakeppni á Gaddstaða-
flötum fyrir nokkrum árum. Síðan
þá hefur hann verið með skeiðhesta
í fremstu röð og náði frábærum ár-
angri á Gráblesu frá Efstadal í 150
metra skeiði í fyrrahaust. Náðu þau
tíma undir gildandi meti en árang-
urinn fékkst ekki viðurkenndur sem
met. Logi var á síðasta móti með
hest frá Efstadal í Laugarvatns-
hreppi og enn heldur hann sig við
sama bæinn. Síðast var það
Sprengi-Hvellur en nú er það Frey-
móður en báðir eru þeir undan
Kjarval frá Sauðárkróki. Logi og
Freymóður voru með feiknagóða
seríu á úrtökumótinu. Fóru fjóra
spretti og voru einn sprettinn undir
22 sekúndum og tvo undir 23 sek-
úndum. Þá hefur Freymóður fai-ið
einn sprett þar fyrir utan undii’ 22
sekúndum.
Asgeir Svan Herbertsson stígur
nú sín fyrstu skref sem landsliðs-
maður. Hann er 34 ára gamall og
hefur verið viðloðandi hesta-
mennskuna frá blautu bamsbeini,
keppt öðru hvoru en ekki verið í
fremstu röð fyrr en hann eignaðist
stórgæðinginn Farsæl frá Arnar-
hóli. Saman eiga þeir að baki ein-
stæðan feril, hafa orðið Islands-
meistarar í fjórgangi fímm ár í röð,
unnu fimmta titilinn nú síðast á
Gaddstaðaflötum. Þá hafa þeir átt
góðu gengi að fagna í keppni B-
flokks gæðinga. Farsæll er óseldur
en ýmsir hafa sýnt hestinum áhuga
og sagðist Ásgeir selja fengi hann
viðunandi tilboð.
Sigurður Sigurðarson hlaut náð
fyrir augum einvaldsins eftir góða
frammistöðu á íslandsmótinu á
Gaddstaðaflötum á dögunum og er
þetta frumraun hans í landsliði.
Hann er 30 ára gamall og hefur á
síðustu þremur árum tryggt sig í
sessi sem einn fremsti knapi lands-
ins, var til dæmis útnefndur knapi
ársins ‘98. Það ár var hann með sig-
urhrossið í B-flokki og tölti á lands-
mótinu á Melgerðismelum, íslands-
meistari í tölti ‘97, íslandsmeistari á
Prins í fímmgangi ‘98 og Islands-
meistari á Prins í gæðingaskeiði og
skeiðtvíkeppni ‘99. Sigurður keppir
á Prins frá Hörgshóli og hafa þeir
átt samleið frá ‘95 er Prins keppti í
fyrsta sinn. Hann er 11 vetra undan
Skuggabaldri frá Hörgshóli og Perlu
frá Hörgshóli. Sigurður og Prins
keppa í fimmgangi, tölti, gæðinga-
skeiði og verða að öllum líkindum í
baráttunni um samanlagðan sigur-
vegara. Eigandi hestsins er Þorkell
Traustason. Prins er óseldur en nú
þegar hafa nokkrir sýnt áhuga og
því líkiegt að sala sé í deiglunni.
Auðunn Kristjánsson þreytir sína
frumraun í landsliði. Hann er 26 ára
og hefur hlotið sitt hestamennsku-
uppeldi á vettvangi Fáks, hóf
keppni í unglingaflokki og keppt
síðan. Auðunn hefur hægt og bít-
andi fikrað sig upp metorðastiga
hestamennskunnar þótt ekki hafi
hann enn náð einhverjum hinna eft-
irsóttu toppsæta hestamennskunn-
ar. Hann var mjög nærri því að
komast í landsliðið ‘97, þá á Bald-
urssyni og segist Auðunn þá hafa
ákveðið að það skyldi ganga næst
og keypti því Baldur frá Bakka
sjálfan í því skyni. Baldur, sem er
hestur heill, er undan Náttfara frá
Ytra-Dalsgerði og Emmu frá Bakka
en hann var í úrslitum A-flokks á
landsmótinu í fyrra. Þeir félagar
voru efstir í fímmgangi á úrtökunni
í báðum umferðum og urðu Islands-
meistarar í slaktaumatölti á nýaf-
stöðnu Islandsmóti. Auðunn og
Baldur keppa í fimmgangi,
slaktaumatölti, gæðingaskeiði og
250 metra skeiði og verða með í
baráttunni um samanlagðan sigur-
vegara. Baldur er óseldur en Auð-
unn sagðist vera að vinna að sölu.
Jóhann R. Skúlason var valinn af
landsliðseinvaldi helgina sem ís-
landsmótið var haldið. Staða Jó-
hanns var nokkuð sérstök því hann
hafði möguleika á að komast í tvö
landslið. Auk ísienska liðsins hafði
hann rétt til að taka sæti í danska
liðinu. Sigurður Sæmundsson varð
af þessum sökum að gefa Jóhanni
ákveðið svar fyrir sunnudag hvort
hann þægi liðsinni hans því danska
liðið var valið um kvöldið. Jóhann
hefur verið mestan hluta af ferli sín-
um í Danmörku og átt þar góðu
gengi að fagna, margsinnis orðið
Danmerkurmeistari í ýmsum grein-
um og verið í fremstu röð knapa þar
í landi. Hann keppti meðal annars
fyrir hönd Danmerkur á síðasta
heimsmeistaramóti á Penna frá
Syðstu-Grund. Nú keppir hann á
Feng frá Ibishóli og vinna þeir sér
sæti fyrir góðan árangur í tölti en
munu einnig keppa í fjórgangi.
Fengur er sjö vetra gamall undan
Fáfni frá Fagranesi og Gnótt frá