Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 44
' 44 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
Hæ, stjóri,
erum við komin
yfir í leiknum?
Nei, við crum ekki Erum við Já, við erum undir,
^rfir, og við verðum undir? og við verðum líklega
líklega aldrei yfir! alltaf undir!
Einhveijar fleiri Hvemig
spumingar? hefur þér
liðið?
»
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hugarfarsbreyting íslenskra kvenna:
Frá Huldu til Sivj-
ar og Þorgerðar:
Frá Pétri Péturssyni þul:
VART líður sá dagur að ekki sé rætt
og ritað um væntanlega kristnitöku-
hátíð, „friðarferli", svo þokkalegt
sem það orð er nú, ílokkun úrgangs,
lífrænt efni og guð má vita hvað.
A tímum hringborðsumræðna og
ráðstefnuhalds mætti e.t.v. ræða um
þá geigvænlegu breytingu sem orðið
hefur á afstöðu íslenskra kvenna til
friðarmála og hernaðar. Hvað hefur
gerst í íslensku þjóðlífi sem veldur
þessu?
Hulda skáldkona, Unnur
Bjarklind, kvað hátíðarljóð sitt: Hver
á sér fegra föðurland. Islenska þjóðin
hlýddi hugfangin á ljóðið sungið á
lýðveldishátíðinni á Þingvöllum 17.
júní 1944. Ljóðið er óður til friðarins.
Sungið er um þjóðina, „sem þekkir
hvorki sverð né blóð“. Islendingar
neituðu að verða við kröfu banda-
manna um að segja Þjóðverjum stríð
á hendur þrátt fyrir manntjón af
völdum þýskra kafbáta. Fast var
haldið við hlutleysi og vopnleysi.
Nú bregður svo við að íslenskar
konur, ungar mæður, sem kjömar
hafa verið til setu á Alþingi, ganga
fram fyrir skjöldu og lýsa fögnuði og
ánægju vegna loftárása á borgir í
fjarlægu landi, klappa árásarsveitum
NATO lof í lófa og finna það eitt að
framferði hersveitanna, að árásimar
hefðu átt að hefjast fyrr. Sjónvarps-
áhorfendur sáu eldtungur bera við
himin er sjúkrahús í Belgrad og að-
setur erlendra sendiráða hrandu til
granna. Það vakti furðu að Siv Frið-
leifsdóttir, sem ber friðinn í föður-
nafni sínu og er formaður bygginga-
nefndar barnaspítala, skuli láta sér
slík orð um munn fara. Hún á að
segja af sér formennsku. Bamaspít-
ali Hringsins getur ekki leyft sér þá
ósvinnu að hafa valkyrju, sem fagnar
bálkesti, sem brennir sjúkrahús í
höfuðborg annars ríkis til grunna.
Þá hefur Siv orðið tíðrætt um
flokkun sorps og talað fagurlega um
lífrænan úrgang. Hvað um sorpeyð-
ingu bandaríska hersins í hrauni fyr-
ir sunnan Hafnarfjörð? Þar var flutt
rasl af flugvellinum, kveikt í því og
eldar látnir skíðloga eins og eftir
loftárás NATO á Belgrad. Bólu-
Hjálmar kvað um gimsteina í
mannsorpinu. Ætlar Siv Friðleifs-
dóttir okkur íslendingum það hlut-
skipti að vera einskonar lífrænt
mannsorp í herþjónustu NATO?
Þá vakti það ekki minni furðu er
dóttir skátahöfðingjans Gunnars Eyj-
ólfssonar og tengiliður við meðhjálp-
ara Keflavíkurkirkju, nýkjörin þing-
maður, lýsti fognuði yfír loftárásum
þeim sem hér vora taldar. Sprengj-
urnar féllu í grennd bamaheimila og
íbúðarhúsa. Þingkonan unga er í hópi
verðandi mæðra. Er ekki ótrúleg
fjarlægð milli ljóðlína Huldu skáld-
konu um friðsömu þjóðina við ysta
haf, sem þekkir hvorki sverð né blóð
og ungu þingkvennanna sem fagna
eldi og blóði og sprengjum, sem rign-
ir yfír vamarlausan almenning í
Belgrad? Og brýrnar yfír Dóná, sem
féllu hver af annarri. Það var sú tíð að
íslenskir karlakórar ferðuðust um
meginlandið og sungu: „Dóná, svo
blá“. Aldrei framar verður Dóná blá.
Enginn íslenskur kór getur með
hreinni samvisku sungið það ljóð. Og
hætt er við að raddimar verði ryðg-
aðar ef einhverjum skyldi hafa dottið
í hug að syngja ljóð Huldu um friðar-
ást Islendinga.
Er ekki þörf á hugarfarsbreytingu?
Eða á heimabær utanríkisráðherra,
VOPNA-fjörður, að verða höfuðborg
og hugsjónabanki íslendinga?
Siðblinda þeirra sem fögnuðu því
að sprengjum var varpað á Belgrad
nú lýsa með orðum fyrrverandi
framkvæmdastjóra NATO sem var
látinn hætta störfum vegna misferl-
is. Hann sagði: „I never done somet-
hing wrong“.
PÉTUR PÉTURSSON,
þulur.
Yitið þið?
Frá Guðrúnu Kristínu
Magnúsdóttur:
STJ ÓRNMÁLAFLOKKURINN
„Náttúralögmálaflokkurinn" er til í
rúmlega 80 löndum, og sífellt bætast
fleiri í hópinn. Hann heitir á ensku
The Natural Law Party (skammstaf-
að: NLP). Markmið Náttúralög-
málaflokkanna er eitt og hið sama
um allan heim, en það er að landslög
séu í samræmi við og í sátt við lög-
mál náttúrannar. Ef samræmi er á
milli náttúrulögmálanna og lands-
laga stríðum við ekki gegn heldur
höfum stuðning frá náttúrulögmál-
unum í stjórnun (stjórnmálum) og í
samfélaginu öllu. Það táknar að jafn-
vægi og friður er í stað árekstra.
I Frakklandi, Hollandi, Bretlandi,
Bandaríkjunum, á Indlandi og Italíu
hafa Náttúralögmálaflokkarnir fólk í
opinberam stöðum og fer því fjölg-
andi.
Sjötta heimsþing flokkanna
(Natural Law Parites) verður í Bonn
í lok júlí nk. Slóðin hjá NLP er
www.natural-law-party.org
í Pakistan var Náttúrulögmála-
flokkur stofnaður í byrjun júlí, og
farið að gera ráðstafanir til að koma
á friði í Kasmír - með því að hafa
stuðning náttúralögmálanna í stað
þess að stríða gegn þeim eins og lög-
gjöf sumra ríkja gerir óneitanlega.
Tæknin á bak við það að vinna
með (en ekki gegn) lögmálum nátt-
úrannar, og öðlast þannig meðbyr
frá þeim, er útskýrð með einfaldri
eðlisfræði sem allir geta auðveldlega
skilið.
Dr. John Hagelin, eðlisfræðingur,
er í framboði sem forseti Bandaríkj-
anna fyrir Náttúrulögmálaflokkinn
(NLP) þar.
GUÐRÚN KRISTÍN
MAGNÚSDÓTTIR,
hugverktaki/rithöfundur.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.