Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ___________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Fæðingardagur Kjarvals
Frá Evu Ragnarsdóttur:
í MORGUNBLAÐINU 25. júní
var skemmtileg grein og frásögn af
viðgerð Gunnars Amar Gunnars-
sonar á altaristöflu sem Jóhannes
Kjarval hafði málað handa kirkju
austur í Meðallandi. Eg les alltaf
það sem Bragi Asgeirsson, sá fróði
og gagnmerki listrýnir Morgun-
blaðsins, skrifar, mér til fróðleiks
og ánægju. Pað er nú í tilefni af
misskilningi um fæðingardag Kjar-
vals, sem mér finnst ástæða til að
koma á framfæri leiðréttingu. Eg
hafði raunar áður heyrt þetta í
sjónvarpsviðtali við Vilhjálm Eyj-
ólfsson á Hnausum. Þar sýndi hann
afmælisdagabókina með nafni
Kjarvals skráð við 7. nóvember, og
hafði orð á því að listamaðurinn
hefði eitthvað ruglast í ríminu,
þegar hann setti nafn sitt við 7.
nóvember.
Faðir minn, Ragnar Ásgeirsson,
garðyrkjuráðunautur hjá Búnaðar-
félaginu, og Jóhannes Kjarval voru
miklir vinir, og bjuggu þeir báðir í
Danmörku í mörg ár og kynntust
þar. Faðir minn var fæddur 6. nóv-
ember en Kjarval 7. nóvember. Þeir
höfðu það fyrir sið að halda upp á
afmælin sameiginlega, ef þess væri
nokkur kostur. Gekk það þannig í
mörg ár; líka eftir að þeir fluttu
heim til Islands.
Arið 1935 varð Kjarval 50 ára.
Var þá loksins komið að því að
mæra meistarann opinberlega.
Ekki veit eg hver fann upp á því að
leita að upplýsingum um Kjarval í
kirkjubókum, en upp úr dúrnum
kom að hann væri fæddur 15. októ-
ber. Að sögn föður míns tók Kjar-
val þetta nærri sér, því alla tíð
hafði hann trúað því sem móðir
hans hafði sagt um fæðingardag
hans. Nú vita víst margir að ekki
er alltaf að treysta því, sem í
kirkjubókum stendur. Margir
prestar trössuðu að færa í bækur
sín verk jafnóðum, en söfnuðu sam-
an upplýsingum í bunkum. Frændi
minn, Jóhann Gunnar Ólafsson,
sýslumaður og fræðimaður mikill,
sagði mér að starfsævi hans hefði
verið lengd um heilt ár með þess-
um hætti. Hann var fæddur 19.
nóvember, 1901, en presturinn
færði hann í bækur árið eftir, 1902,
um leið og fermingarbörn vorsins
voru færð inn.
Tilgátan um hversvegna Kjarv'al *
skrifaði sig í afmælisdagabókina 7.
nóvember 1929 er dæmigerð nú-
tímasagnfræði. Kjarval var við-
kvæm sál, hæverskur maður, laus
við allt stærilæti eða að sækjast eft-
ir vegtyllum. Hann var greinilega
ekki að velja sér Ijóð á bókinni,
heldur aðeins að skrifa það sem
hann sjálfur vissi réttast.
EVA RAGNARSDÓTTIR,
Kleifarvegi 12, Reykjavík.
AUGLYSINGA
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
EILBRIGÐISBTOFNUNIN
/
IsARJARÐARBÆ
Hjúkrunarforstjóri
heilsugæslusviðs
Auglýst er laus til umsóknar staða hjúkrunar-
forstjóra á heilsugæslusviði Heilbrigðisstofn-
unarinnar, ísafjarðarbæ. Umsækandi hafi fram-
haldsmenntun í heilsugæsluhjúkrun og hald-
góða reynslu af stjórnunarstörfum á heilbrigð-
issviði. Ráðið verður í stöðuna fljótlega eða
skv. nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 20 ágúst nk.
Umsóknir berist til framkvæmdastjóra,
Guðjóns S. Brjánsson, sem einnig veitir nánari
upplýsingar, netfang abrians@fsi.is, sími
450 4500/897 4661. Einnig veitir fulltrúi fram-
kvæmdastjóra upplýsingar í síma 450 4500.
Heilbrigðisstofnunin, ísafjarðarbæ, var stofnuð 1. janúar 1998,
þegar sex stofnanir í ísafjarðarbæ voru sameinaðar í eina
stjórnunarlega heild. Þetta eru heilsugæslustöðin á Flateyri
og Þingeyri auk heilsugæsluselja á Suðureyri og í Súðavík.
Samkvæmt skipuriti stofnunarinnar er henni skipt upp í tvö
svið, heilsugæslusvið og sjúkrasvið. Gert ráð fyrir að á hvoru
sviði starfi yfirlæknir og hjúkrunarforstjóri. Eitt helsta mark-
mið stjórnenda stofnunarinnar við sameininguna er að skapa
aðstæður til að geta boðið metnaðarfulla þjónustu á starfs-
svæðinu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Annað
markmið er að starfrækja stofnunina af hagkvæmni, samhliða
því að hlúa að hagsmunum starfsmanna í hvívetna og skapa
þeim gott vinnuumhverfi. Framundan er uppbyggingar- og
mótunarskeið í starfi stofnunarinnar og nýráðinn hjúkrunar-
forstjóri mun því takast á við spennandi og krefjandi verkefni,
sem gera ríkar kröfur til lipurðar í samstarfi, ferskleika og
skipulagshæfileika í góðum hópi fagfólks.
Blaðbera
vantar víðsvegar í Hafnarfirði.
Upplýsingar gefnar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 i Reykjavík þar sem eru hátt
i 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Rekstrarstjóri HK
Handknattleiksfélag Kópavogs vantar rekstrar-
stjóra fyrir Digranes (íþróttahús) og Fagralund
(knattspyrnusvæði). I starfinu felst m.a. sam-
skipti við skóla- og bæjaryfirvöld, verkstjórn,
útleiga á sal, minniháttar viðhald o.fl. Laun
skv. kjarasamningum starfsmannafélags Kópa-
vogs og Kópavogsbæjar.
Upplýsingar gefur Óskar eða Ómar í síma
554 2230. Skriflegum umsóknum skal skila fyrir
28. júlí, merktum: Rekstrarstjóri HK, pósthólf
529, Kópavogi 202. Einnig er hægt að senda
umsóknir á netinu merktar: Rekstrarstjóri HK.
Netfangið er hk@xnet.is.
Vesturbyggð
auglýsir störf:
Aðstoðarskólastjóra
á Patreksfirði, Bíldudal, Birkimel og í Örlygs-
höfn laustil umsóknar.
Upplýsingar um kjör og aðbúnað gefur undir-
ritaður.
Umsóknarfrestur er til 3. ágúst 1999.
Vesturbyggð, 20. júlí 1999.
Bæjarstjórinn í Vesturbyggð,
Jón Gunnar Stefánsson.
Kirkjubæjarklaustur
Leikskólastjóra bráðvantar við leikskólann
Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri frá 1. ágúst nk.
í boði er ódýrt húsnæði og flutningsstyrkur.
Leikskólinn Kæribærer 20 barna leikskóli með
bæði heils- og hálfsdags vistun.
Einnig er laus til umsóknar staða leikskóla-
kennara við Kærabæ.
Nánari upplýsingar veita formaðurfræðslu-
nefndar, Jóna Sigurbjartsdóttir \ síma 487 4636
og sveitarstjóri Skaftárhrepps, Ólafía Jakobs-
dóttir í síma 487 4840, heimasími 487 4763.
Vélamenn/bílstjórar
ístak óskar eftir að ráða vélamenn/bílstjóra til
starfa strax.
Upplýsingar veittar í símum 862 0303 og
896 0087.
ÍSIAK
TILBOÐ/ÚTBDÐ
Húsnæði óskast
Ungt reglusamt námspar óskar eftir litlu hús-
næði á leigu í Reykjavík.
Málfríður Vilbergsdóttir, sími 434 7774.
Ódýrt — ódýrt
Lagerútsala
Leikföng, gjafavörur, sportskór.
Opið frá kl. 13—18 miðvikudag, fimmtudag
og föstudag,
Skútuvogi 13 (við hliðina á Bónus).
Rafeindaverkstæði
á Suðurnesjum til sölu
Verkstæðið þjónustar þjófa- og brunavarna-
kerfi. Er með umboð á Suðurnesjum fyrir sömu
kerfi. Er í eigin húsnæði. Innflutningurog upp-
setning á gervihnattabúnaði. Einnig fylgir mikil
vinna vegna sjónvarps- og kapalkerfa.
Áhugasamir sendi nafn og símanúmertil
afgreiðslu Mbl., merkt: „J — 8322", fyrir 27. júlí.
Farið verður með fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Franska sendiráðið,
verslunardeild,
(reykjavik@dree.org-Dominique) óskar eftir
húsi eða íbúð á leigu (minnst 3 svefnherbergi)
fyrir nýja verslunarfulltrúann frá og með
1. september nk.
Upplýsingar í símum 551 9833/34.
SKAST KEVPT
Veitingamenn/mötuneyti
Óska eftir að kaupa bakaraofn, eldavél,
uppþvottavél og kæliklefa fyrir veitingarekstur.
Upplýsingar í símum 562 6307, 552 7011 og
699 2479.
Vikurnám milli Þjórsár og
Rangár og á Hafi norðan
Skálarfells
Mat á umhverf isáhrifum — frumathugun
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar21. júlítil 25. ágúst
1999 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum
Holta- og Landsveitar og Gnúpverjahrepps,
í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, Reykjavík.
Allir hafa rétttil að kynna sérframkvæmdina
og leggja fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast
eigi síðar en 25. ágúst 1999 til Skipulags-
stofnunar, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Þar
fást ennfremur nánari upplýsingar um mat
á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
®ÍSLANDS
MORKIHNI6 - SlMI 668-2533
Miðvikudagur 21. júlí kl. 20:
Bláfjallahellar. Skemmtiieg
hella- og fjölskylduferð. Hafið
með Ijós og húfu. Verð. 1.200 kr.,
frítt f. börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSÍ, austanmeg-
in og Mörkinni 6.
Spennandi helgarferðir:
1. 24.-25. júlí. Eyjabakkar —
Snæfell — Dimmugljúfur.
2. 23.-25. júlí. Jökulheimar
— Veiðivötn — Laugar.
3. 23.-25. júlí. Þórsmörk og
Fimmvörðuháls.
4. 6.-8. ágúst. Á slóðum ér-
bókar 1999.
Dagsferðir í Þórsmörk mið-
vikudaga og sunnudaga kl. 8.
Pantanir og farmiðar á skrif-
stofu að Mörkinni 6.
Ný Hagavatnsferð kl. 9 á
laugardag 24. júlí. Sjá ferðir á
textavarpi bls. 619.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00. .
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
____r KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Páll Friðriksson prédikar. Helga
Vilborg Sigurjónsdóttir syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
sik.torg.is