Morgunblaðið - 21.07.1999, Side 48
> 48 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
5 LEIKFELAG \
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
Utla ktytUnýsbúðÍH
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
Rm. 22/7 AUKASÝN. - laus sæti
fös. 23/7 laus sæti
lau. 24/7 laus sæti
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Erim byrjuð að taka niður
pantanir fyrir ágústmánuð.
Miðasalan er opln virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
FOLK I FRETTUM
ERLENDAR
oooooo
Skúli Helgason
fjallar um nýjustu plötu
Echo & The Bunnymen,
What are you going to do
with your life.
★★★★
Orðhákur dreg-
ur seiminn!
5 30 30 30
HAasala optn Irá 12-18 gg Iram aö sýringu
mmralltyrt’1
'#ei
HADEGISLEIKHUS - kl. 12.00
Mið 21/7 örfá sæti laus
Rm 22/7 örfá sæti laus, Fös 23/7
SNYRAFTUR
Rm 22/7 örfá sæti laus
Fös 23/7 kl. 23.00 UPPSELT
Ath! Aðeins þessar sýningar
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðró.
Botðaparrtanir í síma 562 9700.
ISLENSKA OPERAN
__iiiti
IMIJIBJJIIJ
Gamanleikrit í leikstjórn
Jkf? Siguröar Sigurjónssonar
Fös 23/7 kl. 20 örfá sæti
Lau 24/7 kl. 20 örfá sæti
Ósóttar pantanir
seldar daglega
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
ÉG MYNDI aldrei kalla þá íslands-
vini en því verður ekki mótmælt að
þeir komu til Islands, létu mynda
sig í klakaböndum hér á Fróni og
notuðu afraksturinn á umslagi
þriðju plötu sinnar, Porcupine, árið
1983. Þeir spiluðu m.a.s. í Laugar-
dalshöllinni skömmu síðar þar sem
undirritaður mætti ásamt hálfu te-
boði eða svo. Landinn lét sér sem
sagt fátt um finnast en ég fer ekki
ofan af því að tónleikarnir voru
feikna góðir.
Bunnymen voru stórveldi í
bresku poppi á fyrri hluta síðasta
áratugar, í klassa með U2, Smiths
og örfáum öðrum sem náðu að
fanga kraft og kynngi pönktímabiis-
ins án þess að missa sjónar af meló-
díunni. Ocean Rain frá 1984 er ein
af mínum uppáhalds plötum, full af
frábærum lögum og tígulega hljóð-
skreytt á tíma þegar strengleikar
voru fátíðir í poppinu.
Upprisa
holdsins
Ocean Rain var upphafið að enda-
lokum Bunnymen, í kjölfarið fylgdi
plata sem fór of langt í poppáttina
og svo sprakk allt í loft upp.
Trommarinn Pete De Freitas lést
sviplega og þá var svo komið að
engum datt í hug að Bunnymen
yrðu annað en bergmál úr gröf frá í
gær.
En skyndilega fyrir tveimur ár-
um reis sveitin úr dái, gaf út ágæta
plötu, Evergreen, og fylgir henni nú
eftir með þessari sem telst vera átt-
unda breiðskífa Echo & the Bunny-
men. Heldur er nú farið að grisjast
á skútunni, því bandið telur nú bara
tvo: söngvarann Ian McCulloch og
gítarleikarann Will Sergeant.
Bassaleikarinn Les Pattinson er
ekki lengur gildur limur og spilar
bara í einu lagi.
¥ Óperukór Konunglega Leikhússins
í Kauymannahöfn
I he
L
heldur tónleika með dönskum söngvum, óperuþáttum og Negro
Spirituals í Hafnarborg miðvikudaginn 21. júlí kl. 20.30.
Mdagisltl
etjjasosa
.ellgPÍlu llölgtffl
feríaskrifstofa
stúdenta
Alltaf á miðvlku-, fimmtu-, og föstudögum
Háöegisverður kl. 12.00, eýningin hefet kl. 12.20
og lýkur um kl. 12.50. Miðaverð með mat 1.450 kr.
Lelkarl: Stefán KsrI Stefáneeon
Lelkstjórn: Magnúe Geir hórðar6on
Miðasölusími 5 30 30 30
Úlfur með silkihanska
Nú er nauðsynlegt að rifja það
upp að leiðtogi Echo & the Bunny-
men, Ian McCulloch, var alræmdur
í árdaga fyrir kjaftbrúk og víðáttu-
vítt sjálfsáht. Makki kjaftur var
hann kallaður af sveitungum sínum
fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar
um yfirburði Bunnymen á markaðn-
um og eitraðar skítapillur í garð
kolleganna.
A þessari nýju plötu bregður hins
vegar svo við að Kjafturinn talar
tungu sem ekki gæti grandað kyrr-
stæðri flugu með sjóntruflanir.
Hvort elli kerling hefur hér mildað
stál hins vígfima riddara skal ekki
um sagt en hér svífur þroski og
angurværð yfir vötnum. Titillinn
segir sitt, efi hins „miðaldra“ manns
svífur yfir vötnum og ég er ekki frá
því að það sé bara vinalegt að heyra
Kjaftinn skrolla aðeins á egóinu.
Hvað tónlistinni viðvíkur þá er
þetta ofbeldislaust gæðapopp,
smekklegar laglínur og fínlegar
strengjaútsetningar sem stundum
Nakin í
næstu
mynd
LEIKARAR virðast margir
hverjir velta því lengi fyrir
sér hvort þeir eigi að leika í
nektarsenum. Leikkonan
Rene Russo sá fram á að
þurfa að leika í slíkri senu og
ákvað að bera málið undir yf-
irvaldið í efra. Hún segist fara
reglulega í kirkju og hafa
spurt Guð hvort hún ætti að
koma fram nakin í myndinni
The Thomas Crown Affair
þar sem hún leikur á móti
Bond-manninum sjálfum, Pi-
erce Brosnan. „Eg veit ekki til
þess að það standi í biblíunni:
„Ekki vera nakin í kvik-
mynd“,“ sagði Russo í samtali
við Los Angeles-tímaritið.
Russo var spurð að því hvað
hún héldi að páfanum fyndist
um uppátækið og svaraði hún
því til að á mörgum fallegustu
málverkunum sem hanga á
veggjum Vatíkansins væru
berar konur og því ekkert
Stephen King
kominn heim
EFTIR margar skurðaðgerðir og
þrjár vikur á sjúkrahúsi hefur
rithöfundurinn Stephen King loks
snúið aftur heim til sín. Keyrt var á
King er hann var á gangi við
sumarhús sitt í Long Island um
miðjan júní. Hann er enn of
máttfarinn til að ræða við blaðamenn
en lét taismenn sína skila þakklæti
til allra þeirra sem hafa stutt hann í
verki og hjarta eftir slysið. Nú tekur
við endurhæfíng sem mun að
líkindum standa yfir í ár en að henni
lokinni segja læknar að hann eigi að
hafa náð fyrri styrk.
minna á mýkri strófur Nicks Cave
og er þar ekki leiðum að líkjast. Það
er ekkert hérna sem slær mann
kaldan af geðshræringu en platan
er öll mjög áheyrileg og McCulloch
er býsna sympatískur söngvari, sem
fer eins og völundur með faglegar
tónsmíðar. Hann hefur m.a.s. haft
vit á því að ráða hljóðblandarann
Mark „Spike“ Stent í sína þjónustu
á þessari plötu en hann þykir ein-
hver færasti söngblandari í brans-
anum, vann m.a. með Björk á
Homogenic. Þá koma Fun Lovin
Criminals fram sem gestaleikarar í
tveimur lögum.
Bestu lög plötunnar eru titillagið
What are you going to do with your
life? þar sem hinn nýi ljúfsári tónn
efahyggju og hógværðar er sleginn
og London Metropolitan Orchestra
leikur undir af stakri smekkvísi;
Rust; Get In The Car; Lost on You
og Fools like us, allt léttleikandi gít-
arpopplög með grípandi laglínu.
Grátt en gaman
Maður hefur séð marga gamla
pönk- og nýbylgjukalla lafa í leður-
gallanum löngu eftir að ístran er
búin að sprengja burt öryggisnæl-
umar en Makki og félagar em
blessunarlega lausir við alla auma
fortíðarfíkn. Reyndar er það ekki
svo skrýtið, Bunnymen vom aldrei í
hópi þeirra sem gáfu skít í gömlu
meistarana, áhrif frá sveitum eins
og Doors vora t.d. fyrir hendi allt
frá fyrstu tíð. Hér glansar grá-
sprengdur virðuleiki manna sem
þekkja tímana tvenna og nýta sér
það. Að lokum. What are you going
to do with your life? er besta plata
Echo & the Bunnymen síðan 1984
og á skilið að fá fjórar stjömur.
P.s. Nýjustu fréttir! Ég var að
sjá það á Netinu að McCulloeh lýsti
því yfir í nýlegu viðtali að Echo &
The Bunnymen væri besta hljóm-
leikasveit veraldar. Makki kjaftur
lifir!
ósiðlegt við það. Myndin, sem
frumsýnd verður vestanhafs í
byijun ágiíst, íjaliar um millj-
énamæring sem stundar sér
til gamans að ræna banka.
Russo leikur lögreglukonuna
sem kemst á snoðir um málið
en verður ástfangin af auð-
kýfingnum myndarlega.
Stutt
Brosnan
hættir
IRSKI leikarinn Pierce Brosnan,
sem leikið hefur breska njósnar-
ann James Bond undanfarin ár, er
farinn að huga
að því að gefa
frá sér hlutverk-
ið. Brosnan, sem
er 46 ára, hefur
ákvcðið að hann
muni aðeins
leika í ijómm
James Bond
myndum. Tvær
hafa þegar verið
sýndar og sú
þriðja, „The
world is not enough", verður
frumsýnd vestanhafs í október.
Það á svo eftir að gera þá fjórðu
og eftir það mun Brosnan kveðja
Bond. Hann segist ekki vilja fest-
ast í hlutverkinu og að hann hafi
áhuga á því að leika í annars kon-
ar kvikmyndum.
Þeir sem þekkja til í kvikmynda-
iðnaðinum segja að vel gæti komið
til greina að eftirmaður hans yrði
svartur. Brosnan sjálfur hefur gef-
ið í skyn að Colin Salmon, sem lék
í „Prime Suspect", gæti orðið lík-
legur eftirmaður hans.
Kvikmynd
um 2Pac
S J ÓNVARPSSTÖÐIN MTV er að
fara að gera kvikmynd um ævi rapp-
arans 2Pac Shakur. 2Pac var einn
vinsælasti rappari fyrr og síðar en
var skotinn til bana í september 1996.
Það verða að mestu óþekktir leikarar
sem leika í myndinni en frægir tón-
listarmenn munu koma fram í henni.
Skortur á kyn-
þokkafullum
karlmönnum?
NOKKRIR af helstu sjónvarps-
þáttaframleiðendum Bandaríkj-
anna kvarta nú yfir því að
Hollywood virð-
ist hafa orðið
uppiskroppa
með kynþokka-
fulla karlmenn.
Framleiðend-
ur Bráðavaktar-
innar segja að
hvorki Noah
Wyle, sem leikur
John Carter, né
Eriq La Salle,
sem leikur Peter
Benton, takist að fylla í það skarð
sem hjartaknúsarinn Gieorge Cloo-
ney, sem lék Doug Ross, skildi eft-
ir sig þegar hann hætti að leika í
þáttunum á dögunum. Þættirnir
„Law and Order“ hafa einnig dal-
að í vinsældum síðan Benjamin
Bratt, kærastinn hennar Juliu Ro-
berts, hætti að leika í þeim.
Haft hefur verið eftir forstjóra
eins sjónvarpsversins í Hollywood
að skortur sé á kynþokkafullum
karlmönnum um þessar mundir.
Það sé verið að leita að karlmönn-
um til að koma í stað leikara sem
séu að hætta og að það hafi aldrei
verið jafn erfitt og nú. Þannig að
nú hlýtur að vera tækifærið, strák-
ar!
Meiri texti,
minni hasar
HASARMYNDAHETJAN Sylvester
Stallone mun brátt sýna á sér nýja
hlið. Næsta kvikmynd hans, „Detox“,
er dramatísk spennumynd og þar
leikur Stallone lögreglumanninn Ja-
ke Makoy. Segist hann hafa tekið
hlutverkið að sér því það sé meira
krefjandi andiega en líkamlega og í
myndinni sé mikið um samtöl og lítið
um átök.
George Clooney