Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 51
W/r áll J.V/ -i\t>
■S- 553 2075
ALVðRUBÍÓ! mpolby
STAFRÆIMT sr/tRSTa tjaidhi ivihi
HLJÓÐKERFI í I | |_J X
ÖLLUM SÖLUIVI!
[XI
DIGITAL
Thx
SÍMI
*r*OR«v
* htó
Laugavegl 94
551 6500
MAGNAÐ
BÍÓ
/DD/
ÞRETTÁIMDA HÆÐIIM
■wmmw
' 'ákumí v-MiMMmf. i*jrí
Þú getur farið <£
þangað þrátt fyrip
að það sé ekki til.
THE
THIRTEEnTH
FLOOR
Frá meðframleiðanda GODZILLA og
IIMDEPEIMDEIMCE DAY.
IMÝ UPPFÆRSLA: www.stjornibio.is
www.austinpowers.com
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
CAROLINA Castillo frá Venesúela
var 17 ára þegar hún kom sem
skiptinemi til íslands í fyrra og bjó
hjá fjölskyldu Kristjönu Harðar-
dóttur og Freys Jónssonar, en Inga
Sóley dóttir Kristjönu hafði verið
skiptinemi í Guatemala árið áður.
„Fyrst fannst okkur við ekki geta
tekið að okkur skiptinema því við
búum frekar þröngt, en buðumst til
að vera bráðabirgðafjölskylda í
stuttan tíma,“ segir Kristjana. „En
okkur líkaði strax mjög vel við
Carolinu og henni leið vei hér,
þannig að eftir nokkrar vikur buð-
um við henni að vera áfram ef hún
sætti sig við að vera með Ingu Sól-
eyju í herbergi, og gekk sambýlið
vel hjá þeim þótt þröngt væri. Úr
varð að hún dvaldi hjá okkur í níu
roánuði."
Mikið með börnin
„Carolina var aldrei gestur held-
ur féll strax inn í fjölskylduna, gekk
í öll heimilisstörf og kallaði okkur
Frey mömmu og pabba strax. Það
sama átti við ömmur og afa, frænk-
ur og frændur. Það var svolítið
skrítið fyrst en vandist. Litlu börnin
okkar þau Jón Snævar sem er 2ja
og hálfs ára og Steinunn Snædís
sem fæddist eftir að Carolina kom,
urðu mjög hænd að henni.
Fyrst var Carolina svolítið feimin
að tala íslensku, en ég heyrði hana
æfa sig að tala við Jón litla og var
hún þá alveg ófeimin. Hún eignaðist
fljótt mjög góða vini í skólanum, og
náði góðu valdi á íslenskunni. Svo
eignaðist hún líka góðan vin... eða
kærasta.
Carolina var mjög mikið með
börnin og söng fyrir þau á spænsku,
og þegar hún talaði við Jón Snævar
á spænsku og sagði honum fyrir
verkum hlýddi hann undireins, svo
hann var farinn að skilja töluvert.“
Kristjana segir það hafa verið
Erfíðast að kveðja
Það er sannkallað ævintýri að vera
skiptinemi í fjarlægum löndum í tíu mán-
uði, en ekki síður skemmtileg lífsreynsla
að hafa skiptinema inni á heimilinu.
einstakalega þægilegt og skemmti-
legt að hafa Carolinu inni á heimil-
inu. „Hún var svo opin fyrir öllu, já-
kvæð og til í að prófa allt. Hún lærði
að prjóna og prjónaði sér lopa-
peysu, lærði á skíði og fór í Bláfjöll,
til ísafjarðar og Akureyrar, og varð
ágætis skíðamanneskja. Svo borðaði
hún allan mat; skötu, rjúpu og
fannst það mjög gaman. Islensk jól
voru mjög sérstök upplifun fyrir
hana, og hún fór m.a. með okkur að
sækja jólatré í skógræktina í Hval-
firðinum. Þangað kom jólasveinninn
og færði öllum mandarínur og það
fannst Carolinu mjög fyndið. Hvað
jólaveinninn væri að gera með
ávexti! Þannig fór maður að sjá
ósköp venjulega og hversdagslega
hluti í öðru ljósi. Eins og árstíðirnar
sem Carolina upplifði mjög sterkt,
hún sá snjó í fyrsta skipti og norð-
urljós. Heima hjá henni er bara
heitt, rigning eða þurrkur. Ég veit
ekki hvert hún ætlaði þegar fór að
snjóa í miðjum maí.“
Neitaði að skila
húslyklinum
Það var Carolinu erfitt að vera
svo fjarri fjölskyldu sinni til að
byrja með, en það breyttist fljótt,
henni líkaði svo vel að hún gat vel
hugsað sér að vera áfram, og byrj-
aði strax í maí að tala um að vera
áfram. Hún fór 3. júlí sl. og er víst
strax byrjuð að safna sér fyrir ferð
til íslands og ætlar að heimsækja
fjölskyldu sína og vini á næsta ári.
„Hún neitaði að skila húslyklinum,
og sagði að einhvern daginn þegar
ég kæmi heim, þá yrði hún þar bara
komin aftur og sæti við eldhúsborð-
ið,“ segir Kristjana og hlær.
- Eitthvað hlýtur að hafa verið
eríitt?
„Ef það var eitthvað þá er ég búin
að gleyma því. Það fellur í skuggann
af ánægjulegu stundunum. Fyrst var
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 . B.i. 16ára.
Morgunblaðið/Halldór
CAROLINA heldur á Jöni Snævari, Inga Sóley, Freyr og Kristjana á lokagrillhátíð skiptinemanna í Heiðmörk.
INGA Sóley í faðmi fjölskyldunnar í Guatemala.
ég reyndar smástressuð yfir að hún skildi mig ekki, en
það bjargaðist alltaf. Skiptinemarnir hafa líka allir trún-
aðarmann sem þau geta leitað til, og allir eru mjög liðleg-
ir á skrifstofu AFS. Það var eiginlega erfiðast að kveðja
hana og við söknum hennar öll mjög mikið. Sérstaklega
litlu krakkarnir.“
Kristjana er á því að fá skiptinema aftur seinna. „Ég á
örugglega eftir að gera það, og mæli eindregið með þess-
ari skemmtilegu reynslu fyi'ir aðrar fjölskyldur."
Og það má nú segja að þessi íslenska fjölskylda sé
sterklega tengd Suður-Ameríku. Inga Sóley ætlar næsta
sumar aftur suður eftir til að heimsækja foreldra sína þar
og bræður, og Kristjana er viss um að hún eigi eftir að
heimsækja Carolinu einn daginn. „Það er gaman að eiga
dóttur í Venesúela. Svolítið skrýtið en mjög gaman,“ seg-
ir Kristjana að lokum.
SYSTKININ öll fjögiir saman á jólunum.
STEINUNN Snædís var á handleggnum á Carolinu
frá því hún fæddist.
Skiptinema á vegum AFS vantar heimili á íslandi
FYRIfí
■ 990 PUNKTA
FERÐU I BlÓ
NYJÆIf
Keflavik - simi 421 1170
j Dj^Barrymore David Arquette
HÚN HEFUR ALDREI
TOLLAÐ í TÍSKUNNI...
..FYRREN NÚNA.
been
TttSfirælkMÍ
Sýnd kl. 9.
www.samfilm.is
fhm rrn imn« iii iTl tmi