Morgunblaðið - 24.07.1999, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 24. JIJLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bessastaöir illa varöir fyrir ágangi feröamanna:
Túristar liggja á
gluggum forsetans
ÞÉR verðið beðinn að „smæla“ oft í dag hr. forseti. Það eru þegar 25 túristarútur búnar að melda
Afla mis-
skipt milli
landshluta
Veiði virðist fremur misskipt þessa
dagana; mikill lax og góð veiði er
suðvestan- og vestanlands, minna
af laxi og minni kraftur í ám
nyrðra. 20 punda lax veiddist í Ölf-
usá fyrir fáeinum dögum, á Pallin-
um við Selfoss. Að sögn voru
tálknin á laxinum svo full af drullu
að fiskurinn gat vart sýnt viðnám
og var landað á örskammri stundu.
Pó hefur örlítið borið á bata á
svæðinu, vatnsborð Hvítár hefur
lækkað um tvö fet, að sögn, og
versta gruggið horfið. Enn er þó
áin mjög skoluð og menn bíða
spenntir eftir framhaldinu. Dálítið
hefur borið á laxi að ganga í Sogið
en Stóra-Laxá er enn með
daufasta móti, enda um lengri veg
að fara fyrir áttavillta laxa í mor-
inu neðra.
Þau Bergur Steingrímsson og
Edda Dungal hjá SVFR gáfu
skýrslu um stöðu áa á vegum
SVFR í gærdag. Norðurá var þar
hæst með 1202 laxa og er í öðru
sæti á landsvísu, einhverjum þrjú
hundruð löxum á eftir Þverá og Kj-
arrá. Góð veiði hefur verið í Norð-
urá að undanfömu, sérstaklega
frammi á dalnum. Mikill lax er í
ánni, að sögn kunnugra, en menn
vonast samt eftir nýjum göngum til
að hressa upp á veiðiskapinn neðar
á svæðinu.
Aðeins 56 laxar voru komnir úr
Gljúfurá í Borgarfirði á fimmtudag
og þykir það ekki há tala. Gljúfurá
var í lægð í fyrra en teikn þóttu
vera á lofti um bata í sumar.
Kannski að úr rætist en það er
óneitanlega sérkennilegt að bæði
Norðurá og Langá eru fullar af laxi
en Gljúfurá, sem rennur úr annarri
í hina, er jafn dauf og raun ber
vitni.
Leirvogsá hafði gefið 210 laxa á
GUNNAR Þorláksson með fallega veiði úr Þverá í Borgarflrði.
ÞORVARÐUR Iljaltason með rúm-
lega 18 punda lax úr Vesturdalsá í
Vopnafirði. í baksýn má sjá nýtt
veiðihús þeirra Vestur-dælinga.
fimmtudagskvöld, sem er afar góð
útkoma. Ekki kæmi á óvart ef út-
reikningar sýndu ána með bestu
meðalveiðina á stöng á landsvísu.
Þessi veiði er á tvær stangir og
hófst hún 25.júní.
Fín veiði í Hítará
Hópurinn, sem var í Hítará í gær,
var í góðum málum; 19 laxar og
fjöldi stórra sjóbleikja voru komin á
land eftir einn og hálfan dag og holl-
ið á undan fékk 14 laxa. Skilyrði
voru þá lakari og laxinn tók mjög
grannt. Heildartala af aðalsvæði
Hítarár var í gær 134 laxar og 14 til
viðbótar höfðu veiðst á svæðinu Hít-
ará 2. 64 bleikjur voru þar einnig
komnar í veiðibók.
Sogið og Stóra dauf
Aðeins rúmlega 50 laxar hafa
veiðst í Soginu og aðeins 32 í Stóru-
Laxá í Hreppum. Á þriðjudaginn
kom smáskot á Alviðrusvæðinu, er
fimm laxar voru dregnir á þurrt.
Voru þá komnir 30 laxar úr Alviðru,
16 úr Ásgarði, 4 úr Bíldsfelli og
enginn úr Syðri-Brú. Það er kald-
hæðnislegt því veiði á Syðri-Brú
var sérlega góð í fyrra og í fyrsta
sinn í áraraðir seldust þar flest
veiðileyfi.
í Stóru-Laxá er ástandið mun
bagalegra; 22 laxar voru komnir af
efsta svæðinu í gær, 7 af svæði þrjú
og aðeins 3 laxar af svæðum eitt og
tvö. Tölur í ánni hreyfast ekkert
dögum og jafnvel vikum saman.
Góður gangur
í StraumQarðará
Prýðisveiði hefur verið í Straum-
fjarðará það sem af er sumri, að
sögn Ástþórs Jóhannssonar, eins
leigutaka árinnar og umsjónar-
manns á staðnum. I gær voru
komnir 106 laxar á land, sem er
mun betri veiði heldur en á sama
tíma í fyrra. Ástþór segir vatns-
magn mjög hæfilegt og ekki spilli
regluleg væta í lofti. I fyrra hafi
langvarandi þurrkar komið niður á
veiðiskap en því sé ekki að heilsa
nú. Nokkrar vænar sjóbleikjur hafa
og drýgt aflann.
Orlofsvika aldraðra á Löngumýri
Óráðin
framtíð
Dagana 2. til 7.
ágúst nk. tekur
Löngumýrarskóli
í Skagafirði á móti öldr-
uðu fólki í orlofsvist.
Undanfarinn aldarfjórð-
ung hafa margir aldraðir
einstaklingar dvalið á
Löngumýri á vegum
þjóðkirkjunnar í lengri
eða skemmri tíma í or-
lofi. Séra Stína Gísla-
dóttir hefur umsjón með
orlofsvist aldraðra á
Löngumýri í ár. Skyldu
svona orflofsdagar vera
vinsælir og vel sóttir?
Já, á árum áður voru
langir biðlistar af fólki
sem vildi komast í orlofs-
dvöl á Löngumýri. Starf-
ið stóð þá frá því í maílok
Stína Gísladóttir
og fram í september. En á seinni
árum hefur tilboðum til aldraðra
fjölgað mikið svo dregið hefur úr
aðsókninni á Löngumýri. Mér er
hins vegar kunnugt um að marg-
ir hafa spurst fyrir um mögu-
leika á orlofsdvöl á Löngumýri
og langaði til að mæta óskum
manna með því að bjóða upp á
þessa fimm daga dvöl. En ég
kom ekki til starfa hér fyrr en 1.
júlí og þá reyndist ekki laus heil
vika á Löngumýri nema þessir
umræddu dagar.
- Hvað fer fram í orlofsviku á
Löngumýri?
Þetta er fyrst og fremst hvíld-
arstaður í notalegu umhverfi.
Hér eru helgistundir kvölds og
morgna. Lítil sundlaug er í garð-
inum og heitur pottur. Gamall,
rótgróinn garður með gömlum
trjám býður upp á útivist með
fuglasöng og blómaangan í fögru
umhverfi. Við stöndum fyrir
kvöldvökum og skoðunarferðum
eftir atvikum. Það er ekki hægt
að gera svo mjög mikið á þess-
um fimm dögum, en á árum áður
var dvölin ellefu dagar og þá var
hægt að fara meira.
- Kostar svona orlofsdvöl
mikið?
Gjaldið hjá okkur er 3.000
krónur á dag. Þá er allt innifalið
nema ferðirnar til staðarins. Hér
eru fimm máltíðir á dag með
fjölbreyttu fæði og reynt að
mæta óskum dvalargesta eins og
unnt er.
► Stína Gísladóttir er fædd 16. 5.
1943 í Kaupmannahöfn. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1963,
kennaraprófi frá Kennaraskóla
íslands 1964 og BA-prófi í
dönsku og landafræði frá Há-
skóla íslands 1969. Uppeldis- og
kennslufræðiprófi frá sama skóla
lauk Stína 1970 og guðfræðiprófi
lauk hún svo 1987, einnig frá Há-
skóla Islands. Hún hefur starfað
sem kennari um árabil og æsku-
lýðsfulltrúi hjá kirkjunni í sex ár
en vígðist í janúar 1988 sem far-
prestur til Blöndóss. Hún var
einnig um tíma farprestur á
Siglufirði. Sl. ti'u ár hefur hún
verið sóknarprestur í Bólstaðar-
hlíðarprestakalli. Löngumýrar-
skóla sinnir hún nú aukalega um
þviggja mánaða skeið. Stfna er
gift. Ola Aadengard flutningabíl-
stjóra.
stofnað. Síðan hætti Ingibjörg
hér sem skólastjóri 1967 og þá
kom hingað Hólmfríður Péturs-
dóttir sem skólastjóri og Mar-
grét Jónsdóttir um leið sem
kennari. Margrét varð síðan
skólastjóri fimm árum síðar og
stjórnaði þannig húsmæðraskól-
anum síðustu fimm árin sem
hann var starfræktur, en hann
var lagður af 1977.
- Hvað starf hefur síðan verið
á Löngumýri?
Sumarorlof fyrir aldraða var
hafið þegar áður en húsmæðra-
Hvert hafið þið helst farið í skólinn var lagður niður og var
skoðunarferðir?
Ferðast hefur verið um
Skagafjörð og yfír í Eyjafjörð og
vestur í Húnavatnssýslu en oft
er farið eftir óskum þátttakenda.
Hólar í Hjaltadal er t.d. stutt
hérna frá, svo og Glaumbær með
gamla burstabæinn sinn. Þá má
nefna Víðimýrarkirkju, sem
reist var árið 1834, hún er að ég
best veit elsta torfkirkja á land-
inu og enn í notkun sem sóknar-
kirkja. Þessa staði og marga
fleiri hafa dvalargest- _______
ir t.d. skoðað.
-Eru svona orlofs-
vikur mikilvægur
þáttur í starfi kirkj- ________
unnar með öldruðum?
Allt starf kirkjunnar er mikil-
vægt. Bæði meðal ungra og
gamalla. Langamýri er dýrmæt
eign kirkjunnar, eins og vin í
eyðimörkinni, þar sem að hægt
er að finna nálægð Guðs með
sérstökum hætti. Ingibjörg Jó-
hannsdóttir gaf kirkjunni þenn-
an stað í byrjun sjöunda áratug-
arins. En þá var hér starfræktur
húsmæðraskóli sem hún hafði
Langamýri er
dýrmæt eign
kirkjunnar
lengi það eina sem fram fór að
sumrinu hér. Á vetrum hafa ver-
ið hér námskeið af ýmsu tagi,
fundir og ráðstefnur og mögu-
leiki er á að gista hér. Otalmörg
fermingarbörn hafa t.d. verið hér
á stuttum námskeiðum og þá af
mest öllu Norðurlandi og víðar.
Nú stendur þjóðkirkjan á tíma-
mótum hvað snertir þennan stað.
Margrét Jónsdóttir, sem var for-
stöðukona hér í nær þrjá áratugi
og byggði upp starfsemina í
________ framhaldi af hús-
mæðraskólanum,
varð bráðkvödd í apr-
íl sl. Staðurinn er því
í sárum. Löngumýr-
arnefnd, sem þrír
fulltrúar eiga sæti í, eiga að gera
tillögur að nýrri framtíð staðar-
ins til yfirstjórnar kirkjunnar. I
framhaldi af því verður síðan
tekin ákvörðun um hvað gert
verður með Löngumýri. Ég vona
mjög að kirkjan beri gæfu til að
byggja upp farsælt starf í fram-
haldi af því sem hér hefur verið.
Staðurinn hér gefur sannarlega
margvíslega möguleika til þess.