Morgunblaðið - 29.08.1999, Side 6
6 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Samfélagsbylting
lærisveins Bdlivars
BAKSVIÐ
Hugo Chavez, forseti Venesúela, fer mik-
inn í landi sínu um þessar mundir og hefur
í raun gert bæði þingið og dómskerfíð
óvirkt. Hann segir markmið sitt vera að
losna við spillt kerfí, en gagnrýnendur
óttast að hann muni einfaldlega koma
vinum og fylgisveinum fyrir í valda-
stöðum og virða lýðræði að vettugi.
Reuters
SJALFSKIPAÐUR LÆRISVEINN
Hugo Chavez situr hér fyrir framan málverk af frelsishetjunni Símoni
Bólivar, sem hann segir vera læriföður sinn. Bólivar var uppi
1783-1830 og kynntist frelsishugmyndum í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Hann stýrði baráttu gegn yfirráðum Spánverja í S-Ameríku.
INGIÐ og Hæstiréttur eru
í dauðateygjunum. Stjóm-
arskráin er á leið í rusla-
körfu sögunnar. Hefð-
bundnir stjórnmálaflokkar hafa
horfið af sjónarsviðinu. Slík eru ör-
lög fómarlamba „samfélagsbylting-
ar“ Hugos Chavez, forseta Venesú-
ela.
Án þess að verða fyrir nokkurri
mótspymu að heitið geti er Chavez,
fyrrverandi valdaránsforsprakka,
sem komst til valda með þvi að lofa
að veita hinum fátæku aðstoð og
ganga á milli bols og höfuðs á hin-
um spilltu, að takast það sem bylt-
ingarmönnum allt frá Mexíkó til
Argentínu hefur löngum mistekist.
Að rjúfa tengslin við fortíðina í eitt
skipti fyrir öll.
Chavez vann yfirburðasigur í for-
setakosningum sem fram fóra í
Venesúela í byrjun desember sl. og
tók við völdum í febrúar. Kjörtíma-
bil forsetans er fimm ár. Valdarán,
sem hann stóð fyrir 1992, mis-
heppnaðist.
Áhrif út fyrir
landsteinana
Vart verður við þeytinginn í
Chavez langt út fyrir landamæri
Venesúela, bæði af táknrænum og
starfrænum ástæðum. Frjálsræðis-
hetjan Símon Bólivar fæddist í
Venesúela og Chavez hefur lýst
sjálfan sig arftaka og lærisvein
Bólivars, þrátt fyrir að hann hafi á
áram áður haft lög og reglur að
engu.
Þá hafa fréttaskýrendur bent á,
að þegar Marcos Perez Jimenez,
fyrrverandi einræðisherra, var
steypt af stóli 1958 héldu nútíma-
legar lýðræðishefðir innreið sína í
Suður-Ameríku og Venesúela varð
að eins konar tilraunastöð fyrir
þennan heimshluta.
Það er sérstakur áhyggjuvaldur
fyrir hin ráðandi öíl í stjórnmálalífi
Venesúela að Chavez vann sigur
sinn með því leita út fyrir hið hefð-
bundna flokkakerfi og bjóða sig
fram sem óháður fulltrúi flokka-
bandalags Föðurlandssambands-
ins.
Óorð var komið á hina tvo hefð-
bundnu flokka í Venesúela, annar
er aðeins til vinstri við miðjuna og
hinn aðeins til hægri, fyrir áralanga
spillingu, sem ekkert virtist geta
losað um, og flokksbundið hygl. Á
síðustu stundu sameinuðust flokk-
arnir að baki helsta andstæðingi
Chavez, en það varð ekki til annars
en að gera flokkana svo að segja
áhrifalausa þegar úrslit lágu fyrir.
Enn of snemmt
að segja til
Sennilega er of snemmt að segja
til um hvort framkvæmdasemin í
Chavez verður til góðs fyrir Venes-
úela eða ekki. En lífið í landinu
verður svo sannarlega aldrei samt.
Það er liðin tíð að tveir hefðbundnir
ílokkar hafi tögl og hagldir á öllum
sviðum, allt frá kappreiðum til sjón-
varpsútsendinga og mannaráðn-
inga í stáliðjuveri stjórnvalda.
Margir helstu máttarstólparnir í
gamla valdakerfinu í Venesúela eru
kannski ekki alveg tilbúnir til að
hverfa þegjandi og hljóðalaust af
sjónarsviðinu. „Við eram ekki safn-
gripir," mótmælti Luis Herrera
Campins, fyn-verandi forseti. En
svo virðist sem þeir eigi ekki ann-
ars úrkosti.
Stjórnarskrársamkunda, sem
Chavez stofnaði til og stuðnings-
menn hans era allsráðandi á, er að
taka við störfum bæði þingsins og
dómstólanna, að því er virðist án
þess að þær stofnanir geti eða vilji
streitast á móti. Cecilia Sosa, for-
seti Hæstaréttar, sagði af sér á
þriðjudaginn í mótmælaskyni við
þá niðurstöðu dómsins að styðja þá
ákvörðun samkundunnar að hún fái
víðtæk ný völd til að reka dómara
og endurbæta dómskerfið.
„Sjálfsmorð" hæstaréttar
„Hæstiréttur framdi einfaldlega
sjálfsmorð til þess að sleppa við að
vera myrtur. En afleiðingarnar eru
hinar sömu. Hann er dauður," sagði
Sosa. Á miðvikudaginn lét stjómar-
skrársamkundan aftur til skarar
skríða gegn valdakerfinu í Venesú-
ela þegar hún tók við flestum
skyldum þingsins.
Hið upphaflega hlutverk sam-
kundunnar var að leggja drög að
nýrri stjórnarskrá, þeirri 26. í sögu
Venesúela. Samþykkt var með yfir-
gnæfandi meirihluta að lýsa yfir
lagalegu neyðarástandi, og svipta
þingið þannig réttinum til að sam-
þykkja lög og gera hlutverk þess
lítilvægt.
„Hallarbyltingin gegn lýðræði í
Venesúela hefur verið staðfest,"
sagði stjórnarandstöðuþingmaður-
inn Cesar Perez Vivas þegar sam-
þykktin var í höfn. Stjómmála-
bandalag Chavez, Föðurlandssam-
tökin, fékk yfir 90% sæta á stjórn-
arskrársamkundunni, þegar kosið
var til hennar í síðasta mánuði.
Hafa samtökin farið hátt með þá
ákvörðun sína að leysa ekki upp
þingið og dómstólana sem dæmi um
stórhug sinn.
Sannleikurinn er hins vegar sá,
að engin þörf var á að leysa þessai-
stofnanir upp formlega því að þær
vora í rauninn þegar óstarfhæfar
að mestu leyti. Chavez segir nauð-
synlegt að hrista duglega upp í
stofnunum í Venesúela til þess að
losna við einhverja verstu stjóm-
málaspillingu sem fyrirfinnist í
heiminum.
„Þeir fyrirfóru sér,“ sagði hann
nýverið um hina hefðbundnu
stjórnmálaflokka í landinu. Meira
en helmingur allra íbúa landsins,
sem era alls um 23 milljónir, býr
við fátækt þrátt fyrir að í landinu
sé að finna mestu olíulindir sem
nokkurt ríki, utan Miðausturlanda,
hefur yfir að ráða.
Svik við lýðræðið?
En gagnrýnendur segja að með
aðgerðum sínum hafi Chavez tek-
ið sjálfur öll völd, hindrað lýðræð-
islegt eftirlit og gagnrýni og
þannig unnið gegn því markmiði
að draga úr spillingu. Stjórnar-
andstæðingar voru í meirihluta á
þinginu, en í síðasta mánuði létu
þeir undan og gerðu hlé á þing-
störfum. Á miðvikudaginn til-
kynntu þeir að þeir myndu koma
saman nú í lok vikunnar til þess
að ræða þær ógnir sem steðjuðu
að tilvist þingsins.
Þegar Sosa sagði af sér fullyrti
hún að þingið og stjórnarandstöðu-
flokkar hefðu „svikið" lýðræðið og
„brotið lög og reglur með því að
víkjast undan stjórnarskrárbundn-
um skyldum sínum“. Henrique Ca-
priles Radonsky, forseti neðri
deildar þingsins, kvaðst hafa „látið
lítið fara fyrir sér“ til þess að forð-
ast að „espa“ hina valdamiklu
stjómarskrársamkundu.
Fáum leiðtogum hefur tekist
jafnvel og Chavez að vekja vonir al-
mennings í Venesúela, þrátt fyrir
miklar efnahagsþrengingar og að
um hálf milljón manna hafi misst
vinnuna frá því hann tók við emb-
ætti í febrúar.
Aukið hlutverk hersins
Forsetinn hefur verið gagnrýnd-
ur íyrir að fela hernum aukið hlut-
verk í samfélaginu og fela mönnum,
sem skipulögðu valdaránstilraunina
með honum, æðstu stöður í stjórn-
inni. En vel hefur verið tekið í það
að hann skuli hafa falið hermönnum
að gera við vegi, byggja skólahús
og hjúkra sjúkum, og yfir sjötíu af
hundraði telja hann hafa staðið sig
vel.
Þess er vænst, að nýtt þing og
nýr Hæstiréttur líti dagsins ljós hjá
stjórnarskrársamkundunni, líklega
í byrjun næsta árs. En sumir hafa
áhyggjur af því að Chavez muni
takast að fylla allar stofnanir af
fylgLsmönnum sínum og að í hinu
nýja Venesúela vepði lítið pláss fyr-
ir andstæðinga. „Ég er rödd í eyði-
mörkinni,“ sagði Jorge Olavarria,
einn örfárra stjórnarandstæðinga
sem sæti eiga á stjórnarskrársam-
kundunni.
• Byggt á Associated Press og The New
York Times.
• •
Osku Bor-
manns
dreift yfír
Eystrasalt
LÍKAMSLEIFAR Martins
Bormanns, sem var hægri hönd
Adolfs Hitlers, voru nýlega
brenndar og þeim dreift yfir
Eystrasaltið, að sögn þýska
fréttablaðsins Der Spiegel í
gær. Sagði í frétt blaðsins að
ösku Bormanns hefði verið
dreift yfir sjóinn rétt hjá borg-
inni Kiel í Norður-Þýskalandi.
Þýska ríkið mun hafa borgað
fyrir líkbrennsluna en fjöl-
skylda Bormanns, sem var rit-
ari Hitlers og trúnaðarvinur,
ku ekki hafa viljað hafa nein af-
skipti af málinu.
Líkamsleifar Bormanns
fundust óvænt íyrir 27 áram en
DNA-rannsóknir staðfestu
reyndar ekki fyrr en í fyrra að
um Bormann var að ræða.
Lengi eftir stríð hafði verið
algerlega á huldu hvað um Bor-
mann varð en hann hafði horfið
sporlaust. Fjölskylda hans hélt
því ávallt fram að hann hefði lát-
ist í maí 1945 en af og til bárust
hins vegar fréttir af því að hann
hefði sést í Suður-Ameríku.
Öflug
sprengja í
Jemen
ÖFLUG sprengja varð níu
manns að bana í Sanaa, höfuð-
borg Jemens, í gærmorgun.
Sprengjan sprakk í stórverslun
í miðborg Sanaa og urðu miklar
skemmdir á versluninni, sem
og nærliggjandi byggingum, og
m.a. brotnuðu rúður í sendiráð-
um Tyrklands og Frakklands,
sem staðsett era nálægt versl-
uninni. Einungis örfáum
klukkustundum áður höfðu yf-
irvöld greint frá því að
sprengja hefði sprangið í hafn-
arborginni Aden en enginn
slasaðist. Ekki var fyllilega
Ijóst hvort um sprengjutilræði
var að ræða eða hvort spreng-
ingarnar tvær væra tengdar.
Ruud Gullit
segir af sér
HOLLENDINGURINN Ruud
Gullit sagði af sér í gærmorgun
sem framkvæmdastjóri enska
knattspyrnu-
liðsins
Newcastle.
Sagði Gullit
að ástæðan
fyrir afsögn-
inni væri m.a.
slök frammi-
staða liðsins
undanfarið en
Newcastle
hefur aðeins fengi eitt stig í
fimm fyrstu umferðum ensku
úrvalsdeildarinnar. Steve Clar-
ke, aðstoðarmaður Gullits, mun
stjóma liðinu í næsta leik sem
verður á mánudag gegn
Manchester United.
Gullit tilkynnti um afsögnina
á blaðamannafundi í gærmorg-
un og bað hann fylgismenn
Newcastle afsökunar á slöku
gengi liðsins. Hann sagði hins
vegar að helsta ástæða afsagn-
arinnar væri ágangur fjölmiðla
undanfarið sem hann sagði hafa
ofsótt sig og fjölskyldu sína.
Pressan á Gullit jókst mjög í
vikunni þegar hann lét Alan
Shearer, fyrirliða enska lands-
liðsins, sitja á varamanna-
bekknum mestallan leik liðsins
við Sunderland. Leikurinn tap-
aðist 1-2.