Morgunblaðið - 29.08.1999, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 29.08.1999, Qupperneq 56
 56 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM •r * V ; Frumsýningar í dag og á mánudag Draumur í Arizona Arizona Dream ‘93 Emir Kusturica/Júgóslavía JOHNNY Depp leikur draumóramanninn Axel, sem er ham- ingjusamur við þá iðju sína að veiða fisk í New York, þegar sendiboði hefur upp á honum og kemur honum til Arizona þar sem hann á að vera svaramaður Leos frænda síns sem Jerry Lewis leikur. Leo vill ólmur og uppvægur fá Axel inn í blómlegt bílaíyrirtæki fjölskyld- unnar, og þegar Axel reynir fyrir sér sem bílasölumaður kynnist hann hin- um ólíku stjúpmæðgum, Elaine og Grace Stalker, sem leiknar eru af Fa- ye Dunaway og Lily Taylor sem lék í A köldum kkik'd eftir Friðrik Þór. Axel dregst að þessum furðulegu mæðgum sem hata hvor aðra eftir mikið fjöl- skylduuppgjör en eru þó báðar ólmar í ást. Myndin er draumkennd og eins og Kusturica sæmir er hún bæði ljóðræn í fegurð sinni og fyndni. Arizona Dream er bandarísk framleiðsla. Hlaut hún misjafnari viðtökur en aðrar kvikmyndir leikstjórans, en hlaut þó Silfur- björninn í Berlín árið 1993. Ástkær Beloved 1999 Jonathan Demme/Bandaríkin SAGA Nóbelsverðlaunahafans Toni Morrison, Ástkær, er nú komin á hvíta tjaldið og heill skari þekktra leikara fer með hlutverk í myndinni, m.a. Ophrah Winfrey sem leikur Sethe, en Winfrey hefur ekki leikið í kvikmynd síðan hún fór með hlut- verk í myndinni Purpuralitnum. Danny Glover fer með hlut- verk Paul D, Kimberly Elise leikur dóttur Sethe og Thandie Newton fer með hlutverk Ástkærrar. Sagan gerist í Ohio árið 1873 og Sethe hefur flúið frá fyrrverandi eigendum sínum og er að reyna að skapa sér líf með bömum sínum. I þeirri baráttu hamlar henni þó erfið reynsla hennar af þrældómi. Jonathan Demme steig fyrst fram á sjónarsviðið með mynd sinni Caged Heat árið 1974, en þekktasta mynd hans er án efa Lömbin þagna frá árinu 1991. Hún hlaut fimm Óskarsverðlaun og þar á meðal fór Demme heim með verðlaun fyrir bestu leik- stjómina. Demme hefur einnig gert fjölda heimildarmynda og mynda fyrir sjónvarp. Tangó Tango 1998 Carlos Saura/Spánn NYJASTA mynd Carlos Saura gerist í Buenos Aires og segir sögu leikstjórans Mario Suarez sem elur þann draum í brjósti að búa til tangómynd allra tíma. Hugmynd hans er að dansar- amir og tónlistarmennimir geti tjáð sig af tilfmningu án þess að nokkuð sé slakað á leikrænum þætti myndarinnar, enda muni tangóþyrstir Argentínubúar ekki samþykkja neitt hálf- kák þegar kemur að dansi þeirra, tangóinum. Hlutimir flækj- ast þegar Suarez verður ástfanginn af hinni fögra og hæfileika- ríku Elenu sem er kærasta Angelo Larroca sem er einn stærsti styrktaraðili myndarinnar og bæði voldugur og hættu- legur. Vandræði Suarez aukast enn þegar aðrir sem fjármagna myndina fetta fingur út í eitt atriði myndarinnar þar sem Su- arez hyggst sýna dekkri hliðar sögu Argentínu, tímabil manns- hvarfanna. Carlos Saura þarf vart að kynna fyrir Islendingum, en hann hefur gert fjölda kvikmynda og þegar dansmynd hans, Car- men, var sýnd á kvikmyndahátíð í Reykjavík á sínum tíma hlaut hún fádæma aðsókn. Ljósmyndaskóli Sissn www.simnet.is/sissa Laugavegur 25, 3. hæð. Sími 562 0623 Manstu eftir Dolly Bell? Sjecas li se Dolly Bell? ‘81 Emir Kusturica/Júgóslavía UNGUR popptónlistarsöngvari elst upp hjá pabba sín- um, sem er góður maður en þjakaður, í verkamannaver- öld Júgóslavíu fimmta áratugarins. Þessi gamanmynd var fyrsta bíómynd Kusturica, sem áður hafði gert tvær myndir fyrir sjónvarp. Myndin færði honum nokkra frægð, þar sem hún vann Gullljónið í Feneyjum sem besta byrjendaverkið það árið. Kusturica deilir hart á þjóðfélagið/kerfið, þar sem verkamannasamfélagið verður sífellt undir og þar sem framfarir era mældar í því hversu mörg ár það tekur að flytja inn í nýja íbúð eða hversu marga sentimetra af holdi nektardansmær lætur skína í við lampa náma- mannsins. Yfirvöldin era að lina tökin á landsmönnum og skoða hvaða áhrif vestræn menning í fatatísku, tón- list, kvikmyndum, að ógleymdri kynlífsbyltingunni hafa á ungt fólk. Gadjo Dilo Gadjo Dilo ‘97 Tony Gatlif/Frakkland STEPHANIE er ungur Frakki á leið um Rúmeníu í leit sinni að sígaunasöngkonunni frægu Nora Luca. Það eina sem hann getur stuðst við í leit sinni er upptaka af seiðandi og fallegri rödd hennar. Um miðja nótt reikar Stephanie inn í lítinn eyðilegan sígaunabæ. I ólíkri menningu virkar Stephanie á bæjarbúa sem skemmti- lega skrýtinn maður, en hann hefúr ekki gleymt því hvað rak hann upphaflega af stað í ferðina. Tony Gathf fæddist í Alsír þar sem hann þurfti að bjarga sér sjálfur frá blautu bamsbeini. Hann hefur gert kvikmyndir frá árinu 1975 en vakti fyrst athygli umheimsins með gerð myndarinnar Latcho Drom sem er fyrsti hluti trílógíu sem inniheldur einnig Mondo og Gadjo Dilo. Síðasta mynd hans, Gadjo Dilo, hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars í Montreal og Locamo. Á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tromso var hún valin besta mynd hátíðarinnar af áhorfendum. Dagskrá Kvikmyndahátíðar í Reykjavík sunnudaginn 29. ágúst mánudaginn 30. ágúst Kl. 14:30 A Clockwork Orange Kl. 14.45 Slam Kl. 15.00 Ástkær Kl. 16.40 Makaskipti Kl. 17:00 Barry Lyndon Kl. 18.00 Ástkær Kl. 18:50 Makaskipti Kl. 21:00 A Clockwork Orange Full Metal Jacket The Shining Kl. 23:15 Full Metal Jacket Kl. 23:20 A Clockwork Orange The Shining KL. 15:00| Kl. 16:00 Kl. 17:00 Kl. 18:30 Kl. 19:00 Kl. 21:00 Kl. 23:00 Kl. 23:30 Síðustu dagarnir Lífshamingja Arizona draumurinn Börn híminsins Lífshamingia Börn himinsins/ Trikk Lífshamingja Þrjár árstíðir Lífshamingja Kl. 17:00 Kl. 19:00 Kl. 21.00 Kl. 23.00 Limbo Gadjo Dilo Tangó Svartur köttur, hvitur köttur Rottufangarinn Lucky People Center Kl. 14:40 Makaskipti Kl. 15:00 Barry Lyndon Kl. 18:00 Ástkær Kl. 18:50 Makaskipti Kl. 21:00 Full Metal Jacket A Clockwork Orange The Shining Kl. 23:15 Full Metal Jacket Kl. 23:30 A Clockwork Orange The Shining [REGNBOGINN KL 16:00| Kl. 17:00 KJ. 19:00 Kl. 19:30 Kl. 21:00 Kl. 23:00 Kl. 23:30 Lífshamíngja Síöustu dagarnir Þrjár árstíöir Trikk Börn himinsins Lífshamingja Lffshamingja Trikk Arizona draumurinn Lífshamingja Kl. 17:00 Kl. 18:45 Kl. 19:00 Kl. 21:00 Kl. 23.00 Upp með hendur Rottufangarinn Te með Mussolini Manstu eftir Dolly Bell? Svartur köttur, hvftur köttur Tangó Lucky People Center Upp með hendur! Que personne ne bouge! 1998(??) Sólveig Anspach/Frakkland Á ÁRUNUM 1989-1990 frömdu fimm konur sjö vopnuð rán í sólríku Vaucluse-héraðinu í Suður-Frakk- landi, en þegar þær létu til skarar skríða í áttunda skiptið vora þær handteknar. I blöðunum vora þær kallaðar Amasónu-gengið og eftir að þær náðust vora þær hafðar í varð- haldi. Mynd Sólveigar Anspach fjall- ar um konumar fimm sem allar höfðu þekkst frá barnæsku og heimabæ þeirra sem þegar til kast- anna kom skildi betur ákvörðun þeirra um að brjóta lögin til að brauðfæða fjölskyldur þeirra. Sólveig Anspach skrifar bæði handrit og leikstýrir heimildarmynd- inni Upp með hendur sem var til- nefnd til verðlauna á Belfort kvik- myndahátíðinni árið 1998.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.