Morgunblaðið - 29.08.1999, Síða 41

Morgunblaðið - 29.08.1999, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 41 an minnar fjölskyldu er búin að ljúka sínu lífí héma megin grafar og komin til sinna og guðs síns. Við áttum því láni að fagna að kynnast ömmu Dúu á heimili Elísa- betar mágkonu og Þórleifs bróður, þar sem hún átti sitt heimili og við áttum alltaf athvarf með bömin okkar lítil og dvöldum oft svo vik- um skipti í læknisheimsóknum og sjúkrahússdvölum. Þá nutum við fómfýsi, kærleika og hlýju hennar sem hún átti svo mikið af og við gleymum aldrei. Hún var svo sann- arlega amman á heimilinu. Alltaf síðan höfum við verið nánar vin- konur. Við höfðum alltaf nóg að spjalla og ég hlakkaði til að koma á Selbrautina og hitta hana. Hún var alltaf jafn hlý og góð. Við komum úr sama umhverfí. Hún var hár- greiðslumeistari eins og ég og rak sína eigin stofu á sama hátt og ég kynntist þegar ég var að læra í Reykjavík. Hún var hæglát en hafði góða kímnigáfu og við hlógum oft saman að ýmsu en ekki á kostn- að annarra. Hún mátti ekkert aumt sjá og vildi öllum rétta hjálpar- hönd. Ég minnist góðu daganna þegar hún kom á sumrin með fjöl- skyldunni til Olafsfjarðar og ömm- urnar voru að prjóna saman á Hornbrekkuveginum. Móðir mín og hún áttu sömu áhugamálin, sem voru barnabörnin og fjölskyldum- ar, sem þær báru fyrir brjósti, lifðu fyrir og vildu gera og gerðu allt fyrir sem þær gátu, og svo prjóna- skapinn, sem þær höfðu báðar ánægju af. Minningamar eru margar og verða geymdar. Að leiðarlokum vilj- um við þakka allt sem við fengum með ömmu Dúu og biðjum góðan guð að vaka yfir henni og blessa minninguna. Elsku Elísabet og Þórleifur, Dag- björt, Eiríkur og Unnur; Hrafnkell, Valgerður og böm. Við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur og biðjum guð að styrkja ykkur í sorginni. Minningin um góða mömmu og ömmu lifir. Guðrún, Valdimar, Pétur, Unnur Anna og Jóna Ellen. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR GEORG ODDGEIRSSON frá Sandfelli, Stokkseyri, andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu, Kumbaravogi, fimmtudaginn 26. ágúst. Aðalbjörg Katrín Haraldsdóttir, Erlingur Georg Haraldsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Jón Karl Haraldsson, Guðleif Erna Steingrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Frændi minn og bróðir okkar, VALDIMAR BJARNASON, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 26. ágúst. Svava Davíðsdóttir og systur hins látna. + Okkar ástkæri, DAN GUNNAR HANSSON, Háteigsvegi 17, Reykjavík, sem lést föstudaginn 20. ágúst, verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 1. september kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á reikning Amnesty International, nr. 96991, Landsbanka (slands. Brynja Dan og Líney Dan Gunnarsdætur, Birgit Hansson, Anita Carlánius, Ulf Hansson, Áke Hansson, Snjólaug G. Stefándsdóttir. + Okkar ástkæra, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR frá Eyri í Kjós, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. ágúst kl. 15.00. Haraldur Hjartason, Helga S. Bachmann, Sigrún Hjartardóttir, Skúli Guðlaugsson, Jón Hjartarson, Stella Bæringsdóttir, Arnheiður Hjartardóttir, Pétur Sigurðsson, Þorsteinn Hjartarson, Guðrún Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN H. GISSURARDÓTTIR, Mávahlíð 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtu- daginn 2. september kl. 13.30. r Erla Ófeigsdóttir, Ingvar Pálsson, Ólafur Ófeigsson, Ragnhildur Björnsdóttir, Gísli Ófeigsson, Guðrún Bjarnadóttir og fjölskyldur. + Elskuleg dóttir okkar, systir og dótturdóttir, SIGRÚN SÓLBJÖRT HALLDÓRSDÓTTIR, Neðri-Breiðadal, Önundarfirði, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðju- daginn 31. ágúst kl. 13.30. Guðrún Hanna Óskarsdóttir, Halldór Mikkaelsson, Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, Óskar Halldórsson, Ómar Halldórsson, Jóhanna Björnsdóttir. Dagbjört Finnbogadóttir eða „Dúa“ var einstök perla því hún kunni að elska og setti ávallt vellíð- an annarra fram fyrir sína eigin. Áhugamál og hagsmunir Dúu voru uppeldi og umhyggja unga fólksins. Þegar ég dauðfeimin og full minni- máttarkenndar hóf Melaskólaferii- inn var ég svo heppin að lenda í sama bekk og Elísabet Eiríksdóttir, sem bjó handan götunnar á Kvist- haganum, og urðum við brátt bestu vinkonur. Það var mikið tilhlökkun- arefni að verða Elísabetu samferða heim úr skólanum, fara úr skónum í holinu á íyrstu hæð á Kvisthaga 10 og klifra upp gljábónaðan stigann að heimili Elísabetar. Þar fagnaði Dagbjört móðir hennar komu ungu stúlknanna eins og við værum end- urheimtar úr ævintýraferð. Augu Dagbjartar skinu af einlægri ástúð og ljómandi brosið benti til að nú væri komið að hápunkti dagsins. Dagbjört fylgdi okkur inn í eldhús þar sem nýbökuð súkkulaðiterta trónaði á borðinu og tvö mjólkur- glös, hvort við sinn stólinn. Við sett- umst, Dagbjört hellti í glösin og stóð síðan til hliðar og hlustaði með óskiptri athygli á okkur tala fram og aftur um allt sem við upplifðum í skólanum þann daginn. Hún spurði og hlustaði af áhuga á tal okkar og aldrei efaðist ég um að hún styddi okkar málstað, hvað sem á dundi. Vinskapur okkar Elísabetar hélst í gegnum skólaárin í Melaskóla, Hagaskóla og Verslunarskólanum. Dagbjört var mér sem önnur móðir á þessum árum án þess að hallað sé á móður mína, sem sjálf er einstök. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum og skrapp til Islands kom ég ávallt í heimsókn til Elísabetar og Dag- bjartar. Þar ríkti alltaf sama gæsk- an og gestrisnin. Mér hlýnar ávallt um hjarta við tilhugsunina um Dag- björtu Finnbogadóttur. Hún er fyr- irmynd kærleikans og ég tel mig heppna að hafa notið ástúðar þess- arar einstöku konu frá unga aldri. Sesselja Pálsdóttir. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, bróðir og afi, HÖRÐUR M. MARKAN pípulagningamaður, Keldulandi 21, verður jarðsunginn frá Krossinum, Hlíðasmára 5 — 7, mánudaginn 30. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á hjúkrunarþjónustu Karitas. ísabella Friðgeirsdóttir, Helena Helma Markan, Sturla Jónsson, ísabella María Markan, Ásmundur Arnarsson, Karlotta Dúfa Markan, Pétur Georg Markan, Guðrún Markan, Ragnar Gunnarsson, Böðvar Markan, J. Kristín Ármannsdóttir, Hrefna Markan, Haraldur Kristjánsson, Sigríður Markan, Gabríel G. Markan. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖRÐUR VIGFÚSSON, Sólvangsvegi 3, áður Mosabarði 11, Hafnarfirði, sem lést á Sólvangi í Hafnarfirði 23. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sólvang í Hafnarfirði. Ævar Harðarson, Sonja Harðardóttir, Magnús Ólafsson, Kristjana Harðardóttir, Björn Sigtryggsson, Þórður Harðarson, Guðrún Kristjánsdóttir, Kristín Harðardóttir, Sigurður Runólfsson, Ástþór Harðarson, Sigurvina Falsdóttir, Ómar H. Harðarson, Ásdís Vignisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. iii .... ................................. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR SIGURÐSSON læknir, Sporðagrunni 17, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Sigurður Ragnarsson, Inga Stefánsdóttir, Ása Helga Ragnarsdóttir, Karl Gunnarsson, Andrés Ragnarsson, ingibjörg Hinriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Við foreldrar og systkini þökkum innilega fyrir alla samúð við andlát og útför litla drengsins okkar, RAGNARS MÁS ÓLAFSSONAR. Foreldrar, systkini og aðrir vandamenn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓSK ÞÓRÐARDÓTTIR, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, miðvikudaginn 18. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinnar látnu. Þórður Jónsson, Halldóra Þorvarðardóttir, Anna D. Ágústsdóttir, Ingólfur Halldórsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.