Morgunblaðið - 29.08.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 45
Elsku Daddi, það er erfitt að setj-
ast niður til að skrifa til þín örfá
þakkarorð. Og þakka fyrir allt það
sem þú hefur gert fyrir mig og mína
í gegnum árin. Já, erfitt vegna þess
að við héldum öll að við ættum enn
eftir að eiga langan tíma saman. Það
er erfitt að sætta sig við þá stað-
reynd að þú skulir vera tekin svona
fyrirvaralaust frá okkur öllum sem
þótti vænt um þig. Þess vegna ætla
ég að gera orð Valdimars Briem að
mínum.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
Friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fýrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði.
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Ég bið Guð að vera með elsku
ömmu, og öllum þeim sem nú
syrgja góðan mann, og að okkur
hlotnist styrkur á þessum erfiðu
tímum.
Kolbrún og fjölskylda,
Þurý og Vignir.
„Örvar, varstu búinn að frétta
það? Kjartan prentari er dáinn.“
Þetta voru fá orð en stór, maður
trúir því varla hversu stutt er oft á
milli lífs og dauða. Ég byrjaði að
vinna með Kjarra sumarið 1996 og
við unnum saman til hans hinsta
dags. Kjartan var mikill fagmaður
og skilaði alltaf sínu vel, sama hvað
það var, eins og hann sagði oft við
mig þegar ég kom með prentplötur
niður í prentsal: „Ef þetta á að vera
vandað, láttu mig þá hafa þær,“ og
glotti svo. Það leið varla sú vika að
menn hringdu ekki eða kæmu til
Kjarra og spyrðu hann um prent-
vélar eða þeim tengt og ekki komu
menn að tómum kofunum á þeim
bænum, hann var alltaf með svörin
á reiðum höndum.
Kjartan, ég kveð þig með þessum
aumu orðum og þakka þér fyrir alla
þá daga sem við unnum saman. Megi
Guð vera með þér.
Örvar Þór Guðmundsson.
Kjartan dó svo skyndilega, þessar
fréttir komu sem þruma úr heið-
skíru lofti. Við samstarfsfélagarnir
vorum orðlausir og agndofa yfir
þessum tíðindum. Það var fyrir
þremur árum sem Kjartan hóf störf
sem prentari hjá mér. Það fór ekki
fram hjá neinum að þar fór fagmað-
ur fram í fingurgóma sem hafði mik-
inn metnað fyrir sínu starfi og fyrir-
tækinu. Hann lagði mikið upp úr því
að hafa allt í röð og reglu. Ég sá
fljótlega hversu sjálfstæður hann
var í sínu starfi og hversu mikilvægt
var að láta hann njóta sín á þann
hátt. Hann var mjög afkastamikill
og vandvirkur fagmaður og alltaf
hægt að treysta á hann þegar mikið
lá við. Það er mikill missir af manni
sem honum og erfitt að fylla hans
skarð. Kjartan var ekki mikið fyrir
að kveinka sér eða bera tilfinningar
sínar á torg.
Eftir því sem við kynntumst betur
sá ég hversu góður drengur Kjartan
var. Ég bar alltaf mikla virðingu fyr-
ir honum og hef lært mikið af hon-
um. Það var alltaf stutt í grínið hjá
Kjartani og honum leiddist ekki að
gera að gamni sínu með samstarfsfé-
lögum sínum. Minningin um Kjartan
verður sterk - því þar fór góður
drengur allt of fljótt.
Ég votta móður hans og systkin-
um mína innilegustu samúð á þess-
um erfiðu tímum.
Guðmundur R. Guðmundsson.
Sumarið hans frænda míns er á
enda, hann er farinn í þá ferð er bíð-
ur okkar allra, en hann fór of
snemma.
Þau voru bara tvö systkinin, faðir
hans og móðir mín, Sigríður, d. 25.3
1978, á milli þeirra tveggja var alltaf
mjög gott samband svo eðlilega var
mikill samgangur milli fjölskyldn-
anna á uppvaxtarárum okkar bam-
anna. Daddi eins og hann var oftast
kallaður af fjölskyldunni var yngstur
og mjög elskur að foreldrum sínum.
Ég minnist frænda míns, sem
hugljúfs manns er vildi öllum gott
gera og hvers manns vanda leysa.
Hann var alltaf hress er fundum
okkai- bar saman, svolítið kaldhæð-
inn og stríðinn en alltaf streymdi frá
honum þessi hlýja sem einkenndi
hann og allir vissu að hann var vinur
vina sinna. Þar fór allt saman trygg-
lyndi, hjálpsemi og glaðværð. Ein-
hverju sinni var því kastað á milli
okkar að við sætum uppi með fjöl-
skylduna en við gætum valið okkur
vini og gerðum við gaman úr því.
Fjölskyldan öll svo stór sem hún er
orðin í dag var honum mjög kær,
hann fylgdist vel með öllum og stóð
ekki á svari er hann var inntur frétta
af ættingjunum. Hann var góður og
kærleiksríkur sonur, búinn að kaupa
íbúð og nýfluttur í næsta nágrenni
við móður sína, sem hefur átt við
vanheilsu að stríða, til að vera henni
nær.
Við sem þekktum hann söknum
hans sárt. Bið ég þann sem öllu ræð-
ur að gefa móður hans, systkinum
og fjölskyldunni allri styrk. Guð
blessi minningu Dadda frænda og
gefi honum góða heimkomu.
Þín frænka,
Hulda og fjölskylda.
Hinsta kveðja frá móður.
Gleði mannsins, góða, vitra,
geymi ég í huga mínum.
Minninganna geislar glitra,
gengnum yfir sporum þínum.
Mannkærleikans merkið hæsta,
með þér barstu vinur góði.
Trúarinnar gullið glæsta,
geymir þú í hjartasjóði.
ÖDum varst þú góður gestur,
greiðvikinn, en allra bestur,
þar, sem sárast þrengdi neyðin,
þangað var þér greiðust leiðin.
Vertu sæll, við sjáumst bráðum,
settum eftir drottins ráðum.
Hann á ðllu hefur gætur.
Heili á meðan, góðar nætur.
(J.A.)
Lára Loftsdóttir.
Öllu er afmörkuð stund, og sér-
hver hlutur undir himninum hefur
sinn tíma. Að fæðast hefir sinn tíma
og að deyja hefir sinn tíma.
(Prédikarinn 3 1-2.)
Kæri bróðir, kveð ég nú þig
er sumri tekur að halla
Himnafaðirinn til iiðs við sig
ákvað þig, tíl sín að kalla.
(J.S.R.)
Elsku Daddi, ég trúði því vart er
síminn hringdi og mér var sagt að
þú værir dáinn. Ekki Daddi bróðir,
ekki núna, var mín fyrsta hugsun.
Ekki tímabært... Og þannig er það.
Manni finnst það sjaldnast tíma-
bært, þegar kallið kemur og leiðir
þurfa að skiljast, hér í þessu jarðlífi.
En vegir Drottins eru órannsakan-
legir. Þú sem varst farinn að sjá
fram á léttari og bjartari tíma. Ný-
búinn að koma þér vel fyrir í nýju
íbúðinni, með draumaútsýnið yfir
Snæfellsjökul og Esjuna. Kominn í
kaffifæri við okkur Hilmar og
mamma í næsta nágrenni, sem þú
hugsaðir svo vel um og barst alltaf
Nýbýlavecjur 38 — Kóp.
Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 13.00—15.00
á Nýbýlavegi 38, 2. hæð.
Falleg eign. Frábært útsýni. Auður og Hjörtur taka
vel á móti ykkur.
Eignanaust, sími 551 8000.
hag hennar og líðan fyrir brjósti. Þú
varst góður máður, Daddi. Állir hafa
sína kosti og galla, en kostirnir þínir
voru svo margir að göllunum þínum
er erfitt að muna eftir. Duglegur, ið-
inn og útsjónarsamur í vinnu og
hjálplegur öllum sem til þín leituðu.
En naust þess líka að slaka á í
hreiðrinu þínu, þegar heim var kom-
ið. Þú varst mikill barnakarl, en
auðnaðist ekki að eignast þitt eigið
bam í þessu lífi. En stoltur varst þú
þegar þú eignaðist nafna þinn,
Kjartan Má Óskarsson, 1980, þegar
Óskar og Sigga létu skíra litla gutt-
ann. Og ánægður varstu.er þú
fékkst vilja þínum framgengt með
nafn (draumanafn) á einni lítilli
ft-ænku, annari dúllunni hennar
Stínu, henni Söru Diljá og hélst á
henni undir skírn, rígmontinn og
glaður. Þér var umhugað um stór-
fjölskylduna og spurðir ætíð frétta
og hvernig gengi hjá systkinaböm-
unum og bömunum þeima. Og það
var stríðni og gleði í þér, þegar þú
eignaðist litlu bróðurdótturina okkar
í vor. Það var alltaf notalegt að detta
inn í kaffi til þín og ræða aðeins um
lífið og tilveruna. Þú varst raunsær
og hafðir þínar ákveðnu skoðanir.
En sammála vorum við orðin um að
lífinu ættum við ekki að sóa í nei-
kvæðar hugsanir og erjur. Heldur
læra af erfiðleikunum og reyna að
leysa vandamálin. Tvær kynslóðir
fengu að njóta þess að eiga Dadda
frænda prentara að, þegar þurfti að
fá einhver blöð, renninga eða af-
klippur til að teikna og krota á.
Mörg lítil og stór listaverk hafa ver-
ið sköpuð á blöðin þín gegnum árin.
Ég veit að með brottför þinni,
Daddi, héðan til æðri heima, vekur
þú okkur öll til umhugsunai’ um
hversu lífið er stutt og hverfult. Og
að kveldi skyldi hvern dag lofa. Vera
þakklát fyrir það sem við eigum og
höfum. Og að við ættum að hafa að
leiðarljósi frið, kærleika og fyrir-
gefningu í hjörtum okkar. Og elska,
virða og vemda allt sem er. Sérstak-
lega ættum við að hlúa að bömunum
með ást, umhyggju og hóflegum aga.
Þau era jú, framtíðin.
Ást og kærleikur hafa þann mátt
meir en nokkum mun gruna.
Græðandi, umvefur alla í sátt
Og eftir því skulum við muna.
(J.S.R.)
Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku
bróðii’, mágur og frændi. Birtan
bjarta fylgi þér, inn í himneskan
roða.
Hinsta kveðja.
Þín.systir,
Guðmunda Hjördís,
Hilmar, börn, tengdaböm
og barnabörn.
Vantar sjávarlóð í Reykjavík
Höfum fjársterkan kaupanda aö sjávarlóð í vesturbæ, Seltjarn-
arnesi eöa Skerjafirði. Rétt eign staðgreidd.
Allar nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason, sölustjóri.
Valhöll, fasteignasala,
Síðumúla 27, sími 588 4477.
Vöruskemma
Til sölu góð og vel staðsett vöruskemma í
vesturbænum
Húsnæðið, sem er um 600 fm, er nýstandsett með góðri aðkomu
og mikilli lofthæð. Laust strax.
Upplýsingar veitir Guðmundur Þórðarson hdl. hjá Firmasölunni,
Ármúla 20, sími 568 3040.
Opið hús í dag
Bjargarstígur 16
— eixibýli
Vorum að fá í sölu á þessum eftirsótta stað í hjarta Þingholt-
anna gott 162 fm einbýli á þremur hæðum með bílskýli. Húsið
er mikið endurnýjað s.s. ofnar, vatnslagnir, rafmagn, eldhús-
innr. og þak. Húsið býður upp á mikla möguleika.
Áhv. 2,4 millj. byggsj. Verð 14,1 millj.
Hans og Anna taka á móti ykkur á milli kl. 14 og 16 í dag.
Gimli, Þórsgötu 26, síml 552 5099.
Alltaf rífandi sala!
FJALLALIND
Kópavogi
^100 90
955100 90-tatSU9091
Skipholti 50 b - 2 hcð t.v
Pw Im £9
1«.
tiiii;
16 I- S9
~
Stórskemmtileg 168 fm raðhús á þremur pöllum
sem standa reisulega í þessu skemmtilega hverfi.
Verð frá kr. 12,0 millj. fokh. (6800)
Til sölu er öll fasteignin Skúlagata 51 samtals 2.636 fm. Traust
og vel byggð fasteign á frábærum útsýnisstað við miðborgina.
Góð bílastæði. Viðbyggingaréttur. Laus skv. samkomulagi.
Vagn Jónsson ehf., fasteignasala
Skúlagötu 30, sími 561 4433.
Stórhýsi við ströndina