Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM * j > verkefnið þá formlega ep þaðan var ferðinni heitið til Túnis. I öllum lönd- unum hefur hópurinn unnið í lista- smiðjum undir leiðsögn innlendra listamanna og sett upp sameiginleg- ar sýningar. Fjórar listgreinar - fjögur lönd Þema verkefnisins frá upphafi hef- ur verið ís, eldur og snerting og áttu ungmennin sjálf hugmyndina að því. Reynt hefur verið að nálgast þetta þema frá mörgum hliðum og á mis- munandi hátt með listgreinunum fjórum; leiklist, myndlist, tónlist og dansi sem síðan hafa tengst innbyrð- is á einn eða annan hátt. „Þemað á rætur sínar að rekja til þeirra and- stæðna sem eru milli landanna í norðri og suðri,“ segir Hlynur Páll Pálsson, sem er annar fulltrúi Is- lands í leiklistinni. „En meginmark- mið verkefnisins er að byggja „menningarbrú" milli þessarra íanda.“ - Hefur því takmarkí verið náð? Fjögur ungmenni, hvert frá sínu landinu ásamt hópstjórum er sitja fyrir svörum blaðamanns, kinka áköf kolli og brosa hvert til annars. „Þau hittust fyrst í Marokkó og þeim hef- ur tekist að blanda geði, eru orðnir góðir vinir og vinna vel saman,“ seg- ir Abdenour Reghay, sem fer fyrir hópnum frá Marokkó. „Samstarfið hefur líka gefið þeim mikið.“ Einstakir hlutar verkefnisins hafa þróast og breyst síðan þau dvöldu í Afríku og segir Leena Vuotovesi, úr finnska hópnum, að allir hafi haft gott af því að hittast aftur, fjórum mánuðum eftir Afríkuförina og taka upp þráðinn að nýju. „Verkefnið er ekki tilbúið ennþá. En ég er viss um að við náum að ljúka því sómasam- lega í Finnlandi." Sendiherrar og frumkvöðlar Abdenour leggur áherslu á að þótt þau hittist í síðasta skipti undir merkjum verkefnisins í Finnlandi sé því hvergi nærri lokið. „Því verður aldrei lokið. Þátttakendur munu verða sendiherrar þess í heimalönd- um sínum og halda áfram að bera út boðskap þess.“ „Við erum bara frumkvöðlarnir en verkefnið heldur áfram,“ segir Hlynur og allir í hópn- um er sannfærðir um að áhrifa sé þegar farið að gæta víða. „I byrjun voru allir að spyrja mig hvernig við ætluðum að fara að því að leiða sam- an þessa ólíku menningar- heirna," segir Soumaya Beltifa frá Túnis. „En núna vilja allir taka þátt og leggja hönd á plóginn." Leena tekur undir það og segir það einmitt mark- mið verkefnisins, að fá aðra með svo að þau sem tóku þátt í því verði ekki þau einu sem njóta góðs af þeirri reynslu og þeim lærdómi sem af því má draga. „Við reynum að vera í sam- starfi við fjölmiðla, háskóla og ýmsa aðra skóla. Svo er verið að gera heimildamynd um verkefnið," bætir hún við. Ung finnsk stúlka að nafni Virtanen Maija fylgir hópnum hvert fótmál og tekur upp á kvikmyndavél það sem fram fer og verður heimild- armyndin hluti af lokaverkefni henn- ar til mastersgráðu í kvikmynda- gerð. Það er því faglega unnið að heimildarmyndinni og vonast til að hún geti nýst við kennslu. „Svo það er fylgst með öllum vandamálum sem upp koma og hvernig við leysum úr þeim,“ heldur Leena áfram. „Von- andi á myndin eftir að veita einhverj- um kjark, því allir eiga möguleika.“ En skyldu einhverjar erjur hafa átt sér stað innan hópsins? Þau fara að hlæja og segja engin stórvægileg vandamál hafa komið upp, helst hafi tungumálaörðugleikar verið til vand- ræða. „Okkur finnst mikilvægt að fást við smá vandamál og fá tækifæri til að leita leiða út úr þeim. Því við getum leyst úr hvaða vandamálum sem er,“ segir Hlynur og fær klapp á bakið frá félögum sínum. Afríkubú- arnir bentu líka á smávægileg vandamál í sambandi við tímamis- mun, matarvenjur og veðurfar en þau hafi öll fengið farsælan endi. „I Marokkó og Túnis er líka allt mun meira afslappað heldur en hér norð- ur frá,“ segir Leena. „Enginn að flýta sér.“ - En hvernig kemur ísland ykkur fyrir sjónir? „Mér finnst skrítið að það sé bjart langt fram eftir kvöldi,“ segir Soumaya. „í Túnis er orðið dimmt mun fyrr. Þar er líka þrjátíu gráðum heitara en hér,“ bætir hún við og hryllir sig en skellir svo upp úr. „Þar er svo margt fólk, hér er ekkert fólk!“ Abdenour segist vera snortinn af Veg-farendum. gan^and< HAUSTIÐ ER HEÍTTS NÁMSKEIÐ HEFJAST 6. SEPTEMBER. SIMI 551 5103 OG 551 7860 vinsemd og velvild allra sem hann hefur hitt á íslandi. „Við höfum haft það gott hérna og erum mjög þakk- lát. Við erum yfir okkur ástfangin af þessu landi.“ Ummæli Abdenour falla í góðan jarðveg hjá Ásu og Hlyni en þau minna á að Marokkó og Túnis hafi sömuleiðis haft mjög mikil áhrif á þau. En þrátt fyrir ólíkan uppruna, siði og menningu kemur listafólkinu unga mjög vel saman og hafa aðlag- ast menningu hinna ótrúlega vel. „Þau læra eitthvað nýtt á hverjum degi og iða í skinninu að fræðast hvert um annað og að segja frá lönd- um sínum og þjóð,“ segir Nizar Chemingui sem er hópstjóri Tún- isbúanna. „Þau virða hvert annað og eiga eftir að miðla þeirri reynslu sinni víða.“ Ólíkur bakgrunnur en sömu tilfinningar - Hvað hafíð þið lært af verkefn- inu? „Eg held að það mikilvægasta sem þau hafa uppgötvað er að þótt þau séu frá ólíkum stöðum í heiminum og því ólík að ýmsu leyti þá séum við samt öll lík á svo margan hátt,“ segir Nizar. Um það eru allir í hópnum sammála. „Við komumst að þvi að það skiptir engu máli hvaðan maður kemur, úr hvaða menningu eða hvaða landi. Gi'unntilfinningar fólks eru alls staðar þær sömu,“ segir Leena. „Ef við getum fundið þessar tilfínningar innra með okkur mun takast að byggja brúna, menningar- bnina.“ Amraoui Adel frá Marokkó tekur undir þessi orð og segir listir bestu leiðina til að sameina fólk. „Með þeim höfum við nálgast tak- markið, að byggja brá milli menn- ingarheima. Eg hef leikið á hljóðfæri síðan ég var lítill en ég hefði aldrei getað ímyndað mér að ég myndi nokkurn tíma spila hér á íslandi. Þetta verkefni hefur gert mér kleift að kynnast tónlistarmönnum frá öðr- um löndum og ólíkri tónlist. Ég vona að fleira ungt fólk í Marokkó og Túnis fái tækifæri til að gera það sem ég hef upplifað. Þetta hefur gef- ið mér mjög mikið.“ Amraoui spyr Hlyn hvort hann hafi einhverju við að bæta og hann svarar brosandi að bragði: „Nei, í rauninni ekki. Ég er hamingjusam- ur,“ og það virðist einmitt vera and- inn meðal þessara tápmiklu ung- menna. Þau eru hamingjusöm, já- kvæð og full vonar um betri heim. urlandanna og ríkja Aíríku væru jafn frá- ungt listafólk af ólíkum uppruna sem telur listina hið alþjóðlega tungumál sem sam- einað geti mismunandi menningarheima. „LISTIN er lykillinn að betri heimi“ er yfirskrift verkefnisins SAGA-eld- ur/ís sem fulltrúar frá Finnlandi, Is- landi, Túnis og Marokkó vinna sam- an að. Verkefnið er á vegum áætlun- arinnar „Ungt fólk í Evrópu“ og mið- ar að því að auka menningarleg sam- skipti milli ungs fólks frá þessum ólíku löndum. Átta ungmennum úr fjórum listgreinum frá hverju landi fyrir sig var boðið að taka þátt í verkefninu og var allur hópurinn staddur á Islandi í vikunni en er nú farinn til Finnlands þar sem verk- efninu lýkur. „Það var mjög erfitt að velja þátttakendur," segir Ása Hauksdóttir, verkefnastjóri menn- ingarsveitar Hins hússins og hóp- stjóri íslenska listafólksins. „Þau sem urðu fyrir valinu hafa stundað sína listgrein lengi.“ Hópurinn hittist fyrst í Marokkó í lok apríl og hófst Morgunblaðið/Árni Sæberg Hluti hópsins á góðri stund meðan á Islandsdvölinni stóð. Á myndbandi 31. ágúst EF ÞÚ FÆRÐ HANA EKKI HJÁ OKKUR ÞÁ ER HÚN EKKI m Amarbakka, EddufeHi, Grimsbae, HóögafJt, Sólvallagðtu, Þoriákshöfn og Sheí Selfossi 557-6611 587-0555 553-9522 557-4480 552-8277 483-3966 482-3088 brugðnir og eldur og ís en annað kemur á daginn. Sunna Osk Logadóttir spjallaði við I listinni mæ eldur og ís Við fyrstu sýn mætti halda að íbúar Norð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.