Morgunblaðið - 03.09.1999, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Fyrsti kvenforseti Panama
Skýrsla um möguleika Færeyinga
Skref í átt til
sjálfstæðis
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
UM tuttugu og fímm þúsund
Panamabúar fögnuðu Mireya
Moscoso, nýjum forseta lands-
ins, innilega á miðvikudag eftir
að hún var svarin í embætti á
þjúðarleikvanginum í Panama-
borg. Moscoso er ekki aðeins
fyrsti kvenforseti Panama
heldur í raun fyrsti forseti
landsins sem mun gefast tæki-
færi til að stýra algerlega full-
valda rfld, en Bandaríkjamenn
afhenda Panamamönnum um
næstu áramót öll yfirráð yfír
Panamaskurði, og kalla heim
herlið sitt. Moscoso er fímmtíu
og þriggja ára gömul og er
ekkja Arnulfos Arias, sem
þrisvar sinnum var kjörinn for-
seti Panama og jafnmörgum
sinnum bolað úr embætti.
Moscoso bar í maí síðastliðnum
sigurorð af sitjandi forseta, Er-
nesto Perez Balladares, í for-
setakosningum og í ræðu sinni
á miðvikudag hvatti hún íbúa
Panama til að leggjast nú á ár-
ar með sér og vinna að því að
útrýma fátækt og spillingu í
landinu.
SKYRSLA um hvaða möguleikar á
sjálfstæði blasi við Færeyingum var
kynnt á mánudag. Skýrslan er unnin
af fræðimönnum, sem meðal annars
komast að þeirri niðurstöðu að Fær-
eyjar séu ekki háðar árlegu framlagi
Dana upp á 900 milljónir danskra
ki-óna, um tíu milljarða íslenskra
króna. Meginþema skýrslunnar virð-
ist ekki vera hvort Færeyjar eigi að
öðlast sjálfstæði, heldur hvernig og
hvenær. Stefnt er að því að halda at-
kvæðagreiðslu um málið á eyjunum
á næsta ári. Samkvæmt danskri
skoðanakönnun í vikunni hafa
Færeyingar stuðning yfirgnæfandi
meirihluta Dana í sjálfstæðismálinu.
Anfinn Kallberg, lögmaður
Færeyja, kynnti skýrsluna á blaða-
mannafundi, en hún er unnin að
beiðni landstjórnarinnar. I henni er
lögð áhersla á vaxandi vægi smá-
ríkja í heiminum. Slík ríki séu ekki
lengur í vandræðum með að standa
fyrir máli sínu og smæðin ein því
ekki ástæða fyrir að halda sig frá
sjálfstæði. Bent er á ýmsar mögu-
legar leiðir fyrir Færeyinga, en lík-
lega vekur einna mesta athygli að
rækilega er rakið hvernig Færey-
ingar geti verið án danska fjárfram-
lagsins.
Bent er á að undanfarin ár hafi
viðskiptajöfnuður Færeyja við út-
lönd verið jákvæður sem nemi um
milljarði danskra króna. Þetta sé
einstakt en búi um leið í haginn fyrir
að Færeyingar geti aðlagað hagkerfi
sitt minnkandi dönsku framlagi.
Samkvæmt skýrslunni er talið
óhætt að reikna með um tveggja
prósenta hagvexti næstu árin og
með þessar forsendur í huga megi
gera ráð fyrir að Færeyjar geti á
15-20 árum lagað sig að minnkandi
dönsku framlagi, sem síðan hverfi
að þessum tíma liðnum. Með þessum
hætti þyrftu Færeyingar ekki að
finna íyrir tapinu, en auðvitað að-
eins að því tilskildu að nauðsynlegar
efnahagsráðstafanir verði gerðar á
þessum tíma.
Þjóðaratkvæðagreiðsla
um sjálfstæði
Skýrslunni er ætlað að verða und-
irstaða almennrar umræðu á eyjun-
um fram eftir hausti. Síðan mun lög-
þingið fjalla um málið, áður en
Færeyingar setjast til samninga við
dönsku stjórnina, líklega um eða
upp úr áramótum. Niðurstaðan úr
þeim viðræðum verður síðan lögð
fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í
Færeyjum, hugsanlega þegar næsta
vor.
Landstjórnin er áfram um sjálf-
stæðismálið og í Berlingske Tidende
lýsti Hogni Hoydal ráðherra sjálf-
stæðismála ánægju sinni með
skýrsluna, enda er hann sjálfur
hlynntur sjálfstæði. Það mun varla
standa á Dönum að samþykkja sjálf-
stæði. I skoðanakönnun í Jyllands-
Posten í vikunni var birt skoðana-
könnun um afstöðu Dana, sem sýnir
að 66 prósent Dana eru hlynnt sjálf-
stæði eyjanna en 34 prósent á móti.
laugardagur. Opið kl. 10
Longyr laugaroagur
/15% afsláttur
^ of öllum vörutn
langun
, louguftlflg
ttikíð og ftilleg! urvtíl ul
trúlofmi(irhiint|um á fléhi< rii n.tQi
Scndum trúlofuriorhtíngam|tritlí)liútí
Langur
STÓRÚTSALAN
ER HAFIN
Öruggur bílstóll
bjargar mannslífum
ECE 44103
Opnum ífyrramátúf ki 10
glcuilega verAun að
Skóla vörðuétCg 14
Klapparstíg 27,
sími 552 2522.
Tílboðsdagar
á bílstólum
10-30%
afsláttur
Man
kvenfataverslun Skólavörðustíg 14, 101 Rvík., sími 551 2509.
SkólavörOustíg 1B • 101 Reykjavíl!; • Síml 852-4600
(7 A I* S 7ÖBUR Á KABLMEHN
m cd
Visa og Euro raðgreiðslur ollt að 36 mánuðir.
Visa léttgreiðslur 3 mánuðit.
ðfyull
Q^öllin Laugavegi 49, Reykjavik, simar 561 7740 og 551 7742.