Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 35
Myndlist á að vekja spurningar en ekki svara þeim,
segir Gilbert Bretterbauer.
Þjóðfélags-
gagnrýni
og íronía
í Nýlistasafninu stendur þessa dagana yfír
samsýning sjö austurrískra og sex íslenskra
myndlistarmanna. Anna Sigríður Einars-
dóttir hitti nokkra listamannanna og komst
að því að myndlist á að vekja spurningar í
stað þess að leita svara.
Fritz Grohs vill að fólk taki eftir verkum sínum fyrir tilviljun.
Morgunblaðið/Halldór
Legóbyssur Manfred Erjautz eru hafðar í réttum stærðarhlutföllum.
Nýjar bækur
• VIÐSKIPTIN efla alla dáð er
eftir Þorvald Gylfason.
í fréttatilkynningu segir að Þor-
valdur Gylfason
komi víða við í
þessari bók.
Hann fjalli um ís-
lenska og er-
lenda hagfræð-
inga, um
hagkerfi fjar-
lægra lánda í
Suður-Ameríku,
Afríku og Asíu,
um ólíka hag-
stjómarhætti í ýmsum löndum, um
úrlausn biýnna verkefna í mennta-
málum íslensku þjóðarinnar og
menningarlífið í landinu, um sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarmál og
samspil þeirra við aðra þætti efna-
hagslífsins hér heima og um at-
vinnumál, efnahagsumbætur og
hagvöxt á íslandi og annars staðar.
Bókin setji hagfræði Islands í sam-
hengi við umheiminn, þar sem
þjóðirnar tengist æ nánari við-
skiptaböndum með batnandi líf-
skjör almennings að leiðarljósi.
Þorvaldur Gylfason er rann-
sóknaprófessor í hagfræði við Há-
skóla Islands. Hann hefur stundað
rannsóknir, kennslu og ráðgjöf víða
um heim og ritað fjölda bóka, bæði
á íslensku og ensku, auk fjöl-
margra ritgerða um hagfræði og
hagstjórn innanlands og utan.
Utgefandi er Heimskringla - Há-
skólaforlag Máls og menningar.
Bókin er 359. bls. prentuð í Svíþjóð.
Kápuna hannaði Erlingur Páll
Ingvarsson. Hún er bók mánaðar-
ins í september og kostar þá 3.135
kr., en hækkar í 4.480 kr. 1. októ-
ber nk. Heimskringla hefur áður
gefið út bókina Markaðsbúskapur
sem hann skrifaði í félagi við tvo
erlenda starfbræður sína, en hún
hefur nú komið út á sautján tung-
umálum.
Górilluleikhús í
Kaffileikhúsinu
GÓRILLULEIKSÝNING verður í
Kaffileikhúsinu Hlaðvarpanum í
kvöld, föstudagskvöld, kl. 21. Gór-
illuleikhús er ein af spunaaðferðum
sem teljast til leikhússports og er
þetta í fyrsta skipti sem slík sýning
er sett upp hér á landi, segir frétta-
tilkynningu.
Leikhópurinn samanstendur af
leikurunum Laufeyju Brá Jóns-
dóttur, Guðmundi Inga Þorvalds-
syni, Eddu Björgu Eyjólfsdóttur,
Agnari Jóni Egilssyni, Oddnýju
Sturludóttur, sem sér um leikhljóð,
tónlist og ljós og Martin Geijer,
sem kennir nú leikhússport í Kram-
húsinu.
-----4---------
Haustmyndir á
Kaffí Nauthóli
NÚ stendur yfir sýning á mynd-
verkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur
á Kaffi Nauthól í Nauthólsvík. Á
sýningunni eru átta myndir unnar á
pappír og tengist myndefnið haust-
inu.
Aðalheiður lauk námi frá grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands árið 1982 og hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í fjölda samsýninga hér á landi
og erlendis.
Sýning Aðalheiðar stendur út
septembermánuð.
-----♦ ♦ ♦-----
Litmyndir á
Mokka
RÚNAR Gunnarsson ljósmyndari
opnar sýningu á Mokka á sunnu-
dag. Sýndar eru sextán litmyndir,
60 x 80 sentimetra og er viðfangs-
efni þeirra fangelsi, kirkjugarður,
lystigarður, leiksvæði bama, girð-
ingar og ýmis önnur fyrirbæri í til-
veru okkar sem hindra og tak-
marka, segir í fréttatilkynningu.
Sýningin varir út september.
SÝNINGIN 7/6 er eins konar
stefnumót austurrískra og ís-
lenskra nýlistarmanna. En þátttak-
endurnir vom valdir með það í
huga að list þeirra fjallaði um
„raunveruleikann“ eða umhverfið
og að þeir nálguðust efnið á íronísk-
an hátt.
Sýningarstjóri er hin austurríska
Sandra Abrams og segir hún frum-
kvæði sýningarinnar koma frá
listamanninum Josef Danner. En
sýningunni er ætlað að gefa góða
mynd af íslenskri og austurrískri
nútímalist. „Þetta em lítil lönd, en
báðar þjóðirnar hafa mikinn áhuga
á nútímalist,“ segir Abrams og
bætir við að það sé því gaman að
fylgjast með þeim miðlum sem
listamennirnir kjósi sér.
Að mati Abrams einkennast verk
austurrísku jafnt sem íslensku
listamanna af ákveðinni íroníu.
Myndlistarmennimir hafi húmor
fyrir list sinni, þótt þjóðfélagsgagn-
rýnin sé oft ekki langt undan. Hún
nefnir sem dæmi Manfred Erjautz,
en hann smíðar vopn í réttum
stærðarhlutföllum úr legókubbum.
„Legókubbar era barnaleikföng, en
böm verða oft að horfast í augu við
ofbeldi mjög ung. Þannig tekst
Erjautz á við þjóðfélagið sem hann
býr í, á meðan lífið og listin verða
sífellt samtvinnaðri og mörkin milli
þeirra óljósari.“
Sýningin 7/6 er þó ekki einþætt
verkefni því útlit er fyrir að ís-
lensku listamennirnir sýni verk sín
í Austurríki á næsta ári. „Núna
þekkjast listamennimir og eru
kunnugir verkum hver annars,
þannig að það verður gaman að sjá
hver framvindan verður."
íslensk mann-náttúra
Birgir Andrésson sýnir verk sem
hann kallar „Svart-hvítt meistara-
verk í íslenskum liturn". En í verki
hans birtast titlar þekktra svart-
hvítra kvikmynda á litflötum sem
algengir em á íslenskum húsveggj-
um. „Eg hef svolítið verið að fást
við liti og texta og þessir litatónar
eru mikið notaðir í íslenskri mann-
náttúm,“ segir Birgir.
Verk Gilbert Bretterbauer nefn-
ist „Why bother, who cares“, en við
gerð þess tvinnar hann saman ólík-
um þáttum án sjáanlegra tengsla.
„Með því að setja þá saman bý ég til
nýjan veraleika," útskýrir Bretter-
bauer. Fallhlíf sem hann notar er til
að mynda tæki sem má nota til að
koma skilaboðum á milli staða og
hægt er að fylgja eftir talnarunum,
litrófi eða setningum sem skreyta
fallhlífina þó engin tengsl séu milli
þessa. „Þannig set ég saman ólíka
hluti og skapa íými sem er fullt af
upplýsingum um mig. Rýmið veitir
samt engin svör heldur fæðir frek-
ar af sér fleiri spurningar.
Það eru þó svör þama,“ segir
Bretterbauer og bendir á setning-
una „You may not understand this,
but it does not matter“ sem þýða
má lauslega sem „Þú skilur þetta
kannski ekki, en það skiptir engu
máli“. „Skilningur á verkinu á ekki
að vera nein lausn. List á að vekja
spurningar en ekki að reyna að
svara þeim,“ segir hann og bætir
við að listina eigi einfaldlega bara
að upplifa.
Andsvar við
Kvikmyndahátíð
„Alles“ og „I’m here, feed me“
era verk Michaela Math. Það fyrr-
nefnda er eins konar kortlagning
listakonunnar á þeim verkum sem
hún hefur unnið að sl. tvo mánuði.
En um er að ræða sambland af
skissum og fullunnum myndum. Til
að mynda má sjá hluta veggmyndar
sem Math vann að í Austurríki og
hefur hún fært inn á myndina
veggjakrot sem bætt var við verkið.
„Þetta er því í rauninni stöðugt ferli
sem ég veit ekki hvernig lýkur,“
segir Math.
Asmundur Ásmundsson býður
gestum Nýlistasafnsins í bíó. En
verk hans „Exotica-Cultura-Film-
festival" er eins konar andsvar við
Kvikmyndahátíð í Reykjavík og
sýnir hann sex myndir sem eiga
það sameiginlegt að sögupersón-
urnar era að kynnast siðmenning-
unni í fyrsta skipti. Ósk Vilhjálms-
dóttir sýnir síðan myndefni frá
atburðum Menningarnætur. En
hún var með gjörning úti í Engey
sem hluta af sýningunni FIRMÁ
’99. Verkið nefnist „Enginn er eyl-
and“ og býðst gestum að skoða ljós-
myndir og myndband frá gerning-
num.
Flugbréfsefnisteikningar er verk
Margrétar H. Blöndal. Teikningum
af skuggum hluta er komið fyrir á
flugbréfsefni, auk þess sem á papp-
írinn era ritaðir myndrænir textar.
En þá vann listakonan alla við sama
gluggann. „Eg kom myndunum
þannig fyrir að fólk horfir ekki
beint á þær, heldur er frekar eins
og þær hvísli að manni,“ segir hún
og bætir við að hverjum og einum
sé síðan í sjálfsvald sett hversu
djúpt hann vilji sökkva sér í text-
ana.
Spurning
um innihald
Michael Kienzer sýnir mynd-
bandið „From edge to edge“, en
hann vinnur öllu jöfnu frekar með
skúlptúra og innsetningar. Myndb-
andsverkið sýnir brjóstmynd af
manni á hvítum gi'unni sem færist
milli brána myndrammans. Maður-
inn horfir stöðugt leitandi í kring-
um sig. „Verkið vekur spumingar
um innihald almennt,“ segir
Kienzer. „Maðurinn er leitandi, en
hann er engu að síður mildlvægasti
hluti verksins.“ Þá er Pétur Örn
Friðriksson með innsetninguna
„Vinnusvæði". En að því er hann
segir þá er vinnusvæði órætt orð
sem getur jafnt átt við eldhús,
skrifstofu og aðra staði. Á vinnus-
væðinu í Nýlistasafninu er fjaran
viðfangsefnið og hefur í því skyni
verið komið þar fyrir búri með
vatni og sandi.
Fritz Grohs sýnir „Wordshirts"
og eru fimm stafa orð prentuð á
sterk-gula stuttermaboli. Orðin
eiga það sameiginlegt að bjóða upp
á fleira en eina merkingu, þ.e. áhor-
fandanum er í sjálfsvald sett hvort
hann velur neikvæðan eða jákvæð-
an skilning á orðunum. „Orðin má
skilja á mismunandi hátt og sum
þeirra hafa enga merkingu eins og
til dæmis bingó sem kemur engu að
síður oft fyrir í málinu og fær þann-
ig á sig ákveðna merkingu,“ segir
Grohs. Hann bætir við að hann sjái
oft á fólki hvaða orð það velji sér, en
orðið vírus er einna vinsælast.
Sama hönnun einkennir bolina
og aðra hluti sem Grohs kemur
stöfunum fyrir á, en ákveðinn gróf-
leiki er á prentuninni sem er í
svörtum og gulum litum, nokkuð
sem Grohs telur ógnvekjandi sam-
setningu. „Allir geta látið mynd líta
vel út í dag og því felst engin list í
að gera slíkt með aðstoð tölvu.“
Að mati Grohs er mikilvægt að
verk hans séu staðsett á almanna-
færi, en hann kýs engu að síður að
fólk taki eftir þeim fyrir tilviljun
frekar en að augljóst sé að um
myndlist er að ræða. Hann er líka
hættur að safna fimm stafa orðum,
enda segist hann hafa verið farinn
að skoða allan heiminn út frá for-
sendu fimm stafa orða.
Sýningunni lýkur 19. september.
NÝI SÖNGSKÓLINN
Innritun lýkur 6. september.
Karlakórshúsinu Ými, Skógarhlíð.
Símar 552 0600, 552 0650 og 695 2914. „HJARTANSMAL“