Morgunblaðið - 03.09.1999, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Sjötíu manns a.m.k. týndu lífí í flug-
slysinu í Buenos Aires
Flugvöllurinn talinn
mjög hættulegur
SJÖTÍU manns að minnsta kosti
týndu lífi er Boeing 737-farþega-
flugvél frá argentínska flugfélag-
inu LAPA fórst í flugtaki í Buenos
Aires í fyrradag. Þar af létust 10
manns á jörðu niðri, ökumenn, sem
áttu leið um veginn, sem flugvélin
rann yfir áður en hún brotnaði al-
elda á golfvelli rétt við flugvöllinn.
Er hann inni í miðri borginni en
fyrir fjórum árum var Argentínu-
stjórn ráðlagt að loka honum af ör-
yggisástæðum.
Rannsókn á slysinu stendur nú
yfir en flugvélin var 29 ára gömul,
tekin í notkun 1970. Var ekki gert
ráð fyrir, að hún yrði notuð nema í
20 ár og í 50.000 flugstundir en hún
átti að baki 67.400 flugstundir.
Andy Deutsch, eigandi LAPA-flug-
félagsins, vildi þó ekki við það
kannast, að vélin hefði verið orðin
of gömul fyrir farþegaflug og
sagði, að hann hefði séð marga
safngripi í fullri notkun annars
staðar, t.d. á Puerto Rico.
Segir flugfélagið
bera ábyrgðina
Rodolfo Barra, yfirmaður
argentínsku flugmálastofnunarinn-
ar, sagði aftur á móti, að hann
teldi, að flugfélagið bæri fulla
ábyrgð á slysinu þótt ljóst væri, að
Newbery-flugvöllurinn sjálfur væri
hættulegur. Undir það hafa aðrir
tekið og benda þeir á, að svo sé að
flugvellinum þrengt, að þurfi flug-
menn að grípa til einhverra neyð-
arráðstafana, hafi þeir ekkert svig-
rúm til þess. Erlendur flugmála-
ráðgjafí lagði til 1995, að flugvellin-
um yrði lokað þar sem hann væri
hættulegur, jafnt þeim, sem um
hann færu, og þeim, sem byggju
nálægt honum.
Engar kenningar eru um það
enn hvað olli slysinu en flugvélin
náði aðeins að lyfta sér í 10 feta
hæð áður en hún skall til jarðar.
Deutsch, eigandi LAPA, kvaðst
ekki trúa því, að nokkuð hefði verið
í ólagi og gat sér til, að fugl hefði
sogast inn í hreyflana í flugtakinu.
Báðir svörtu kassarnir eru fundnir
en talið er, að það geti tekið sér-
fræðinga nokkum tíma að komast
að einhverri niðurstöðu.
Farþegar aftast
í vélinni komust af
Það voru einkum farþegar aftast
í vélinni, sem komust lífs af, en eft-
ir að vélin hafði stöðvast, brotnaði
hún og allur fremri hluti hennar
varð strax eitt eldhaf.
Meðal þeirra, sem komust af,
var Carlos Bariboto. Segist hann
aldrei munu gleyma skelfingunni í
andliti vina sinna, sem sátu fyrir
framan hann. Þeir fórust allir.
Bariboto komst út með son sinn,
Luciano. Gabriel Vanegas, 35 ára
gamall maður, komst líka út úr
vélinni heill á húfi. Finnst honum
nú sem hann hafi eignast nýtt líf.
„Hér eftir á ég tvo afmælisdaga á
ári,“ sagði hann.
Minningar-
athöfn í
Nova Scotia
HUNDRUÐ ættingja og vina
þeirra er fórust með þotu sviss-
neska flugfélagsins Swissair und-
an austurströnd Kanada fyrir
réttu ári, söfnuðust saman í Nova
Scotia í gær og minntust fómar-
iambanna. AIls fómst 229 í slys-
inu. Ástvinir þeirra sem létust
hafa undanfarna daga komið til
Nova Scotia hvaðanæva úr veröld-
inni og héldu tvær þotur Swissair
til Kanada gagngert til að flytja
fólk til minningarathafnarinnar. I
fiskiþorpinu Peggy’s Cove, nærri
slysstaðnum, var afhjúpaður
minnisvarði um þá sem létust.
Reuters
ÚTGERÐARMENN
Skipstjórar - Vélstjórar - Ráðgjafar
Við bjóðum til kynningar
á MAN B&W dísilvélinni 27/38
Dagskrá:
1. Hr. Böðvar Bjarnason frá MAN B&W Diesel A/S, Holeby Diesel
mun kynna í máli og myndum 27/38 dísilvélina frá MAN B&W
svo og aðra framleiðslu frá Holeby Diesel.
2. Hlé - Léttar veitingar.
3. Hr. Aksel Eisenhardt frá MAN B&W Diesel A/S, Alpha Diesel
mun kynna í máli og myndum niðurfærslugíra, skrúfubúnað
og stjórntæki svo og aðra framleiðslu frá Alpha Diesel.
Kynningin fer fram í hátíðarsal Sjómannaskólans í Reykjavík,
föstudaginn 3. september og hefst kl. 17:15
Allir áhugamenn um aðalvélabúnað og rafstöðvar í skip og báta velkomnir.
0
Afltækni ehf.
Barónsstíg 5, IS-101 Reykjavík. - Sfml: 551 1280. Fax: 552 1280. - GSM: 897 1780/81
Alpha
PROPULSION SYSTEMS
Nýr framkvæmdastjóri Heimsvið-
skiptastofnunariiinar tekinn til starfa
Lausn á vanda þró-
unarríkja fremst í
forgangsröðinni
Genf. AFP.
MIKE Moore, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Nýja-Sjálands, tók á mið-
vikudag við starfi framkvaemda-
stjóra Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar (WTO). Hét hann því að standa
vörð um hagsmuni þróunarlanda, og
sagði fréttamönnum að nauðsynlegt
væri að leysa vandamál fátækustu
ríkja heims „nú þegar, en ekki eftir
sjö eða átta ár“.
Moore, sem er fimmtugur, lauk
skólagöngu sinni á fimmtánda ári og
starfaði meðal annars sem bygginga-
verkamaður og innan verkalýðs-
hreyfingarinnar áður en hann hóf að
klífa metorðastigann í nýsjálenskum
stjórnmálum. Þegar hann var kjör-
inn á þing árið 1972 varð hann yngsti
þingmaðurinn í sögu Nýja-Sjálands.
Þótt hann sé vinstrimaður er hann
eindreginn stuðningsmaður við-
skiptafrelsis, en það tryggði honum
stuðning Bandaríkjastjómar til að
hljóta starfið. Hann þykir harður og
raunsær samningamaður, en hefur
verið gagnrýndur fyrir að láta
stjómast af tilfinningum frekar en
rökum á vettvangi stjórnmálanna.
Brýnt að útrýma fátækt
í yfirlýsingu Moores er hann tók
við framkvæmdastjórastöðunni segir
hann að það sé algjörlega óviðunandi
að þrír milljarðar manna dragi fram
lífið á sem svarar 150 krónum á dag.
„Við þurfum öll að leggjast á eitt um
að útrýma fátækt," sagði hann, og
bætti við að lausn á vanda þróunar-
ríkja yrði fremst í forgangsröðinni í
framkvæmdastjóratíð sinni. Hann
kveðst einnig hlynntur því að veita
fleii-i þróunarlöndum inngöngu í
WTO.
Fyrsta verkefni Moores verður að
undirbúa þátttöku Heimsviðskipta-
stofnunarinnar í væntanlegum
samningaviðræðum um frelsi í al-
þjóðaviðskiptum, en þær hefjast með
ráðherrafundi í Seattle í Bandaríkj-
unum í nóvember næstkomandi. Þar
verður tekist á um umdeild mál á
borð við niðurgreiðslu landbúnaðar-
afurða, skattlagningu viðskipta á
Netinu og tollamál, en Moore minnti
á að mikilvægt væri að fulltrúar að-
ildarríkjanna leiddu hugann einnig
að vanda fátækustu ríkja heims á
fundinum.
Nýi framkvæmdastjórinn sagðist í
yfirlýsingu sinni leggja áherslu á að
Kínverjar gengju í WTO, en viðræð-
ur þar að lútandi hafa legið niðri eft-
ir að bandarísk sprengja hæfði kín-
verska sendiráðið í Belgrad í vor.
Deilt um ráðningu Moores
Aðildarríki WTO komust í júlí að
samkomulagi um ráðningu Moores,
eftir margra mánaða deilur. Moore
naut stuðnings Bandaríkjastjórnar
og flestra Evrópuríkja, en Asíuríki,
þar á meðal Japan, stóðu að baki
Supachais Panitchpakdis, aðstoðar-
forsætisráðherra Taílands. Loks
náðist sátt um þá málamiðlun að
Moore myndi gegna starfinu í þrjú
ár, og Panitchpakdi tæki síðan við og
sæti önnur þrjú ár. Venjan er sú að
framkvæmdastjóri WTO sé ráðinn
til fjögurra ára.
Gíslataka í Kirgistan
Bjóðast til að leysa
grslana úr haldi
Bishkek. AFP.
MÚSLÍMSKIR skæruliðar buðust í
gær til þess að leysa fjóra japanska
gísla, sem haldið er föngnum í suð-
urhluta Kirgistan, úr haldi ef
stjómvöld ábyrgðust að þeir
kæmust óhultir úr landi til ná-
grannaríkisins Úsbekistan. Kröfum
skæruliðanna var komið á framfæri
við ríkisstjórn Kirgistans af lög-
reglumanni sem skæruliðar slepptu
lausum á miðvikudag, að sögn heim-
ildamanns AFP.
Borís Silayev, forsætisráðherra
Kirgistan, vildi ekki staðfesta þess-
ar fregnir á fréttamannafundi í Bis-
hkek, höfuðborg landsins, í gær en
sagði að ekki væri unnt að leyfa téð-
um 750-1.000 skæruliðum að halda
úr landinu. Slíkt væri í trássi við ör-
yggisráðstafanir og sáttmála sem
ríkið hefði undirritað við nágranna
sína.
Japanamir fjórir sem haldið er í
gíslingu hafa allir starfað sem jarð-
fræðingar í Kirgistan. Þeir vom
teknir af skæraliðunum þann 21.
ágúst sl. ásamt túlki sínum, herfor-
ingja og hermanni úr her Kirgist-
ans, auk tuttugu annarra manna, í
suðurhluta landsins. Japönsk
stjómvöld hafa hvað eftir annað far-
ið fram á aðstoð stjómvalda I land-
inu og rússneskra embættismanna
við að leysa gíslana úr haldi.