Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 53
lega þægilegur líkt og allt léki í
lyndi. Hún umvafði fjölskyldu sína
með ást og umhyggju. Ingileif var
heilsteypt og heiðarleg. Hún var
mikill mannvinur, víðsýn, skilnings-
rík og föst fyrir. Börnum sínum, og
okkur öllum, var hún einstök fyrir-
mynd. Sumarið er á enda og haustið
um það bil að ganga í garð. Kveðju-
stund er runnin upp. Ingileif, þessi
perla í mannhafinu, hefur fengið
hvíldina. Viljastyrkur og æðruleysi
einkenndu allt hennar fas. Henni
tókst það sem hún ætlaði sér; Anna
fermdist í vor og Óli varð stúdent.
Það voru forréttindi að fá að eiga
samleið með Ingileif Ólafsdóttur.
Hún mun alltaf lifa í hjarta okkar
sem þekktu hana. Guð blessi minn-
ingu hennar.
María Solveig Héðinsdóttir.
Kæra vinkona.
Mér þykir leitt að ég skyldi ekki
hafa náð að kveðja þig, áður en þú
lagðir upp í þína hinstu för. Kallið
kom fyrr og óvæntar en okkur
gi-unaði. Reyndar hafðh- þú barist
hetjulegri baráttu við alvarlegan
sjúkdóm í fimm ár. Þú hafðir oft áð-
ur verið mikið veik. En með ein-
stökum dugnaði og bjartsýni hafðir
þú jafnað þig. Við sem fylgdumst
með vonuðumst til að þannig yrði
það líka núna.
Lífíð verður sannarlega litlausara
nú þegar þú hefur kvatt. í fyrsta
sinn sem ég sá þig var verið að
kjósa þig til forystustarfa fyrir
hjúkrunarfræðinga. Þar fór mynd-
arleg, glaðleg kona, full af lífi og
orku. Það var reyndar engin tilvilj-
un að þér væru falin forystustörf.
Þú varst bæði mælsk og fylgin þeim
málstað sem þú talaðir fyrii-. Ég
dáðist að málefnalegri umfjöllun
þinni og hve snögg þú varst að átta
þig á aðalatriðum. Þú notaðir öll
tækifæri sem gáfust til að kynna
öðrum þitt hjartans mál, baráttuna
gegn neyslu tóbaks og afleiðingar
hennar. Þetta var ekki alltaf auðvelt
verkefni. Tóbakið er harður hús-
bóndi og reykingamenn fastir fyrir.
Af ótrúlegri lagni tókst þér á mörg-
um sviðum að breyta viðhorfi fólks
til þessa vágests. Meðal annars átt
þú heiðurinn af því að á mörgum
vinnustöðum á landinu getur fólk nú
andað að sér ómenguðu lofti í stað
reykmettaðs. Þú átt heiðurinn af
því að gerð var rannsókn á neyslu-
venjum og viðhorfi fjölmennustu
heilbrigðisstéttar landsins til tó-
baksneyslu. Fyrir nokki-um vikum
undirbjóst þú stofnun Félags hjúkr-
unarfræðinga gegn tóbaki. Þú lést
ekki veikindi aftra þér frá því að
stuðla að tóbaksvömum. Þau verk-
efni sem þú tókst að þér voru unnin
af dugnaði og krafti.
I veikindum þínum heyrði ég þig
aldrei kvarta eða vorkenna sjálfri
þér. Þú gerðir allt sem í þínu valdi
stóð til að verja ástvini þína og gera
þeim þennan tíma bærilegri. Þú
minntist oft á hve heppin þú værii-
að eiga að vináttu og kærleika
Gústa. Hann hafði reynst þér sér-
lega vel. Börnin ykkai-, Óli og Anna,
bera ást og umhyggju foreldra
sinna gott vitni. Ingleif mín, þín
verður sárt saknað.
Með fráfalli þínu finnst mér
haustið hafa komið með fyrra fall-
inu. Það er erfitt að venjast tilhugs-
uninni um að eiga ekki eftir að
heyra dillandi hlátur þinn í bili. Ég
veit að það verður tekið á móti þér
með viðhöfn í himnaríki. Annað
væri ekki við hæfi.
Elsku vinkona, ég kveð þig með
söknuði.
Ég sendi fjölskyldu þinni mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Olga Hakonsen.
í morgun saztu hér
undir meiði sólarinnar
og hlustaðir á fuglana
hátt uppí geislanum
minngamlivinur
en veizt nú, í kvöld
hvernigvegirnirenda
hvernig orðin nema staðar
og stjörnurnar slokkna
(Hannes Pétursson)
í dag verður borin til grafar Ingi-
leif Ólafsdóttir, sem lést langt um
aldur fram eftir löng og erfið veik-
indi. í dag eiga margir erfitt, en allt
tekur enda - jafnvel erfiðleikamir
líka. Inga sýndi einstakan dugnað
og kraft í baráttu við vágest, sem
læknavísindin standa oft ráðþrota
gegn. Jafnvel sterkustu vígi falla í
þeim átökum.
Það er sárt að horfa á eftir góðum
vini á þennan hátt. Vini sem átti svo
margt eftir ógert. Inga var þannig
að hún tók á flestu sem fyrir bar í
lífinu með festu og jafnaðargeði.
Leit yfirleitt á björtu hliðamar -
átti sér draum á erfiðum stundum,
sem því miður rættist ekki.
Stundum koma þau atvik fyrir í
lífinu að orðin sitja einhvers staðar
föst. Ótímabært fráfall Ingu er eitt
þeirra.
Við vinir hennar í þorravinahópn-
um kveðjum Ingu með söknuð í
hjarta og þakklæti fyrir allt og allt.
Það hefur verið hoggið stórt skarð í
vinahópinn. Við vitum vel að á ein-
um stað er sorgin mest. Elsku
Gústi, Óli, Anna og Ása, þið eigið
samúð okkar. Megi Guð blessa ykk-
ur og styrkja í sorg ykkar.
Sigtryggur,
Sigrún, Sigurdór,
María, Sigmundur.
Elsku Inga mín, nú er þín stund
komin, en því bjóst ég ekki við svo
fljótt.
Okkar vinátta hefur staðið í tæp
fjörutíu ár og þó að við höfum ekki
alltaf talað saman reglulega var vin-
áttan svo sterk að þegar við hitt-
umst var eins og við hefðum síðast
hist í gær.
Og oft hlógum við að því hvað við
allt í einu höfðum mikla þörf fyrir
að hittast að við fóram af stað og
hittumst á miðri leið. Eða þegar ég
fór að baka pönnukökur því ég átti
von á þér í heimsókn þó að við hefð-
um ekki rætt það og þú komst,
þrátt fyrir mikið annríki. Það var
ævinlega kátína í kringum þig þar
sem þú hafðir svo skemmtilegan
húmor að þú gast fengið fólk í
kringum þig til að hlæja jafn hjart-
anlega og þú sjálf, en oftast varstu
að gera grín að þér sjálfri.
Einu sinni sem oftar varstu að
flýta þér í vinnuna og mikið að gera
því þú varst orðin dálítið sein fyrir
og áttir eftir að fara með barnið í
pössun. Þá greipstu ruslapokann
sem átti að fara í tunnuna og annan
sem í var pollagalli og önnur föt
barnsins. I flýtinum hentir þú
pollagallanum í raslið og fórst í
strætó með raslapokann og afhentir
hann dagmömmunni. Af þessu hafð-
ir þú bara gaman og varst ófeimin
við að segja frá því.
Undanfarin ár hefur þú þurft að
lifa með erfiðum sjúkdómi, en þrátt
fyrir þín miklu veikindi varst þú
alltaf vongóð og sterk, svo sterk að
þú gast miðlað til annarra. Ég fór
ekki varhluta af því. Þú varst öllum
stundum tilbúin að aðstoða mig og
hjálpa á alla lund og ég veit að þú
hjálpaðii- öllum þeim sem á þurftu
að halda og til þín leituðu þó þú
nýttir til þess síðustu orkuna sem
þú áttir. Þú varst hjúkrunarfræð-
ingur fram í fingurgóma og lést þig
andlega líðan sjúklinga þinna einnig
miklu máli skipta.
Það sem þú tókst að þér gerðir
þú vel og þegar þú varst að aðstoða
mig gekkst þú í það af fullri einurð
og elsku.
Ég kveð þig nú, kæra vinkona, í
þeirri vissu að hitta þig innan tíðai'.
Guð veri með þér og öllum þeim
sem þig syrgja.
Sigríður Símonardóttir (Sirrý).
Kveðjustundir eru oft erfiðar inn-
an vinahóps, þá sérstaklega er erfitt
að horfa á eftir stórvinkonu okkar
Ingileif Ólafsdóttur burt úr þessu
jarðlífi. Þegar gamli vinahópurinn
kveður Ingu þá leiftra ótal minning-
ar úr litríkum ferðalögum, sam-
kvæmum, kaffibollarabbi og hinu
daglega lífi. Eitt af því sem stendur
upp úr var einurðin, ákveðnin og
engin eftirgjöf við mótlæti. Frá-
sagnarhæfileiki yfir kaffibolla var
einstæður hjá Ingu og gerði oft ein-
faldar búðaferðir að eftirvæntingar-
fullum spennusögum. Um árabil
ferðaðist vinahópurinn saman.
Ferðalögin vora öll minnisstæð á
einhvern hátt og er það efni í heilan
bókaflokk. Minningabrot renna fyr-
ir hugskotssjónum okkar frá gleði-
stundum og óvæntum uppákomum.
Má þar nefna að fyrir 16 áram
tjölduðum við öll í perlunni í Þjórs-
árdal. Við undraðumst allan þann
farangur sem Inga tók meðferðis,
sérstaklega fyrir Öla Bjarka, en það
jafnaðist á við heilan fataskáp.
Fljótlega sýndi sig að Inga þekkti
sína. Aður en tjöldin vora komin
upp þá var strákur tvisvar búinn að
detta í nærliggjandi læk. Að lokum
stóð það á endum að öll fötin voru
gjömýtt. Inga var alla tíð starfsöm,
ötul baráttukona og leið engan yfir-
gang gagnvart sjálfri sér og fjöl-
skyldu sinni. Stundum lét Inga okk-
ur fá það umbúðalaust sem áttum
það skilið og skömmu síðar tók hún
upp hanskann fyrir viðkomandi ef
hann var órétti beittur. Innan vina-
hópsins vora ekki alltaf allir á einu
máli en lærðu fljótlega að bera virð-
ingu fyrir skoðunum hvers annars,
sem þroskaði vináttuböndin og gerði
þau nánari. Ógleymanlegur vai-
stuðningur Ingu við Svövu og fjöl-
skyldu þegar Svava greindist með
hvítblæði. Þá sýndi Inga þann mikla
styrk sem hún hafði til að bera og
hve mikið hún hafði að gefa. Þar
kom skýrt fram hið blíða eðli Ingu.
Það var mikið áfall þegar Inga
greindist með krabbamein. Öll viss-
um við að bragðið gat til beggja
vona. Seiglan var alltaf söm við sig
þrátt fyrir áfallið. Við erfiðar að-
stæður lauk hún meira að segja við
háskólanám. Einn daginn var Inga í
erfiðri meðferð vegna sjúkdómsins
og næsta dag var hún komin í fyrir-
lestraferð út á land um reykingafor-
varnii'. Gestgjafahlutverk hennar
var alltaf stórt í sambúðinni með
Gústa og nutum við spilafélagarnir
góðs af því alla tíð. Þegar litið er til
baka þá er aðdáunarvert að hugsa
til þeirrar elju sem lá að baki undir-
búningi fermingar Önnu Drafnar og
síðan útskriftar Óla Bjarka. Ein-
hvern veginn lét Inga okkur halda
alla tíð að hún væri ósigrandi jafn-
vel á þeim tíma sem hún gat ekki
ferðast um án hjálpartækja. I viss-
um skilningi var Inga ósigrandi,
sterkur persónuleiki hennar er eitt-
hvað sem hverfur ekki þó jarðvist-
inni sé lokið.
Elsku Gústi, Óli Bjarki, Anna
Dröfn, Ása og aðrir ástvinir, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Lífið heldur áfram og minningin um
Ingu kemur ávallt til með að fylgja
okkur.
Svava, Ásgrímur, Heimir,
Gróa, Theódór, Helga
Margrét og Qölskyldur.
Það er sárt til þess að vita að
hjúkrun hafi misst slíkan liðsmann
sem Ingileif Ólafsdóttir hjúkrunar-
fræðingur var. Áhugi hennar á
málefnum sjúklinga og forvörnum
var einstakur. Hún var leiðandi í
ýmsum nýjungum varðandi for-
varnir og fræðslu um þau mál. Orð
hennar og athafnir vógu þar þungt.
Minnisstæðir era margir fundir
þar sem hún fjallaði af áhuga um
forvarnir og lágu leiðir okkar á
þeim vettvangi síðast saman á ráð-
stefnu um heilsufar kvenna árið
1998 þar sem hún fjallaði um reyk-
ingavarnir.
Ingileif var áhugasöm um mál-
efni hjúkrunar og hjúkrunarfræð-
inga og skoðaði allar hliðar þeirra
mála með opnum og jákvæðum
huga. Á félagsvettvangi hjúkrunar-
fræðinga var hún öflugur liðsmað-
ur. Hún sá fljótt hve miklu skipti að
hjúkranarfræðingar röðuðu sér
saman í eina heild. Hún var óskipt-
ur stuðningsmaður sameinaðs fé-
lags hjúkranarfræðinga og lagði
sitt af mörkum til að svo mætti
verða. Hún kunni að fagna áföngum
og velgengni annarra og sýndi það í
verki. Hjúkrun á Islandi á henni
mikið að þakka.
Blessuð sé minning Ingileifar
Ólafsdóttur.
Vilborg Ingólfsdóttir.
Það er ekki fjarri sanni að nær-
vera dauðans færi okkur nær lífinu.
Við lítum okkur nær þegar hann
knýr dyra og hugleiðum hvað skipt-
ir okkur mestu máli. Og spyrjum
jafnvel: Hver er tilgangur lífsins?
Svörin eru án efa í samræmi við
vitsmuni og þroska hvers og eins.
En staðreyndin er eflaust sú að
flest okkar lifa lífinu með lokuð
augun og við sneiðum framhjá
sannri gleði án þess að vera meðvit-
uð um að við séum að missa af ein-
hverju. Það er ekki fyrr en í lífinu
eftir lífið sem við geram okkur
grein fyrir því hvers við fóram á
mis. Þá iðrumst við þess að hafa
ekki leitað að ljósinu innra með
okkur í stað þess að eltast við kast-
ljós táls og hégóma. Og við iðramst
þess að hafa ekki séð ljósið í augum
barna okkar, lært að lesa lífið af
sömu einlægni og þau.
Ingileif sá ekki einvörðungu ljósið
í augum bai’na sinna, eins og mann-
kostir þeirra bera vitni um, heldur
vai' henni annt um öll börn. Frá
henni geislaði einlægur vilji til að
ráða bót á meinum þjóðfélagsins
þegar um brot á börnum, í skjóli úr-
ræðaleysis, var að ræða. Hún lagði
sig alla fram til að forða þeim frá
því að verða fórnarlömb tóbaks-
framleiðenda. Hún var eldhugi í
þeim efnum, en skilningi þeirra,
sem geta breytt rétt með hagsmuni
barna að leiðarljósi, er ábótavant.
Hugsanlega vegna þess að þeir sjá
ekki lífið í víðu samhengi og telja að
málefni framtíðarinnar sé á ábyrgð
annarra. Ingileif var stöðugt vak-
andi fyrir nýjum leiðum í forvörnum
og sinnti starfi sínu af kostgæfni. í
vinnunni spurði hún reglulega eitt-
hvað á þessa leið: „Jæja, hvað er að
frétta? Er eitthvað spennandi á döf-
inni?“ Henni var mikið í mun að
skapa almenningi og ekki síst börn-
um lífvænlegt umhverfi.
I Spámanninum stendur: „Hvað
er það að deyja annað en að standa
nakinn í blænum og hverfa inn í.
sólskinið? Og hvað er að hætta að
draga andann annað en að frelsa
hann frá friðlausum öldum lífsins,
svo að hann geti risið upp í mætti
sínum og ófjötraður leitað á fund
guðs síns? Aðeins sá sem drekkur
af vatni þagnarinnar mun þekkja
hinn volduga söng. Og þegar þú
hefur náð ævitindinum, þá fyrst
munt þú hefja fjallgönguna. Og
þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntu dansa í fyrsta sinn.“
Það er sárt að missa góðan vin.
Og það er sárt að sjá á eftir ástvini.
En við megum ekki gleyma því að
missir þeirra, sem hverfa á vit
nýrra heimkynna og eru í þann
mund að hefja fjallgönguna, er
einnig mikill. Ingileif hefur horfið
inn í sólskinið og er nú umlukin
Ijósi heimsins. Það er án efa þyngra
en tárum taki að fá ekki að fylgja
börnum sínum nema örstutt spor.
Að fá ekki að njóta þess að halda í
hönd þeirra, hlæja með þeim eða
gráta og umvefja þau kærleik. Að
fá ekki að upplifa framtíðina með
þeim eða njóta nærveru þeirra.
Sporin sem Ingileif steig með þeim^
Óla Bjarka og Önnu Dröfn munu*
þau varðveita í hjarta sínu til eilífð-
arnóns. Þau voru og verða áfram
gimsteinar móður sinnar. Og það
hlýtur að vera tregafullt að fá ekki
að njóta samvistar maka síns nema
stutta stund. Er við öðra að búast
en að spurt sé um réttlæti eða til-
gang lífsins? Ingileif kann svörin
við þeim spurningum sem brenna á
vöram allra þótt hún hefði kosið að
bíða með að fá vitneskju um hinn
stóra sannleika.
Ég votta fjölskyldu Ingileifai'
samúð mína. Megi minningin um”
yndislega konu lifa í hjörtum okkar.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum.
Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.
Eg er svo nærri að hvert eitt ykkar spor
snertir mig og kvelur - þótt látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug
sál mín lyftist upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífíð gefur.
Og ég - þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar
yfir Ufínu.
(Höf.óþ.)
Þorgrímur Þráinsson.
I myndinni af Ingileif Ólafsdótt-
ur eru margir skýi-ir drættir - og"*'
einn hvað augljósastur: Hún var
hetja.
Það duldist ekki þegar hún stóð
frammi fyrir áheyrendahópi hvort
heldur var í skóla, á vinnustað eða á
félagsfundi og fræddi og rökræddi
um tóbaksvarnir og önnur baráttu-
mál krabbameinssamtakanna og
allra veðra von; röddin ekki mildl
en málflutningur öraggur og sann-
færandi; tilsvör við andmælum
hressileg og gátu verið hvöss ef
þess þurfti. *
Það leyndi sér enn síður þegar
hún kvaddi sér hljóðs úr ráðstefnu-
sal, innan lands eða utan, og bar
einarðlega fram fyrirspurnir og at-
hugasemdir sem jafnan báru vott
um kjark, glöggskyggni og rök-
festu.
Það kom ekki síst fram í snörp-
um viðbrögðum þegar henni þótti
vegið gegn tóbaksvörnum af ráðn-
um hug eða kæruleysi eða slælega
unnið að framgangi þeirra.
Þó lýsti það sér skýrast í sjald-
gæfri hugprýði hennar þegar hún
varð sjálf, í blóma lífs síns, að
horfast í augu við dauðann og heyja
við hann langvinnt stríð. Allir semf
fylgdust með þeim átökum hlutu að
undrast og dást að því hve keik og
víllaus hún gat staðið til síðustu
stundar. Nú er hennar sárlega
saknað.
Við þökkum Ingileif margra ára
samstarf, vináttu og ógleymanleg
kynni. Ástvinum hennar biðjum við
allrar blessunar.
Þorvarður og Anna.
UNNUR
VILMUNDSDÓTTIR
+ Unnur Vil-
mundsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 20.
nóvember 1915.
Hún lést á St. Jós-
efsspítala 14. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Þjóðkirlqunni í
Hafnarfirði 23.
ágúst.
Elsku amma. Við
systkinin ætlum að
skrifa nokkur orð í
minningu um þig. Okkar fyrstu
minningar um þig eru þegar þú og
afi bjugguð i stóra húsinu á Kross-
eyrai’veginum. Þau ævintýri sem
við áttum í garðinum í kringum
húsið og öll okkar jól sem voru með
þér og afa munu aldrei gleymast.
Fyrir átta árum fluttuð þið svo á
Hjallabrautina þar sem þú bjóst
með afa til æviloka. n»
Þegar við komum í
heimsókn tókstu alltaf
á móti okkur með ást
og hlýju sitjandi í
stólnum með kaffiboll-
ann þinn.
Um leið og við
kveðjum þig í hinsta
sinn viljum við þakka
þér fyrir allar þær
samverustundir sem
við áttum og alla þá
ást og hlýju sem þú
gafst okkur. I huga ng^g
hjarta okkar eru ótal
minningar sem aldrei munu hverfa.
Megi Guð styrkja okkur öll í
sorginni og þá sérstaklega afa.
Elsku amma, við munum sakna
þín en vitum að þú vakir yfir okk-
ur.
Þín barnabörn
Jóhann Unnar, Guðniundur
Böðvar og Fjóla Sigrún.