Morgunblaðið - 03.09.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 59
BÁRA
GESTSDÓTTIR
+ Bára Gestsdótt-
ir fæddist á
Þúfu í Flateyjardal
14. október 1925.
Hún lést á Hjúkrun-
arheiniilinu Seli á
Akureyri 7. ágúst
siðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Akureyrar-
kirkju 18. ágúst.
Elsku Bára.
Þú verður alltaf í
hjörtum okkai- og við
vonum að þér líði vel
þar sem þú ert núna.
Það var alltaf svo hlýtt og notalegt
að koma til þín, alveg sérstök
stemmning yfir kaffíbollanum og
ýmis mál rædd. Jólin færa birtu og
yl í hjörtu mannanna, fólk sest nið-
ur og styrkir vináttuböndin. Það var
þinn tími og heimili
þitt bar þess merki.
Við þökkum þér fyrir
að hafa verið partur af
okkar lífi í sorg og í
gleði. Það voru forrétt-
indi að eiga þig fyrir
vinkonu elsku Bára.
Eins og regnið hylur stjörnu-
rnar
og haustþokan felur fjallshlíð-
arnar
og eins og skýin hylja himin-
blámann,
þannig hylja dimmar stundir
lífs míns
og örlaga auglit þitt sjónum mínum.
Og þó veit ég að hönd þín heldur mér.
Því þótt ég hrasi og detti á veginum
þá sleppir þú aldrei.
(Höf. ók.)
Maria, Birkir og börn.
Mig langar að minnast hennai’
Báru með þakklæti fyrir allt sem
hún gaf mér. Það verður tómlegt að
koma til vinnu eftir sumarfrí og
geta ekki, þegar stund er laus, farið
inn á stofu II og fengið hlýtt bros og
þétt faðmlag. Spjallað svo saman og
ég tala nú ekki um ísinn og bláberin
sem við hámuðum í okkur á góðum
stundum.
Það var gott að hafa þig hjá okk-
ur, Bára mín, en nú ertu laus við
þjáningarnar sem þú vildir sem
minnst tala um og ert komin í sól-
skinið og til ástvinar sem þú varst
búin að sakna svo mikið síðan hann
kvaddi.
Eg sendi ástvinum þínum sem þú
barst svo ríka umhyggju fyrir hlýj-
ar samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Þín vinkona,
Hafdís.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
It a g n a r s s o n
Bridsfélag Suðurnesja
Heldur var dræm þátttakan í
fyrsta spilakvöldi félagsins sl.
mánudagskvöld en það var góð-
mennt. Spiluð var sveitakeppni en
sveit frá félaginu heldur í víking
norður í land um helgina og spilar í
8 liða úrslitum við sveit Þórólfs
Jónassonar í Syðri-Skál í Bikar-
keppni Bridssambandsins nk. laug-
ardag.
Næsta mánudagskvöld hefst
fyrsta alvörukeppni vetrarins,
þriggja kvölda hausttvímenningur,
og eru spilarar hvattir til að fara að
bursta inniskóna og mæta í félags-
heimilið á mánudaginn. Spila-
mennskan hefst kl. 20.
Bridsfélag Hreyfils
Vetrarstarfið hófst sl. mánudag
með 13 para tvímenninngi. Ragnar
Bjömss og Daníel Halldórs-
| sonnáðu besta startinu og skoruðu
1 191. Eiður Th. Gunnlaugsson og
Ingunn Sigurðardóttir urðu í öðru
sæti með 184 og systkynin Erla
Sigurjónsdóttir og Sigurður Sigur-
jónsson þriðju með 181.
A mánudaginn kemur verður
einnig eins kvölds keppni en annan
mánudag hefst þriggja kvölda
hausttvímenningur. 4. október er
frí vegna Flóridaferðar, 11. okt.
verður eins kvölds tvímenningur
og 18. október byi’jar aðalsveita-
keppnin sem áætlað er að standi í 6
kvöld.
Spilað er í Hreyfilshúsinu við
Grensásveg.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í As-
é garði Glæsibæ. Meðalskor báða
daga 216 stig.
Fimmtudag 26. ágúst.
S Arangur N-S
Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss.
Asta Erlingsdóttir - Sigurður Pálsson
Júlíus Guðmundsson - Rafn Kristjánsson
Árangur A-V
Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefss.
Ólafur Ingvarsson - Viggó Norquist
Ólöf Guðbrandsdóttir - Sæbjörg Jónasd.
_ Mánudag 30. ágúst.
4 Árangur N-S
Þorleifur Þórarinss. - Albert Þorsteinss.
Oliver Kristóferss. - Þorsteinn Sveinss.
Júlíus Guðmundsson - Rafn Kristjánsson
Árangur A-V
Birgir Sigurðsson - Alfreð Kristjánsson
Halldór Magnússon - Þórður Björnsson
Halldór Kristinsson - Hjálmar Gíslason
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Vetrarstarfið hefst mánudaginn
6. sept. næstkomandi með eins
Íkvölds tvímenningi. Spilað verður í
félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni
12, kl. 19.
Frekari upplýsingar gefur Páll í
síma 551-3599 og Karl í síma 562-
9103.
260
238
236
263
241
240
259
257
246
243
237
231
KJARTAN
ÓSKARSSON
+ Kjartan Óskars-
son, offsetprent-
ari, fæddist í
Reykjavík 23. mars
1951. Hann andað-
ist á heimili sínu 23.
ágúst síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Fossvogs-
kirkju 30. ágúst.
Kæri mágur.
Það er með sorg í
hjarta sem ég vil með
nokkrum orðum
kveðja þig og þakka
þér fyrir þann tíma sem ég þekkti
þig. Það var fyrir tæpum tveimur
árum sem ég og Óli bróðir þinn
byrjuðum saman og stuttu seinna
kynnti hann mig fyrir þér. Strax
við fyrstu kynni fannst mér stafa
mikil manngæska og hlýleiki frá
þér. Því betur sem ég kynntist þér
sá ég að stutt var í grín og glens og
oft hafði ég gaman af að hlusta á
ykkur bræðurna skiptast á orðum í
gamni. Það var gleðilegt að fylgjast
með þegar þú varst að gera nýja
heimilið þitt svo fallegt og hlýlegt
og sjá stoltið í augum þínum þegar
við komum að skoða. Einnig eftir
að litla frænka þín, hún Evíta,
fæddist sá ég hversu barngóður þú
varst og verð minnug
þess að hún fékk sinn
fyrsta sykur á snuðið
sitt hjá þér. Ekki
grunaði mig að ég
væri að sjá þig í síð-
asta sinn er við kom-
um til þín nokkrum
dögum fyrir andlát
þitt. Þú varst glaður
og hrífandi eins og
alltaf. Þegar kallið
kom og Gréta lét okk-
ur vita fannst mér eins
og þetta væri slæmur
draumur og myndi ég
vakna þá og þegar og allt væri eins
og áður. En því miður var svo ekki
og þung voru skrefin þegar ég
kvaddi þig og sá eftir þér langt um
aldur fram.
Hann Óli bróðir þinn hefur ekki
eingöngu misst kæran bróður held-
ur líka besta vin sinn og trúnaðar-
mann, því'er harmur hans mikill.
Og móðir þín, sem þú varst svo
góður við, og allar systur þínar,
sem þótti svo vænt um litla bróður
sinn, eiga um sárt að binda. Bið ég
guð að blessa minningu þína og
gefa fjölskyldu þinni styrk á sorg-
arstund.
Þín mágkona,
Unnur R. Hauksdóttir.
+
Við og fjölskyldur okkar þökkum af hjarta
öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu
og veittu hjálp og styrk vegna andláts og
útfarar ástkærs sonar okkar,
KRISTINS SIGFÚSAR KRISTJÁNSSONAR,
Lyngbrekku 13,
Kópavogi.
Margrét Örnólfsdóttir, Kristján Eyjólfsson.
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem auðsýndu
okkur ómetanlega vináttu, samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegs sonar
okkar, bróður og frænda,
JÓNS ÞÓRS ÓSKARSSONAR,
Suðurbraut 15,
Hofsósi.
Sigríður Jónsdóttir, Óskar Hjaltason,
Kristinn Ragnar Óskarsson,
Áslaug María Óskarsdóttir,
Óskar Marteinn Helgason
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHEIÐUR SÆMUNDSSON,
sem lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar þriðjudaginn
24. ágúst, verður jarðsett frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 4. seþtember kl. 14.00.
Sigurjón Sæmundsson,
Stella Margrét Sigurjónsdóttir, Ingvar Jónasson,
Jón Sæmundur Sigurjónsson, Birgit Henriksen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN HELGA HELGADÓTTIR
frá Núpum, Fljótshverfi,
til heimilis í Bogahlíð 14,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum laugardaginn 28. ágúst, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, föstudaginn 3
Agnes H. Vigfúsdóttir,
Baldur J. Vigfússon,
Guðmundur H. Vigfússon,
Hörður B. Vigfússon,
Þórhildur Vigfúsdóttir, Kristján Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
. september, kl. 13.30.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vin-
áttu, samúð og hlýhug við andlá og útför eig-
inmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
VILMUNDAR INDRIÐASONAR
bónda,
Efsta-Dal.
Kristrún Sigurfinnsdóttir,
Sigurfinnur Vilmundarson, Margrét J. Þórarinsdóttir,
Theodór L. Vilmundarson, Ragnheiður B. Sigurðardóttir,
Gunnar Vilmundarson, Jóna B. Gestsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
KRISTÍNAR HANNESDÓTTUR
frá Bíldudal.
Hannes Friðriksson, Þórunn Helga Sveinbjörnsdóttir,
Valdemar Friðriksson, Guðbjörg O. Guðnadóttir,
Agnar Friðriksson, Ingunn Hjaltadóttir,
Guðbjörg Friðriksdóttir, Runólfur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð, vináttu og hlýjan hug
við andlát og útför mannsins míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
EINARS PÁLMA JÓHANNSSONAR
stöðvarstjóra fslandspósts,
Hofsósi.
Erna Geirmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn
Lokað
Vegna jarðarfarar INGILEIFAR ÓLAFSDÓTTUR verður Krabba-
meinsfélagið, Skógarhlíð 8, lokað eftir hádegi í dag, föstudaginn
3. september.
Almenn símaþjónusta vegna minningarkorta er í síma
5621414.
Krabbameinsfélagið.