Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÖSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Straumur
á þriðja
ofninn
Sex fyrirtæki stofna félag til að undirbúa byggingu álvers
Leggja fram 200 milljónir
til að undirbúa næstu skref
FIMM íslensk fjármálafyrirtæki
hafa ásamt Norsk Hydro ákveðið að
stofna undirbúningsfélag sem hefur
það hlutverk að fjármagna og und-
irbúa byggingu álvers á Reyðar-
fírði. Fyrirtækin leggja fram 200
milljónir til þessa verkefnis, en þar
af kemur helmingurinn frá Norsk
Hydro. Stefnt er að því að undir-
búningsvinnunni ljúki eftir 8-10
mánuði og að þá liggi fyrir hvaða
fjárfestar leggi fram hlutafé til
***feyggingar álvers.
Frá því í vor hafa Eignarhaldsfé-
lagið Alþýðubankinn, Fjárfestingar-
banki atvinnulífsins, Islandsbanki,
Landsbanki íslands og Þróunarfé-
lag Islands skoðað arðsemi álvers á
Reyðarfirði. Fyrir liggur frum-
greining á verkefninu og benda nið-
urstöður til þess að vænta megi
góðrar arðsemi af fjáfestingunni
miðað við þær forsendur sem liggja
fyrir, að sögn Erlendar Magnússon-
ar, framkvæmdastjóra fyrirtækja-
jfc^viðs FBA. Hann vill þó ekki nefna
neinar tölur í því sambandi.
Erlendur sagði að sú vinna sem
fyrirtækin hefðu lagt í verkefnið
fram að þessu hefði hvorki verið
fjár- né tímafrek. Nú væri vinnan
komin á það stig að ákveðið hefði
verið að stofna sérstakt félag sem
myndi á næstu 8-10 mánuðum
verja umtalsverðum fjármunum og
tíma til áframhaldandi undirbún-
ings.
HeQa dýrari og
tímafrekari vinnu
„Nú hefst miklu alvariegri, tíma-
frekari og dýrari vinna við hönnun
og gerð ýmiss konar samninga um
aðföng, sölu, raforku og fleira. Meg-
inverkefnið verður þó að vinna að
fjármögnun álversins. Það er fyrst
þegar þessari vinnu er lokið sem
hægt er að svara því hvort við kom-
um eitthvað að byggingu álvers,“
sagði Erlendur. Hann sagði að
stefnt væri að því að endanleg
ákvörðun um hvort farið yrði út í
byggingu álvers yrði tekin næsta
vor eða snemma sumars.
Erlendur sagði að gert væri ráð
fyrir að fyrsti áfangi álvers yrði
með 120 þúsund tonna framleiðslu-
getu á ári, en heildarkostnaður við
þennan áfanga yrði um 30 milljarð-
ar. Gera mætti ráð fyrir að a.m.k.
þriðjungur yrði fjármagnaður með
hlutafé, en meginþorrinn yrði í
formi verkefnisfjármögnunarláns.
Aðspurður sagði hann að ef álverið
yrði stækkað á síðari stigum myndi
arðsemi þess aukast.
Steinþór Pálsson, sem kemur að
málinu fyrir hönd Islandsbanka,
sagði að það væri mat fyrirtækj-
anna að það væru meiri en minni
líkur á því að álver yrði byggt í
Reyðarfirði. Gylfi Arnbjörnsson,
framkvæmdastjóri Eignarhaldsfé-
lagsins Alþýðubankans, sagði að-
spurður að fyrirtækin gerðu sér að
sjálfsögðu grein fyrir þeim umræð-
um sem ættu sér stað í þjóðfélaginu
um álver og virkjanir norðan Vatna-
jökuls. Tekið væri tillit til þess í
áhættumatinu, en hins vegar væri
gengið út frá þeirri forsendu að
Landsvirkjun hefði í höndum leyfi
til að virkja í Fljótsdal.
Rætt við lífeyrissjóði
Erlendur sagði að á þessu stigi
væri lítið hægt að segja um hverjir
kæmu til með að leggja fram hluta-
fé til byggingar álvers. Fæst af
þessum fimm íslensku fjármálafyr-
irtækjum væru langtímafjárfestar,
en þeirra hugmynd væri að vinna
þessu máli framgang og draga sig
síðan út úr því. Rætt hefði verið við
íslenska fagfjárfesta, eins og lífeyr-
issjóði, og þeim viðræðum yrði
haldið áfram jafnframt því sem
rætt yrði við erlenda aðila. Hann
sagði óráðið hvað Norsk Hydro
kæmi til með að eiga stóran hlut, en
hann kvaðst ekki hafa skynjað ann-
að af viðræðum við fyrirtækið en að
það tæki þátt í undirbúningi verk-
efnisins af fullum áhuga. Erlendur
lagði áherslu á að enginn sem að
þessu verkefni kæmi hefði tekið
endanlega ákvörðun um aðiid að
því.
STRAUMI verður hleypt á þriðja
bræðsluofn verksmiðju íslenska
járnblendifélagsins hf. á Grundar-
tanga einhvern næstu daga. Stefnt
er að því að framleiðsla geti hafist
með því sem næst fullum afköstum
1. október næstkomandi.
Unnið hefur verið dag og nótt að
prófun tækjanna. Bjarni Bjarnason,
framkæmdastjóri fyrirtækisins, seg-
ir að prófanir hafi gengið eftir áætl-
un og ekkert komið upp sem ekki
hafi verið hægt að lagfæra. Ofninn
verður gangsettur einhvern næstu
daga með því að straumi verður
hleypt á hann. Tekur um það bil
mánuð að hita hann upp en hinn 1.
október gengur í gildi samningur
sem Járnblendifélagið gerði við
Landsvirkjun um afhendingu viðbót-
arorku vegna rekstrar hins nýja
bræðsluofns.
60% aukning framleiðslu
Núverandi verksmiðja getur fram-
leitt 72 þúsund tonn á ári. Nýi ofninn
er hannaður fyrir 42 þúsund tonna
framleiðslu. Verksmiðjan mun því
framleiða um 114 þúsund tonn af kís-
iljárni á ári og nemur aukningin um
60%.
Keldur fá þriðja verkefnastyrkinn
frá Evrópusambandinu
Dýratilraun
sem gæti nýst
gegn eyðni
TILRAUNASTÖÐ Háskólans í
meinafræði á Keldum hefur fengið
10,7 milljóna króna styrk frá Evr-
ópusambandinu til að taka þátt í
samstarfsverkefni, sem felst í til-
raunabólusetningu gegn apaveiru
(SIV), sem er náskyld eyðniveirunni.
Um er að ræða samstarfsverkefni
vísindamanna í ellefu rannsóknastof-
um í sex Evrópulöndum auk Banda-
ríkjanna og sagði Guðmundur Ge-
orgsson, forstöðumaður Keldna og
stjórnandi verkefnisins hér á landi,
að hvort sem tilraunirnar með bólu-
efnið bæru árangur eða ekki myndu
niðurstöðurnar nýtast við rannsókn-
. .Mi' á eyðnisjúkdómnum.
„I raun snýst verkefnið um að
gera líkan íýrir bólusetningu við
HIV,“ sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta eru tilraunir,
sem eru gerðar á öpum í Göttingen í
Þýskalandi. Ástæðan fyrir því að
notaðir eru apar og veira, sem þeir
eru næmir fyrir, svokölluð apaveira,
er að hún er úr hópi hæggengra
veira eða lentiveira og veldur ein-
kennum í öpum, sem svipar til
eyðni.“
Beðnir að vera með
vegna visnurannsókna
Guðmundur sagði að sérfræðingar
á Keldum hefðu verið beðnir að taka
þátt í verkefninu vegna visnurann-
sókna, sem þar hefðu verið gerðar.
Visnuveiran væri ein af þeim veirum,
sem væru skyldar eyðniveirunni.
„Það er verið að brydda upp á
öýrri aðferð við bólusetningu," sagði
wuðmundur. „í okkar hlut kemur
sérstaklega að kanna áhrif veirunnar
á taugakerfið. Könnuð verða áhrif
bólusetningarinnar, sem er veikluð
apaveira. Síðan verður prófað að
sýkja með virkri apaveiru og athug-
að hvort fæst vernd. Við munum
fyrst og fremst kanna heilann, hvaða
breytingum veiran veldur þar og
hvaða áhrif bólusetning hefur á þró-
un heilaskemmda. Að auki verður
heilinn athugaður með tilliti til þess
hvort veiran geti dulist þar vegna
þess að heilinn er að vissu leyti
verndað svæði gegn ónæmiskerf-
inu.“
Veiklaða veiran er til og á að nota
frumutegund, sem unnin er úr merg,
sem burðarfrumu fyrir hana. Guð-
mundur sagði að sýkt yrði í eitilvef í
slímhúð vegna þess að þannig berst
eyðnismit almennt, þótt einnig berist
sjúkdómurinn inn í blóðrásina, til
dæmis með sprautum.
Bóluefni getur bjargað
„Slímhúðarvernd yrði mikilvægur
þáttur,“ sagði hann og bætti við:
„Hvað sem líður allri framför í með-
ferð á eyðni á Vesturlöndum er bólu-
efni það eina, sem myndi duga í þró-
unarlöndum." Hann sagði of snemmt
að segja til um það hvort unnt yrði
að beita sambærilegri bólusetningu
við eyðni: „Það má segja að tilraunin
snúist um það hvort þetta getur ver-
ið virkt til varnar og sé svo ekki þarf
að finna skýringar á því. En ég vil
ekki vekja neinar vonir um að bólu-
efni sé handan við hornið.“
Styrkurinn tengist fimmtu
rammaáætlun Evrópusambandsins í
lífvísindum og hljóðar upp á tíu millj-
ónir til þriggja ára.
Morgunblaðið/RAX
Lundapysjur
í Dyrhólaey
Ráðist á stúlku
á Snæfellsnesi
LUNDAPYSJURNAR ættu
flestar að vera komnar til sjáv-
ar, en varptíma lauk í byrjun
júní og flestar eru pysjurnar
komnar á kreik í byrjun ágúst.
Um tíu milljón kubbslegir og
flatnefjaðir lundar búa við sjáv-
arsíðu landsins og er fuglinn sá
algengasti á Islandi. Búast má
við því að eitthvað hafi fjölgað í
stofninum í sumar, en helstu
varpstöðvar lundans eru í Vest-
mannaeyjum og í Breiðafjarð-
areyjum.
SÝSLUMAÐURINN í Stykkis-
hólmi rannsakar nú alvarlegt lík-
amsárásarmál, sem upp kom á
þriðjudagsmorgun þegar tæplega
tvítug stúlka tilkynnti að rúmlega
tvítugur maður hefði ráðist á sig í
sumarbústað í Helgafellssveit á
Snæfellsnesi.
Stúlkan var flutt frá Stykkishólmi
á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem
hún fékk meðhöndlun bæði á slysa-
deild og á neyðarmóttöku fyrir
fómarlömb kynferðisofbeldis. Mað-
urinn, sem grunaður er um verkn-
aðinn, var handtekinn á þriðjudag-
inn þar sem hann var staddur í
sumarbústaðnum en sleppt að lokn-
um yfirheyrslum. Maðurinn var síð-
an aftur handtekinn aðfaranótt
fimmtudags í Reykjavík vegna
málsins og yfirheyrður í gær af lög-
reglunni í Reykjavík. Hann var í
haldi lögreglunnai’ fram á kvöld.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
nýtur aðstoðar embættis ríkislög-
reglustjóra við rannsókn málsins.