Morgunblaðið - 04.09.1999, Page 1

Morgunblaðið - 04.09.1999, Page 1
199. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Friðarsamkomulag ísraela og Palestínumanna í höfn „011 deilumálin hafa verið leyst“ Gaza. Reuters, AP. Þjófur kærir ríkið fyrir að- gæsluleysi Stokkhólmi. AP. SÆNSKUR maður sem á síð- asta ári var handtekinn fyrir þjófnað hefur kært sænska rík- ið fyrir að sýna ekki nægilega aðgæslu. Jimmy Hákansson heldur því statt og stöðugt fram, að lög- regluþjónarnir er tóku hann fastan hafí ekki sinnt starfi sínu sem skyldi. Ef þeir hefðu gert það hefði honum ekki tekist að sleppa undan þeim, stökkva út um glugga og slasast í fallinu. í dómskjölum, er dómsmála- ráðuneyti landsins gerði opin- ber í vikunn,i kemur fram að lögreglumennirnir hafi skilið Hákansson einan eftir ásamt lögmanni sínum á þriðju hæð þar sem þeir hugðust ræða málatilbúnað ríkisins á hendur honum. Er lögreglan yfirgaf herbergið stökk Hákansson út um opinn glugga og féll til jarð- ar með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði og slasaðist á baki. Hákansson hefur farið fram á skaðabætur að andvirði um 200.000 íslenskra króna. Reuters Kongress- flokkurinn í vanda STUÐNINGSMENN Kongress- fiokksins á Indlandi, sem er í stjórnarandstöðu, hrópuðu í gær slagorð á síðasta degi kosninga- baráttunnar fyrir fyrsta áfanga þingkosninganna í landinu. Skoð- anakannanir benda þó til þess að flokkabandalagið sem stendur að baki rfkisstjórn Atal Behari Vajpayees sigri í kosningunum, sem fram fara í áföngum f hinum 145 kjördæmum Indlands í sept- ember og október. ISRAELAR og Palestínumenn samþykktu í gærkvöldi að hrinda endurskoðaðri útgáfu af Wye-frið- arsamkomulaginu í framkvæmd sem fulltrúar þjóðanna sögðu að myndi veita færi á nýju tímabili friðar og stöðugleika í Mið-Austur- löndum. Samkomulagið bindur enda á átta mánaða óvissutímabil og kveður á um brotthvarf ísra- elskra hersveita frá Vesturbakkan- um, lausn palestínskra fanga er sitja í ísraelskum fangelsum og upphaf að tólf mánaða samningalotu um endanlegt sam- komulag þjóðanna. Samningurinn mun verða undirritaður í kvöld við hátíðlega athöfn í bænum Sharm el-Sheikh við Rauðahafið. Ljóst var að samkomulagið væri í höfn eftir að fulltrúar í samninga- nefnd ísraela lýstu því yfir í gær að Palestínumenn hefðu fallist á að 350 fangar sem sitja í ísraelskum fangelsum vegna andófs, yrðu leystir úr haldi. Upphaflega höfðu Palestínumenn krafist þess að fjöldi þeirra væri 400 en því höfn- uðu Israelar ítrekað. Samkomulaginu var náð eftir margra vikna samningaþóf og þrýsting frá Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Hosni Mubarak Egyptalands- forseta. „Öll deilumálin hafa verið leyst,“ sagði Nabil Shaath, fulltrúi í samninganefnd Palestínumanna, við fréttamenn í gærkvöldi er Al- bright fundaði með Yasser Arafat, forseta heimastjórnar Palestínu- manna, til að leysa síðustu ágrein- ingsefnin. Sagði hann að samkomu- lagið myndi gefa Israelum og Pal- estínumönnum færi á að hrinda þeim ákvæðum Wye-samkomulags- ins, sem deilur hafa staðið um, í framkvæmd og einbeita sér að var- anlegum samningi um samskipti þjóðanna. „[Samkomulagið] er far- sælt skref fram á við og við erum þeim þakklátir sem gerðu það kleift,“ sagði Shaat við fréttamenn. Nýtt tímabil trúnaðar og samvinnu Talsmenn ríkisstjómar ísraels sögðu í gær að Arafat hefði hringt í Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, meðan á fundi þeirra Al- brights í Gaza stóð og tjáð honum að hann yrði að fallast á samkomu- lagið. „Forsætisráðherrann óskaði [Arafat] til hamingju og sagði að saman myndu þeir hefja nýtt tíma- bil trúnaðar og samvinnu." ísraelskir embættismenn sögðu í gærkvöldi að Israelsstjórn myndi hefja framkvæmd hins nýja friðar- samkomulags innan tíu daga með því að afhenda sjö prósent lands- svæðis Vesturbakkans til sjálfs- stjórnar Palestínumanna og lausn- ar 200 palestínskra fanga. 150 fóng- um til viðbótar yrði svo sleppt 8. október. . | Kosningabaráttan 1 Rússlandi Vinstrabandalagið með mest fylgi Moskvu. AP, AFP. NIÐURSTOÐUR skoðanakönnunar sem birt var í Rússlandi í gær benda til að Vinstrabandalag Júrí Lúzhkovs, borgarstjóra Moskvuborgar, og nokk- urra þekktra stjómmálamanna sé fyrsti flokkurinn í rússneskum stjóm- málum er hlotið geti fleiri atkvæði en flokkur kommúnista í þingkosningun- um sem halda á í desember. 27% aðspurðra sögðust mundu kjósa Vinstrabandalagið sem Lúzhkov og Jevgení Prímakov, fyrrverandi for- sætisráðherra Rússlands, fara fyrir ásamt nokkrum héraðsstjórum. Samkvæmt könnuninni kom flokkur kommúnista næstur á eftir Vinstrabandalaginu með 21% stuðning. Kommúnistaflokkurinn, sem er stærsti þingflokkurinn á rússneska þinginu, hefur í seinni tíð ekki farið varhluta af væringum milli róttækra afla og hófsamra. Hafa deilur þessar valdið því að flokkur- inn hefur veikst. Nýlega ákváðu leið- togar Bændaflokksins, sem í síðustu kosningum fylgdu kommúnistum að máli, að styðja vinstrabandalag Lúzhkovs og félaga. Reuters Schröder í Varsjá GERHARD Schröder, kanzlari Þýzkalands, og Jerzy Buzek, for- sætisráðherra Póllands, ganga um Palmiry-kirkjugarðinn utan við Varsjá í gær, þar sem nazist- ar tóku íjölda manns af lífi í síð- ari heimsstytjöld, sem hófst með innrás Þjóðverja í Pólland fyrir 60 árum. Schröder, sem er í tveggja daga opinberri heimsókn til Pól- lands, hét því í gær að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að Pólveijum gæti orðið að þeirri ósk sinni að gerast aðil- ar að Evrópusambandinu ekki síðar en árið 2003. Hluti A-Tímor á barmi stjórnleysis Urslita kosn- inganna að vænta í dag Dili, SÞ, Lundúnum. AFP, Reuters. NOKKUR svæði Austur-Tímor römbuðu á barmi algers stjórnleysis í gær eftir að yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í héraðinu neyddist til að draga innlent starfslið sitt frá svæðum þeim er hatrammir andstæð- ingar sjálfstæðis A-Tímor ráða nú yf- ir. Samtímis hófst talning atkvæða úr kosningunum um sjálfstæði A-Tímor sem haldnar voru sl. mánudag og er gert ráð fyrir því að úrslitin liggi fyrir í dag. Búast menn jafnvel við frekari ofbeldisverkum er úrslit kosninganna liggja fyrir en líklegt er talið að meiri- hluti A-Tímorbúa hafi kosið sjálfstæði frá Indónesíu. Yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna kallaði 54 starfsmenn sína í borginni Maliana, sem liggur um 75 km suður af höfuðstaðnum Dili, frá borginni eftir að stuðningsmenn indónesískra stjómvalda, sem fengið hafa að vaða uppi óáreittir, fjölmenntu þangað og ógnuðu starfsliði SÞ. Hafa stjórn- völd í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, verið gagnrýnd harðlega fyrir að grípa ekki inn í ofbeldisverk and- stæðinga sjálfstæðis. „Eg hef ekki séð einn lögreglumann að störfum síðan ég kom hingað,“ sagði einn starfsmanna SÞ í gær. „Alþjóðlegt friðargæslulið verður að koma á staðinn. A-Tímorbúar eru algerlega á valdi vopnaðra hópa.“ Breska stjórnin ákvað í gær að setja áhöfn herskipsins HMS Glas- gow í viðbragðsstöðu vegna ástands- ins á A-Tímor en skipið er nú statt í Suður-Kínahafi. Þá hefur stjórnin sent einn aðstoðarutanríkisráðherra sinna, John Battle, til Jakarta til að freista þess að stilla til friðar í A- Tímor. Sagði Robert Cook, utanrík- isráðherra Bretlands, að alþjóða- samfélagið yrði að vera viðbúið því að grípa til aðgerða ef ofbeldisverk- um linnti ekki. Talsmaður SÞ sagði síðdegis í gær að úrslit kosninganna yrðu ljós snemma í dag og að líklegt væri að þau yrðu kunngerð strax. Sagði hann jafnframt að Kofi Annan, aðal- framkvæmdastjóri SÞ, myndi til- kynna úrslitin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.