Morgunblaðið - 04.09.1999, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Almannavarnaiiefndir fara yfír viðbúnað vegna Kötlugoss
ísafjörður
Endurskoða
gildandi við-
bragðsáætlun
ALMANNAVARNIR á hamfara-
svæði Kötlugosa ákváðu í gær að
endurskoða sérstaka viðbragðs-
áætlun vegna hugsanlegs goss í
Mýrdalsjökli. Haldinn verður
fræðslufundur fyrir íbúa svæðisins
13. september, gefinn verður út
upplýsingabækhngur og efnt til
Kötluæfmgar í byrjun október.
Almannavamanefnd Mýrdals-
hrepps, fulltrúar almannavarna-
nefnda Rangárvallasýslu og Skaft-
árhrepps og fulltrúar Almanna-
varna ríkisins komu saman til
fundar í gær til að ræða viðbrögð
við hugsanlegu gosi úr Mýr-
dalsjökli. Að sögn Hafsteins Jó-
hannessonar, sveitarstjóra Mýr-
dalshrepps og formanns almanna-
vamanefndar, var boðað til fund-
arins til að fara yfír málin vegna
ótta vísindamanna um að eitthvað
væri að gerast í jöklinum sem þeir
ekki áttuðu sig á. Hamfarasvæði
Kötlu, það er að segja það svæði
sem hlaup og öskufall getur valdið
tjóni á, nær að sögn Sigurðar
Gunnarssonar sýslumanns allt frá
Hvolsvelli til Kirkjubæjarklaust-
urs, þótt mestar líkur séu á hlaupi
á Mýrdalssandi.
Akveðið var að setja á laggirnar
nefnd með fulltrúum nefndanna og
Almannavama til þess að fara yfír
og uppfæra sérstaka viðbragðs-
áætlun vegna Kötlugosa. Telja
sýslumaður og sveitarstjóri að sú
áætlun sem í gildi er standi fyrir
sínu. Hins vegar hafí orðið breyt-
ingar á tækni og vegum sem þurfi
að fara yfir.
Fræðslufundur
með íbúum
Akveðið var að boða íbúa alls
svæðisins til fræðslufundar 13.
þessa mánaðar. Þar munu vísinda-
menn skýra frá eðli og afleiðingum
Kötlugosa og sýslumaður fara yfir
almannavarnaþáttinn. Þá gefst
íbúunum kostur á að spyrja vís-
indamenn. Fundinum verður fylgt
eftir með fræðsluriti og síðan er
fyrirhugað að efna til almanna-
vamaæfíngar, svokallaðrar Kötlu-
æfingar, í byrjun október.
í gær fóru fulltrúi frá Slysa-
vamafélagi íslands og félagar í
björgunarsveitinni Víkverja yfír
búnað og áætlanir sveitarinnar.
„Já, ég tel það, þótt það kæmi í
dag. Við erum fyrst og fremst að
skerpa á hlutunum," segir Sigurð-
ur Gunnarsson sýslumaður þegar
hann er spurður að því hvort Vest-
ur-Skaftfellingar verði tilbúnir að
mæta Kötlugosi að lokinni þeirri
vinnu sem nú fer fram.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Almannavarna-
nefndimar á
hamfarasvæði
Kötlu fóm yfir
málin á sameig-
inlegum fundi í
Vík í Mýrdal í
gær.
Þór Magnússon
frá Slysavarnafé-
lagi íslands, fyrir
miðri mynd, fer
yfir talstöðvar
björgunarsveit-
arinnar Víkvcrja
með Grétari Ein-
arssyni og Krist-
jáni Þórðarsyni
formanni sveitar-
innar.
Katrín Fjeldsted vill kanna aðra kosti en Fljótsdalsvirkjun
Hugrnynd um sæstreng
til Reyðarfjarðar
Telur skynsamlegra að virkja þar sem þegar
er búið að spilla umhverfínu
Islenska
sj ávarútvegssýningin
Fleiri gest-
ir en síðast
AÐSÓKN að Islensku sjávarútvegs-
sýningunni sem nú stendur yfir í
Smáranum í Kópavogi á fyrstu
tveimur sýningardögunum er mun
meiri en á sýningunni fyrir þremur
árum. Aðstandendur sýningarinnar
binda vonir við að fjöldi sýningar-
gesta verði um 20 þúsund talsins.
Sýningin hófst á miðvikudag og þá
komu alls 2.205 gestir, að sögn Ellen-
ar Ingvadóttur blaðafulltrúa. Er það
13% aukning frá fyrsta sýningardegi
árið 1996. Á öðrum sýningardegi
sóttu 3.430 gestir sýninguna eða 20%
fleiri en á sama sýningardegi 1996.
,Á heildina litið sýnist mér aðsókn-
in vera umtalsvert meiri en á síðustu
sýningu. Við erum ákaflega ánægð
með viðbrögðin. Við höfum haft
spurnir af því að skip hafi komið til
hafnai- gagngert til að skipverjar geti
skoðað sýninguna. Við gerum okkur
vonir um að sýningargestir verði
ekki fæm en 17 þúsund en ef allt fer
að óskum gætu þeir orðið um 20 þús-
und,“ sagði Ellen í gærkvöldi.
KATRÍN Fjeldsted, alþingismað-
ur Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík og fulltrúi í umhverfisnefnd
Alþingis, telur að til séu fleiri leið-
ir til að tryggja atvinnumál Aust-
firðinga en að virkja Jökulsá í
Fljótsdal. Hún veltir því til dæmis
fyrir sér hvort ekki sé unnt að
virkja annars staðar og flytja ork-
una með sæstreng til Reyðarfjarð-
ar.
„Þetta spinnst út frá umræðum
um sæstreng sem fóru fram í
borgarstjórn á árinu 1992. Ræddir
hafa verið möguleikar á að virkja
hér og flytja orkuna til Evrópu um
sæstreng. Ég spyr; ef það er hægt
er þá ekki hægt að virkja hvar sem
er og leggja sæstreng til Reyðar-
fjarðar? Menn verða að velta þess-
um möguleika fyrir sér því and-
staðan er fyrst og fremst við virkj-
un sem veldur því að Eyjabakkar
sökkva,“ segir Katrín í samtali við
Morgunblaðið.
Umhverfískostnaður
reiknaður með
Spurð að því hvort hún sé á
móti virkjun Jökulsár í Fljótsdal
segir Katrín að Fljótsdalsvirkjun,
eins og hún liggur fyrir, hafi slæm
áhrif á umhverfið og því þurfi að
skoða málið betur. „Það eru til
fleiri leiðir,“ segir Katrín. Hún tel-
ur ekki nauðsynlegt að virkja þar
sem fyrirhugað álver á að rísa,
skynsamlegt geti verið að virkja
þar sem þegar sé búið að spilla
umhverfinu.
Önnur starfsemi til Austurlands
Spurð um hagkvæmni þess að
leiða raforkuna um sæstreng til
Reyðarfjarðar segir Katrín að það
verði að skoða og leggur áherslu á
að inn í dæmið verði að reikna um-
hverfiskostnað við þær virkjanir
sem nú eru fyrirhugaður. Hún
bætir því síðan við að hægt sé með
ýmsum ráðstöfunum að laða aðra
starfsemi til Austurlands svo ekki
þurfi að koma til virkjunar og
byggingar álvers.
Flaggað í
hálfa^ stöng
við íshús-
félagið
STARFSFÓLK íshúsfélags ísfirð-
inga hf. flaggaði í hálfa stöng og
lagði blómsveig við frystihúsið til
minningar um góðan vinnustað, en
fyrirtækið hætti starfsemi í gær og
hefur starfsfólkinu armaðhvort ver-
ið sagt upp störfum eða boðin vinna
hjá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal.
Um 80 manns unnu hjá fyrirtækinu.
„AUt starfsfólkið í íshúsfélaginu
er harmi slegið yfir þessari með-
ferð, bæði á sér og fyrirtækinu,11
sagði Pétur Sigurðsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Baldurs. „At-
höfnin í gær endurspeglar djúpstæð
sárindi fólksins.“
Tveimur fánum var flaggað í
hálfa stöng, annars vegar fána Is-
húsfélagsins og hins vegar fána sem
líktist Islandsbankafánanum. Pétur
sagði að með því að flagga eftirlík-
ingu af íslandsbankafánanum væri
starfsfólkið að vekja athygli á aðild
bankans að málinu, því hann hefði
keypt Gunnvararfólkið út, eigendur
Ishúsfélagsins, og stuðlað að sam-
einingu við Hraðfrystihúsið í Hnífs-
dal.
„Eigendur fyrirtækisins leggja
niður fyrirtækið og selja sig inn í
sameininguna með því að draga
hundruð milljóna út úr þessum
rekstri. Það eru allir að tala um það
að þessi atvinnuvegur standi höllum
fæti og hafi verið rekinn alla tíð með
bullandi tapi, síðan þarf ekkert ann-
að heldur en að leggja þetta niður
og færa það yfir í annað fyrirtæki
og þá allt í einu losna hundruð millj-
óna út úr þessari sömu tapgrein.
Hvernig á venjulegt fólk að skilja
þetta?
Ólgan undir niðri er sú að hér er
búið að leggja niður 300 störf á síð-
ustu fimm árum, það er Norður-
tangann, íshúsfélagið og rækju-
verksmiðjurnar. Nú standa tvö
glæsilegustu frystihús landsins,
Norðurtanginn og íshúsfélagið, að-
eins til minningar um forna frægð.“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Starfsfólk íshúsfélagsins hf.
flaggaði í hálfa stöng og lagði
blómsveig fyrir framan fyrir-
tækið er starfsemin var lögð
niður í gær.
Sérblöð í dag
'Æ ztewn j
Á LAUGARDÖGUM j LLöDun j ð...- .♦y ' 3fe’ lr Köjiu!
Með Morg-
unblaðinu í
dag er
dreift blaði
frá Keilu-
höllinni,
„Kíkt í
keilu“.
Með Morg-
unblaðinu í
dag er
dreift blaði
frá Þjóð-
leikhúsinu,
„Lifandi
leikhús i
hálfa öld“.
Óvissa með Lárus Orra og Rún-
ar gegn Andorra / B1
Dalvík skellti Stjörnunni
í Garðabæ / B2