Morgunblaðið - 04.09.1999, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Rektor Háskóla Islands segir þekkingu í stöðugu endurmati
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Á að giska 500 gestir voru viðstaddir Háskóiahátíð í gær.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grimsson, rektor Háskóla Islands, Páll Skúlason, og menntamálaráðherra,
Bjöm Bjarnason, ganga í salinn ásamt föruneyti.
Háskólinn töfraafl
í íslensku þjóðfélagi
HÁSKÓLAHÁTÍÐ var haldin í Há-
skólabíói síðdegis í gær, að viðstödd-
um forseta íslands, Olafí Ragnari
Grímssyni, menntamálaráðherra,
Birni Bjarnasyni, og Páli Skúlasyni,
rektor Háskóla íslands, og öðrum
gestum. Menntamálaráðherra gerði
lífsnauðsyn skóiagjalda að umræðu-
efni í ávarpi sínu og hélt því fram að
ókeypis skólaganga leiddi ekki til
þess að hinir efnaminni færu frekar í
langskólanám.
Um 500 manns risu úr sætum þeg-
ar forseti Islands, háskólarektor og
menntamálaráðherra gengu í salinn
ásamt föruneyti undir ,,Há-
skólamars“ Páls Isólfssonar sem
hann sámdi og færði Háskólanum að
gjöf 1961. Hátíðin var nú haldin í
annað sinn með núverandi sniði en til
hennar er boðið æðstu embættis-
mönnum þjóðarinnar, borgaryfir-
völdum, fulltrúum bæjarstjórna,
starfsfólki Háskóla íslands, fulltrú-
um stúdenta og hollvinafélaga Há-
skólans og ýmsum velunnurum skól-
ans.
Ávörp, viðurkenningar
og söngur
Páll Skúlason rektor setti hátíðina
og bauð gesti velkomna. Hátíðina
kvað hann tækifæri fyrir háskólafólk
og velunnara að hittast og „ræða
málefni háskólans og horfa fram á
við“. Tilefnið var og verður framveg-
is, í samræmi við ákvörðun Háskóla-
ráðs frá því fyrr í sumar, notað til að
veita þremur starfsmönnum Háskól-
ans viðurkenningu fyrir störf í þágu
Háskólans.
Þriggja manna valnefnd undir for-
sæti rektors valdi að þessu sinni Pál
Hreinsson, dósent í lagadeild, fyrir
lofsvert framlag til kennslu, Kesara
Margréti Jónsson, dósent í raunvís-
indadeild, fyrir lofsvert framlag til
rannsókna og Brynjólf Sigurðsson,
dósent í viðskipta- og hagfræðideild,
fyrir lofsamlegt framlag til bygging-
armála Háskólans. Fengu þau öll
viðurkenningarskjal og 250 þúsund
króna verðlaun. Einnig afhenti
Gunnar Matthíasson sr. Pétri Pét-
urssyni bókargjöf frá Hollvinafélagi
guðfræðideildar.
Ávörp á hátíðinni fluttu rektor,
menntamálaráðherra, Guðmundur
K. Magnússon, fonnaður félags pró-
fessora, Finnur Beck, formaður
stúdentaráðs, og Ragnhildur Hjalta-
dóttir, formaður Hollvinasamtaka
HI. Auk ávarpa komu fram Bergþór
Pálsson baritón, sem söng við undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar og
Háskólakórinn, undir stjórn Egils
Gunnarssonar, sem endaði hátíða-
dagskrána á tveimur lögum og sam-
söng viðstaddra.
Ný lög kalla
á frumkvæði
Páll Skúlason rektor hóf ávarp
sitt á því að fjalla um gildi þekking-
ar og starf háskóla. Hann sagði há-
skólastarf felast í stöðugu endur-
mati þekkingar og viðleitni til þess
að ná á henni betri tökum. „Há-
skólastarf snýst um að gera sér ljóst
hvað mannfólkið hugsar og gerir,
hvað það gæti hugsað og gert eða
jafnvel hvað það ætti að hugsa og
gera, í öllum greinum lífsins," sagði
rektor.
Ný lög um HÍ, sem tóku gildi 1.
maí, kalla að mati rektors á aukið
frumkvæði meðal háskólakennara,
alls starfsfólks skólans og stúdenta
við mótun háskólastarfsins.
Háskóli Islands hefur á þeirri öld
sem er að líða verið töfraafl í ís-
lensku þjóðfélagi, sagði rektor.
Hann hefði „galdrað fram afburða-
*
A háskólahátíð í gær
fengu þrír starfsmenn
----------y-------------
Háskóla Islands viður-
kenningu fyrir framlög
sín í þágu skólans. Geir
Svansson var viðstadd-
ur hátíðina og heyrði
hvaðþar fór fram.
fólk í ótal greinum sem með störfum
sínum hefur átt drjúgan þátt í að
skapa þau efnahagslegu, stjórn-
málalegu og menningarlegu skilyrði
sem þjóðin býr við nú undir aldar-
lok“. Háskólinn hefur því, sagði
rektor „gefíð af sér margfalt það
sem hann hefur tekið til sín. Enda er
vafamál að nokkur stofnun í heimin-
um sé rekin með jafn litlum tilkostn-
aði miðað við það sem hún skilar til
þjóðar sinnar.“
Rektor þakkaði að lokum öllum
hollvinum Háskólans „sem leggja
sitt af mörkum til að hann megi
blómstra og auka enn margfeldisá-
hrif sín í íslensku þjóðfélagi".
Umræða um skólagjöld
óhjákvæmileg
Bjöm Bjamason hóf ræðu sína á
því að tala um breytingarskeið há-
skóla hér og annars staðar í heimin-
um og nauðsyn þess að leggja rétt
mat á stöðuna. Hann lagði áherslu á
vinsældir háskólanáms og hve mikil
forréttindi það væru að stunda há-
skólanám að eigin vali. „Vandi skóla-
stjórnenda felst í því að tryggja
nægilegt fjármagn, nota fjármuni vel
og stjórna skólastarfi þannig að góð-
ir kennarar veljist til starfa og staðið
sé að kennslu og rannsóknum af
metnaði," sagði menntamálaráð-
herra.
Menntamálaráðherra ræddi um
skólagjöld og vitnaði í Anthony
Giddens, rektor London School of
Economics, sem hélt fyrirlestur hér-
lendis sl. vor. „í samtölum okkai-
taldi Giddens lífsnauðsynlegt fyrir
skóla sinn að afía tekna með skóla-
gjöldum." Giddens hafði haldið því
fram við Bjöm að enginn háskóli
kæmist af í samkeppni án heimildar
til að heimta kennslugjöld. Þau
tryggðu nemendum betri menntun,
kostnaðarvitund nemenda og kenn-
ara skerptist, nemandinn nyti náms-
ins til langs tíma og ætti því að bera
kostnað umfram skatta sína, auk
þess sem hann styrkti skólann sinn
til góðra verka. Ókeypis skólaganga
leiddi ekki til þess að hinir efnaminni
fæm frekar í langskólanám.
Björn sagðist telja sér skylt að
koma þessari skoðun á framfæri því
„ræðum við ekki þennan þátt í
starfsumhverfi háskóla sjáum við
aldrei heildarmyndina. Þeim löndum
fækkar þar sem háskólanám er
ókeypis fyrir nemendur."
Bjöm benti á breytt skólastarf nú-
tímans, m.a. vegna nýrrar upplýs-
ingatækni sem „hefur ekki eingöngu
breytt heiminum í þorp heldur eina
skólastofu". Hann benti á góða
reynslu af auknu valfrelsi nemenda á
öllum stigum. „Aukið frelsi og aukin
ábyrgð gjörbreytir afstöðu nem-
enda.“
Guðmundur K. Magnússon pró-
fessor benti á að nýfengið aukið
sjálfstæði Háskólans með nýjum lög-
um hefði jafnframt aukið eigin forsjá
og kallaði á skarpari stjórn. Aukin
ábyrgð væri á háskólasamfélaginu
öllu. Hann minnti á fjárhagsskorður
sem Háskólanum væru settar og erf-
iða samkeppnisstöðu varðandi laun
starfsmanna. Hann lagði áherslu á
að ef Háskólinn ætlaði að vera „topp-
skóli“ frekar en „poppskóli" yrði að
koma til stuðningur ríkis.
Hin íslenska
þekkingarvagga
Góð menntun er að mati Finns
Beck, formanns stúdentaráðs, mikil-
vægari en nokkru sinni fyrr. Hlut-
verk menntunar hafí þróast og auk-
ist og nemendur geri meiri kröfur.
Finnur sagði mikilvægt að Háskóli
fslands væri þjóðskóli, opinn öllum
landsmönnum án tillits til stöðu og
efnahags. Hann rak á eftir nýjum
starfssamningi Háskólans og ríkis
og sagði ófært að engin hreyfing
hefði orðið á málinu í sex mánuði. Að
lokum benti hann á mikið traust
ungs fólks á Háskólanum, „hinni ís-
lensku þekkingarvöggu".
Síðasta ávarpið flutti Ragnhildur
Hjaltadóttir fyrir hönd Hollvinasam-
taka HÍ. Hún sagði blómlegt vísinda-
líf hafa lagt grunninn að velferð okk-
ar og nýsköpun í atvinnulífinu og
benti á að hugbúnaðargerð og upp-
lýsingatækni væru ágæt dæmi um
áhrif sem þekking og nýting hennar
hefur á samfélag okkar. Hún fjallaði
um mikilvægi Hollvinasamtakanna,
sem stofnuð voru 1995 í þeim til-
gangi að auka tengsl HÍ og samfé-
lagsins og vera „í senn bakhjarl skól-
ans og aðhald", - þau styddu Háskól-
ann í því að mæta breyttu hlutverki
sínu á nýiTÍ öld.
BSRB, RSI og Samfylkingin
Hækkun bensínverðs
harðlega mótmælt
Fjórða umferð Skákþings Islands
Jafntefli hjá Þresti
og Hannesi Hlífari
STJÓRN BSRB og aðildarfélög
bandalagsins krefjast þess að
stjórnvöld og olíufélögin stuðli að
lækkun á bensínverði, þar sem það
hafi hækkað um 25% á árinu, rýrt
kaupmátt fólks, hækkað vísitölu
neyslukostnaðar og þar með aukið
skuldir heimilanna um 4,3 milljarða
króna.
I fréttatilkynningu, sem BSRB
sendi frá sér, segir að hagnaður ol-
íufélaganna hafi aukist verulega á
fyrrihluta þessa árs, eða um tugi
prósenta. Þau hafi hagnast um 608
milljónir eða um 100 milljónir á
mánuði að jafnaði. Ennfremur seg-
ir: „Þegar samsetning bensínverðs
er skoðuð kemur í Ijós að álagning
olíufélaganna er 126%. Það er því
ljóst að þrátt fyrir hækkandi bens-
ínverð á heimsmarkaði gætu olíufé-
lögin tekið til baka hluta af hækk-
uninni 1. september, þessvegna
alla.“
Þar sem stór hluti bensínverðs
rennur í ríkissjóð í formi vöru-
gjalds, bensíngjalds, ílutningsjöfn-
unargjalds og virðisaukaskatts,
skorar BSRB á ríkissjóð að bregð-
ast við hækkununum. Bent er á að
25% hækkun á bensíni í ár, muni
skila meira í ríkissjóð en forsendur
fjárlaga gerðu ráð fyrir.
Auk BSRB hafa Rafiðnaðarsam-
band íslands og Samfylkingin sent
frá sér tilkynningar þar sem bens-
ínhækkunum er harðlega mótmælt
og skorað er á stjómvöld og olíufé-
lögin að grípa til aðgerða til lækk-
unar á bensínverði.
Tíu bifreiðar
laskast í
tveimur
árekstrum
TÍU bflar löskuðust í tveimur
árekstrum með einnar mínútu milli-
bili á Reykjanesbrautinni um átta-
leytið í gærmorgun. Ekki þurfti að
flytja neinn á slysadeild úr árekstr-
unum þótt ýmsir kenndu sér eymsla
var ekki mikið.
Fyrri áreksturinn varð klukkan
8.04 þegar tveir bflar rákust á við
söluskálann Staldrið á Reykjanes-
braut. Skömmu síðar skullu átta bfl-
ar saman, hver aftan á annan, rétt
aftan við vettvang óhappsins.
Klukkustundarlöng umferðartöf
hlaust af á meðan leyst var úr flækj-
unni. Þá varð þriggja bíla árekstur
á Miklubraut á tíunda tímanum í
gærmorgun. Slys urðu ekki á fólki
utan minniháttar eymsla og bifreið-
amar skemmdust ekki mikið.
FJÓRÐA umferðin á Skákþingi ís-
lands var tefld í gær, en þá gerðu
þeir Þröstur Þórhallsson og Hannes
Hlífar Stefánsson jafntefli.
Önnur úrslit í landsliðsílokki urðu
þau að Sigurbjörn Björnsson og
Bergsteinn Einarsson gerðu jafn-
tefli, Jón Viktor Gunnarsson sigraði
Davíð Kjartansson, Björn Þorfinns-
son sigraði Sævar Bjarnason og
Helgi Áss Grétarsson sigraði Braga
Þorfinnsson. Einni skák var ólokið
þegar blaðið fór í prentun en það var
viðureign þeirra Jóns Garðai's Við-
arssonar og Róberts Harðarsonar,
en staða Jóns Garðars var talin væn-
legri, en sigur færir honum efsta
sætið á mótinu, en hann hefur unnið
allar sínar skákir hingað til.
Þegar einni skák er ólokið er stað-
an sú að Hannes Hlífar og Helgi Áss
eru efstir með 3,5 vinninga, en Jón
Garðar er í þriðja sæti með 3 vinn-
inga.
I kvennaflokki sigraði Harpa Ing-
ólfsdóttir Önnu Margréti Sigurðar-
dóttur, Ingibjörg Edda Birgisdóttir
sigraði Steinunni Kristjánsdóttur og
Aldís Rún Lárusdóttir sigraði Önnu
Björgu Þorgrímsdóttur.
Staðan er þannig að Ingibjörg
Edda er efst með 3,5 vinninga, en
Harpa og Aldís Rún koma næstar
með 3 vinninga.
Fimmta umferðin hefst á morgun
klukkan 14 í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni 12, en þá
leiða m.a. saman hesta sína Hannes
Hlífar og Jón Garðar og er það ein af
úrslitaskákum mótsins.