Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 80 ár frá fyrsta flugi hérlendis „Leið áfram um loftið eins og risavaxinn fugl“ ÁTTATÍU ár voru í gær liðin frá fyrsta flugi á íslandi, en sá tfma- mótaatburður í samgöngusögu iandsins átti sér stað á Eggerts- túni í Vatnsmýrinni föstudaginn 3. september árið 1919, um klukkan fimm síðdegis, og var á vegum Flugfélags fslands nr. 1. Flogið var breskri herflugvél af gerðinni Avro-504, sem gat flutt einn farþega auk flugmanns, en það var Cecil Torben Faber her- flugmaður úr breska hernum, sonur danska stjórnarráðunautar- ins Iiaralds Fabers, sem starfaði í Lundúnum. „Vélin leið áfram um loftið eins og risavaxinn fugl, stöðugri en nokkur vagn á renni- sléttum vegi, sneri sér í krappar bcygjur og tyllti sér eftir dálitla stund aftur á grassvörðinn," sagði í Morgunblaðinu daginn eftir. Lýst eftir sjónarvottum Síðar sama dag, um klukkan átta um kvöldið, var efnt til flug- sýningar og farnar að minnsta kosti tvær flugferðir. Aðgöngu- miðar voru seldir í bókaverslun- um Sigfúsar Eymundssonar og Isafoldar og kostuðu 50 aura. „Kveldstundin 3. september 1919 mun lengi verða mönnum minnis- stæð. Fólk var í einhverri alveg nýrri „stemmningu", er það horfði upp í himinblámann og sá nýjasta „gaklraverk" nútímans svífa loftsins vegu, laugað geisl- um sólarinnar, sem ekki náðu lengur til þeirra, er niðri voru,“ sagði Morgunblaðið. Flugmálastjórn Islands hefur áhuga á því að komast í samband við þá núlifandi ísiendinga sem voru staddir í Vatnsmýrinni um- ræddan dag fyrir 80 árum og urðu vitni að fyrsta fluginu eða fyrstu flugferðunum þann dag. Tilgangurinn er að skrásetja lýs- ingu á atburðum frá sjónarvott- um, með það í huga að nota megi efnið síðar meir sem heimild í flugsögu Islands. „Það er auðvitað Ijóst að eftir- lifandi sjónarvottar, sem þá voru á barns- eða unglingsaldri, eru núna orðnir hnignir að aldri og óvíst að allir fylgist með þeim fréttum sem dynja yfir landslýð á hveijum degi. Því vil ég hvetja ættingja eða vini til þess að vera milligöngumenn um þetta," segir Gunnar Þorsteinsson hjá Flug- málastjórn, en sjónarvottar að fluginu eða aðstandendur þeirra geta snúið sér til hans. Siðustu dagana í september 1919 var Avro-504 flugvélin tek- in í sundur og henni komið fyrir í sama kassa og hún var flutt í með skipi til landsins. Faber hélt af landi brott, en meðan á dvöl _ Ljósmyndasafn Reykjavílou*/Magnús Ólafsson Flugtak fyrstu flugvélar á íslandi undirbúið í Vatnsmýrinni. Cecil Faber flugmaður situr í flugstjórasætinu og aðstoðarmaður hans snýr hreyflinum í gang, en kennsl hafa ekki verið borin á farþegann. hans stóð hafði hann farið í sam- tals 146 flugferðir, margar þeirra með farþega. Samkvæmt auglýsingum Flug- félags íslands nr. 1 kostaði 5 mín- útna flugferð 25 krónur, auk slysatryggingar sem farþegar gátu keypt hjá flugmanninum. Til samanburðar má geta þess að á þeim tfma voru Iágmarkslaun verkamanns 90 aurar á tfmann og ef miðað er við verðlagshækkanir á þeim áratugum sem liðnir eru, má gera ráð fyrir að hin fimm mínútna langa flugferð myndi kosta um það bil 10 þúsund krón- ur á núvirði. Til gamans má geta þess að ódýrasti flugmiði með Flugfélagi íslands frá Reykjavík til Akureyrar og aftur til baka, kostar í dag 10.730 krónur fyrir fullorðinn einstakling og er það samtals um 90 mínútna flug. 2.500 mega stjórna flugvél Á þeim áttatíu árum sem liðin eru frá fyrsta fluginu hefur margt breyst og nú er svo komið að um 340 loftför eru skráð á ís- landi, þar af um 45 stórar flug- vélar. Flugrekendur eru um 20 talsins og rúmlega 2.500 manns hafa flugskírteini frá Flugmála- syórn, auk þess sem mörg hund- ruð starfsmenn aðrir starfa að flugmálum. Heildarvelta ís- lenskra flugfyrirtækja nemur tugum milljarða á ári. Tæplega hálf milljón manna ferðast árlega í innanlandsflugi og 1,3 milljónir farþega fljúga til og frá landinu í millilandaflugi. Svokallaðar „flughreyfingar“ eru rúmlega 214 þúsund talsins á flugvöllum Islands. Þá eru um 27 þúsund tonn af vörum flutt í millilandaflugi á ári og um 1.500 tonn í innanlands- flugi. Á hveiju ári fara einnig rúmlega 83 þúsund flugvélar um úthafsflugstjórnarsvæði íslands, sem jafngildir um 30% af heildar- flugumferð yfir Norður-Atlants- hafið. Hlutur íslands í flugi á Norðurlöndunum er 5% en þó eru íslendingar aðeins 2% af heildarí- búafjölda Norðurlandanna. Villa í afgreiðslukerfí 118 Landssíminn endur- greiðir 16 milljónir LANDSSÍMINN mun við næstu útsendingu símareikn- inga endurgreiða rétthöfum rúmlega 108 þúsund símanúm- era oftekin gjöld í upplýsinga- númerið 118. Nemur endur- greiðslan rúmum 16 milljónum króna eða um 148 krónum á hvert númer. Fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Landssímanum að villa hefur uppgötvast í nýju af- greiðslukerfi fyrir hluta starf- seminnar í 118 sem tekið var í notkun um miðjan febrúar. Hluti símtala til loka apríl var tímamældur rangt og greiddu notendur því of mikið fyrir sím- tölin. Landssíminn hefur unnið að því í samstarfi við framleiðanda kerfisins, Ericsson í Svíþjóð, að uppræta villuna og hindra að slíkt geti endurtekið sig. „Landssíminn biður viðskipta- vini sína velvirðingar á þeim óþægindum, sem af þessu kunna að hafa hlotist...“ segir m.a. í fréttatilkynningu Lands- símans. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Rifnaði við ásiglingu UM TVEGGJA metra löng og hálfs metra breið rifa kom á kinn- unginn á nóta- og togveiðiskipinu Júpíter ÞH-61 talsvert ofan við sjólínu í fyrradag þegar Reykja- foss bakkaði á það í Neskaupstað. Reykjafoss rakst einnig í nóta- skipið Neptúnus ÞH-361 sem laskaðist lítillega. Á Reykjafossi urðu litlar skemmdir. Lögreglurannsókn vegna árekstursins við Júpíter lauk í gærkvöld og hefur verið óskað eftir sjóprófum við Héraðsdóm Austurlands. Gert er ráð fyrir að þau hefjist í lok næstu viku. Júpíter, sem gerður er út af Skálum ehf. á Þórshöfn er ekki haffær vegna tjónsins en Reykja- foss sigldi frá frá Neskaupstað í fyrradag. Varaformaður Framsóknarflokksins um áskorun náttúruverndarsinna Tekur áskorun- inni fagnandi FINNUR Ingólfsson, varaformað- ur Framsóknarflokksins, tekur áskorun umhverfis- og náttúru- verndarsinna innan flokksins fagn- andi og segist fagna öllu lifandi starfi í flokknum, en á fundi nátt- úruverndarsinna í fyrrakvöld var skorað á forystu flokksins að standa fyrir opnum fundi á næst- unni, þar sem málefni Fljótsdals- virkjunnar yrðu rædd. „Við munum finna með hvaða hætti sé best að fá þessa umræðu sem öflugasta inn í flokkinn og við munum sjálfsagt setja á stofn eitt- hvert starf af stað til þess,“ segir Finnur. Fundurinn í íyrrakvöld gerði m.a. ályktun um að flokksforystan gengist fyrir fundi innan flokksins og stæði fyrir máli sínu í lýðræðis- legum og opnum umræðum um málefni Fljótsdalsvirkjunar. Hafa Ólafur Örn Haraldsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Stein- grímur Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri, þegar lýst sig reiðu- búna til að mæta á slíkan fund og mæla fyrir sjónarmiðum sínum um virkjunarframkvæmdir og um- hverfismat. Aðspurður segir Finn- ur Ingólfsson ekki nokkurn vafa leika á því að hann muni mæta á slíkan fund og segir ennfremur að- spurður að flokksforystan muni tryggja að lýðræðisleg umræða fari fram innan stofnana flokksins. Að sögn Finns mun hann ræða við Ólaf Magnússon, talsmann náttúruverndarsinna, næstkom- andi mánudag, samkvæmt umtali þar sem áskorunin verður rædd. Fundur umhverfis- og náttúru- vemdarsinna var haldinn í fyrra- kvöld á Hótel Borg en ekki í húsa- kynnum Framsóknarflokksins í svokölluðu Skúlakaffi á Hverfís- götu. Kvaðst Ólafur Magnússon hafa fengið „vinsamleg tilmæli" fra framkvæmdastjóra flokksins, Agli Heiðari Gíslasyni, um að halda ekki fundinn í húsakynnum flokks- ins. Komu hörð viðbrögð fram þeg- ar þær upplýsingar bárust frá Ölafí að hann hefði ekki fengið leyfi til að halda fundinn í Skúlakaffi. Vitnaði í tveggja vikna gömul orð framkvæmdastjórans Aðspurður hví hópurinn hafi ekki fengið umrætt leyfi segir Egill Heiðar að hann hafi aldrei verið beðinn um að hýsa þennan tiltekna fund og að starfsfólki á skrifstofu Framsóknai-flokksins hafi ekki verið kunnugt um að húsakynni flokksins hafí verið pöntuð fyrir fundinn. Egill Heiðar segir hins vegar að Ólafur sé að vitna í orð sín frá því fyrir um hálfum mánuði þegar það hafi verið skoðun sín að ekki hafi verið ákjósanlegt að halda slíkan fund innan veggja húsnæðis Framsóknarflokksins þegar yfir- lýsingar um umhverfísmálefni gengu á víxl milli Ólafs og Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra. „Þennan fund, þ.e. 1. september, hafði ég ekkert með að gera. Hann [Ólafur] hafði ekki samband við mig fyrir fundinn sem haldinn var í gær [fyrradag] til þess að biðja mig um húsnæðið," segir Egill Heiðar. Aðspurður segir hann að ef húsa- kynni flokksins hefðu hins vegar verið pöntuð á mánudag eða þriðjudag fyrir fundinn hefði hann léð máls á því að fundurinn yrði haldinn þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.