Morgunblaðið - 04.09.1999, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
-ÍSiwV.,
......^ „
...............-sr-rá*^-
Skútan Solvejg siglir inn að bryggju eftir að hafa verið dregin úr strandi.
Skúta endaði í Eyjum eftir stormasama ferð frá Grænlandi
Fauk nánast upp í Skans-
fjöruna í hörkuroki
26 FETA skúta með einum manni
innanborðs nánast fauk upp í
Skansfjöruna í Vestmannaeyjum í
um klukkan 9.30 í fyrradag í hörku-
roki. Stjórnandi skútunnar, sem er
hollenskur og hefur áður komið til
íslands, hafði verið á leið til Eyja
frá Kristjánssundi á Grænlandi.
Hann slapp ómeiddur. Hann var þó
orðinn þreyttur eftir sjóferðina,
sem alls tók um sex sólarhringa,
enda hafði hann barist hvíldarlítið
við veðrið í rúma þrjá sólarhringa.
Áhöfnin á hafnsögubátnum Létti
kom skipstjóranum til aðstoðar og
kom taug í skútuna sem nefnd er
Solvejg þar sem hún lá í Skansfjör-
unni og dró hana út á sjó þar sem
tókst að ræsa vél hennar. Sigldi
skipstjóri skútunni síðan fyrir eigin
vélarafli til hafnar. Vindhraði var
töluverður úr suðvestri eða 22 metr-
ar á sekúndu.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Zoethout hafði verið um sex sólarhringa að komast frá Grænlandi til
Eyja og barðist við storminn á leiðinni. Hann endaði förina í Skans-
fjörunni ómeiddur en þreyttur, blautur og kaldur.
Þreyttur eftir volkið
Skipstjórinn, Thys Alle Zoethout,
sem er sextugur að aldri, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
morgun að hann væri þreyttur eftir
volkið enda hefði hann verið í
stormi og lent í allt að tíu metra
ölduhæð síðustu þrjá sólarhringana.
Hefði skipstjórnarklefinn fyllst af
sjó um tuttugu sinnum á leiðinni og
þar af hefði hann verið sjálfur inni í
honum í eitt skiptið. Hann sagðist
enn fremur vera nokkuð reiður
sjálfum sér fyrir að hafa feilreiknað
sig örlítið í lok ferðarinnar.
„Allt hafði gengið vel en síðan
þegar ég kom að höfninni fór
skyndilega eitthvað úrskeiðis,“
sagði Zoethout. „Lukkan sagði allt í
einu skilið við mig. Ég taldi að það
Ráðstefna um brjóstagjöf
Félagsheimili Seltjarnarness við Suðurströnd
10 september 1999, kl. 9.00-16.30
Tími Efni Framsaga
8.30-9.00 Skráning og afhending gagna.
9.00. Setning Fulltrúi Barnamáls
9.15 Rannsóknarniðurstöður frá Rann- sóknarstofu i næringarfraeði HÍ Tengsl mataraeðis móður við samsetningu brjóstamjólkur. Anna Sigríður Ólafs- dóttir, matvæla- fræðinqur.
10.10 Kaffi
10.30 Grænmetisfæði og mjólkandi mæður Katrín Edda Magnúsdóttir, Ijós- móðir.
11.00 Brjóstagjöf og heimspeki Kolbrún Pálsdóttir, B.A. í heimspeki.
11.30. Umönnun tvíbura/fleirbura. Unnur B. Friðriks- dóttir, hjúkrunar- fræðingur.
12.00 Matur
13.00 Útbreiðsla brjóstagjafar á íslandi í upphafi aldarinnar. Margrét Gunnarsdóttir, sagnfræðingur.
ÍT35 Tengslamyndun barna. Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur.
14.15 Brjóstagjöf, viðhorf og framkvæmd á ábótargjöf. Steina Þórey Ragnarsdóttir B.S. í hjúkrun.
14.45 Kaffi
15.00 Eiturefni í brjóstamjólk. Kristín Ólafsdóttir, líffræðingur.
15.20 Áhrif brjóstagjafar á heilsu barna. Magnús Jóhanns- son, læknir.
16.15 Ráðstefnulok
Skráning
Þátttökugjald er kr. 5.000. Það skal greiða fyrir 8. september nk. inn á
reikning 322-26-24025 í Búnaðarbanka Kópavogs, nauðsynlegt er að
fram komi nafn og kennitala þátttakanda.
Hádegisverður innifalinn.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma félagsins 5644650 eða hjá Maríu
í síma 5545379 milli kl. 14.00 og 16.00 alla virka daga.
Ráðstefnan er öllum opin.
Barnamál
Áhuqafélag um brjóstagjöf, vöxt og
þroslta barna 15 ára afmæli
væri minna rok nær ströndinni á
bakborða en við snarbratt fjallið á
stjómborða og því fór ég nær
ströndinni af ótta við sterkan vind-
streng á stjómborða. Líklega hefði
ég samt átt að fara lengra á stjórn-
borða og í því Iiggur skyssan."
Zoethout unni sér síðast hvíldar
seint á þriðjudagskvöld og svaf þá í
eina klukkustund um borð í skút-
unni, en þá átti hann eftir að sigla í
stormi í nærri hálfan annan sólar-
hring til Eyja. Hann sagðist vera
blautur og kaldur auk þess að vera
þreyttur, en hann ætlar engu að síð-
ur að halda áfram för sinni til
heimalands síns þegar hann hefur
kannað skemmdir á skútunni.
Þetta er þriðja árið sem hann
kemur til íslands en hann hefur átt
skútu sína í 18 ár og farið í langar
siglingar á henni síðastliðin 7 ár að
árinu í fyrra undanskildu.
Lús stingur sér niður að nýju
á höfuðborgarsvæðinu
Fólk beðið að
vera á varðbergi
ORÐIÐ hefur vart við lús á Sel-
tjamarnesi og nær ömggt má telja
að hún hafi látið á sér kræla víðar á
höfuðborgarsvæðinu, að sögn Örnu
Einarsdóttur, skólahjúkrunarfræð-
ings í Mýrarhúsaskóla. Hún hefur
sent foreldrum og forráðamönnum
nemenda í skólanum viðvömn um
iús og brýnir þar fyrir þeim aðgát í
þessu sambandi.
„Höfuðlúsin er því miður orðin
nokkuð árviss plága og okkur bár-
ust tii eyma fregnir af því að hún
hefði nýlega gert vart við sig hér á
Seltjarnarnesi, þó svo að skólastarf
væri ekki hafið þegar við heyrðum
af henni. Bréfið sem ég sendi for-
eldrum er varúðarráðstöfun þar
sem skólinn lenti illa í lúsinni í fyrra
og skólastarfið varð fyrir truflun-
um. Þess vegna bið ég fólk að vera á
varðbergi," segir Ama.
Skólar ekki leitarstöðvar lúsar
Lúsin var skæð í Mýrarhúsaskóla
að sögn Ömu og sömuleiðis í
Grandaskóla, en lúsin virðist leggj-
ast misharkalega á hverfin og skól-
ana, þannig að sumir skólar virtust
sleppa nánast alveg en aðrir urðu
illa úti. „Þessi óværa virðist vera
komin til að vera, og hafa sumir
varpað fram þeirri kenningu að
aukin ferðalög fólks tii útlanda valdi
þessu. Böm em að koma úr sumar-
leyfum alveg fram á þennan dag og
sum jafnvel ekki komin,“ segir
Ama.
Hún bendir á að lúsin fari ekki í
manngreinarálit og geti stungið sér
niður hvar sem er. Fólk verði að
hafa hugfast að um vandamál heim-
ilanna sé að ræða, skólamir séu
ekki leitarstöðvar lúsar og þar sé
ekki grennslast eftir henni nema
um það sé beðið sérstaklega. „Við
mælum með því að foreldrar athugi
með vandlegri skoðun og kembingu
hvort böm þeirra séu með lús og
geri það reglulega," segir Arna.
Hún segir einnig hvíla á foreldr-
um að kenna bömum að gæta höf-
uðfata og setja þau í ermar og láta
fötin ekki liggja í einni hrúgu,
þannig að lúsin komist á milli húfa
eða úlpna.
Fer hratt og felur sig
„Lúsin er svo gríðarlega lúmsk
að hún getur búið um sig í hári
fólks án þess að einkenna gæti.
KASMÍR
SILKI
MERINOULL
frá John Laing
Verd frá
kr. 2.900
Síðkjólar frá
ARIELLA
Verð frá
kr. 7.900
tískuhús
Hverfisgötu 52
Sími 562 5110
Laugavegi 87
Sími 562 5112
Höfuðlús (Pediculus humanus
capitis) er ein þriggja tegunda
lúsa sem ásækja fólk. Bæði ung
og fullorðin dýr sjúga blóð með
hjálp sograna. Kvendýrið lifir í
um mánuð og getur á þeim tíma
orpið allt að 300 eggjum.
Þrettán sækja
um embætti
héraðsdómara
Flestir fá þó kláða, sem er ofnæm-
iseinkenni af svipuðu tagi og þegar
fólk verður fyrir flugnabiti. Lúsin
spýtir í hársvörðinn og deyfir hann
áður en hún hreiðrar um sig og
sýgur blóðið. Það er ekki auðvelt að
sjá lúsina, hún er á stærð við
sesamfræ eða eldspýtnahaus og er
mismunandi á litinn eftir því hvort
hún er nýbúin að borða eða ekki.
Hún flýgur ekki en hreyfir sig mjög
hratt, eða allt að 20 sentímetra á
mínútu, og kemst á milli kolla með
einhverjum ráðum. Nitin, eggin,
sem lúsin verpir, sjást hins vegar
betur, enda klekst eggið út eftir 7
til 11 daga,“ segir Arna.
Einnig beri foreldrum að kaupa
lúsameðul og sápu í lyfjaverslunum.
Landlæknisembættið hefur gefið
tilmæli um að ofnota ekki lyf gegn
lúsum og segir Arna að ekki þyki
lengur nauðsynlegt að lúsaþvo alla
á heimilinu, heldur eingöngu þá sem
reynast smitaðir af lús.
Mikilvæg tilkynningaskylda
„Foreldrar hafa líka það mikil-
væga hlutverk að tilkynna til skól-
ans, annaðhvort til kennara eða
hjúkrunarfræðings, ef lús kemur
upp á heimilinu, og sömuleiðis að
ræða við vinahópinn fyrir utan skól-
ann, enda stunda börnin íþróttir og
margs konar félagsstarfsemi aðra.
Þessi tilkynningaskylda er mjög
mikilvæg," segir hún.
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti héraðsdómara án fasts sætis
rann út 1. september sl. en fyrsta
starfsstöð væntanlegs dómara verð-
ur Héraðdómur Suðurlands. Emb-
ættið verður veitt frá 1. október
1999.
Um embættið sóttu: Arnfríður
Einarsdóttir, skrifstofustjóri Hér-
aðsdóms Reykjavíkur, Benedikt
Bogason, skrifstofustjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, Björn Bald-
ursson, lögfræðingur, Ingveldur
Einarsdóttir, settur héraðsdómari,
Júlíus B. Georgsson, settur héraðs-
dómari, Már Pétursson, aðstoðar-
maður saksóknara, Ragnheiður
Bragadóttir, settur héraðsdómari,
Ragnheiður Thorlacius, fulltrúi
sýslumannsins á Selfossi, Sigurður
Georgsson, hæstaréttarlögmaður,
Sigutjóna Símonardóttir, settur
héraðsdómari, Tryggvi Þórhallsson,
framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs
Hornafjarðar, Þorgerður Erlends-
dóttir, settur héraðsdómari og Þor-
steinn Pétursson, héraðsdómslög-
maður.