Morgunblaðið - 04.09.1999, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hitaveituframkvæmdum
í Stykkishólmi miðar vel
Stykkishólmi - Hitaveitufram-
kvæmdir, sem nú standa yfír í
Stykkishólmi, ganga vel. Að sögn
Óla Jóns Gunnarssonar, umsjónar-
manns verksins fyrir hönd Stykkis-
hólmsbæjar, eru framkvæmdir við
lagningu dreifikerfis um bæinn
mánuði á undan áætlun. Verktakar
við framkvæmdimar eru Borgai'-
verk hf. í Borgamesi og G.V. gröfur
á Akureyri. Næstu daga verður
byrjað að setja upp mæligrindur í
íbúðarhúsnæði. Gengið verður frá
götum og gangstéttum að nokkm
leyti í haust, en lokafrágangur bíður
næsta vors. Heitu vatni verður
hleypt á grunnskólann og hótelið í
næstu viku. I framhaldi af því verð-
ur hleypt vatni á íbúðarhúsnæði í
hluta bæjarins.
Óli Jón vill hvetja bæjarbúa til að
flýta framkvæmdum heima fyrir,
sérstaklega þá sem hafa þilofna svo
að flestir verði tilbúnir að taka við
hitaveitunni þegar vatninu verður
hleypt á.
Nú á dögunum var í heimsókn
tæknilegur ráðgjafi frá Evrópusam-
bandinu, ESB. Hann var hér til að
fylgjast með framkvæmdum við
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Forsvarsmenn hitaveitu Stykkishólms sem tóku á móti tækniráðgjafa
frá ESB: Níels Guðmundsson, Ólafur Hilmar Sverrisson, Peter Leding-
ham frá Bretlandi og Óli Jón Gunnarsson.
hitaveituna. ESB veitti styrk til hefur ekki verið virkjað á íslandi
framkvæmdarinnar vegna tækni- jafn salt vatn og kemur upp úr bor-
nýjunga við varmaskipti. Hingað tO holunni í Hofstaðalandi.
Morgunblaðið/Kristján
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var notuð á björgunarnámskeiði
Slysavamaskóla sjómanna á Akureyri í gær.
Slysavarnaskóli sjómanna á Akureyri
Einu sinni er
ekki nægilegt
SÆBJÖRG, skip Slysavamaskóla
sjómanna, liggur við bryggju á
Akureyri þessa dagana en þar
standa yfir námskeið lyrir sjómenn,
sem bæði eru bókleg og verkleg. Par
er farið yfir björgun úr sjó, öryggis-
mál og fleira. I gærdag voru tæplega
20 sjómenn á námskeiði og þótt
flestir þeirra væru af Eyjafjarðar-
svæðinu komu nokkrir lengra að.
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar var einnig notuð á námskeiðinu.
Hilmar Snorrason skólastjóri
slysavamaskólans sagði að sjómenn
væm skyldugir til að sækja slík
námskeið, jafnt fiskimenn, frakt-
menn og smábátasjómenn. „Þetta
er fyrsta námskeið eftir sumarleyfi
og við stefnum að því að vera næstu
vikumar á Norðurlandi og fömm
héðan tii Siglufjarðar. Aður vomm
við með námskeið í Ólafsfirði og á
Húsavík."
Hilmar sagði að eftir að tíma-
mörk vom sett á að sjómenn sæktu
slík námskeið fyrir rúmu ári, hafi
um 2.000 sjómenn skráð sig til þátt-
töku. Hann sagði unnið að því að
minnka biðlistann en í kjölfarið færi
í gang endurmenntun. „Það er ekki
nóg að læra þessi atriði einu sinni
og víða erlendis þurfa menn að
sækja námskeið aftur eftir 5 ár og
ég sé fyrir mér að eitthvað slíkt fyr-
irkomulag verði viðhaft hér á landi.“
A meðal verklegra þátta er björg-
un úr sjó. Hafa þyrlur Landhelgis-
gæslunnar komið þar að og kvað
Hilmar skólann hafa átt mjög gott
samstarf við Gæsluna. Hann sagði
það gífurlega mikilvægt fyrir sjó-
menn að vinna í nálægð við þyrlum-
ar. „Margir em smeykir við að fara
í sjóinn og að láta hífa sig upp í
þyrluna, en þeir hinir sömu em
fljótir að átta sig á hversu mikil
upplifun það er og sú reynsla lifir
lengi í minningunni.“
Bæjar-
stjóraskipti
í Stykkis-
hólmi
Stykkishólmi - Ólafur Hilmar
Sverrisson lét af störfum bæjar-
stjóra í Stykkishólmi um mánaða-
mótin. Eftirmaður hans í starfi er
Óli Jón Gunnarsson, fyrram bæjar-
stjóri í Borgarbyggð.
Ólafur Hilmar hefur verið bæjar-
stjóri í Stykkishólmi í 8 ár. Ólafur
segir að þessi tími hafi verið
skemmtilegur og lærdómsríkur. St-
arfið sé fjölbreytt og miklar fram-
kvæmdir hafi verið á tímabilinu.
Hann segir það hafa verið gaman að
vinna með og fyrir Hólmara. Upp
úr standi hversu góður andi hafi
ríkt innan bæjarstjómar allan tím-
ann; hún hafi verið góður bakhjarl
og einhuga um að vinna að hag bæj-
arins. Olafur Hilmar flytur til
Reykjavíkur og hefur verið ráðinn
forstöðumaður nýsköpunar- og þró-
unarsviðs Aburðarverksmiðjunnar.
Hinn nýi bæjarstjóri tók við 1.
september, en undanfama mánuði
hefur hann starfað í Stykkishólmi
sem umsjónarmaður með fram-
kvæmdum við hitaveitu bæjarins.
uottorð
Gæðavottorð frá
Frumherja staðfestir
framúrskarandi ástand
7 stjörnu bílanna.
Þetta er ein af sjö
ástæðum til að kaupa
sjö stjörnu bíl hjá B&L.
Fleiri ferðir
tii Akureyrar
Enn eykur íslandsflug þjónustu sína.
Nú höfum við bætt við fjórðu ferðinni
f síðdegisflugi til Akureyrar alla virka daga.
Frá Reykiavík Frá Akureyri
07:40
11:40
nýtt 15:40
18:40
08:45
12:45
16:45
19:45
Bílaland B&L • Grjóthélsi 1 • Sfmi 57S 1230
ISLANDSFLUG
gorír fteirum fært aö ftjúga
Morgunblaðið /Gunnlaugur Árnason
Nýi bæjarstjórinn í Stykkishólmi, Óli Jón Gunnarsson, er sestur í stól-
inn og tekur við lyklum að Ráðhúsinu úr hendi Ólafs Hilmars Sverris-
sonar sem lætur af störfum eftir að hafa gegnt stöðu bæjarstjóra í 8 ár.
Morgunblaðið/Líney
Amadeus gæðir
sér á skinku
Þórshöfn - Á Þórshöfn er að
finna hreinræktaða læðu af
persknesku kattarkyni. Nýlega
var fenginn inn á heimilið högni
af sama kyni, sem ber nafnið
Amadeus. Honum var fengið það
hlutverk að sjá svo um að fleiri
kettir af þessu fína kyni fæddust
í heiminn. Þessu hlutverki skilaði
hann með sóma því á næstu dögu
er von á kettlingum. Á meðan
beðið er gengur Amadeus um
með spekingssvip og lætur stjana
við sig. Uppáhaldsmaturinn hans
er skinka og það er Haukur sem
er að rétta honum góðgætið.