Morgunblaðið - 04.09.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 29
ERLENT
Kasparov hittir jafningja sinn fyrir í netskák
/
A í mesta basli
með heimsliðið
London. The Daily Telegraph.
Reuters
Garrí Kasparov, heimsraeistari í skák, á fréttamannafundi í London á
fimmtudag þar sem hann varð að viðurkenna að hann ætti í mesta
basli með heimsliðið.
GARRI Kasparov, heimsmeistari í
skák, viðurkenndi á fimmtudag að
hann hefði dvænt hitt fyrir jafn-
ingja sinn þegar hann settist nið-
ur að tafli með þrjár milljónir
skákáhugamanna um heim allan
sem andstæðing en skákin fer
fram á Netinu. Kasparov kveðst
þó enn sannfærður um að hann
hafi sigur, eða nái í það minnsta
að tryggja sér jafntefli.
Skákin hófst 21. júní síðastlið-
inn og btíið er að leika 38 Ieiki.
Hefur skákin þróast tít í
æsispennandi endatafl og segja
kunnugir að ómögnlegt sé að spá
fyrir um sigurvegara. Kasparov
hafði spáð því áður en skákin
hdfst að hann yrði btíinn að
tryggja sér sigur fyrir 1. septem-
ber en á fimmtudag varð hann að
viðurkenna að erfiðara myndi
reynast að innbyrða sigurinn en
til stóð í upphafi.
Skáksérfræðingar höfðu enn-
fremur spáð því í upphafi, þegar
stí hugmynd kom fyrst til tals að
heimsmeistarinn settist að tafli
við alla heimsbyggðina, að það
myndi vart taka Kasparov nema
25 leiki eða svo að tryggja sér sig-
ur, enda myndi heimsliðið senni-
lega gera einhver byijendamis-
tök.
Annað hefur komið á daginn
og á fimmtudag lýsti Kasparov
aðdáun sinni á glæsilegri leik-
fléttu sem heimsliðið undirbjó
og olli honum og aðstoðarmönn-
um hans mestu erfiðleikum.
Kasparov spáði því engu að síð-
ur að hann myndi annað hvort
vinna eða gera jafntefli. „Ef við
vinnum þessa skák verður það
frábær sigur ... Um þessa skák
niunu menn lengi ræða enda hér á
ferðinni ein áhugaverðasta skák í
sögu þessa forna leiks. Við leggj-
um til gæðin, heimsliðið magnið.“
Fólk frá 79 löndum hefur
tekið þátt í skákinni
Aldrei hafa fleiri tekið þátt í
sambærilegri keppni eins og í
þessari skák Kasparovs við
heimsliðið en meira en þijár millj-
ónir manna frá 79 löndum hafa
lagt til vænlega leiki. Skákin fer
fram á slóðinni www.zone.com og
gefst hvorum aðila um sig sólar-
hringur til að hugsa hvern leik.
Bestu hugmyndir að leikjum,
sem frá almenningi koma, auk
fjögurra leikja, sem fjórir sérlega
valdir skákmeistarar af yngri
kynslóðinni leggja í ptíkk, eru
birtir á Netinu og sá leikur, sem
fær flest atkvæði í vali netverja,
verður ofan á.
Den Danske Bank í vanda eftir dóm í Hafnia-málinu
Bankínn bótaskyldur vegna
brots á upplýsingaskyldu
Uppskerubrestur
í Eþíópíu
Hungurs-
neyð sögð
yfirvofandi
TALIÐ er að fimm milljónir manna
séu í bráðri hættu í Eþíópíu vegna
hungursneyðar sem talið er æ lík-
legra að skelli á innan skamms, í
kjölfar þess að miklir þurrkar ollu
algerum uppskei-ubresti á stórum
svæðum.
Þurrkarnir hafa vakið ótta manna
um að hungursneyð skelli á sem
verði sambærileg að umfangi og sú
sem olli bana átta hundruð þúsund
manns í Eþíópíu árið 1984. Bætir
sextán mánaða langt landastríð
Eþíópíu og Erítreu alls ekki úr skák.
Hjálparstarfsmenn á svæðinu hafa
varað við yfirvofandi hungursneyð
og segja aðstoð alþjóðasamfélagsins
bráðnauðsynlega. Ríkisstjórn Eþíóp-
íu sagði í júní að landið vantaði 350
þúsund tonn af matvælum hið fyrsta.
Telja hjálparstarfsmenn að enn
vanti 200 þúsund tonn eigi ekki illa
að fara.
Fréttaskýrendur segja að skýra
megi áhugaleysi umheimsins m.a.
með því að sjónir manna hafi nú um
langt skeið beinst að vandamálum
sem að steðja á Balkanskaga. Marg-
ir gagnrýna hins vegar að Eþíópíu-
stjórn skuli óska aðstoðar erlendra
ríkja á sama tíma og hún eyði einni
milljón bandaríkjadala, um 70 millj-
ónum ísl. króna, á ári í stríðsrekstur-
inn við Erítreu.
Kaupniannahöfn. Morgunblaðid.
EFTIR sjö ár komst Sjó- og verslun-
arrétturinn danski að því í gær að
Den Danske Bank og þrír endur-
skoðendur hefðu brotið lög um upp-
lýsingaskyldu er þeir samþykktu
upplýsingabækling um hlutafjárút-
boð Hafnia-tryggingafyrirtækisins
1992. Sex vikum eftir að fyrirtækið
hafði fengið inn 1,9 milljarða
danskra króna frá 871 smáfjárfesti
og fjölmörgum smáum og stórum
stofnanafjárfestum varð Hafnia
gjaldþrota og milljarðarnir glatað-
ir.“Okkur finnst þetta harður dóm-
ur,“ sagði Peter Straarup, banka-
stjóri Den Danske Bank, sem fór
með málefni Hafnia á sínum tíma.
Bankinn hefur ekki ákveðið hvort
dómnum verði áfrýjað.
Það hefur vakið athygli að það
voru tveir smáfjárfestar, þeir Ole
Steffensen og Henning Feilberg,
sem höfðuðu málið vegna hlutafjár-
kaupa upp á 22.500 annars vegar og
6.020 hins vegar. Stóru fjárfestarnir
hafa ekki hreyft sig og það er gjarn-
an túlkað sem svo að þeir hafi ekki
viljað storka Den Danske Bank, sem
er stærsti danski bankinn. í kjölfarið
munu smáfjárfestarnir vísast krefj-
ast síns hlutar, svo þar þarf bankinn
huganlega að reiða fram um 50 millj-
ónir danskra króna. Litlir lífeyris-
sjóðir misstu um 80 milljónir, þeir
stóru um 530 milljónir, auk þess sem
Den Danske Bank tapaði stórum
fjárhæðum.
Dómurinn undirstrikar að fjár-
festar eiga að geta tekið ákvörðun
um hlutafjárútboð á grundvelli út-
boðsgagna. Sérfræðingar benda á að
danski hlutafjármarkaðurinn hafi á
þessum tíma ekki verið fullburða
miðað við þann bandaríska, þar sem
ríkulega er gengið eftir að útboðs-
gögn séu rétt og þar sem það tæki
varla sjö ár að fá skorið úr svona
máli. Nú sé því slegið fast að upplýs-
ingarnar verði að standast.
I réttarhöldunum hefur líka feng-
ist innsýn í samspil bankans og
markaðarins og persónutengsl. Hins
vegar snertir dómurinn ekki hlut-
verk Fjármálaeftirlitsins danska í
málinu. Efth’litið er nú í rannsókn
hjá yfirvöldum fyrir þátt í ýmsum
fjármálahneykslum upp úr 1990, til
dæmis í Færeyjabankamálinu.
1,9 milljarðar danskra króna
dugðu í fjórar vikur
Tryggingafélagið Hafnia var eitt
þeirra fyrii’tækja, sem dafnaði vel á
uppgangstímunum í lok síðasta ára-
tugar og þandist gríðai’lega út. Með
samdrætti og fallandi hlutabréfa-
gengi snerist dæmið við og 1991 blés
alvarlega á móti, svo gripið var til
aðgerða, sem síðar kom í ljós að voru
ólöglegar og hafa orðið tilefni til
fyrri málaferla.
Þegar kom fram á sumar 1992
stóðu málin afar illa og þá ákvað fyr-
irtækið í samráði við Den Danske
Bank að efna til hlutafjárútboðs.
Endurskoðendur Hafnia útbjuggu
útboðsgögnin, sem Den Danske
Bank samþykkti. Þeir 1,9 milljarðar,
sem fyrirtækið fékk þá inn hurfu í
skuldahítina á um fjórum vikum,
meðal annars því hlutafjáreign fyrir-
tækisins í öðrum fyrirtækjum hríð-
féllu í verði og sex vikum seinna var
gjaldþrot ekki lengur umflúið.
Fjárfestarnir tveir héldu því fram
að í útboðsgögnunum hefði alls ekki
komið fram hve fyrirtækið stóð í
raun illa, meðan Den Danske Bank
og endurskoðendurnir héldu því
fram að með nákvæmum lestri
mætti sjá hver staða Hafnia var. í
gær dæmdi Sjó- og verslunarréttur-
inn að upplýsingarnar hefðu verið
misvísandi og bankinn ætti því að
greiða fjárfestunum tveimur þær
samtals 27 þúsund danskar krónur,
sem þeir töpuðu við gjaldþrotið.
Upphæðin, sem málið snerist um er
skiptimynt fyrir bankann, en afleið-
ingarnar gætu orðið miklar. Ljóst er
að aðrir smáfjárfestar munu nú
krefjast síns hluta og sama munu
hugsanlega stærri fjárfestar einnig
gera.
Hið áhugaverða er að sjá hvort
risafjárfestir á danska markaðnum,
„Lonmodtagernes dyrtidsfond“, LD,
muni einnig sækja sinn hlut í fang
bankans. Leitt hefur verið að því lík-
um að LD hafi í raun vitað um stöðu
Hafnia, en engu að síður tekið þátt í
útboðinu í von um að gjaldþroti yrði
afstýrt. Þetta myndi væntanlega
upplýsast í málaferlum, sem LD
hefði því ekki áhuga á. I gær sögðu
forráðamenn LD að dómurinn yrði
nú jesinn í kjölinn.
I samtali við danska útvarpið í
gær sagði Per H. Hansen sagnfræð-
ingur, sem skrifað hefur sögu Den
Danske Bank, dóminn athyglisverð-
an af ýmsum ástæðum. Bankinn
hefði gjarnan brugðið á loft þeirri
ímynd að hann væri samfélagsstólpi,
sem starfaði í þágu þjóðarinnar, en
dómurinn sýndi að bankinn væri
venjulegur banki, sem bæri fyrst og
fremst eigin hag fyrir brjósti.
Komdu á rýmingarsölu Sportkringlunnar og
gerðu betri kaup en nokkru sinni fyrr.
vörur með allt að 70% afslættí!
Komdu fyrr en seinna ef þú vilt ekki
missa af stóru tækifærunum.