Morgunblaðið - 04.09.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 33
NEYTENDUR
Verðkönnun á algengum neysluvör-
um í Vestur-Evrópu
Island dýrast
Mikill verðmunur er á algengum neysluvör-
um í löndum Vestur-Evrópu samkvæmt
könnun tímaritsins Time. Sigríður Dögg
Auðunsdóttir kannaði verð á sömu vörum
hérlendis og komst að því að í nær öllum til-
✓
fellum er verðlagning hærri á Islandi en
annars staðar í Evrópu.
MEÐ tilkomu evrunnar verða fjöl-
mörg ríki Evrópu að einum við-
skiptamarkaði. Því hefur verið spáð
að það verði til þess að verðmunur
milli landa í Evrópu minnki og verð-
lag lækki. Bandaríska tímaritið
Time lét á dögunum kanna verð á
nokkrum vörutegundum í löndum í
vestanverðri Evrópu með það að
markmiði að finna hæsta og lægsta
verðið svo hægt væri að sýna fram á
þann verðmun sem ríkir í löndum í
Vestur-Evrópu.
Heildsalar taldir mismuna
mörkuðum
Könnunin leiddi í ljós töluverðan
verðmun. Mismunur miUi landa á
leiguverði á verslunarhúsnæði og
mismikill launakostnaður er ekki
talinn skýra verðmuninn. Heild-
salamir eru taldir bera mesta
ábyrgð. Þeir geti sett upp mismun-
andi verð eftir löndum og halda því
eins háu og markaður hvers lands
getur borið.
Time segir þó útlit fyrir að þetta
breytist með tilkomu hinnar sam-
eiginlegu myntar í ríkjum mynt-
bandalagsins. Breytt samkeppnis-
staða heildsala í kjölfar sameiningu
markaða í Evrópu er einnig talin
leiða til þess að verðmunur minnki.
Þá er búist við því að Netið auðveldi
neytendum að gera samanburð á
verði í ýmsum löndum og kaupa
vöru þar sem hún er ódýrust.
Til samanburðar við könnun
Time athugaði Morgunblaðið verð á
sömu vöru á Islandi og kom í ljós að
með einni undantekningu eru þær
dýrari á Islandi en annars staðar í
Evrópu. Munurinn er mismikill en
alltaf marktækur. Upplýsingar
voru fengnar hjá fimm verslunum á
höfuðborgarsvæðinu og viðmiðun-
arverðið er meðaltal úr þeim.
Niðurstöðurnar eru sýndar á mynd-
inni hér til hliðar.
Nokkrir þeirra innflytjenda sem
haft var samband við gáfu þær
skýringar að heildsalar erlendis
seldu vöruna á mismunandi verði til
landa. Lönd væru flokkuð eftir
markaðsaðstæðum hvers ríkis og
væri Island í sama flokki og hin
Norðurlöndin .. Þeir töldu verðlag-
ningu á Islandi yfirleitt sambæri-
lega við það sem gerðist á Norður-
löndunum. Hins vegar væri
heildsöluverð lægj'a til margra
landa annars staðar í Evrópu og því
erfitt að bera lönd innan Evrópu
saman á þennan hátt.
Kók 150% dýrara hér
Samanburðurinn leiddi í ljós að
tveggja lítra flaska af Coca-Cola er
153% dýrari hér en í Madríd og 30%
dýrari en í London. Að sögn Þor-
steins M. Jónssonar, forstjóra Vífil-
fells, framleiðanda Coca-Cola á Is-
landi, koma þessar niðurstöður
honum á óvart. Hann segist hafa
ákveðnar efasemdir um aðferða-
fræði könnunar Time því að verðið á
kóki sem gefið er upp fyrir Madríd
er ekki það sem viðgengst þar al-
mennt. „Það þarf að vinna mikla
grunnvinnu til þess að samanburð-
ur sem þessi sé marktækur. Réttast
væri að skoða vöruverð þegar búið
er að draga frá öll gjöld og skatta
sem lagðir eru á vöruna og enn-
fremur að taka tillit til þess að flutn-
ingskostnaður er mis hár.“
Hann segir að í Englandi séu 70-
80% gosdrykkja seld á tilboðsverði
og ef tilboðið er reiknað inn í meðal-
verðá kóki í London skekki það
óneitanlega myndina. Hann segir
verð á gosdrykkjum á íslandi fylli-
lega sambærilegt við verð á hinum
Norðurlöndunum og undrar sig á
því að Time komist að þeirri niður-
stöðu að verð á kóki sé hærra í Lon-
don en Kaupmannahöfn. „Kók er
reyndar einungis selt í 1,5 lítra
flöskum í Kaupmannahöfn en er
samt sem áður hlutfallslega dýrara
en hér á landi.“
Þorsteinn segir jafnlramt að
þrátt fyrir að kók sé framleitt hér á
Islandi þurfi meðal annars að flytja
bragðefni og sykur til landsins og að
flutningskostnaður sé meiri hér en í
flestum ríkjum Evrópu. „Ennfrem-
ur búum við við hærri virðisauka-
skatt en tíðkast og vörugjald af
sykrinum nemur um 8 kr. á hvem
lítraaf kóki.“
Hann nefnir einnig aðvegna þess
hve markaðurinn á Islandi er lítill
er framleiðslan óhagkvæmari. Auk
þess segir hann launakostnað hér
meiri en annars staðar. „Þegar allt
er talið saman kemst ég að þeirri
niðurstöðu að það er ekki óeðlilegur
munur á verði hér og annars stað-
ar.“
Hærra verð vegna smæðar
íslenska markaðarins
Ragnar Birgisson, framkvæmda-
stjóri Skífunnar, bendir, líkt og Þor-
steinn, á smæð íslenska markað-
arins og háan innflutningskostnað
sem skýringu á verðmuninum.
„Þótt ég viti ekki nákvæmlega hvað
álagningin er há í öðmm löndum
geng ég út frá því að þar séu menn
sáttir við lægri álagningu en tíðkast
hér á landi því þeir selja mun fleiri
eintök af hverri vöm. Það segir sig
sjálft að hlutfallslega meiri kostnað-
ur fylgir minni markaði og í raun er
ég hissa á því hvað París er dýr.“
Hann segist ekki hafa svar við því
hvers vegna verð á geisladiskum á
Spáni sé svo lágt og segir að Skífan
miði verðlagningu sína við verslanir
á Englandi.
Gillette-vörur oft seldar undir
innkaupsverði í verslunum
Að sögn Pálma Pálmasonar,
markaðsstjóra hjá Globus hf. sem
flytur inn Gillette-vörur, er skýring-
in á verðmuninum á Gillette-rakvél
helst sú að varan hefur einungis
verið á markaði í 10 mánuði. „Viða
um lönd er Gillette Mach 3 gífur-
lega mikið auglýst. Það gerir vör-
una eftirsótta og verslanakeðjur,
bæði erlendis og hér heima hafa tal-
ið ávinning í því að selja vöruna á
mjög lágu tilboðsverði, eða til lengri
tíma á mjög hagstæðu verði sem er
langt undir því sem Mach 3 býðst
frá Gillette. Sama hefur gerst hér.“
Hjá Hans Petersen, sem flytur
inn Kodak-vörur, fengust þær upp-
lýsingar að hætt væri að flytja inn
Kodak ultra filmur tvær og tvær
saman í pakka því verð á þeim hefði
verið óhagstætt. Þess í stað væri nú
á boðstólum pakki með þremur
filmum sem kosta 1.185 kr. Tveggja
filmna pakkningin var enn fáanleg í
örfáum verslunum þar sem hún var
á sama verði og pakki með þremur,
1.185 kr.
RAKVEL:
GILLETTE MACH 3
Hæsta verð: London, 581 kr.
Lægsta verð: París, 476 kr.
Reykjavík: 792 kr.
Morgunblaðið/Kristinn
GEISLADISKUR: 1
U2 - BEST OF1980-1990
Hæsta verð: París, 1.806 kr.
Lægsta verð: Madríd, 1.227 kr.
Reykjavík: 2.099 kr.
TOLVA:
APPLE iMac
Hæsta verð: Róm, 120.350 kr.
Lægsta verð: London, 107.626 kr.
Reykjavík: 129.900 kr.
Kodak
FILMA: 1
KODAK GOLD ULTRA '
2 stk., 24 myndir
Hæsta verð: París, 855 kr.
Lægsta verð: Brussel, 575 kr.
Reykjavík: 1.185 kr.
RAFHLOÐUR:
DURACELL
4 stk. í pakka af stærðinni AA
Hæsta verð: Stokkhólmur, 684 kr.
Lægsta verð: Madríd, 245 kr.
Reykjavík: 345 kr.
LEVI'S 501GALLABUXUR
Hæsta verð: Frankfurt, 6.315 kr.
Lægsta verð: Amsterdam, 4.217 kr.
Reykjavík: 6.990 kr.
COCA COLA 2L
Hæsta verð: London, 148 kr.
Lægsta verð: Madrtd, 78 kr.
Reykjavik: 193 kr.
Hlutfallslegur verðmunur á milli Reykjavíkur og borga í Vestur-Evrópu Hærra en lægsta verð Hærra en hæsta verð
Gillette Mach 3 rakvél 66% 36%
Kodak Gold Ultra 2 stk, 24 myndir
Levi's 501 gallabuxur 65% 11%
Apple iMac tölva 21% 8%
Duracell Rafhlöður af stærð AA, 4 í pakka 40% -
Geisladiskur, U2-Best of 1980-1990 71% 16%
Coca Cola 21 153% 30%