Morgunblaðið - 04.09.1999, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 43 *
MARGMIÐLUN
Ekki miklir
möguleikar
tHvaðan
Geo?
I UPPHAFI níunda áratugarins
var Neo Geo ein fullkomnasta
leikjatölva sem völ var á til heim-
ilisbrúks, með öfluga grafíkör-
gjörva, framúrskarandi hljóð-
vinnslu og góða leiki. Þrátt fyrir
þetta fór tölvan halloka fyrir ris-
unum Sega og Nintendo, meðal
annars fyrir það hvað hún var
dýr, mun dýrari en keppinaut-
arnir. Ekki má þó skilja þetta
sem svo að hún hafi horfíð ger-
samlega, því enn er verið að
framleiða leiki fyrir hana níu ár-
um eftir að hún kom fyrst fram.
Einnig var til lófatölva með
svarthvítum skjá og því allfrá-
brugðin þeirri tölvu sem nú er til
sölu í BT.
Neo Geo-tölvan
hefur ýmislegt
fram yfir Game
Boy Color og ekki
minnst um vert að
hún er talsvert
ódýrari.
halda vel á spöðunum ætli þeir að
ógna yfirburðum Nintendo, en þeir
hafa líka góða leiki í fórum sínum,
nefni sem dæmi skotleikinn eftir-
minnilega Metal Slug, sem var góð-
ur á gömlu vélinni og kemur vel út
á þeirri litlu, slagsmálaleikina Fa-
tal Fury og King of Fighters, en sá
síðarnefndi er sérlega vel heppnað-
ur, Puzzle Bobble, sem höfðar til
yngri leikenda, fótboltaleikurinn
Neogeo Cup, sem kemur merki-
lega vel út á svo litlum skjá og loks
Bust-A-Move, bráðeinfaldur en
spennandi leikur sem hentar fyrir
notendur á öllum aldri. BT hefur
orðið sér úti um umboð fyrir Neo
Geo Pocket-tölvuna.
LEIKIR
G-I‘olice: Weapons
of Justice
Leikjafyrirtækið Psygnosis gaf
nýlega út framhald hins geysivinsæla
G Police. Leikurinn ber heitið
G-Police: Weapons of Justice
og er flugleikur í þrívfdd.
í LEIKNUM tekur spilandinn
sér hlutverk ungs þyrluflugmanns
einhvem tímann í framtíðinni,
stjórnleysi ríkir og verkefni lög-
reglumannanna er að stöðva stríð
milli gengja borgarinnar.
Borð leiksins em fjölmörg og
snúast flest um að passa upp á
flutningalestir eða sprengja viss
óvinaskotmörk. Mikil fjölbreytni
einkennir leikinn og sjaldgæft er að
lenda á tveim svipuðum verkefnum í
röð.
Stjóm leiksins er frekar flókin og
kemst spilandinn ekki almennilega
upp á lagið fyrr enn í seinni borðum
hans. Mun þægilegra er að nota Du-
al Shock en venjulega fjarstýringu.
Grafík leiksins er nær nákvæm-
lega eins og í fyrri leiknum og telst
varla með kostum hans; ef flogið er
of nálægt hlutum á tölvan það til að
hægja á sér sökum þess hversu
grófkomótt allt er.
Hljóð em nokkuð vel gerð en eiga
það til að vera örlítið á eftir. Einnig
vii'ðast sömu hljóðin koma úr öllum
vopnum. Vopnin era annars afar
fjölbreytt og breytast stöðugt milli
borða. Psygnosis hefur hugað vel að
smáatriðunum því ef of lengi er
skotið úr sama vopninu ofhitnár það
og festist í stutta stund.
Ef leikurinn hefði komið út fyrir
um tveim árum, þegar framleiðend-
um leikja fyrir Playstation hafði
ekki tekist að nýta tölvuna jafnvel
og gert er í dag, hefði G-Police 2:
Weapons Of Justice án vafa slegið í
gegn. I dag á hann hinsvegar ekki
mikla möguleika á velgengni.
Ingvi Matthías Arnason
Nýstár-
leg
skjala-
verslun
í LEIT AÐ viðskiptavinum á
Netinu er ýmsum brögðum
beitt. Einna best hefur gengið
að selja bækur, en engum tek-
ist að skáka Amazon sem hefur
algjöra yfirburði á bóksölu-
markaði á Netinu. Meðal keppi-
nauta Amazon var Fat-
brain.com, sem lagði áherslu á
að vera með vandaðar fræði- og
vísindabækur og aðeins selja
bestu bækur um hvert viðfang.
Fatbrain gekk ekki nema
miðlungsvel og í vikunni kynnti
fyrirtækið nýjar leiðir í bóksölu
til að finna sér stað á Netinu,
fyrirbæri sem það kallar
eMatter og byggist á því að
Fatbrain tekur að sér umboðs-
sölu á allskyns efni í rafrænu
formi. Stjórar verslunarinnar
segjast sjá það fyrir sér að inn
muni streyma ýmislegt fræði-
efni sem ekki hefur borgað sig
að gefa út á pappír, til að
mynda háskólaritgerðir og
skýrslur sem gerðar era fyrir
fyrirtæki, en einnig muni ýmis
tímarit bjóða til sölu sérprent
úr eldri eintökum. Eigendur
efnisins, sem ákveða sjálfir
verð skjalanna, fá 50% höfund-
arréttargreiðslu af hverju seldu
eintaki, enda er kostnaður nán-
ast enginn, en Fatbrain fær
líka eitthvað fyrir sinn snúð. Til
að byrja með afsalar Fatbrain
sér þó allri söluþóknun.
Að sögn Fatbrain-manna hef-
ur fram til þessa ekki borgað
sig að selja texta sem nemur
kannski ekki nema nokkram
tugum síðna þó margir vildu
komast yfir hann, en með högun
þeirra geti fyrirtæki og einstak-
lingar keypt sér minni skjöl og
prentað út eftir þörfum.
450MHz
pentium®#/;
Þessi vél inniheldur Pentium III, nýjasta örgjörinn frá Intel. Plll
er sérhannaður fyrir internetið! Targa eru þýskar hágæðavélar
m || sem hafa hlotið lof fyrir góða hönnun
¥ clf |3f og lága bilanatíðni.
1 • 450 Mhz Intel Pentium III
Í *l • BX Móðurborð
2 JIIJ • 64 MB innra minni
U‘ii harður diskur
cjakort • 16 MB RIVA TNT 3D skjákort
• 17"Targa skjár
• 32 hraða geisladrif
a / • 16 bita hljóðkort
(1/| / • Hátalarar
/ • 56 KB mótald
f • 2ja mánaða internetáskrift
• Windows lyklaborð og mús
• Windows 98 uppsett og á CD
16 bita - tvisvar sinnum betri en aðrar lófavélar!
Nýjasta leikjaundrið. Leikjatölva sem þú stingur í vasann.
Stór litaskjár, meiri upplausn, fleiri litir og meiri hraði.
pentiuiwf//
Sama vél með
flottum 19“ Targa
skjá kostar aðeins
kr. 15.000 í viðbót!
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444 • BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020