Morgunblaðið - 04.09.1999, Side 46

Morgunblaðið - 04.09.1999, Side 46
46 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 *---------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir, afí og langafi, FRIÐFINNUR S. ÁRNASON, Aðalstræti 13, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 6. september kl. 13.30. María Magnúsdóttir, Jónína Friðfinnsdóttir, Hallgrímur Þorsteinsson, S. Dröfn Friðfinnsdóttir, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Jóhanna Friðfinnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ADOLF DAVÍÐSSON, Hlíðargötu 10, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð miðvikudaginn 1. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 7. september kl. 13.30. Kristín Pétursdóttir, Númi Adolfsson, Guðmundur Adolfsson, Helga Adolfsdóttir og fjölskyldur. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA SIGURMUNDSDÓTTIR, Volaseli, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði mið- vikudaginn 25. ágúst, verður jarðsungin frá Stafafellskirkju í dag, laugardaginn 4. septem- ber, kl. 11.00. Benedikt Egilsson, Helga Óladóttir, Guðný Egilsdóttir, Sigurður Einarsson, Kristín Egilsdóttir, Víðir Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs frænda okkar, GUÐMUNDAR MARGEIRS GUÐMUNDSSONAR, Miðtúni 50, Reykjavík. Guðmundur Elías Níelsson, Karólína Guðmundsdóttir, Elsa Margrét Níelsdóttir, Jacob A. de Ridder, Guðmundur Margeir Skúlason, Skúli Lárus Skúlason, Sigrún Ólafsdóttir, Ingi Þór Skúlason, Björk Gfsladóttir. + Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR VILMUNDSDÓTTUR, Hjallabraut 33. Jóakim Pétursson, Pétur Jóakimsson, Sigurður Jóakimsson, Kristrún Böðvarsdóttir, Jóhann U. Sigurðsson, Kristín Þórsdóttir, Guðmundur B. Sigurðsson, Þórhildur Scheving, Fjóla Sigrún Sigurðardóttir, Jóakim Jóhannsson. + Sesselja Guð- finnsdóttir fæddist í Baldurs- haga, Borgarfírði eystra, 11. desem- ber 1929. Hún lést á Landspítalanum 27. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjón- in Jóhann Guð- fínnur Halldórs- son, f. 8.7.1893 að Ekkjufellsseli í Fellum, d. 24.12. 1973, og Sigþrúð- ur Björg Helga- dóttir, f. 3.10. 1890 í Njarðvík Borgarfírði eystra, d. 5.5.1943. Bræður hennar eru Helgi, f. 10.1. 1921, og Halldór, f. 4.5. 1923. í byrjun árs 1958 hóf Sesselja búskap með eftirlifandi eigin- manni sínum Sigurði Bóassyni, f. 13.2.1929 að Borg í Njarðvík Borgarfírði eystra. Þau eign- uðust fjögur böm: 1) Björg, f. 24.3. 1958, maki Páll Haralds- son, f. 13.7. 1958, börn þeirra Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver, sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu.“ (Jóh. 11.25- 26.) Elsku mamma mín. Nú hefur þú yfirgefið þennan heim og skilið eft- ir þig stórt tómarúm. Síðustu tveir mánuðir eru búnir að vera okkur fjölskyldu þinni erfiðir, alltaf varst þú veikari og veikari án þess að nokkuð væri hægt að gera. Þrátt fyrir stanslausar rannsóknir kunnu læknavísindin engin svör. En að- eins nokkrum dögum fyrir andlát þitt kom sjúkdómsgreiningin, en þá hafði hinn illvígi sjúkdómur heltek- ið þig alla og ekkert varð við ráðið. Allan þennan tíma á spítalanum heyrði ég þig aldrei kvarta, en þér fannst tíminn orðinn langur og þú þyrftir að fara að komast heim í sveitina þína. í hvert skipti sem ég kom til þín á spítalann var fyrsta spurningin, „hefur þú heyrt í ein- hverjum að austan?“ Þér var svo sannarlega umhugað um sveitina þína Borgarfjörð eystri, enda hafð- ir þú eytt allri ævi þinni þar. Þitt ævihlutverk var húsmóður- starfið, ásamt öllum þeim verkum sem tilheyra því að búa í sveit. Oft var mannmargt á heimilinu, sér- staklega á sumrin. Alltaf varst þú fyrst á fætur á morgnana og fórst síðust í háttinn á kvöldin. Þú saum- aðir og prjónaðir á okkur krakkana og síðar meir á bamabömin þín. Öll eiga þau prjónaðar flíkur eftir ömmu í sveitinni. Þegar við systkinin voram lítil fórst þú oft með okkur í gönguferð- ir út á sand að tína steina, sem vora síðan flokkaðir þegar heim var komið eða sorteraðir eins og við kölluðum það. Einnig fóram við í blómaferðir, þá vora tínd blóm, sem voru þurrkuð og pressuð. Nokkrar fallegar myndir era til eftir þig úr þurrkuðum blómum. Þessar ferðir era mér dýrmæt minning. Þið pabbi fórað í ykkar fyrstu ut- anlandsferð í apríl síðastliðnum. Þú talaðir mikið um þessa ferð og sagðist geta hugsað þér að fara í fleiri slíkar ferðir. En nú ert þú far- in í aðra ferð, ferðina löngu, sem liggur fyrir okkur öllum að fara í einhvem tímann. Elsku mamma mín, nú ert þú laus við allar þjáningamar og kom- Dilbert á Netinu yAÖmbl.is _ALL.~TAf= EITTHV'AO MÝTT eru Ragnhildur Guð- rún, f. 8.6. 1979, Sig- urður Bóas, f. 18.8. 1980, maki Margrét B. Hjarðar, f. 1.11. 1963, börn þeirra eru Guðfinna, f. 16.10. 1987, Anna Margrét, f. 22.8. 1990, Sigurður, f. 17.5.1994. 3) Jóhann Helgi, f. 18.11. 1960. 4) Oskírð stúlka, f. 12.10.1963, d. 14.10. 1963. Fyrir átti Sess- elja Jón Helgason, f. 12.2. 1954, maki Kristjana Björnsdóttir, f. 12.6. 1958, börn þeirra eru Magnús, f. 13.9.1976, og Þórey Birna, f. 10.12. 1983. Sesselja starfaði alla sina ævi við búskap, ásamt því ráku þau hjónin bændagist- ingu síðustu árin. Útför Sesselju verður gerð frá Bakkagerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Kveðjuathöfn fór fram í Foss- vogskapellu miðvikudaginn 1. september. in aftur heim í sveitina þína. Við fá- um ekki lengur að njóta samvista við þig hér í þessu lífi. Það verður tómlegt að koma austur, en ég veit að þú munt ætíð vera nálægt og fylgjast með okkur. Megi Guð varðveita þig og geyma og gefa pabba og okkur öll- um styrk í þessari þungu sorg. Hvíl í friði, elsku mamma mín. Með þessum orðum kveð ég þig. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt. Þig umveíji blessun og bænir égbið aðþúsofirrótt. Þó svíði nú sorg mitt þjarta þásælteraðvitaafþví, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þ.S.) Blessuð sé minning þín. Þín dóttir Björg. Mig langar til að kveðja elsku- lega tengdamóður mína með nokkram orðum. Upp í hugann koma margar góð- ar minningar á þeim rúmlega 20 ár- um frá því ég kom inn í fjölskyld- una. Okkar fyrstu kynni vora þegar þú komst til Reykjavíkur til að sjá nýfædda dóttur okkar um vorið 1979 og þú dvaldir hjá okkur þar sem við bjuggum hjá foreldram mínum. Enda löng leið á milli Borg- arfjarðar eystri og Reykjavíkur. Haustið 1979 fluttumst við Björg með dóttur okkar aðeins nokkurra mánaða gamla til Borgarfjarðar eystri. Ég man hvað ég var spennt- ur, því ég hafði ekki komið til Borg- arfjarðar áður. Þegar komið var á staðinn fann ég strax bæði hlýju og kærleika ykkar Sigga tengdapabba streyma til mín. Við höfðum tekið að okkur kennslustörf við grunn- skólann þar. Þá var að mörgu að hyggja, enda voram við að stofna okkar fyrsta heimili og þú Sella mín, lást ekki á liði þínu. Alltaf til- búin að þjálpa okkur og ráðleggja við að undirbúa heimilið fyrir litlu fjölskylduna. Þá kynntist ég strax þínum góðu kostum. Gamla sófa- settið, sem við höfðum fengið frá foreldram mínum og þurfti að laga aðeins til. Það endaði með því að við lágum mörg kvöld við bólstran og saumaskap, þá kom berlega í ljós hversu lagin og útsjónarsöm saumakona þú varst. Sófasettið reyndist okkur vel í mörg ár. í slát- urgerðinni og að safta berin um haustið kom kunnátta þín berlega í ljós við matargerðina, enda varst þú ekki gömul þegar þú þurftir að byrja að sjá um heimili fyrir föður þinn. Þann tíma sem við bjuggum á Borgarfirði komum við og dvöldum hjá ykkur Sigga allar helgar. Ég kom oft í fjósið til þín, þar sem þú varst að mjólka kýmar því ég hef ætíð haft dálæti á kúm. Þegar ég vildi mjólka fýrir þig, sennilega til að sýna að eitthvað væri spunnið í tengdasoninn, þá sagðir þú að þetta væru verk sem karlmennimir væru ekki spenntir fyrir hér. Alltaf varstu tilbúin með hafragrautinn á morgnana. Og einu sinni þurfti ég að fara á námskeið sem var haldið á Eiðum vegna kennslunnar. Ég þurfti að leggja snemma af stað og auðvitað varst þú komin á fætur til að útbúa hafragrautinn. Ég hugsa oft til þessa dásamlega tíma í lífi okkar. Þetta var mjög framandi fyrir mig. Samfélagið á Borgarfirði var svo ólíkt borgar- samfélaginu, ekkert stress, allir höfðu ætíð tíma til þess að rabba saman. Þú varst myndarleg húsmóðir og heimili ykkar hjóna hreinlegt- og fallegt. A sumrin var oft tíður gestagangur og voruð þið hjónin samrýnd í að taka vel á móti öllum, þá var oft nýr silungur á borðum. Þú vildir þjóna öðrum frekar en láta snúast í kringum þig. Þú varst einstaklega orðvör og trúuð kona en þær tilfinningar barst þú ekki á torg frekar en aðrar. Þegar við Björg giftum okkur og létum skíra Sigurð Bóas, þá komst þú og hjálpaðir okkur ásamt móður minni við undirbúninginn. Við minnumst þess tíma með þakklæti oghlýhug. Ég minnist þess einnig er ég var í mínu háskólanámi og þú færðir mér lestrarlampa. Þér hefur vænt- anlega fundist að ég hefði ekki nógu gott ljós. Svona varst þú Sella mín og nú ert þú farin yfir móðuna miklu. Ekki hefði maður trúað því að vera þín hér á meðal vor ætti ekki eftir að verða lengri. Vegir lífsins eru órannsakanlegir. Megi góður guð styrkja okkur öll í þessari miklu sorg. Hvíl þú í friði og blessuð sé minn- ing þín, Sella mín. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúíylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Páll Haraldsson. Mig langar að minnast Sellu eða ömmu í sveitinni eins og ég kallaði hana. Þetta er kona sem mér þótti mjög vænt um. Hún var mér sem amma á sumrin þegar ég var fyrir austan í sveitinni. Þegar ég var fimm ára fór ég í fyrsta skiptið ein í sveitina til að heimsækja Möggu og Kobba, þá þótti mér gott að hafa ömmu í sama túni. Gaman þótti mér þegar amma hringdi og bað um hjálp til að snúa kleinum með henni. Þá hlupum við Guðfinna iðulega til og brettum upp ermamar, því amma bað um hjálp, að launum fengum við mjólk og heitar kleinur, sem mér þótti of- boðslega góðar. Stundum fékk ég að fara með henni í hænsnahúsið og gefa hænunum, og tína eggin í leið- inni. Hún var mjög hress og ákveðin manneskja og lét ekkert stoppa sig ef eitthvað var fram undan. En nú í sumar þegar ég fór í sveitina var mér sagt að hún hefði farið á sjúkrahús. Það þótti mér leitt að heyra. Þegar ég kom til Reykjavík- ur heimsótti ég hana á Landspítal- ann, þá var hún svo hress. Þegar mamma sagði mér svo að Sella væri látin tók það mjög á mig vegna þess að hún var mér mjög kær. Vor hinsti dagur er hniginn afhimnumísaltanmar. Sú stund kemur aldrei aftur, semeinusinnivar. Því okkur var skapað að skilja. Við skiþ'um. Og aidrei meir. Það líf kemur aldrei aftur, sem einu sinni deyr. (Halldór Laxness.) Elsku afi Siggi, börn og bama- börn, megi Guð gefa ykkur huggun og styrk í þessari miklu sorg. Steinunn Þuríður. SESSELJA GUÐFINNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.