Morgunblaðið - 04.09.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 55
Flug úti
í mj?ri
Á
hundadaga 1999 var
skrifað undir samning
um nýbyggingu flug-
vallar í mýrinni, hér
sunnanvert í landi
Reykjavíkur. Sam-
gönguráðherra tjáði
sig fjálglega - að hætti
konunga - um hvemig
hann gæti hugsað sér
framtíðarskipulag sam-
gangna innan Reykja-
víkurkjördæmis. Ráð-
herra kemur úr Vest-
urlandskjördæmi en
þar mun nokkuð löng
hefð fyrir því að hafa
mótaðar skoðanir á
framkvæmdum ýmsum. Trúr
þeirri hefð varð honum ekki skota-
skuld úr að diktera um á hvern veg
umhverfi Perlunnar skyldi líta út
til framtíðar. Ráðherra lýsti þeirri
skoðun sinni að við Hlíðarfót skyldi
rísa ein allsherjar umferðarmið-
stöð iyrir áætlunarbfla, hópbfla,
flugvélar, strætisvagna og þá lík-
lega leigubfla einnig. Honum virð-
ist andskotans eitt um hvort íbúum
Reykjavíkurkjördæmis er þessi
framtíðarsýn hugnanleg eða ekki.
Hann ætlar að vaða yfir kjósendur
kjördæmisins að sama. Vonandi
verður fyrsti þingmaður Reykvík-
inga til varnar okkur og slær þess-
um framkvæmdum öllum á frest.
Flugvallarmál
Reykvíkingar hljóta nú
þennan refsidóm til
ársins 2016, segir
Bjarni Kjartansson, að
hafa flugvöll í hjarta
borgarinnar.
Þó ekki væri nema vegna stöðug-
leikans og ofþenslu í verklegum
framkvæmdum á höfuðborgar-
svæðinu. Það mætti hugsa sér að
leggja slitlag ofan á núverandi und-
irlag, svona sem millileik í stöð-
unni. Slíkt kvað ekki kosta „nema“
um 200 milljónir.
Skratti voru þeir nú brjóstum-
kennanlegir þarna í næðingnum
við stélið á „Þristinum“. Og það var
pínlega táknrænt að hafa vél úr
stríðinu sem umgjörð um þennan
gjöming, bæði vélin og þeir sem
samninginn gerðu í álíka takti við
tímann.
Ráðherra sagði í viðtali við aðra
sjónvarpsstöðina að það væri að
vísu ekki í sínu valdi að segja til um
hvar flugvöllur ætti að vera í landi
Reykjavíkur, heldur væri það á
valdsviði borgarstjómar, en eins
og nú væri komið hefði borgar-
stjórn ákveðið að völlurinn yrði
þarna - og eftir kléna málhvfld hjá
ráðherra kom snöggt „lengi“. Þetta
lengi er 17 ár hið lengsta, því eftir
þann tíma kemur annað aðalskipu-
lag og verður þá örugglega kveðið
á um að völlurinn fari burt, hugs-
anlega fyrr.
Akveðinn hroki kemur fram í
viðtali við bæjarstjóra Egilsstaða í
Degi, þar sem hann telur það ekki
einkamál okkar sem hér búum
hvort hér verði flugvöllur eða ekki.
Bæjarstjórinn krefst þess að at-
kvæðagreiðsla fari fram um allt
land um málið. í sama viðtali send-
ir hann þeim íbúum Reykjavíkur
tóninn sem vogað hafa sér að hafa
skoðun á víðernismálum á hálendi
Islands. Bæjarstjórinn telur það
kláran slettirekuskap í virkjunar-
mál Austfirðinga. - Þá er bara að
athuga um atkvæðavægi og verður
þá næsta krafa skoðanabræðra
hans að líkt verði um
atkvæðavægi og er til
Alþingiskosninga.
Onnur not
Sá framsýni maður
Kári Stefánsson í ís-
lenskri erfðagreiningu
hefur að sögn háskóla-
rektors falast eftir lóð
undir nýbyggingu fyrir
fyrirtæki sitt á svæði
Háskólans í Vatnsmýr-
inni. Rektor tjáði hon-
um, því miður, að ekki
væri pláss á því svæði
sem skólinn hefði til yf-
irráða við mýrina en lét
þess jafnframt getið að
það væri fögur framtíðarsýn ef
fengist gott svæði fyrir byggingar
tengdar vísindum og hugviti
einmitt á þessu svæði. Eitthvað
rifjaðist upp með mér í því sam-
bandi sýn fyrri aldamótakynslóðar
um Háborg vísinda og þekkingar
ekki langt þarna frá, eða á Skóla-
vörðuholtinu.
Það er svosem ofætlan til manna
sem fara með samgöngumál tíma-
bundið að þeir hugsi fram, svo sem
nokkur ár. Það er svo miklu auð-
veldara, að vera sporgöngumaður
og þurfa ekki að ryðja neinar
brautir sjálfur, heldur setjast bara
í volgt rassfar, láta fara vel um sig
og hugsa bara eitt kjörtímabil í
einu, jafnvel knappt það.
Kerfis-hvað?
Skýrsla borgarskipulags um fyll-
ingar út í sjó við Reykjavík, bæði
til flugvallargerðar og íbúðar-
byggðar, var svo full af mótsögnum
að undrum sætti. Þar er í öðru orð-
inu talið aldeilis prýðilegt og til
mikilla bóta að byggð verði á land-
fyllingum út frá Órfirisey og allar
götur út í Elliðaey (ekki minnst
einu orði á náttúruspjöll). Það
myndi styrkja og efla miðbæ
Reykjavíkur að mati skýrsluhöf-
unda, en í hinu orðinu var sögð al-
ger fírra og fjörráð við miðborgina
að byggð risi á þeim stað sem nú er
flugvöllur. Byggð þar myndi ofgera
öllum flutningsleiðum, að og frá
miðbænum. - Ætli loftlína milli
þessara staða nái kflómetra? Um
flugvallarstæði í Engey áttu menn
ekki nægjanlega sterk orð um
náttúruspjöll og brjálun útsýnis yf-
ir sundin. Skýrslan hefur ekki ver-
ið notuð síðan sem umræðugrunn-
ur um eitt né neitt.
Framsýni
Reykvíkingar hljóta nú þennan
refsidóm til ársins 2016 að hafa
flugvöll í hjarta borgarinnar og
þurfa að fresta um þann tíma upp-
byggingu háborgar menningar og
vísinda í miðbænum. Ekld er vitað
nú, hversu mörg störf við þekking-
ariðnað og líkt munu glatast að
fullu úr bænum vegna svoddan
frumhlaups og þjónkunar við stein-
geldan aíþvíbara-vana í skipulags-
málum. Hvert er hægt að áfrýja, ef
ekki til fyrsta þingmanns Reykvík-
inga?
Júlíus Vífíll Ingvarsson borgar-
fulltrúi hefur sýnt og sannað að
hann bæði hlustar á og virðir skoð-
anir samborgara sinna í umhverfís-
og skipulagsmálum. Hann setti
fram afar skemmtilega hugmynd
um nýtingu lóða á umdeildu svæði í
Laugardal. I tillögum hans kom
fram fastur ásetningur hans um að
fara ekki í bága við kjósendur í
mikilvægum ákvörðunum sem
vörðuðu möguleika framtíðarinnar
að laga sitt næsta umhvei-fí að
þörfum sínum. Einnig leitaðist
hann við að fara þann stíginn þegar
hann varpaði fram sem innleggi í
umræðuna snjallri lausn á staðar-
vali fyrir flugvöll við Reykjavík.
Landfylling við Engey. er afar
áhugaverður kostur og gefur mikla
möguleika á uppbyggingu í kring-
um ferðaþjónustu. Völlurinn kæmi
á kjörinn stað með tilliti tfl hótels
og tónlistarhúss sem rísa eiga vest-
an við „sænska frystihúsið" á lóð
kolakranans. Reykvíkingar gera
sér ekki tíðförult út í eyna en nú-
orðið troða margir þá stíga sem
liggja meðfram ströndinni frá Ægi-
síðu og upp um alla Öskjuhlíð.
Þannig er ólíku saman að jafna um
hagsmunni borgarbúa er nálægð
við náttúruna varðar. Ef einhverj-
ar betri hugmyndir koma fram er
ég þess fullviss að stjórnmálamenn
framtíðarinnar munu leggja við
hlustir og framkvæma, að best^u
manna yfirsýn, í sátt við umbjóð-
endur sína og umhverfið.
Höfundur er verkefnisstjóri.
‘Um let? o$ við |>ökMm viðsKiptavinnm oKKar
frábærar móttöNr a |>essM Rjrsta ari oKKar
bjóifym vi5 öllMm a5 Koma oa heilsa Rpp a oKKar
í da<j milli Kl. 1ö oa 17.
SjjniKennsla verðar í GallerM Glass,
Kaffi a Könnanni oj KonfeKt.
í tilefni af afm»linM iýó^Mm vi?
10 Dcita liti a<? ciainvaUfyrir
l m k.;;, úðént kr.2.000,-
, TUboðíí|iláiríviKa.
Ótráleft? <Ja, vi? eramjá t
‘ fíjjSLJ ' aftiwliSiKapi.
Jólavöriffnartn^bjpóaJaraJstre^mair
Ktjnnin^ ánámsKeiifym og sKránimj hafin.
Landsins mesta árval af stenslfím.
Ný Átsafimssett eftir Ðebbie Mamm,
M
Painters stenslar jáfo. *
eftir Debbie Mfímm Æ
oj Faith Rollins M'fHSk. M
Fdndnr fdðnrlunrtfits
LanpoKsvegur 111
Sími 568 6500
www.islandia.is/lin/fondra.htm