Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 68
Á)8 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Pýþagóras á Wall Street
Bandaríska kvikmynd-
in Pí er fyrsta langa
mynd leikstjórans
Darrens Aronofskys og
. verður hún frumsýnd
hér á landi í dag. Dóra
Osk Hallddrsdóttir
hitti Aronofsky og for-
vitnaðist um myndina
og væntanleg verkefni.
HLÁTUR og fjörlegar sam-
ræður berast af þriðju hæð
Iðnó þegar blaðamaður
kemur til fundar við leikstjórann
Darren Aronofsky, en hann kom til
landsins í gær ásamt framleiðanda
Th', Eric Watson og tveimur vinum
þeirra. Skærfjólublátt hár leik-
stjórans unga er einhvern veginn
ekki í samræmi við þá hugmynd
sem blaðamaður hafði af manni
sem hefur stærðfræðiformúlur að
yrkisefni en eftir stutt spjall við
Aronofsky kom í ljós að kannski
eru stórar spurningar um lífið hon-
um ofar í huga en stærðfræðin sem
slík.
„Pí er vísindatryllir um stærð-
fræðinginn Max sem leitar að
'stærðfræðilegu munstri á verð-
bréfamarkaðnum í New York. Þeg-
ar ég var sautján ára fór ég til
ísraels og hitti þar hóp trúaðra
gyðinga sem voru á kafi í talna-
speki. Síðan þegar ég lauk námi í
kvikmyndaháskólanum og fór að
vinna að Pí komst ég að því að
helmingur gömlu vinanna minna úr
Brooklyn var að vinna á Wall
Street. Þá gerði ég mér grein íyrir
að verðbréfamarkaðurinn og talna-
speki trúaðra gyðinga áttu vel
samleið.“
Aronofsky segir að þrátt fyrir
nafnið sé myndin í raun og veru
alls ekki um stærðfræði. „Hún er
meira tengd þeirri aldagömlu hug-
' 'mynd að hægt sé að nálgast guð-
dóminn í gegnum tölur. Getur
tungumál stærðfræðinnar skýrt
náttúruna og heiminn, af hverju
heimurinn er til?“
- Hvemig gekk þér ungum leik-
stjóra að fjármagna myndina?
„Ég hafði ekkert fé á milli
handanna þegar hugmyndin fædd-
ist, en ég fór til allra vina minna
og vandamanna og bað um að allir
legðu 100 dollara í myndina og ef
hún gengi vel myndi ég greiða
þeim 150 dollara til baka. Og það
gekk mjög vel og flestir sem unnu
að myndinni settu sína peninga í
hana líka sem gerði það að verk-
um að mikill einhugur var um að
myndin yrði sem best úr garði
gerð. En nú eru þeir sem lögðu
peninga í púkkið líka
að fá ávísanir í pósti,“
segir hann sposkur á
svip.
- Hvaða hugmynd er
að baki því að hafa
myndina svarthvíta?
„Ég vildi að sumu
leyti gera mjög hefð-
bundna mynd þar sem stuðst væri
við hefðir vísindaskáldskapar og
tryllingsformsins, en á sama tíma
vildi ég einnig búa til aðra veröld
sem hefði ekki áður sést á hvíta
tjaldinu. Við tókum myndina upp
þannig að hún er bara svört og
hvít, gráu tónarnir detta alveg út,
en sú aðferð hefur ekki verið notuð
við kvikmyndir í fullri lengd áður.
Og ég er mjög ánægður með út-
komuna, finnst myndin flott í út-
liti,“ segir Aronofsky og bætir við
hlæjandi að það hafi auðvitað verið
aðalmarkmiðið.
Aronofsky hefur þegar tekið upp
aðra kvikmynd hjá kvikmyndafyr-
irtækinu Ártisan sem er sem
stendur á klippborðinu. „Hún heit-
ir Requiem for a Dream og er
byggð á skáldverki rithöfundarins
Huberts Selbys jr. en ég skrifaði
handritið í samvinnu við hann og
býst við að hún komi út á næsta
ári.“ Ekki lýkur sögunni þar því
Getur tungumál
stærðfræðinnar
skýrt náttúruna
og heiminn?
Morgunblaðið/Golli
Aronofsky er þegar með aðra
mynd í undirbúningi sem samning-
ur er þegar kominn fyrir. „Ég er
ennþá að vinna að handritinu en
hægt er að segja að hún taki mark
af þýsku myndinni Das Boot og
mynd Kubrick The Shining," segir
Aronofsky sposkur á svip og bætir
við að vinnutitill næstu myndar sé
Proterus."
Gefin hefur verið út
_________ myndabók um Pí af
teiknimyndafyrirtæk-
inu Dark Horse sem
Aronofsky skrifaði
handritið að en teikn-
arinn Ed Flynn teikn-
aði. „Það eru nýjar
persónur en sögusviðið
er það sama. Við breyttum ýmsu
til að sagan myndi henta mynda-
söguforminu betur.“
Aronofsky segir sem dæmi um
þann ákafa sem allir sem að Pí
komu að aðalleikari myndarinnar
og besti vinur hans frá háskólaár-
unum, Sean Gullette, hafi hannað
vefsíðu myndarinnar sem er á slóð-
inni www.pithemovie.com. „Sean
gerði frábæra hluti með vefsíðuna,
en hann er ótrúlega fjölhæfur lista-
maður og ég vildi frekar hafa mann
í verkinu sem væri algjörlega með
á nótunum um allt viðvíkjandi
myndinni."
Sem dæmi um hve margir vinir
og vandamenn komu nálægt gerð
Pí er að báðir foreldrar Aronof-
skys höfðu þar hlutverk. Faðir
hans leikur aukahlutverk í mynd-
inni og móðir hans sá um veiting-
arnar. „En þau leika bæði í næstu
mynd,“ segir hann ljúfur í bragði
að lokum.
Sodol Foxtrot - það nýiasta
Þú veröur fær um aó dansa við 90% af öllum lögum sem
leikin eru á venjulegum dansleik eftir 6 ttma
Samkvæmisdansar - bamadansar
Áratuga rcynsla okkar og þekking tryggír þðr bestu fáanlegu kennslu
14 vikna námskeið
KeoDnisdansar
Svanhltdur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir
frábaerir þjátfarar i kcppnisdönsum
■ Mæting lx, 2x eða 3x í viku
Hip Hod - Riverdance
Utla Essendrop gestakennari
Ekki bara falleg, hetdur frábær dansari
ig'álfaói Danmerkurmeistarana í Hip Hop
Viku námskeið i október
Innritun fer fram i sima 552 0345 miUi kl. 16 og 20 daglega
Kennsla hefst 13. september
Kennslustaðin Reykjavik - MosfeLlsbær - Keflavík - Grindavík - Sandgerói - Garður
Dagskrá Kvikmynda- hátíðar í Reykjavík laugardaginn 4. september
BÍÓBORGIN
Kl. 14:45 Slam Makaskipti
Kl. 15:00 Ástkær
Kl. 17:00 Makaskipti
Kl. 19:00 Pí
Kl. 19:10 Kynlíf Annabel Chong
Kl. 21:00 Pí Kyniíf Annabel Chong
Kl. 23:00 Pí Kynlíf Annabel Chong
iREGNBOGINN
Kl. 15:00 Trikk Þrjár árstíðir
Kl. 16:00 Lffshamingia
Kl. 17:00 Börn himnaríkis Síöustu dagarnir
Kl. 18:30 Lífshamingja
Kl. 19:00 Helmingslíkur Trikk
Kl. 21:00 Lífshamingja Síðustu dagarnir
Kl. 23:00 Þrjár árstíðir
Kl. 23:30 Lífshamingja
Kl. 15:00 Svartur köttur, hvítur köttur Hlauptu Lola, hlauptu Tango Te með Mussoloni Lucky People Center
Kl. 16:40 Svartur köttur, hvítur köttur
Kl. 17:00 Limbo Sígaunalíf Hlauptu Lola, hlauptu
Kl. 19:00 Gadjo Dilo Svartur köttur, hvítur köttur
Kl. 21:00 Aóalstööin Tango
Kl. 21:15 Svartur köttur, hvítur köttur
Kl. 23.00 Tango Toni litli
Kl. 23.20 Svartur köttur, hvítur köttur
Aðal-
stöðin
Central do Brasil
1998
Walter Salles/Brasilía
DORA er fátæk eldri kona sein
vinnur á aðalbrautarstöðinni í Rio
de Janeiro við að skrifa bréf fyrir
gesti og gangandi og senda þau til
viðtakenda. Dora er ekki ánægð í
starfi sínu og hefur mestu skömm á
viðskiptavinunum. Joshua er lítill
níu ára drengur sem Dora kynnist
sem hefur aldrei séð föður sinn, en
Dora veit að faðirinn er einhvers
staðar á lífi því hún hefur sent bréf
til hans fyrir móður Joshua. Þegar
móðir Joshua deyr í bílslysi tekur
Dora Joshua að sér og upphefst
ferðalag til að finna týnda föðurinn.
Kvikmynd Walter Salles um Að-
alstöðina hefur sópað að sér verð-
launum á kvikmyndahátíðum um
heim allan. Hún vann Gullbjöminn
á kvikmyndahátíðinni í Berlín á síð-
asta ári og m.a. verðlauna fékk hún
BAFTA-verðlaunin bresku fyrir að
vera besta erlenda mynd síðasta
árs. Á Oskarsverðlaunahátíðinni var
hún kosin besta erlenda mynd síð-
asta árs og var leikkonan Femanda
Montenegro einnig tilnefnd besta
leikkona ársins.
Pí
Pí1998
Darren Aronofsky/Bandaríkin.
SÉNÍIÐ Max er við það að gera
merkustu uppgötvun lífs síns. Und-
anfarin tíu ár hefur hann unnið
hörðum höndum við að komast að
því hvaða regla finnst í því sem í
fyrstu virðist kaótísk talnaruna,
talnaruna sem hefur áhrif á líf millj-
ónanna, tölur verðbréfamarkaðsins.
Þegar Max virðist vera að nálgast
markmið sitt finnur hann að óreiða
talnanna er komin yfir á mannlífið
allt í kringum hann. Stöðugt er ýtt á
hann af fyrirtæki einu á Wall Street
sem hefur einsett sér yfírvöld á
fjármálamarkaðnum, og einnig er
hópur gyðinga á eftii- honum við að
leysa lífsgátuna eins og hún birtist í
ritningu þeirra, Talmud. Þegar Max
verður ágengt í leit sinni uppgötvar
hann leyndarmál sem margir era
tiibúnir að myrða fyrir.
Darren Áronofsky hlaut leik-
stjóraverðlaunin á Sundance-kvik-
myndahátíðinni á síðasta ári fyrir
mynd sína Pí, en þessi 29 ára gamli
leikstjóri frá Brooklyn í New York
hefur vakið mikla athygli vestan-
hafs fyrir fmmraunina.
Smiðjuve/ji 14, 9(ópavojji, sími 587 6080
Dans- og skemmtistaöur
í kvöld leika
Stefán Jökulsson
og Arna Þorsteinsdóttir
Opið frá kl. 22—3
Næturgalinn — alltaf lifandi danstónlist
fyrir fólk á öllum aldri