Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
' Poppið lifír
„ÞETTA verður ótrúlegur aragrúi
af hljómsveitum,“ segir Gunnar
Þórðarson um skemmtidagskrá
vetrarins á Broadway. „Þarna
verða nánast allar hljómsveitir sem
starfað hafa frá 1950 til dagsins í
dag.“ Hann segir að dagskráin
verði ekki í tímaröð og að gríðar-
lega skipulagningu hafi þurft til að
koma þessu saman, enda hafi fjöl-
margir spilað með fleiri en einni
hljómsveit.
Laugardagskvöldið á Gili
Hljómsveitirnar munu spila á
böllum öll föstudags- og laugar-
dagskvöld fram á vor og hefjast
herlegheitin í kvöld þegar KK-
sextettinn og Trúbrot koma fram.
Hljómar verða í næstu viku og í
framhaldi af því Pónik og Einar og
hljómsveit Magnúsar Ingimarsson-
ar svo fátt eitt sé talið. „Við eram
búnir að vera að setja dagskrána
saman í allt sumar,“ segir Gunnar.
Ekki er nóg með að þessar
hljómsveitir leiki fyrir dansi heldur
verður boðið upp á ýmsar
skemmtidagskrár á meðan á borð-
haldi stendur. Laugardagskvöldið
á Gili verður frumsýnd í kvöld en
þar verða flutt fyrstu dægurlög Is-
lendinga og sótt í smiðju MA-kvar-
tettsins, Leikbræðra, Tónasystra,
Öddu Örnólfs o.fl. Lögin verða í
flutningi Alftagerðisbræðra, Ragn-
ars Bjamasonar, Öskubuskna og
fjölmargra fleiri listamanna.
Sungið á himnum
Einnig verður boðið upp á dag-
skrána Sungið á himnum til minn-
ingar um þá sem fallnir era frá, til
að mynda Ellý og Vilhjálm Vil-
hjálms, Hauk Morthens, Guðrúnu
A. Símonar, Svavar Gests, Ingimar
og Finn Eydal, Sigfús Halldórsson,
Karl Sighvatsson, Jónas Arnason
o.fl. Söngvarar í sýningunni verða
Ragnar Bjamason, Pálmi Gunn-
arsson, Guðbergur Auðunsson,
Guðrún Arný Karlsdóttir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Kristján Gísla-
son.
Shady Owens og Gunnar Þórðarson á æfingu á Broadway í fyrrakvöld.
Morgunblaðið/Þorkell
Loks má nefna dagskrána Grín
aldarinnar með helstu spauguram
íslendinga og Þjóðlagakvöld með
Savanna-tríóinu, Ríó tríói, Þremur
á palli o.fl. En hvemig hafa viðtök-
urnar verið? „Alveg frábærar,"
svarar Gunnar kampakátur.
er uppselt í kvöld.“
„Það
Metnaðarfull dagskrá á Broadway
JAZZHATIÐ - REYKJAVIKUR HEFST I RAÐHUSINU NÆSTA MIÐVIKUDAG
íslenska Óppran
8.-12. s eptember
mnð Don Wall ore.pl, Mark Feldman fiðlu oq
Adam Nussbaum trommur
/neólfstore oq Sólon /slandus
Hal lerím skirkja
SÍQurður Flosason oq Gunnar Gunnarsson
Kaffil pikhúsið
Óskar Guðjónsson ósamt Jóhanni Ásmundssyni,
Þórði Höenasyni, Birei Baldurssyni oq Matthíasi Hpmstork
Súlnasalur
OQ Stórsvpit Rpykjavíkur undir stjórn Sæhjörns jónssonar
Kaffil pikliúsið
tvö píanólaus trío, jópls Pólsson oq SÍQurðor Flosason
Ipika ó ýmis hljóðfæri ósamt Tómasi R. Einarssyni,
Þórði Höenasyni, Birei Botdurssyni oq Matthíasi Hpmstock
CAFÉ VICTOR
Funkmastpr2000
E/NAR BEN -
Þóra Grúta
KLAUSTR/Ð -
Þórir Baldursson
ASTRO -
Joeúar
SÓLON -
Andrps Þór
KAFFI REYKJAVÍK -
Jazzmpnn Alfrpðs
KAFFILEIKHÚSID -
Forsala aðgöngumiða er hafin i verslunun
JAPIS í Kringlunni, Brautarholti 2 og
Laugavegi 13 - tryggið ykkur miða strax!
jam spssion
GAUKUR Á STÖNG -
Andrpa Gylfadóttir
Langur Jazzdagur í KRINGLUNNI
Lifandi jazz frá 12-18
Tjarnarhíó
fram tíðarjazz
Sólon Islnndus
oe hoUpndineornir
Cord Hpinpkine oe Jons Duppp
Koffilrikhúsið
Tómos R. Einarsson, Einar Mór Guðrnuridsson,
Eyþór Gúnnarsson, Ósknr 6uðjónsson oe
Motthíos Hcmstock flytja jazz saminn
af Tómasi við Ijóð Einars Mós
Koffilrikhúsið
Hilmar Jpnsson, Andrrvv D'Anenlo,
Bryndís Halla Gylfadóttir, Eyþór Gunnarsson,
Matthías Hrmstock oq Óskor Guðjónsson
Komið á heimasiðuna okkar
http://go.to.i ReykjavikJazz
og sKoðið nákvæma dagskra með upplýsin
Súlnasnlur
og skoðið nákvæma dagskra með upplýsingum
um alla listamennina okkar -Góða skemmtun
Erlrndur Svavarsson, Holldór Pólsson,
Hjörlrifur Björnsson, Jrrry Strnsrn oq Grorer Nistor
TRIJBROT SPILAR í KVÖLD
Erum að hreinsa út
kóngulóarvefina
Það er
þróttur í
Shady
Owens.
„ÞAÐ gengur bara vel,“ segir
söngkonan Shady Owens glað-
lega og bætir við: „Við erum
að hreinsa út kóngulóarvef-
ina og nú vantar bara fólk i
salinn til þess að ná upp
stemmningu.“ Hún er að
æfa dagskrá með Trúbroti
fyrir kvöldið í kvöld þeg-
ar sveitin treður upp á
Broadway og gefur tón-
inn fyrir veturinn en
fjöldamargar sveitir
allt frá miðbiki aldar-
innar eiga eftir að
troða upp á dansi-
balli í vetur.
„Maður er alltaf
ryðgaður svona
fyrst þegar mað-
ur er í startholunum
en þetta er fljótt að koma; við
erum í fínu formi og vonandi á
það sama eftir að gilda um fólk-
ið á dansgólfínu," heldur hún
áfram.
En hvenær kom hljómsveitin
síðast samari?
„Ætli það hafi ekki verið eftir
síðustu aldamót,“ svarar hún og
hlær. „Ég hef sungið með
Hljómum nokkrum sinnum en
ekki Trúbroti." Hún hugsar sig
um og bætir við: „Reyndar kom
Trúbrot saman til að flytja Lifun
fyrir nokkrum árum en þá var
ég ekki með þeim.“
Hvað hefurðu haft fyrir
stafni?
„Ég hef tekið það rólega síð-
ustu árin. Maður var alltaf á
fullu áður fyrr en nú hefur
þorpsfflingurinn tekið við.
Útlandið er svo stórt og eins og
á íslandi eru allir í vinnu lið-
langan daginn svo það er lítið
um viðburði, en ég syng þó ein-
staka sinnum á krám. Ég kem
bara til íslands til að fá útrás -
hér kann fólk að setja upp sýn-
ingar og ég held að þetta eigi
eftir að gera lukku í vetur.“
Ætlarðu á einhverja af þess-
um tónleikum?
„Ég verð hérna meira og
minna í vetur,“ segir hún og
hlær. „Ég var í öllum þessum
hljómsveitum, Hljómum, Nátt-
úru og Óðmönnum. Ég á eftir að
hafa nóg fyrir stafni."
Shady Owens hefur verið bú-
sett í London undanfarin 22 ár
með manni sinum, Jeff Calver,
sem hún kynntist þegar hann
var að taka upp vísnaplötu hér-
lendis. „Við fórum svo til
London og erum bara í ham-
ingjuleik að byggja sandkastala
í garðinum," segir þessi geð-
þekka söngkona áður en hún er
rokin upp á svið til að fullkomna
Trúbrotið.