Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 2?
Þingkosningarnar á Indlandi
Lýðræðis-
bandalagið
hrósar sigri
Nýja Dclhi. AP, Reuters.
ATAL BIHARI VAJPAYEE, for-
sætisráðherra Indlands, lýsti í gær
yfir sigri í indversku þingkosning-
unutn eftir að sýnt þótti að ílokkur
hans, Þjóðarflokkur hindúa, muni
bera sigurorð af Kongress-flokkn-
um, sem er stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn. Samkvæmt spám
byggðum á fyrstu tölum mun Lýð-
ræðisbandalagið, sem er heiti á 22
flokkum undir forystu Vajpayee,
fá 290 þingsæti en Kongress-flokk-
urinn aðeins 180. Talningu er ein-
ungis lokið í nokkrum kjördæmum
en um 360 milljónir Indverja
greiddu atkvæði í kosningunum
sem hafa staðið yfir í meira en
mánuð. Alls er kosið um 541 þing-
sæti í neðri deild þingsins, Lok Sa-
bha, sem er aðal löggjafarsam-
kunda ríkisins.
Samkvæmt fréttum í gær hafði
Lýðræðisbandalagið örugga for-
ystu í 155 einmenningskjördæm-
um þar sem talning atkvæða stóð
yfir en Kongress-flokkurinn í 100
kjördæmum. Talið er að talningu
meirihluta atkvæða verði lokið á
fimmtudag og að tilkynnt verði um
úrslitin á föstudag. Ekki hefur
reynst unnt að ljúka talningu í
fimm kjördæmum vegna flóða og
ofbeldisverka sem hafa kostað um
150 manns lífið. Samkvæmt yfir-
mönnum kjörstjórnar á Indlandi
eru þetta mun færri en létust síð-
ast þegar gengið var til þingkosn-
inga í landinu.
Minnihlutastjórn Vajpayee for-
sætisráðherra féll í apríl síðast-
liðnum eftir 13 mánaða storma-
sama setu. Kongress-flokkurinn,
undir stjórn Soniu Gandhi, bindur
enn vonir við að vinna flest at-
kvæði greidd einum flokki og þar
með hljóta umboð til stjórnar-
myndunar.
Talning atkvæða á Indlandi tek-
ur yfirleitt mjög langan tíma, þar
sem meira en 600 milljónir manna
eru á kjörskrá og talningin fer
fram handvirkt. A nokkrum stöð-
um hefur verið tekið upp á því að
kjósa rafrænt, meðal annars í höf-
uðborginni, Nýju-Delhí. Þar hafði
Lýðræðisbandalagið unnið stórsig-
ur samkvæmt síðustu tölum og
hafa úrslitin orðið meðlimum Kon-
gress-flokksins mikil vonbrigði,
þar sem flokkurinn vann nýlega
stórsigur í kosningum til fylkis-
þings í Nýju-Delhí.
Hvaða kjör ert þú að fd?
Gerðu samanburð
Yfirdráttarvextir á almennum
launareikningi eru hvergi betri en hjá
Netbankanum.
Athugaðu hvaða vexti þú ert að fá hjá
þínum banka og kíktu svo á nb.is. Þá
kemur í Ijós hvar þú færð bestu kjörin.
www.nb.is
taf fremstur r !
Sekur um að hafa nauðgað
ísraelskri fegurðardrottningu
Má búast við
lífstíðarfangelsi
Linor Abaragil
Tel Aviv. Reuters.
ISRAELSKUR
ferðaskrifstofumað-
ur var fundinn sekur
í gær um að hafa
nauðgað ísraelskri
fyrirsætu en hún var
einnig kjörin feg-
ursta kona heims á
síðasta ári. Ógnaði
hann henni með
hnífi og reyndi
einnig að kæfa hana
með plastpoka.
Dómstóll í Tel
Aviv fann Shlomo
Nour, sem er 43 ára
að aldri, sekan um
að hafa rænt og
nauðgað Linor Abargil í skógi
skammt frá Mílanó á Italíu fvrii'
réttu ári. Atti atburðurinn sér stað
nokkrum vikum áður en Abargil
var kjörin fegursta kona heims á
Seychelles-eyjum í nóvember og
var ekki skýrt frá honum opinber-
iega fyrr en að keppninni lokinni.
Dómur verður kveðinn upp yfir
Nour í næsta mánuði en hann á yf-
ir höfði sér allt að 56 ára fangelsi
samkvæmt ítölskum lögum en eftir
þeim verður farið í málinu vegna
þess, að afbrotið var framið þar.
Nour hélt því fram, að Abargil
hefði átt mök við hann af fúsum og
frjálsum vilja en á það var ekki
fallist.
Shlomo Nour
vegar hringsólað utan við Mílanó
og þegar Abargil tók að syfja,
sagði hann henni að halla sér aftur
í bílnum. Skömmu síðar hafi hann
stöðvað bílinn, ógnað henni með
hnífi og nauðgað. Reyndi hann
einnig að kæfa hana, fyrst með
berum höndum en síðan með plast-
poka og reipi. Hún komst þó lífs af.
Abargil segir, að það hefði
kannski verið auðveldara fyrir sig
að þegja um þennan atburð en með
kærunni vildi hún hvetja allar kon-
ur, sem í þessu lentu, að láta menn
aldrei komast upp með glæp af
þessu tagi.
Hvatning til kvenna
Abargil segist hafa leitað til No-
urs, sem hefur starfað sem ferða-
skrifstofumaður á Italíu, og beðið
hann að útvega sér far til Tel Aviv
og hafí hann boðist til að aka með
hana til Rómar. Hann hafi hins
Aðsendar greinar á Netinu
<§> mbUs
-ALLTAf= GITTH\SA£} NÝTT
*•« ÍSS^POftfcalfl:
Z?HngUr!
fram h.ó «**
Dreift á öii
heimili landsins
Opið:
Má.-fi. 10-18
Fö. 10-19
Lau. 10-16
Bíldshöfóa 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is