Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Belo biskup snýr heim til A-Tímor
Vill vera með fólkinu
Dili. Reuters.
ANDLEGUR leiðtogi Austur-Tímor-
búa, Cai'los Belo biskup, sneri í gær
heim til A-Tímor, fjórum vikum eftir
að hafa neyðst til að flýja landið eftir
að ofstækisfullir andstæðingar sjálf-
stæðis landsins gengu berkserksgang
með óhæfuverkum og eyðileggingu.
Belo, sem er tákngervingur and-
stöðunnar við stjórnvöld í Jakai'ta,
lenti á flugvellinum í Dili, höfuðstað
A-Tímor, _en þangað kom hann frá
Darwin í Astralíu.
Belo sagðist hafa snúið aftur til
fósturjarðar sinnar svo hann gæti
verið nálægt sínu fólki. Bað hann um-
heiminn um hjálp til handa A-Tímor
en hundruð þúsunda manns hafa orð-
ið að flýja borgir og bæi vegna ofbeld-
isverka.
„Eg vona að umheimurinn vinni
hörðum höndum að því að koma hér á
varanlegum friði. Forgangsverkefni
mitt er að dveljast hér ásamt fólkinu,
flytja guðs orð og biðja með því. Þetta
eru einu forsendurnar sem ég hef,“
sagði Belo við komuna.
Opið alla daga
BARNAF
Hörð átök þjóðernishópa í Kosovo-héraði
Landsmenn hvattir til
að sýna meiri stillingu
Pristina. Reuters.
FRIÐARGÆSLULIÐ Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) í Kosovo
bað í gær þjóðernishópana sem
héraðið byggja til að sýna stillingu
svo koma mætti í veg fyrir að of-
beldisverk og átök í bænum
Mitrovica á þriðjudag endurtækju
sig. Einn Serbi var grýttur til bana
og 29 manns særðust, þ.á m.
franskir og rússneskir friðargæslu-
liðar eftir jarðarför Kosovo-Albana
í bænum þar sem þúsundii' manna
söfnuðust saman.
Talsmenn friðargæsluliðsins
sögðu að meðal hinna særðu væru
átján friðargæsluliðar og að aðrir
sem særðust hefðu verið Serbar.
Atökin hófust er Kosovo-Alban-
ar hentu grjóti og réðust á Serba
sem voru fastir í umferðarteppu í
bænum. Þá var kveikt í bifreiðum.
Franskir og rússneskir friðar-
gæsluliðar reyndu að koma í veg
fyrir ofbeldisverkin og hleyptu að-
vörunarskotum úr vopnum sínum.
Roland Lavoie, talsmaður friðar-
gæsluliðsins, sagði í gær að átökin
á þriðjudag færðu heim sanninn
um „ólgandi ofbeldi og hefndarhug
sem enn ríki í Kosovo-héraði“.
„Það er aðeins með stuðningi og
vilja allra íbúa Kosovo sem unnt
verður að binda endi á vítahring of-
beldis sem þegar hefur fært þeim
allt of miklar fórnir,“ sagði Lavoie í
gær. Sagðist hann fara fram á
stuðning forystumanna þjóðarbrot-
anna svo koma mætti á varanleg-
um friði.
Bernard Kouchner, yfirmaður
stjórnar Sameinuðu þjóðanna í
Kosovo, fordæmdi ofbeldisverkin
og kallaði þau „óviðunandi glæp“.
Lofaði hann frammistöðu friðar-
gæsluliða og alþjóðlegra lögreglu-
sveita sem tekið hefðu áhættu
með því að reyna að hlutast til um
mál.
Enn margir Serbar
í Mitrovica
Mikil spenna ríkir í bænum
Mitrovica þar eð fjölmargir Serbar
hafast þar enn við, ólíkt öðrum
svæðum þaðan sem Serbar hafa
flúið unnvörpum eftir að flótta-
menn af albönsku bergi brotnir
sneru til heimkynna sinna. Dvelj-
ast Serbarnir nú flestir í einum
hluta bæjarins.
Spennan jókst mikið á þriðjudag
er Kosovo-Albanar, sem taldir eru
hafa verið myi’tir af vopnuðum
sveitum Serba á meðan loftárásir
NATO stóðu sem hæst, voru jarð-
settir. Lík mannanna fundust í
fjöldagröf sem fannst í síðasta
mánuði og hafa lögregluyfírvöld
hneppt nokkra Serba í varðhald
vegna málsins.
Martin Garrod, sem hefur það
lítt öfundsverða verkefni með
höndum að stjórna aðgerðum SÞ í
bænum, fordæmdi einnig átök
þriðjudagsins og hvatti málsmet-
andi menn til að „gera öfgamenn
útlæga".
ffiflf'AlöTT
EÐAL
eiNSEI i ö
Skerpir athygli
- eykur þol
Virkar m.a, gegn:
Einbeitingarskorti,
streitu, þreytu og
afkastarýrnun.
Einnig gott tyrir aldraða.
Reuters
Öskufall
í Quito
FYRIR skömmu hófst gos í eld-
fjallinu Guagua Pichincha í
Ekvador en það er aðeins í 12
km fjarlægð frá höfuðborginni,
Quito, en þar búa 1,2 milljónir
manna. I fyrrinótt rigndi mik-
illi ösku yfír borgina, um
700.000 tonnum að því talið er,
og raunar Iá mökkurinn enn yf-
ir í gærmorgun. tir gosinu hef-
ur þó dregið og í gær átti að
opna aftur skóla í borginni en
þeir hafa verið lokaðir síðustu
daga.
Jarðfræðingar óttast þó, að
öskufallið frá fjallinu eigi eftir
að aukast og að jafnvel komi til
mikilla sprenginga í því í fyrsta
sinn frá árinu 1660. Quito er í
hátt uppi í Andesfjöllum, í
2.900 metra hæð yfír sjávar-
máli, og er borgin umkringd
niu virkum eldfjöllum.