Morgunblaðið - 07.10.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 31
Heiðin minni um
hetjur og goð
Nýlega kom út hjá Heimskringlu, Háskólaforlagi
Máls og menningar, bókin Heiðin minni - greinar
urn fornar bókmenntir. Ritsljórar bókarinnar eru
þeir Baldur Hafstað og Haraldur Bessason. Bókin
er safn greina sem fjalia um fornar bókmenntir
og heiðin norræn minni. Höfundar eru fimmtán
talsins, þeirra á meðal eru fjórir erlendir fræði-
menn sem ekki hafa áður birt greinar á íslensku á
sviði fornra fræða. Þá fylgir hverri grein úrdrátt-
ur á ensku.
„Ritið er samstarfsverkefni Kennaraháskólans
og Háskólans á Akureyri," segir Baldur Hafstað
annar af ritstjórum bókarinnar. „Við ritstjórarnir
erum báðir áhugasamir á þessu sviði en það sem
gerði okkur þetta kleift var að við fengum rífleg-
an styrk frá Lýðveldissjóði til verkefnisins. Síðan
fengum við Heimskringlu til að sjá um útgáfuna,
sem hefur tekist afar vel að öllu leyti. Okkur lang-
aði til að fá þekkt nöfn frá útlöndum og vorum svo
heppnir að fá til liðs við okkur fræðimenn sem
ekki hafa verið þýddir á íslensku áður. Þeim þótti
gaman að taka þátt í þessu með okkur. Greinarn-
ar eiga það sameiginlegt að snerta allar þennan
heiðna arf okkar að einhverju leyti, en fræði-
mennirnir nálgast efnið hver með sínum hætti.
Þráðurinn er þó hinn gamli heiðni arfur. Það er
gaman að koma með þetta greinasafn nú þegar
þúsund ára afmæli Kristintökunnar nálgast, og
minna þannig í leiðinni á okkar heiðna arf.“
En er ritið eingöngu ætlað sérfræðingum í forn-
um fræðum, eða geta áhugasamir lesendur forn-
sagna og fornkvæða notið þess sem fræðimennirn-
ir hafa fram að færa?
„Við höfðum einkum kennara á þessu sviði í
huga þegar við völdum greinar í bókina. En jafn-
framt á bókin að koma þeim að góðum notum sem
eru að fást við fornar bókmenntir, svo sem nem-
endum í norrænum fræðum og væntanlega einnig
öllum áhugasömum lesendum. Hverri grein fylgir
úrdráttur á ensku. Það er það er stór markaður
erlendis fyrir umfjöllun af þessu tagi. íslenskar
fornbókmenntir eru kenndar við eina tvö hundruð
Háskóla um víða veröld. Bókin á erindi á þá staði
og við erlent áhugafólk um forn norræn fræði.“
Haraldur Bessason sagðist aðspurður vera mjög
ánægður ineð bókina og samstarfíð við meðrit-
stjóra sinn og greinahöfunda.Hann kvaðst eiga þá
ósk heitasta að framhald yrði á samstarfínu.
„Bókin fjallar um noktun minna úr hetju - og
goðsögum, frá upphafí fram að rímum, sem sagt
frá upphafí vega fram á fjórtándu öld. Það sem er
nýstárlegt við bókina er að í henni birtast greinar
LISTIR
Ritstjórarnir Baldur Hafstað og Haraldur Bessason
fyrir utan hús Stephans G. Stephanssonar í Al-
bertafylki í Kanada.
eftir fræðimenn frá Bandaríkjunum, Þýskalandi
og Frakklandi, í bland við greinar eftir innlenda
fræðimenn. Við væntum þess að bókin veki at-
hygli hér heima og erlendis. Okkur langar til að
halda þessu áfram en vitum ekki enn hvað verður!
Eg er hrifínn af útliti bókarinnar og kann vel að
meta myndina af honum Óðni gamla sem prýðir
kápuna. Eg met ekki einstöku greinar, en lít svo á
að þær séu bæði vel samdar og vel hugsaðar. Við
vonum að verkið komi að gagni. Bókin er ekki
hugsuð sem kennslubók, heldur væntum við þess
að kennarar taki fyrir einstöku greinar sem
myndu sóma sér vel sem ritgerðarefni. Við von-
umst til að allir þeir sem fást við fornar bók-
menntir hafi gagn og gaman af bókinni. Efni
hennar er ekki háfræðilegt, hver og einn höfund-
ur nálgast efnið á sína vísu. Ætli það megi ekki
orða það sem svo, að bókin sé miðja vegu milli
þess að vera fræðileg og alþýðleg. Greinarnar eru
læsilegar og í þeim er rætt um alla höfuðþætti
fornra bókinennta. Það væri endalaust hægt að
gefa út bækur um heiðin minni í bókmenntum.
Höfundar hafa notað þessi minni gríðarmikið, enn
þann dag í dag halda nútímarithöfundar ótrauðir
áfram að sækja minni í þessar fornu og sigildu
bókmenntir."
Hamish Macbeth og
morðið á handrits-
höfundinum
ERLEIMDAR
BÆKIJR
Spennusaga
DAUÐI HANDRITSHÖFUNDAR
„DEATH OF A SCRIPTWRITER“
eftir M. C. Beaton. Warner Books
1999. 198 síður.
Hamish Macbeth heitir rólyndisleg
skosk þorpslögga í sögum M. C.
Beaton, sem leysh- morðgátur í
skosku hálöndunum ekki fjarri In-
verness. Sögumar um Hamish þenn-
an eru orðnar fjórtán talsins og hefj-
ast heiti þeirra allra á orðinu dauði.
Þannig hefur Beaton skrifað sögur
eins og Dauði tannlæknis, Dauði slúð-
m-skjóðu, Dauði fullkominnar eigin-
konu, Dauði snobbs og Dauði ferða-
langs. Ef eitthvað er að marka nýj-
ustu sögu hennar, Dauða handritshöf-
undar, mun óhætt að mæla með
hverri og einni hinna.
Beaton, sem býr með eiginmanni
sínum í Cotswold, ski-ifar mjög hefð-
bundnar leynilögreglusögur, eins og
þær kallast líklega á íslensku, um leit-
ina að morðingja. Hún býr til ákveðn-
ar aðstæður, morð er framið og Ha-
mish rennur á slóðina eins og blóð-
hundur. Þannig sver hún sig í ætt við
Agöthu Christie. Bækur hennar eru
einfaldar „hver-gerði-það“ sögur en
henni tekst að gæða þær lífi með kald-
hæðni, skemmtilegum persónugerð-
um, hæfílega flóknum og spennandi
gátum og síðast en ekki síst
þorpslöggunni sinni, Hamish Macbeth
í Lochdubh.
Beaton hefur lag á að skopast fín-
lega að hinni kæru aðalpersónu sinni
og gera hann á þann hátt mannlegan
og lesandanum talsvert hugleikinn.
Hann er hávaxinn, slánalegm' maður
með eldrautt hárið og greindarleg,
brún augu og þótt „alvöru“ löggurnar
úr stærri bæjum í kring, að ekki sé
talað um Invemess og Glasgow, líti
ekki á hann sem annað en kauðslega
þorpslöggu, þekkir hann vel mannlífíð
hið næsta sér og býr yfir nægri
þijósku til þess að láta andstreymið
ekki ræna sig góðri gátu.
Svo er mál með vexti í Dauða hand-
ritshöfundar að smábærinn Drim,
sem er í næsta nágrenni við Lochdu-
bh, verður að hálfgerðri Hollywood
þegar skoska sjónvarpið afræðm- að
gera sakamálaþætti byggða á glæpa-
sögum Patricia Martyn-Broyd. Hún
býr þama í nágrenninu, er löngu hætt
að slfl'ifa og gerði alls ekki góðai' bæk-
ur þegar hún hafði enn getuna til þess
að semja. Hún vonar að sjónvarps-
þætthTiir eigi eftir að blása lífi í rithöf-
undarferil sinn og gera sig fræga.
A meðal innrásarliðsins er kvensamur
framleiðandi, vita hæfileikalaus hand-
ritshöfundur, blondína sem á bágt
með að leika, aðstoðarkonur tvær sem
verða sífellt að láta í minni pokann og
foxillur eiginmaður blondínunnar.
Margir þorpsbúar telja sig efni í kvik-
myndastjörnu, einkum kerlingamar í
bænum, og jafnvel kvikmyndaleik-
stjóra en ákaflega bæld eiginkona
prestsins dregur upp gamalt leikrit
sitt úr glatkistunni og byrjai' að filma.
Þetta auðvitað hlýtur að enda með
ósköpum og viti menn, morð er framið
og brátt annað.
Beaton er einkar lagið að lýsa per-
sónum sínum og getur verið ansi
fyndin þegar hún til dæmis er að fjalla
um snobb glæpasagnahöfundarins og
botnlausa hégómagimd. Einnig sífelld
átök á meðal sjónvai-psfólksins, mis-
jafnlega gi'eindarlega lögreglumenn-
ina, sem flykkjast í bæinn, og ekki síst
Hamish sjálfan.
Gildi sögunnar liggur fyrst og
fremst í skemmtilegum persónulýs-
ingum og lýsingu á litlu, skosku sam-
félagi þar sem allir þekkja alla og
kjaftasögur blómstra. Sagan er stutt
og einfold og fljótlesin afþreying. Það
verður enginn svikinn af því að kynn-
ast Hamish Macbeth.
Arnaldur Indriðason
BÆKUR
F r æ ð i r i t
ÚR DIGRUM SJÓÐI -
FJÁRLAGAGERÐ Á ÍSLANDI
eftir Gunnar Helga Kristinsson.
Reykjavík, Félagsvísindastofnun HÍ
og Háskólaútgáfan. 236 bls. 1999.
í ÞESSU riti Gunnars Helga
Ki'istinssonar, prófessors í stjórn-
málafræði við félagsvísindadeild Há-
skóla Islands, era bh'tar niðurstöður
rannsókna höfundar á gerð fjárlaga
íslenska ríkisins. Sérstaklega er
reynt að varpa ljósi á það hvaða hóp-
ar hafa áhrif á endanlega gerð fjár-
laganna og með hvaða hætti. Aðalá-
herslan er á rikisútgjöld en minna er
horft á tekjuöflun ríkisins.
Ur digrum sjóði er afar fomtnilegt
rit. Viðfangsefnið er í eðli sínu áhuga-
vert, hér er verið að fjalla um ráðstöf-
un stórs hluta þjóðarkökunnar og
ákvarðanir sem hafa óhjákvæmilega
veraleg áhrif á landsmenn alla. Það
er vart ofmælt sem segir á kápusíðu
að hér sé verið að fjalla um hina póli-
tískustu af öllum spumingum, hver
fær hvað, hvenær og hvernig? Þetta
er stór spurning og ljóst að það hefur
þurft mikla vinnu til að reyna að
svara henni. Gunnar Helgi hefur
safnað saman miklu talnaefni og öðr-
um gögnum og átt viðtöl við fjölda
manns. Honum tekst prýðilega að
draga af öllu þessu ályktanir og
kynna fyi'ir lesandanum.
Ymislegt í niðurstöðunum kemur
lítt á óvart, ríkisútgjöld hafa farið
vaxandi, jafnt á Islandi sem í öðram
löndum, hægar þegar flokkar sem
eru hægi'a megin í hinu pólítíska lit-
rófi era við völd en þegar vinstri-
flokkar stjórna. Á íslandi hafa út>
gjöld til ýmiss konar niðurgi'eiðslna
og styi'kja minnkað á undanförnum
áratugum en útgjöld til heilbrigðis-
mála og vegna vaxta af skuldum ríkis-
ins vaxið ört. Gunnar Helgi tekur
saman ýmiss konar yfirlit um slíka
þróun einstakra liða ííkisútgjalda og
er fengur að því þótt
ýmislegt hafi þegar ver-
ið aðgengilegt annars
staðar.
Framsetning er yfir-
leitt skýr og töflur og
myndir notaðar skyn-
samlega. Það hefði þó
ekki sakað að vanda að-
eins betur til prófarka-
lestrar og ankannalegt
að nota yfirleitt en þó
ekki alltaf punkt í stað
kommu í tugabrotum.
I ritinu kemur fi'am
að þótt deilt sé um fjái'-
lög á hverju ári þá
breytist alla jafna lítið
frá ári til árs. Deilt er
um lítinn hluta hverju
sinni en ákvarðanir um annað endur-
nýjaðar átakalítið. Breytingar verða
alla jafna með smáum skrefum. Þeg-
ar samin eru fjárlög nýs ái's er grunn-
urinn ætíð fjárlög ársins
á undan. Þó má sjá
a.m.k. tvær breytingar
sem veralegu skipta. Sú
fyrri var þegar vald og
ábyrgð um skiptingu
einstakra liða fjárlaga
var fært frá fjármála-
ráðuneyti til fagráðu-
neyta með svokölluðum
rammafjárlögum um
1990. Svo virðist sem
þar hafi tekist nokkuð
vel til. Sú síðari er ný-
lega um garð gengin,
þegar fjárlög voru færð
af svokölluðum
greiðslugranni og yfir á
rekstrargrann, en sú
breyting takmarkaði
m.a. möguleika stjórnmálamanna á
að skuldbinda ríkissjóð til útgjalda án
þess að þess sæi stað í fjárhagsupp-
gjöri ríkisins fyrr en löngu síðar.
Almennt virðist þróunin hafa ver-
ið að fagleg og jafnvel tæknileg
sjónarmið skipta sífellt meiru við
gerð fjárlaga og það sem Gunnar
Helgi kallar handahófskennd af-
skipti stjórnmálamanna minnu.
Gunnar Helgi flettir þó ekki ofan af
neinum hneykslum úr ríkisfjármál-
um frá fyrri tímum og skammar
engan fyrir misnotkun á almannafé.
Það hefði sjálfsagt mátt búa til met-
sölubók með slíku efni en það er
ekki tilgangurinn, þetta er fræðirit,
og augljóslega ski’ifað með sérfræð-
inga og háskólanemendur sem les-
endur í huga. Textinn er yfirleitt
knappur en þó vel viðráðanlegur
fyrir leikmenn. Víða er minnst á nið-
urstöður einfaldra tölfræðilegra
prófa en það ætti ekki að vera hindr-
un fyi'ir þá sem eru óvanir að túlka
slíkt. Það er því ekkert því til fyrir-
stöðu að fleiri en fræðimenn lesi rit-
ið, raunar hlýtur það að verða nán-
ast skyldulesning allra þeirra sem
vilja reyna að hafa áhrif á fjárlög í
framtíðinni og annarra sem hafa
áhuga á fjármálum ríkisins.
Gylfi Magnússon
Vænt rit um digran sjóð
Gunnar Helgi
Kristinsson
Háliolt - Mosfellsbæ
Til sölu og afhendingar strax einbýlishús 135 fm. Þrjú svefn-
herb., tvær stofur. Stór lóð. Gott útsýni. Nýtt þak. Möguleiki á
samþykkt fyrir bílsk. Hagstætt verð. Góð lán. V. 11,2 millj.
Stóriteicjiir m. bílskúr
Höfum í einkasölu fallegt endaraðhús 170 fm með 22 fm
sambyggðum bílsk. Stofa, 4 svefnherb. Parket, flísar. Stórar
suðursvalir. Eign með góða staðsetningu. Sérinngangur og
garður. V. 13,5 millj. Áhv. 4,7 millj.
Fasteignamiðlunin Berg, sími 588 5530
Í90|
1
AKA ik1
1909-1999
Afmælistilboð
í tilefni af 90 ára afmæli verslunar
Franch Michelsen bjóðum við öll merki
úra og klukkna á einstöku tilboðsverði.
Allt að 30% afsláttur!
URSMIÐAMEISTARI
LAUGAVEGUR 15 • SÍMI 511 1900 • FAX 511 1901