Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 52
<52 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HALLDOR BEN
ÞORSTEINSSON
tHalldór Ben
Þorsteinsson
leignbflstjóri fæddist
í Reykjavík 5. maí
1942. Hann lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 29. september
siðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Asthildur Kristjáns-
dóttir, húsmóðir frá
Stekkjartröð í Eyr-
arsveit, f. 6.9. 1917,
d. 12.10. 1993, og
Þorsteinn Halldórs-
son, rakarameistari
frá Neskaupstað, f.
2.4.1916, d. 10.6. 1990.
Halldór ólst upp á Ljósalandi
á Seltjarnarnesi, elstur sex
systkina, sem eru: Þórarinn, f.
1943, d. 1975, Bene-
dikt, f. 1946; Stein-
þór, f. 1947; Jónína
Ingibjörg, f. 1948;
Erla Kristjana, f.
1953.
Halldór kvæntist
23.10. 1965 Steinunni
Guðbjartsdóttur, hús-
móður, f. 13.10. 1946,
d. 22.7. 1978. For-
eldrar hennar voru
Sigurborg Magnús-
dóttir og Guðbjartur
Erlingsson sem eru
bæði látin. Börn
þeirra eru Þorsteinn
Halldórsson, blikksmiður, f. 27.5.
1966, og Ásthildur Halldórsdótt-
ir, húsmóðir, f. 3.7. 1968. Eigin-
maður hennar er Þórarinn Haf-
Mig langar að skrifa nokkur orð
um hann pabba minn. Hann var
alltaf tilbúinn að aðstoða okkur
fjölskylduna, alveg sama hvað það
var. Eins og þegar hún Steinunn
mín fæddist. Það gekk erfiðlega og
þegar hann vissi það var hann
strax kominn. Hann talaði um að
hafa aldrei verið eins fljótur á leið-
inni til mín og að auki gleymt öku-
skírteininu og það hafði ekki kom-
ið fyrir hann áður að gleyma því
heima. Þegar eitthvað þurfti að
gera sem ég réð ekki við og Tóti
var á sjónum var pabbi mættur til
að aðstoða mig, sama hvað það var.
Það hefur alltaf verið gaman hjá
okkur og krökkunum þegar við
höfum komið til ykkar Sollu í sum-
arbústaðinn og í Árbæinn.
Þú varst alltaf mjög félagslynd-
ur sem sýndi sig þegar þú varst á
spítalanum í sumar. Þú hafðir mik-
ið samband við fólk og varst opin-
skár um veikindi þín. Þú vissir að
þú áttir ekki eftir langan tíma með
+
Ástkær sonur okkar og bróðir,
BIRGIR ÞÓR HÖGNASON,
Keldulandi 3,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 3. október, verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 8. októ-
ber kl. 13.30.
Hadda Halldórsdóttir, Högni Jónsson,
Esther Gerður Högnadóttir, Marteinn Karlsson,
Þórunn Högnadóttir, Brandur Gunnarsson.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
REIMAR MARTEINSSON,
Hlévangi,
Keflavík,
áður Hátúni 14,
andaðist á Sjúkrahúsi Keflavíkur þriðjudaginn
5. október.
ívar Reimarsson,
Guðmunda Reimarsdóttir,
Þóra Reimarsdóttlr,
Margrét Reimarsdóttir,
Sigrún Reimarsdóttir,
Guðfinna Reimarsdóttir,
Marteinn Reimarsson,
Þórður Reimarsson,
Lilja Gísladóttir,
Ingibjörg Sigurvaldadóttir,
barnabörn og
Guðfinna Guðmundsdóttir,
Júlíus Högnason,
Sveinbjörn Gunnarsson,
Sturla Högnason,
Óskar Guðmundsson,
Ema Snorradóttir,
Hjörtur Sveinsson,
, Kristján Baldursson,
barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
NANNA INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR
frá Brekku,
Bæ í Lóni,
Digranesvegi 40,
Kópavogi,
lést á Vífilsstaðaspítala þriðjudaginn
5. október.
Útför tilkynnt síðar.
Helena Á. Óskarsdóttir,
Díana R. Óskarsdóttir,
Birna H. Chrístian Óskarsdóttir, Don E. Christian,
Erna M. Óskarsdóttir, Haukur F. Sigurðsson,
í barnabörn og barnabarnabörn.
MINNINGAR
berg, bflstjóri, f. 27.4. 1966, og
eiga þau þrjú börn sem eru
Steinunn Asdís, f. 31.12. 1990,
Halldór Unnar, f. 8.6. 1993, og
Hafþór Sindri, f. 10.7. 1996.
Seinni kona Halldórs er Sól-
veig S. Sigurðardóttir, f. 10.4.
1945, stuðningsfulltrúi. For-
eldrar hennar voru Regína Jak-
obsdóttir og Sigurður Jónsson.
Dóttir hennar er Bára Rós
Björnsdóttir, f. 18.11. 1969, að-
stoðar ver slu narstj ór i.
Halldór starfaði sem bflstjóri
mestan hluta starfsævi sinnar
en fór einnig á sjó, aðallega
sem matsveinn, og stundaði
ýmis önnur störf, meðal annars
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Halldór gekk í Kiwanisklúbb-
inn Kötlu 1984 og gegndi þar
ýmsum trúnaðarstörfum, var
m.a. forseti klúbbsins
1988-1989.
__ títför Halldórs fer fram frá
Árbæjarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
okkur hér og vildir nýta tímann
vel.
Eg bið Guð að styrkja okkur öll.
Ásthildur, Þórarinn og
krakkarnir.
Nú er baráttan búin. Þetta var
mikil barátta frá því snemma í
sumar þegar Dóri greindist með
illkynja sjúkdóm. Þrátt fyrir gífur-
lega erfið veikindi hafði hann mik-
inn andlegan styrk sem hélst alveg
til loka. Þetta sáum við greinilega
þegar hann vildi fara á Kiwanis-
fund 15. sept. sl. Hann ætlaði sér
að klára Kiwanisárið með 100%
mætingu og það tókst honum.
Þetta komst hann á viljanum ein-
um saman. Þetta lýsir honum mjög
vel, hann gerði það sem hann ætl-
aði sér.
Eg kynntist Dóra fyrir um 20
árum, þegar hann kynntist
mömmu minni. Mér leist strax vel
á manninn enda kom okkur alltaf
vel saman. Með honum eignaðist
ég tvö eldri systkini, Steina og
Ásthildi.
Fyrstu jólin sem við vorum öll
saman vorum við fimm í 2ja her-
bergja íbúð í Hafnarfirði. Þetta
voru mjög góð jól. Eftir það flutt-
um við í Árbæinn þar sem við höf-
um búið síðan.
Fyrir nokkrum árum var ráðist í
það að byggja sumarbústað og höf-
um við átt þar margar góðar
stundir. Sérstaklega krakkarnir
hennar Ásthildar systur sem fengu
að smíða með afa og fleira. Það var
gaman að sjá hvað við gátum gert
mikið af þessu sjálf. Dóri var nú
ansi handlaginn og kláraði hann nú
ýmislegt áður en hann veiktist í
vor.
Elsku Dóri, ég vona að þú vitir
hvað ég er þakklát fyrir að hafa átt
þig fyrir pabba öll þessi ár. Þar
sem þú varst alltaf til staðar iyrir
mig á góðum sem og erfiðum
stundum. Það var sama hversu lít-
ið það var, þú varst alltaf tilbúinn
að aðstoða.
Elsku mamma, Steini, Ásthildur
+
Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HARALDUR HERMANNSSON
rafvirkjameistari,
Fellsmúla 10,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. októ-
ber.
Jarðarförin auglýst síðar.
Pálína Kjartansdóttir,
Halldóra Haraldsdóttir, Ingólfur Arnarson,
Sigrún Haraldsdóttir, Jón Ástvaldsson,
Bergþóra Haraldsdóttir, Guðmundur Ómar Þráinsson,
Herdís Haraldsdóttir, Björn Hjálmarsson,
Kjartan Haraldsson, Sigríður E. Magnúsdóttir
og afabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÁSTRÓS FRIÐBJARNARDÓTTIR,
Hraunprýði,
Hellissandi,
verður jarðsungin frá Ingjaldshólskirkju laug-
ardaginn 9. október kl. 14.00.
Sætaferðir frá BSl kl. 10.30.
Sveinbjörn Benediktsson,
Óttar Sveinbjörnsson, Guðlaug fris Tryggvadóttir,
Friðbjörn Jón Sveinbjörnsson, Erla Benediktsdóttir,
Benedikt Bjarni Sveinbjörnsson,
Eggert Þór Sveinbjörnsson, Soffia Dagmar Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
f rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða úr
íslenskum og erlendum steintegundum
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalist;
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410.
og fjölskylda. Megi Guð gefa okk-
ur styrk.
Bára Rós.
Ekki átti það fyrir mér að liggja
að ná að kveðja þig, gamli félagi,
þegar við komum til þín varstu sof-
andi og hafðir verið þreyttur,
morguninn eftir kom kallið, stórt
skarð var höggvið, gamall félagi
horfinn.
Halldóri Ben Þorsteinssyni
kynntist ég á vordögum 1977 þeg-
ar ég mætti á minn fyrsta AA-fund
í Langholtskirkju. Eg þekkti á
honum svipinn því hann hafði verið
leigubílstjóri einhverjum árum áð-
ur og þá menn þekkti maður vel í
þá daga. Með okkur Dóra tókust
góð kynni það var oft sem boðið
var í kaffi í Gaukshólana og setið
þá eithvað frameftir og spjallað.
Dóri hafði verið á sjó og ég var á
sjó á þessum tíma og við ráðgerð-
um að fá okkur skipspláss á togara
og skipta því á milli okkar en af því
varð ekki og aldrei fór ég á togara
en einhverja túra tók hann á sjó.
Það var mikið áfall fyrir Dóra þeg-
ar fyrri kona hans dó. Það gerðist
á AÁ-móti í Borgarfirði. Hann stóð
einn með tvö börn en honum tókst
vel uppeldið á þeim og hann sá vel
um heimilið. Á þessum tíma flutti
hann með börnin í Kópavoginn,
þangað var líka oft komið eftir
fundi. Þegar ég flutti norður með
mína fjölskyldu rofnaði sambandið
um tíma. Á þeim tíma hafði Dóri
kynnst nýrri konu, Sólveigu, konu
sem átti eftir að reynast honum
vel, þau áttu mjög vel saman. Við
hittumst eitt sinn á AA-móti á
Akureyri, þá var drukkið kaffi í
sendibílnum sem þau voru búin að
innrétta þannig að þau gátu sofið í
honum. Á leiðinni suður komu þau
við á Króknum ásamt fleiri göml-
um og góðum félögum og var mik-
ið rætt og varð þetta eftirminni-
legur dagur. Þegar við fluttum aft-
ur suður hitti ég Dóra fljótlega og
þá var hann genginn til liðs við
Kiwanishreyfinguna og þegar
hann vissi að ég hafði starfað í
sömu hreyfmgu fyrir norðan var
hann fljótur að bjóða mér á fund í
sínum klúbbi og bauð mér síðan að
ganga í klúbbinn sem ég og gerði.
Störfuðum við saman þar í nokkur
ár og var ég t.d. kjörforseti í hans
stjórn þegar hann var forseti. Eg
varð því miður að hætta í hreyf-
inguni en hann hélt áfram og var
sannur Kiwanismaður. Það sem
Dóri tók að sér að gera var vel
gert. Hann skilaði verki sínu vel
frá sér, hann kom vel undirbúinn á
fundi og var duglegur að finna
ræðumenn á fundi og duglegur við
að lífga upp á fundina þegar hann
var forseti. Mér fannst þetta vera
svona í hans lífi. Það var sama
hvað hann tók sér fyrir hendur,
það var vel gert, hann gekk ekki
að verki óhugsað, hann ráðfærði
sig við aðra og leitaði eftir svörum.
Hann var sannur AA-maður og gat
státað af því að eiga langan og góð-
an tíma innan samtakanna. Fé-
lagahópurinn úr samtökunum er
æði stór þó svo að þar séu líka
nokkrir sem hafa lagt í langt
ferðalag. Dóri tók þátt í stofnun
nýrra deilda og t.d. stofnaði hann
ásamt öðrum félögum Árbæjar-
deild AA-samtakana, mánudags-
deild sem hefur stækkað mikið í
áranna rás. Þar var lagður góður
grunnur, deildin stór og samtaka-
mátturinn mikill.
Kæri félagi, nú er komið að því
að kveðja og ég þakka þér sam-
gönguna þessi ár, þau eru mér
mikils virði og fyrir þau þakka ég.
Fjölskyldunni allri votta ég sam-
úð mína.
Minning um góðan dreng mun
lifa.
Guð gefi tnér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Guðjón H. Finnbogason.