Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 54

Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Úrslitaskákin SKAK Iteykjavík ISLANDSMEISTARAEINVÍGIÐ 29. sept. - 3. okt. STAÐAN í einvígi þeirra Hann- esar Hlífars Stefánssonar og Helga Ass Grétarssonar var jöfn eftir þrjár fyrstu skákirnar, báðir höfðu hlotið einn og hálfan vinning. Það var því síðasta skákin í bráð- skemmtilegu fjögurra skáka einvígi þeirra sem réð úrslitum um það hvor þeirra hreppti íslandsmeist- aratitilinn. I skákinni kemur upp hvasst afbrigði í spænskum leik. Eftir 22 leiki nær hvítur varanlegu frumkvæði, en svartur teflir vörn- ina af mikilli nákvæmni. Eftir fyrstu tímamörkin, þ.e. 40 leiki, verður staðan mjög flókin. Þegar líður að seinni tímamörkum eiga keppendur aðeins um 1-2 mínútur eftir á síðustu 10 leikina. Hannes tekur það til bragðs að fóma manni fyrir sterk sóknarfæri. Heigi Ass finnur ekki sterkasta framhaldið og fellur á tíma í 58. leik. í lokastöðuna hefur hvítur góðar vinningslíkur. Hvítt: Hannes Stefánsson Svart: Helgi Áss Grétarsson Spænskur leikur [C74] 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c3 f5 6. exf5 Bxf5 7. 0-0 Bd3 8. Hel Be7 9. Bc2 Bxc2 10. Dxc2 Rf6 11. d4 e4 12. Rg5 d5 13. f3 h6 14. Rh3 Ekki 14. Re6 vegna 14. - Dd7 15. Rxg7 + Kf7 og riddarinn fellur. 14. - 0-0 15. Rd2 Ef 15. Rf4 þá kemur 15. - Bd6! með hugmyndinni 16. Re6 Bxh2+! 17. Kxh2 Rg4+ 18. Kg3 (ekki 18. fxg4 . vegna 18. - Dh4+) 18. - Dd6+ 19. Bf4 Hxf4 20. Rxf4 g5 21. fxg4 Dxf4+ 22. Kh3 h5 23. De2 Kg7 og við hótuninni hxg4+ og Hh8 er ekkert svar. 15. - exf3 16. Rxf3 Hf7!? Djúphugsaður leikur sem byggist á því, að eftir 17. Dg6 Bd6 18. Bxh6 kemur Re7 19. Dg5 Rh7 20. Dg4 Rf6 með þrátefli. I skák Leko og Júsupov í Vín 1996 varð framhaldið 16. - Dd7 17. Dg6 Dg4 18. Dxg4 Rxg4 19. Rf4 Hfd8 20. Re6 Hd7 21. Bf4 og Leko fékk aðeins betra tafl sem hann nýtti sér til sigurs. 17. Bf4! Eftir 17. Rf4 Bd6 18. Re6 Dd7 gengur ekki 19. Bxh6 gxh6 20. Dg6+ Kh8 21. Dxh6+ Rh7 og f svartur nær að verjast. 17. - Bd6 18. Bxd6 Dxd6 19. Rf2 Byrjuninni er lokið og við tekur miðtaflið. Hvítur stendur betur að vígi vegna þess, að reitirnir g6 og c5 í her- búðum svarts eru ákveðin skotmörk fyrir hvítu riddarana. 19. - He7 20. Hxe7 Rxe7 21. Hel He8 22. Rd3 Svartur er kominn í vandræði sem skýrist af því, að eftir 22. - Rc6 kemur 23. Hxe8+ Rxe8 24. Rc5 Rd8 25. Df5 með erfiðri stöðu á svart og svipað má segja um 22. - Re4 23. Rd2! Rxd2 24. Dxd2 b6 25. De3 með yfirburða- stöðu á hvítt. 22. - b6 23. c4 a5 Núna átti Helgi eftir u.þ.b. 5 mínút- ur á næstu 17 leiki! 24. c5 Dd7 25. Rfe5 Df5 26. Db3 Hb8 27. Da3 He8 28. Da4 Hb8! Þrátt fyrir lítinn tíma teflir Helgi vömina mjög vel. 29. Da3 I fyrstu hugðist ég leika 29. Db5, en sá ekkert vænlegt framhald eftir Rg6. 29. - He8 30. cxb6 cxb6 31. Dd6 Rc8 32. Dc7?! Betra er 32. Dc6! De6 33. Hcl Dxc6 34. Hxc6 og hvítur stendur mun betur. 32. - De6! Eg reiknaði aðeins með 32. - He7 33. Dc6 De6 34. Hcl Dxc6 35. Hxc6 He8. 33. Rg6 Re4 34. Rde5 Kh7 35. Hfl Rf6 36. Rf4 De7 37. Dc6 Dd6 38. Dc2+ Kg8 39. Dg6 He7 40. Df5 Ra7! Síðasti leikur fyrir tímamörk. Nú bætist við ein klst. á mann á næstu 20 leiki. Ekki var gott að leika 40. - Hc7 vegna 41. Ré6 Re7 42. Dh3 Hc2 43. Hxf6! gxf6 44. Dg3+ og svartur verður mát. 41. a4! Leikið eftir 25 mínútna umhugsun. 41. - Rc6! Ekki 41. - Db4 vegna 42. Rf3. Einnig er 41. - b5 slæmt vegna 42. g4 og hvítur hefur stórsókn. 42. Dc8+ Rd8 43. Hcl He8 Helgi hefur teflt vömina nákvæmt og hefur rétt verulega úr kútnum. Hvítur heldur þó ennþá frumkvæð- inu. 44. Dc3 Rf7 Vafasamt væri 44. - Re6?! 45. Rxe6 Dxe6 46. Dc7 og hvítur hefur yfir- burðastöðu. 45. Rfd3 Rg5! 46. Dd2 Ef 46. Db3 Re6 47. Hc6 Rxd4! 48. Hxd6 Rxb3 49. Hxb6 Rcl með jöfn- um möguleikum. 46. - Rfe4 47. Ddl Drottningin stefnir á kóngsvænginn. 47. - Dd8 48. Dg4 Rf6 49. Df5 Re6 50. Dg6 Nú áttu keppendur að- eins 1-2 mínútur á næstu 10 leiki og voru næstu leikir leiknir á leifturhraða! 50. - Hf8 51. Rg4 Kh8 52. Rxh6!? De8 Til greina kom að taka manninn strax með 52. - gxh6, en hvítur hefur sóknarfæri eftir 53. Dxh6+ Kg8 54. Re5. 53. Re5 gxh6 54. Dxh6+ Kg8 55. Hc3 Rh7? Rétta leiðin var 55. - Rh5! og í því tilviki hefði hvítur ekki nægjanleg sóknarfæri fyrir manninn. 56. Hg3+ Reg5 57. h4 Dxa4 58. Rf3 í þessari stöðu féll Helgi á tíma. Rannsóknir leiða í ljós að hvítur hefur góðar vinningslíkur eftir 58. - Hxf3! 59. gxf3 (59. Hxg5+ Rxg5 60. Dxg5+ Kf8 leiðir til jafnteflis) Dxd4+ 60. Khl Ddl+ 61. Kh2 Dd2+ 62. Hg2 Df4+ 63. Khl Dxí3 64. Dg6!+ Kh8 65. hxg5 Dfl+ 66. Kh2 Df4+ 67. Hg3 Df2+ 68. Kh3 Dfl+ 69. Kg4 Ddl+ 70. Kh4 Dhl + 71. Hh3 Del + 72 Kh5 og sleppur úr þráskákinni! 1-0 Val keppenda á erlend barnamót Skáksamband íslands hefur nú sett skýrar reglur um val keppenda á bai-na- og unglingaskákmót er- lendis. Valið byggist á íslenskum skákstigum. Fulltrúar Islands verða að uppfylla eftirfarandi stiga- lágmörk: Drengir 10 ára og yngri: Lágmarksstig 1.400 11-12 ára: Lágmarksstig 1.600 13-14 ára: Lágmarksstig 1.800 15-16 ára: Lágmarksstig 2.000 17-18 ára: Lágmarksstig 2.200 19-20 ára: Lágmarksstig 2.400 Stúlkur 10 ára og yngri: Lágmarksstig 1.200 11-12 ára: Lágmarksstig 1.300 13-14 ára: Lágmarksstig 1.400 15-16 ára: Lágmarksstig 1.500 17-18 ára: Lágmarksstig 1.600 19-20 ára: Lágmarksstig 1.700 Velja skal stigahæsta einstak- linginn í hverjum flokki fyrir sig, uppfylli fleiri en einn einstaklingur stigalágmörkin. Sé stigahæsti ein- staklingurinn af einhverjum orsök- um forfallaður (t.d. gefi ekki kost á sér eða sé í banni vegna brota á hegðunarreglum) skal velja næst- stigahæsta einstaklinginn og svo koll af kolli, svo lengi sem þessir einstaklingar uppfylla lágmarks- kröfur um stig. Uppfylli enginn kröfur viðkomandi flokks, verður ekki sendur keppandi í þann flokk. Stjórn SÍ á að tilnefna keppendur á heimsmeistara-, Evrópumeistara- og Ólympíumót tveimur mánuðum fyrir mót. Á önnur mót er leitast við að Ijúka tilnefningum u.þ.b. mánuði fyrir mót. Tilgreind stigalágmörk gilda ekki um þátttöku í Norðurlandamótum og þeim mótum þar sem sérstök úr- tökumót eru haldin. Skákmót á næstunni 8.10. SÍ. Deildakeppnin 18.10. Hellir. Fullorðinsmót 23.10. SÍ. Heimsm.mót barna 25.10. Hellir. Atkvöld 31.10. Hellir. Kvennamót 31.10. TR. Hausthraðskákmót Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson LUNDUR FASTEIGNASALA Sí M I 533 1616 FA X 533 1617 Sl'OURLANDSBRAUT 10. 2.HÆÐ, F/ÖFAN BLÓMASTOFU PRIÐFINNS, 108 RLYKjAVÍK Sveinn Guðmundsson hdl. lögg. fast. Ellert róbertsson sölumaður Karl Gunnarsson sölumaður Þorlákshöfn - Einbýli - Gott verð Gott einbýli, ca 130 fm, með stórum og góðum bílskúr ca 50 fm. í húsinu eru fjögur svefnherbergi, stofa og þvottahús. Hús á góðu verði, gott tækifæri til að eignast einbýli. Góð þjónusta á staðn- um, m.a. sundlaug, stutt í alla þjónustu. V. 7,5 m. Hannes Hlífar Stefánsson KIRKJUSTARF Neskirkja í Reykjavík. Safnaðarstarf Nýbreytni í félagsstarfi Neskirkju AKVEÐIÐ hefur verið að breyta til í félagsstarfi aldraðra á laugardögum í vetur. Hefjast samverustundirnar kl. 12.30 en ekki kl. 15 eins og verið hefur undanfarin ár. Gera á tilraun í vetur með að hafa heita tvíréttaða máltíð á vægu verði fyrsta laugardag hvers mánaðar. Margir þeirra sem félagsstarfið stunda búa einir. í þjónustustöðvum borgarinnar er ekki seldur heitur matur um helgar en eldri borgarar geta hins vegar fengið sendan heim mat í bakka þá daga. Maðurinn er félagsvera. Það er mikill sannleikur í því fólginn þegar sagt er: „Maður er manns gaman“. Menn hljóta að njóta matarins betur í hópi góðra vina heldur en hver í sínu horni. Ávallt verður eitthvað sér til gam- ans gert. Organisti kirkjunnar, Reyn- ir Jónasson, kemur t.d. og leikur und- ir fjöldasöng þá daga sem samvera er í safnaðarheimilinu en til stendur að fara í stuttar fræðslu- og kynnisferðir í borginni og næsta nágrenni hennar tvo laugardaga hvers mánaðar. Verður fyrsta máltíðin borin fram næstkomandi laugardag þar eð starfið hófst með haustlitaferð fyrsta laugardag vetrarstarfsins eins og venja hefur verið. Þátttöku í matinn og ferðir þarf að tilkynna hjá kirkjuverði mánudag til föstudags í síma 511 1560 kl. 10-12. ✓ I ljósi kær- leikans er heiti á íhugunarstund á fimmtu- dögum sem hefst kl. 20 í Háteigs- kirkju. Þetta er þagnaríhugun, setið í um 20 mínútur til að kyrra hugann. Markmiðið er að nálgast guð eða réttara sagt áð opna sjálfan sig fyrir heilagleika guðs og mæta honum í helgidómi líkama síns, sannreyna orð postulans: Vitið þér ekki að lík- ami yðar er musteri heilags anda. Aliir eru hjartanlega velkommr, ný- liðar jafnt sem lengra komnir. Áfram verða auðvitað Taizé-messurnar kl. 21, en að þeim loknum er boðið upp á fyrirbæn með handayfirlagningu og smurningu. Ujölskyldumót Islensku Krists- kirkjunnar FJÖLSKYLDUMÓT verður haldið í Vatnaskógi helgina 8.-10. október. Dagskráin verður fyrir börn og full- orðna. Umræðuefni mótsins verður: „Heilagur andi og verk hans í lífi okkar“. Sýnd verður ný stuttmynd, sem gerð var af unga fólkinu í kirkj- unni í tilefni af kristnitökuhátíð í Laugardainum í ágúst sl. „Krists krakkar" munu koma fram með sér- stakt atriði. Mikill söngur einkennir starf íslensku Kristskirkjunnar og svo verður einnig á þessu móti. Ekki er hægt að bæta fleirum við á þetta mót því nú þegar er allt svefnpláss fullnýtt. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-16 í safnaðarheimil- inu. Grensáskirkja. Mæðramorgunn kl. 10-12. Allar mæður velkomnar með lítil börn sín. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur máls- verður í safnaðarheimili eftir stund- ina. Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorgunn kl. 10-12. Fræðsla um aðskilnaðarkvíða/aðlögun að dag- vistun, Hallveig Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur. Söngstund með Jóni Stefánssyni kl. 11. Svala djákni les fyrir eldri börn. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kyrrðarstund kl. 12.00. Org- eltónlist til kl. 12.10. Að stundinni lokinni er léttur málsverður í safnað- arheimilinu. Einfalt, fljótlegt og inni- haldsríkt í erli dagsins. Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir 6-8 ára börn kl. 15-16. Starf fyrir 9-10 ára böm kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir 10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-17.30. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á fóstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdóttur og Bjargar Geirdal. Kl. 11.15 ieikfimi aldraðra. Kl. 18 bænastund. Fyrir- bænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára drengi kl. 17-18. Æskulýðsfé- lag fyrir 8. bekk kl. 20-22. Grafarvogskirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, heyrum guðs orð og syngjum með börnunum. Kaffisopi og spjall. Alltaf djús og brauð fyrir börnin. Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera aldraðra í safnaðarheimilinu Borgum kl. 14-16. Kyrrðar- og bænastund í dag ki. 18. Fyrirbænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Strákastarf fyrir 9-12 ára á vegum kirkjunnar og KFUM kl. 17.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyi’h' ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl- íulestur kl. 21. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára börn kl. 17-18.30, Keflavi'kurkirkja. Fermingai’undir- búningur kl. 13.30-15.40 í Kirkju- lundi. Fíkniefnavandinn verður til umræðu í Kirkjulundi í kvöld kl. 20.30. Samverustund með ungu fólki. Stefán Jóhannsson MA, meðferðar- fulltrúi talar. Prestar á Suðurnesj- um. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. Allh' velkomnir. Kl. 17.30 TTT-starfið hjá hressu 10-12 ára krökkunum. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Hvammstangakirkja. Kapella Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi- og bænastund í dag kl. 17. Fyrir- bænaefnum má koma til sóknar- prests.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.