Morgunblaðið - 07.10.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 59^
(2CCO
ecco
DOMUS MEDICA
vií Snorrabraut - Reykjavik
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
Þjóðkirkjan á réttri braut
Frá Stefáni Guðjónssyni:
HIN háværa biblíuumræða um
samkynhneigð sem hefur átt stað á
síðum Morgunblaðsins hefur ekki
farið framhjá mér frekar en mörg-
um öðrum. Þar nota sjálfskipaðir
biblíusérfræðingar hvað eftir annað
orð Guðs til að gera lítið úr biblíu-
legri kenningu Þjóðkirkju Islands
og presta hennar. Kirkjunnar
menn, eins og þeir eru kallaðir í
einni grein, eru sagðir fullir af fyr-
irlitningu, sleggjudómum og skít-
kasti. Það sem verra er, þeir snúa
sér ekki frá sínum kærleikslausu,
rangsnúnu kenningum. Nú hyggj-
ast jafnvel forsvarsmenn samkyn-
hneigðra yfirgefa kirkjuna nema
hún beygi sig fyrir kenningu
þeiiTa.
I þessum greinum eru biblíutil-
vitnanir teknar úr samhengi og not-
aðar til að gera lítið úr sr. Ragnari
Fjalari Lárussyni. Nafn hans er
nefnt margoft til að vekja samúð
þjóðarinnar fyrir málstað samkyn-
hneigðra. Vissulega á að sýna sam-
kynhneigðum kærleik og virðingu.
En það er ekki það sama og að sam-
þykkja allar þeirra skoðanir og
hegðun eins og Þórður Sigurðsson
benti á í grein í Morgunblaðinu 25.
september sl. Sannur kærleikur
felst í því sýna fólki ást, hlýju og
virðingu án tillits til skoðana, þjóð-
félagsstöðu o.s.fi-v. En sannur kær-
leikur felst einnig í því að segja
sannleikann. Meðferð biblíutilvitn-
ana í þessum greinum bendir til
þess að greinarhöfundar telji al-
menning illa upplýstan um kristna
trú og biblíuna og þess vegna sé
hægt að segja fólki nánast hvað sem
er. Allir þeir sem hafa lesið biblíuna
í heild sinni og trúa að orð hennar
séu réttmæt og sönn vita að þar er
sagt skýrum orðum að kynmök
tveggja karlmanna séu Guði van-
þóknanleg. Þetta kemur fram bæði í
gamla og nýja testamentinu. í Róm-
verjabréfinu 1.26 segir: Bæði hafa
konur breytt eðlilegum mökum í
óeðlileg og eins hafa líka karlar
hætt eðlilegum mökurn við konur og
brunnið í losta hver til annars. I 3.
Mósebók 18.22 segir: Eigi skalt þú
leggjast með karlmanni sem kona
væri. Það er viðurstyggð. Jesús
Kristur vitnaði oft í bækur Móse og
spámenn Gamla testamentisins,
hann sagði sjálfur: Ég er ekki kom-
inn til að afnema lögmálið og spá-
mennina heldur til að uppfylla. Eina
hjónabandið sem Jesús talaði
nokkurn tíma um var á milli kai’ls
og konu. Talsmenn samkyn-
hneigðra nota oft biblíuversin
„dæmið ekki svo að þér verðið ekki
dæmdir“ og „sá yðar sem syndlaus
er kasti fyrsta steininum." En hvað
sagði Jesús við konuna sem átti að
grýta? „Ég sakfelli þig ekki. Far þú.
Syndga ekki framar." Jesús elskaði
hana nógu mikið til að fyi'irgefa
henni fullkomlega og hann elskaði
hana líka nógu mikið til að segja
henni að hún væri að gera rangt og
að hún ætti að láta af þeirri röngu
breytni. Sumir hneykslast og finnst
það gamaldags og harðneskjulegt
að tala um synd og að eitthvað sé
rangt. En Kristur talaði samt sem
áður oft um hvort tveggja og benti
mönnum á lækningarkraftinn í iðr-
un og fyrirgefningu syndanna.
Góðir foreldrar hafa kjark og
kærleika til að segja börnum sínum
satt þó að þeim líki það ekki alltaf.
Og þrátt fyrir að reynt hafí verið að
gera lítið úr trúverðugleika þjóð-
kirkjunnar og sr. Ragnars Fjalars
var sr. Ragnar eingöngu að segja
hvað Jesús Kristur segii- um hjóna-_.
bandið, í samræmi við kenningi/-
þjóðkirkjunnar. í þessu hafa Þjóð-
kirkjan og sr. Ragnar Fjalar tekið
Krist að fyrirmynd.
Jesús Kristur skipti aldrei út ei-
lífum sannleika fyrir vinsældapóli-
tík og áróðursherferðir samtímans.
Þjóðkh-kjan vill blessa samkyn-
hneigða og þjóna til þeirra sem ein-
staklinga en getur ekki lagt blessun
sína yfir lífsstíl þeirra þar sem orð
Guðs segir að hann sé rangur. Ég
er skírður og fermdur í þjóðkirkj-
unni og ég er stoltur af að vera í
þjóðkirkjunni í dag. Að lokum vil ég ._
þakka sr. Ragnari Fjalari fyrir góða
grein um samkynhneigð.
STEFÁN GUÐJÓNSSON,
Tunguseli 4,109 Reykjavík.
MOON BOOTS
á krakkana
Verð 2.495,-
Stærðir: 19-26
Litir: Bláir og rauðir
- Ullarfóður
- Teflon-vatnsvörn
- Kuldavörn í sóla
Verð 3.995,-
Stærðir: 20-26
Litur: Rauður
- Skandia tex-vatnsvörn
...cifsláttur
þrjotíu
Verð 2.995,-
Stærðir: 25-36
Litir: Gráir, bláir og rauðir
FLESTAR TEGUNDIRNAR ERU MEÐ ENDURSKINI
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR - PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
'ermau/
KRINGLUNNI • SÍMI 588 7230
WWW.LEONARD.IS
Verð 2.995,-
Stærðir: 25-36
Litir: Gráir, bláir og rauðir
- Ullarfóður
- Teflon-vatnsvörn
- Kuldavörn í sóla
of töskum o% skóm frá :
ScJlt^4c^f^JVUX^CAM<r~
VERSACE
ASSESSORIES
Verð frá 6.995,-
Stærðir: 22-40
Litur: Svart
Verð frá 6.995,-
Stærðir: 22-40
Litir: Gráir og rauðir
Hugtakið tvítyngi og notkun þess
Frá Ingibjörgu Hafstað:
MATTHÍAS Frímannsson ski'ifaði í
bréfkorni til blaðsins laugardaginn
25. september um ranga notkun
orðsins tvítyngi í umfjöllun um
nemendur sem ekki hafa íslensku
að móðurmáli í íslenskum skólum.
Af þessu tilefni langar mig til að
benda á eftirfarandi.
I Fréttum af nýbúafræðslu, gefið
út af menntamálaráðuneytinu 2.
apríl 1994, stendur orðrétt: „Marg-
ar skilgreiningar eru til á hugtakinu
- tvítyngi - (bilingualism) en hér er
átt við að tvítyngdir einstaklingar
hafí vald á tveimur tungumálum en
látið liggja milli hluta hvort þeir eru
jafnvígir á bæði málin.“
I nýútgefínni námskrá fyrir
grunnskóla stendur:
„Tvítyngi: Nemandi er tvítyngd-
ur ef hann hefur færni á tveimur
tungumálum. Hér er þó sérstaklega
átt við nemendur sem stunda nám í
skólum á öðru máli en móðurmál-
inu. Fæstir eru jafnvígir á bæði
málin og getur þar munað miklu.
Virkt tvítyngi: Með virku tvítyngi
er átt við það að nota tvö tungumál í
daglegu lífi og lifa í tveimur menn-
ingarheimum, t.d. getur annað mál-
ið verið notað heima en hitt í skól-
anum og meðal félaga.“
Hugtakið - tvítyngi - er notað á
ofangreindan hátt þegar fjallað er
faglega um fræði þau sem í daglegu
tali kallast nýbúafræðsla.
INGIBJÖRG HAFSTAÐ,
kennsluráðgjafi í nýbúafræðslu.
Ókeypis lögfræðiaöstoð
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator, félag laganema