Morgunblaðið - 29.10.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kristinn Sigmundsson syngur 1 Metropolitan-óperunni 1 New York á næsta ári
Gufusprenging f gamalli tilraunaborholu við Selbúð í Krísuvfk siðdegis 1 gær
Grjót
og leir
barst 300
metra
GUFUSPRENGING varð í gamalli
tilraunaborholu í Krísuvík um
þrjúleytið í gær. Sprengingin olli
miklu tjóni á svæðinu, þar sem
göngustígar og göngubrýr eyðilögð-
ust, sem og skúr sem stendur um
150 metra frá holunni. Það er mikil
mildi að enginn skyldi hafa verið á
staðnum er sprengingin varð, en
rúmum hálftíma áður voru starfs-
menn frá Hafnarfjarðarbæ þar við
að setja niður skilti.
Ljóst er að sprengingin hefur
verið mikil þvi grjót og leir barst
um 200 til 300 metra frá holunni.
Benedikt Steingrímsson, eðlis-
fræðingur hjá Orkustofnun, var að
skoða aðstæður á svæðinu ásamt
Guðmundi Ómari Friðleifssyni og
Asgrími Guðmundssyni, jarðfræð-
ingum hjá Orkustofnun. Benedikt
sagði að líklega hefðu flestir hnull-
ungarnir sprungið í loftinu eins og
tívolíbomur, þar sem þeir flugu úr
sjóðandi hvemum út í kalt andrúms-
loftið. Skúrinn, sem notaður var sem
áningarstaður fyrir ferðamenn, ber
vitni um kraft sprengingarinnar, en
hann er gjörónýtur, allur sundurbar-
inn af grjóti. Þá fór stór hnullungur í
gegnum þak skúrsins.
Að sögn Benedikts hefur borhol-
an blásið óbeisluð í áratugi. Hann
sagði að fyrir nokkrum dögum hefði
hún stíílast alveg við toppinn, lík-
lega hefði hún hrunið, og að við það
hefði myndast þrýstingur sem hefði
síðan valdið sprengingunni. Svæðið
í kringum borholuna hefði verið
slétt en eftir sprenginguna væri þar
stór gígur, kraumandi leirpyttur.
Benedikt sagði það ekki vera
Morgunblaðið/RAX
Svæðið í kringum borhoiuna var að mestu slétt en eftir sprenginguna myndaðist stór gígur. Grjót og leir barst 200 til 300 metra og skúr sem sést
í fjarska gjöreyðilagðist.
einsdæmi að gufusprenging yrði í
borholum, en að holan í Krísuvík
hefði verið veikburða frá fyrstu tíð.
Hann sagði að sprenging hefði orðið
í Holu 4 á Kröflusvæðinu fyrir
nokkrum ámm, sem og í Holu 4 á
Nesjavöllum.
Þrír starfsmenn Hafnarfjarðar-
bæjar, þeir Bergsveinn Bergsveins-
son, Sigurður Guðmundsson og
Bergsveinn Guðmundsson, voru við
vinnu á svæðinu rúmum hálitíma áð-
ur en sprengingin varð, en Hafnar-
fjarðarbær hefur unnið að uppbygg-
ingu svæðisins í fjögur til fimm ár.
„Það væri lítið eftir af okkur ef við
hefðum verið hér hálftíma lengur,"
sagði Bergsveinn Guðmundsson.
Bergsveinn Bergsveinsson sagði að
kiukkan rúmlega tvö hefðu þeir ver-
ið að vinna við að setja niður tvö
skilti, annað við bílastæðið en hitt við
holuna, sem sprakk klukkan þrjú.
Það er kaldhæðnislegt að á skiltin
sem þeir voru að setja upp er letrað:
„HÆTTA! Breytilegir hverir."
Að sögn Bergsveins Bergsveins-
sonar voru þeir óvenju fljótir að
setja niður skiltin að þessu sinni.
Skiltin voru nefnilega þráðbein eftir
að þau höfðu verið fest, en venju-
lega fer um klukkutími í viðbót í það
að rétta skiltin af með hallamáli.
„Það er eins og einhver hafi viljað
að við kæmum okkur burt sem
fyrst.“
Mikill heiður
að þessu boði
KRISTINN Sigmundsson óperu-
söngvari syngur á móti hinum
heimsfræga tenór Piacido Dom-
ingo í Metropolitan-óperunni í
New York í apríi á næsta ári.
Kristinn er þriðji fslendingurinn
sem syngur í þessu stærsta og
frægasta óperuhúsi heims, en áð-
ur hefur Maríu Markan og Krist-
jáni Jóhannssyni hlotnast sá heið-
ur. Kristinn mun syngja í óper-
unni Valkyrjurnar eftir Wagner,
sem er önnur óperan í röð fjög-
urra sem tilheyra Niflunga-
hringnum.
Placido Domingo fer með aðal-
tenórhlutverkið og Kristinn með
hlutverk Hunding sem hann lýsir
riu. «om.n k.m;V( i.opkdh nr
THE WORLD ENCYCL0PEDIA
CARS
Nýjar erlendar
bækur daglega
OFCARS
Traust alfræðirit
um bíla frá 1945
til þessa dags.
1.995
Siálfsævisaga The Conran Octopus
Alex Ferguson Decorating Book
■7 Eyniundsson
Austurstræti • Kringlunni
á eftirfarandi hátt: „Hunding er
eiginlega vondi karlinn í óper-
unni. Þótt, hlutverkið sé miðlungs-
stórt er það mjög áberandi og
dramatiskt þannig að það verður
örugglega tekið eftir mér. Ég
syng eiginlega allt mitt hlutverk á
móti Domingo," sagði Kristinn í
gær, en hann er nú staddur við
æfingar í Montpellier í Frakk-
landi. Aðdragandinn að tilboð-
inu var sá, að sögn Kristins, að
hann fékk sér bandarískan um-
boðsmann í fyrrahaust sem átti að
koma honum á markað í Banda-
ríkjunum.
Kristinn segir að það hafí ekki
gengið alltof vel fram til þessa
þar sem hann liafí sjálfur verið
alltof upptekinn. Fyrir um mánuði
hafi hins vegar borist boð frá
Metropolitan-óperunni um að
syngja í sex sýningum á um-
ræddri uppsetningu á Valkyrjun-
um, frá febrúar og fram í maí.
Kristinn reyndi að fá sig lausan
frá samningum sem hann hafði
þegar gert um æfingar á þessum
tíma við BastiIIuóperuna í París.
Það tókst ekki en hann fékk sig
lausan í apríl og þeir hjá
Metropolitan buðu honum þá að
syngja tvær siðustu sýningarnar.
Hann tók því boði og mun hann
því standa á sviðinu í Metropolit-
an 25. aprfl og 2. maí á næsta ári.
Mikill heiður
Kristinn segir að boð frá þeim
sé vissulega staðfesting á frammi-
stöðu sinni í óperuheiminum:
„Mér er mikill heiður sýndur með
þessu boði. í fyrsta lagi að fá að
syngja á móti Placido Domingo og
í öðru lagi að mér skyldu vera
boðnar þessar tvær sýningar þótt
ég gæti ekki sungið afganginn af
sýningunum. Svo er auðvitað mik-
ill heiður að fá að syngja undir
stjórn James Levine, sem er einn
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari ásamt sópransöngkon-
unni Editu Gruberovu í
Munchen í Þýskalandi. Hann
mun syngja á móti Placido
Domingo í Metropolitan-óper-
unni í New York í lok aprfl á
næsta ári.
besti, ef ekki besti, óperuhljóm-
sveitarstjóri heimsins í dag.
Þetta er voða gaman og þó ég
vilji nú ekki vera montinn þá
gerði ég alltaf ráð fyrir því að það
kæmi að þessu einhvern tímann.
Ég hef ekki verið að keppa að
þessu beinlínis en þetta boð hefur
heilmikið að segja fyrir sjálfs-
traustið og hvar ég stend sem
listamaður," segir Kristinn.
Aðspurður um hvort toppinum
sé náð segir hann: „Ég er búinn
að vera að syngja í stærstu húsum
í Evrópu undanfarið og með fólki
sem eru fastagestir í Metropolit-
an-óperunni. Þetta er kannski síð-
asti liðurinn í staðfestingunni á
því að ég eigi heima í þessum
hópi, og að ég sé boðlegur til að
standa við hliðina á þessu fólki.
Mér fínnst ég samt ekkert vera
betri en ég var fyrir tveimur ár-
um. Þetta er spurning um stað-
setningu, heppni og annað,“ sagði
Kristinn.
Vonandi verður framhald
á samstarfínu
Kristinn segist vona að fram-
hald verði á samstarfí hans við
Metropilitan-óperuna. „Þetta lof-
ar mjög góðu, sérstaklega að þeir
vilji fá mig jafnvel þó ég geti ekki
sungið allar sýningarnar. Það
gefur mér vissa vísbendingu. Þeir
em með njósnara út um allt og
eru ekki að ráða mig í sýningar á
móti Domingo án þess að hafa
heyrt í mér eða án þess að þeir
viti hver ég er. Ég á von á því að
þetta leiði af sér frekara sam-
starf. Annars veit maður aldrei,
það er ómögulegt að spá um það,“
segir Kristinn.
Kristinn er bókaður nánast al-
veg næstu tvö til þrjú árin. „Söng-
urinn í Metropolitan var gerður
mögulegur með því að ég losaði
mig út úr nokkrum sýningum sem
ég var búinn að ráða mig í,“ segir
Kristinn. Hann er núna við æfing-
ar á óperunni Evgen Onegin eftir
Tsjajkovskfj í Montpellier í
Frakklandi, sem frumsýnd verður
7. nóvember næstkomandi.
Um miðjan nóvember fer hann
til Munchen í Þýskalandi þar sem
hann syngur í nokkrum sýningum
á ftölsku stúlkunni í Alsír. Að því
búnu kemur hann til Islands þar
sem hann mun eiga stutt frí og á
nýju ári heldur hann til Parísar
þar sem æfingar verða í þann
mund að hefjast fyrir ítölsku
stúlkuna í Alsír í Bastilluóper-
unni. 17. aprfl heijast, svo æfingar
í Metropolitan í New York.