Morgunblaðið - 29.10.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 13
FRÉTTIR
Island hefur full-
* >
Sala SAA- korta hafín vegna meðferðardeildar unglinga
gilt 19 af 182
samþykktum ILO
HERVAR Gunnarsson flutti erindi
um samþykktir Alþjóða vinnumála-
stofnunarinnar, ILO, á þingi Verka-
mannasambandsins í gær og sagði
hann Island, sem gerðist aðili að
stofnuninni árið 1945, aðeins hafa
fullgilt 19 af 182 samþykktum ILO.
Stofnunin er ein af stofnunum Sa-
meinuðu þjóðanna og þar eiga þrí-
hliða samstarf fulltrúar launafólks,
stjórnvalda og atvinnurekenda.
Fulltrúai' ASI eru tveir og er
Hervar annar þeirra. Hann sagði
það vera afstöðu ríkisvaldsins að
taka fullt tillit til afstöðu atvinnu-
rekenda, sem ættu fulltrúa hjá ILO,
og fullgilda engar samþykktir ILO
án samþykkis þeirra. Sagði hann af-
stöðu atvinnurekenda vera þá að
vera með en vilja helst ekki fullgilda
neinar ILO-samþykktir hvort sem
þær hefðu áhrif eða ekki. Hann
sagði afstöðu ASI vera þá að taka
fullan þátt í starfí stofnunarinnar og
styðja fullgildingu samþykkta hvort
sem þær hefðu áhrif hérlendis eða
ekki. Ekki væri að vita nema vinnu-
umhverfið gæti breyst og nauðsyn-
legt væri að sýna öðrum samtökum
launafólks samstöðu. Þá sagði hann
miki! samráð við fulltrúa launafólks í
ILO-nefndum.
Ekki fjallað um heilsugæslu
á vinnustöðum
Hervar nefndi sem dæmi nokkrar
samþykktir ILO sem ekki hefðu
verið fullgiltar svo sem um lág-
marksaldur til vinnu, sem væri ein
grundvallarskuldbindinga hennar.
Hún fæli ekki í sér neinar nýjar
skuldbindingar hériendis og staðið
hefði til í mörg ár að fullgilda sam-
þykktina. Þá sagði hann ekki hafa
verið fjallað um samþykktir frá ár-
unum 1985 og 1986 um heilsugæslu
á vinnustöðum og öryggi við notkun
asbests og ekki heldur um sam-
þykktir um næturvinnu eða vinnu-
aðstæður á hótelum og veitingahús-
um.
Meðal þeirra 19 samþykkta sem
Island hefur fullgilt má nefna um
nauðungarvinnu eða skylduvinnu,
um félagafrelsi og verndun þess, um
beitingu grundvallarreglna um rétt
til að stofna félög og semja sameig-
inlega og samþykkt er varðar mis-
rétti með tilliti til atvinnu eða starfa.
Morgunblaðíð/Ámi Sæberg
Lokaátak er haflð í fjáröflun fyrir nýrri 1.600 fermetra meðferðardeild SÁÁ fyrir ungt fólk á sjúkrahúsinu
Vogi, með sölu SÁÁ- korta.
Ríkið taki þátt í að auka kaupmátt
Náið samráð verði
við öll aðildarfélögin
í ÁLYKTUN 20. þings Verka-
mannasambands Islands um
kjaramál segir meðal annars að
„grundvöllurinn fyrir því að kom-
andi kjarasamningar skili auknum
kaupmætti hljóti að vera sá að rík-
isstjórn Davíðs Oddssonar gangi
fram fyrir skjöldu og tryggi launa-
fólki á almennum vinnumarkaði
þær aðstæður að hægt verði að
jafna kjör þess við þá hópa sem
ríkisstjórnin hefur borið á hönd-
um sér á því samningstímabili sem
er á enda.“
Kjaramálaályktunin var sam-
þykkt samhljóða á þinginu í gær
og er þar áréttað að þrátt fyrir að
sambandið fari ekki fram sem ein
heild í komandi kjarasamningum
beri að sjá til þess að náið samráð
verði milli aðildarfélaga þess.
„Samstaða er styrkur sambands-
ins í hverju formi sem hún er
fólgin. Þingið felur framkvæmda-
stjórn sambandsins að vera í
nánu samráði við öll aðildarfélög
þess í komandi kjarasamningum."
Þá segir í ályktuninni að það sem
felast þurfi í samkomulagi um
breytingu á viðræðuáætlun eigi að
vera krónutöluhækkun á kauptaxta.
Slík hækkun muni koma þeim mest
til góða sem taki laun eftir þessum
sömu töxtum og njóti ekki launa-
skriðs eða annarra greiðslna um-
fram taxta.
Hervar Gunnarsson kynnti
ályktunina er hún var lögð fram við
síðari umræðu á þinginu. Pétur
Sigurðsson sagði hana væga og
jafnvel veimiltítulega. Taldi hann
að álykta hefði þurft skeleggar og
slæmt væri að þurfa að fara með
löndum en virða yrði aðstæður sem
ríktu nú innan sambandsins. Hann
sagði að verkalýðshreyfingunni
væri jafnan mikill vandi á höndum í
því hvernig ætti að ná fram kröfum
sínum, minnti á að ekkert fengist
án fóma og sagði að lítill hópur
gæti ekki sótt neitt til vinnuveit-
enda.
*
Alagningarskrár með gjöldum lögaðila í
Reykjavík og á Reykjanesi lagðar fram
Landssíminn ber
rúman milljarð
í opinber gjöld
LANDSSÍMI íslands ber hæst
heildargjöld lögaðila í Reykjavík og
greiðir alls 1.032 milljónir kr. í opin-
ber gjöld samkvæmt álagningar-
skrá skattstjórans í Reykjavík fyrir
álagningarárið 1999, sem lögð verð-
ur fram á morgun. Eimskipafélag
Islands ber næst hæstu gjöldin eða
tæpar 177 millj. kr. Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli greiðir mest á
Reykjanesi eða rúmar 164 millj. kr.
Samkvæmt lista skattstjórans í
Reykjavík koma eftirtaldir lögaðilar
næstir í röðinni yfir greiðendur op-
inberra gjalda: Olíufélagið hf.
156.608.251 kr., Búnaðarbanki ís-
lands hf. 152.230.047 kr„ Hekla hf.
143.264.217 kr„ Sjóvá-AImennar
ti-yggingar hf. 123.128.987 kr„ Lýs-
ing hf. 122.545.989 kr„ Hlutabréfa-
sjóðurinn Auðlind hf. 109.721.736
kr„ Vátryggingafélag íslands hf.
107.631.369 kr. og Olíuverslun ís-
lands hf. 106.172.674 kr.
Á Reykjanesi greiðir Þróttur ehf.
Lokaátak
/ (*• S • • nrt
i ijaronun
LOKAÁTAK í fjáröflun fyrir
nýja meðferðardeild SÁA fyrir
ungt fólk á sjúkarhúsinu Vogi
er hafíð með sölu SÁÁ korta en
þau verða til sölu í verslunum,
apótekum, bönkum og á bensín-
stöðvum.
Þórarinn Tyrfingsson yfír-
læknir sjúkrahússins, segir að
með tilkomu deildarinnar verði
hægt að selja upp göngudeild-
arþjónustu, þar sem hægt verð-
ur að sinna betur unglingum.
„Foreldrar og unglingar geta
þá komið á spítalann hvenær
sem er og fengið vandann
greindan og reynt að byija að
takast á við hann,“ sagði hann.
„Enn fremur er hægt að
styðja unglinga eftir meðferð
frá göngudeildinni og þar verð-
ur einnig hægt að hjálpa for-
eldrunum. Maður skyldi ekki
vanmeta þann vanda sem þau
eru í. Oft líður þeim mjög illa.
Þannig að með göngudeildar-
þjónustunni erum við einnig að
sinna þessum þætti. Síðan verð-
ur sérstök deild fyrir unglinga,
þar sem mun meiri áhersla
verður lögð á greiningu og að
gæta að heilsu þeirra."
Deildin er ætluð unglingum á
aldrinum 15-19 ára. „Það eru
hvorki meira né minna en rúm-
lega 200 unglingar, sem koma
til okkar á ári,“ sagði Þórarinn.
„Væntanlega munum við ráða
betur við þennan fjölda og mun
fleiri eftir að deildin hefur ver-
ið tekin í notkun.“ Nýja deildin
verður fyrst og fremst grein-
ingarstöð þaðan sem ungling-
arnir útskrifast eftir tíu daga
og þá yfír á aðrar meðferðar-
stöðvar SÁÁ, þar sem sérstök
meðferð tekur við. „Það verður
að hafa hraðar hendur því tíu
dagar eru óratími að mati ung-
linga," sagði hann.
næst mest opinber gjöld á eftir
Vamarliðinu eða 154 millj., Islensk-
ir aðalverktakar hf. greiða 154 millj.
og P. Samúelsson ehf. greiðir 135,6
milljónir.
Gjöld hækka um 20,7%
milli ára á Reykjanesi
Heildarfjöldi gjaldenda í Reykja-
vík skv. álagningarskrá er 4.661.
Samtals nema álögð gjöld þeirra
8.263 mOlj. kr. Á Reykjanesi bera
2.180 lögaðilar opinber gjöld skv.
álagningarskrá. Alagning á félög og
aðra lögaðila nemur alls 4.408 millj.
kr. en á seinasta ári nam hún 3.650
millj. kr. og hefur því hækkað um
20,76%. Ekki liggur fyrir saman-
burður við gjöld lögaðila í Reykja-
vík á seinasta ári.
Álagningarskrár með gjöldum
lögaðila í þessum tveimur skattum-
dæmum verða lagðar fram í dag og
liggja frammi til og með 12. nóvem-
ber næstkomandi.
Til leigu!
Til leigu eru allt að 500 m2 á efri hæð Húsasmiðjxmnar
á Lónsbakka. Um er að ræða vel búna skrifstofuaðstöðu
með góðum síma- og tölvulögruun. Nánari upplýsingar
veitir Jón Eggert Amason verslunarstjóri í síma 460 3500.
HUSASMIÐJAN
Sími 460 3500 • www.husa.is
Efnahagsbrota-
deild Ríkislög-
reglustjóra
Rannsakað
hvort13
listaverk í
eigu FBA
eru fölsuð
EFNAHAGSBROTADEILD
Ríkislögreglustjóra hefur nú til
rannsóknar hvort 13 listaverk í
eigu Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins eru fölsuð. Að sögn
Bjama Armannssonar, for-
stjóra FBA, vaknaði snemma á
þessu ári grunur um að ein-
hver þeirra listaverka sem eru
í eigu bankans kynnu að vera
fölsuð.
I framhaldi af því voru sér-
fræðingar fengnir til að meta
hvort um fölsuð verk væri að
ræða en umrædd listaverk eru
merkt þjóðþekktum listamönn-
um. „Rannsóknarlögreglan
hafði svo samband við okkur og
vildi fara yfir þetta. Eru þeir
með nokkrai- myndir frá okkur
í rannsókn,“ sagði Bjami.
Listaverkin voru keypt á
timabilinu 1990-1995
Að sögn hans hefur Fjárfest-
ingarbankinn ekki fest kaup á
listaverkum á starfstíma bank-
ans og em umrædd verk hluti
af stærra safni mynda sem
bankinn eignaðist við sammna
fjárfestingarlánasjóðanna á
sínum tíma. Voru umrædd
listaverk, sem gmnur leikur á
að séu fölsuð, keypt á tímabil-
inu frá 1990-1995.
Aðspurður sagði Bjami að
ekki hefði verið metið saman-
lagt kaupverð umræddra verka
en sagði að þarna væri um að
ræða tiltölulega litlar fjárhæð-
ir.